Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1998, Side 2
2
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998 JL>V
frettir
Stærstu matvörukaup íslandssögunnar
Hagkaup slegiö Kaupþingi
og Fjárfestingarbanka
- félagiö fer á almennan hlutabréfamarkað
Börn Pálma Jónssonar, stofnanda
Hagkaups, og ekkja hans, Jónína
Gísladóttir, gengu í gær frá sölu á
fjölskyldufyrirtækinu Hagkaupi.
Verðbréfafyrirtækið Kaupþing og
hinn nýstofnaði I’járfestingarbanki
atvinnulífsins keyptu hvort um sig
37,5% í fyrirtækinu. Hin 25% keypti
Gaumur hf. en það er í eigu Jóhann-
esar Jónssonar í Bónusi og sonar
hans, Jóns Ásgeirs, sem nú verður
forstjóri Hagkaups. Óskar Magnús-
son, fráfarandi forstjóri Hagkaups,
verður stjórnarformaður hins nýja
fyrirtækis. Salan felur einnig í sér að
Hagkaup verður sameinað Bónusi, þó
með því skilyrði að Bónusverslanim-
ar verða til áfram í núverandi mynd.
Nýkaupsverslanirnar fylgja einnig
með í kaupunum. Sala Hagkaups er
tvimælalaust stærsta sala á fyrirtæki
sem átt hefur sér stað í íslandssög-
unni. Hagkaup var stofnað 1959 sem
póstverslun og er nú stærsta mat-
vöruverslanakeðja landsins með ár-
lega veltu upp á 11 milljarða.
Dómur í Sigurðarmálinu:
Veldur sárum
vonbrigðum
DV, Ósló:
„Þessi niðurstaða veldur mér sár-
um vonbrigðum. Ég taldi mig gera allt
rétt á sínum tíma en rétturinn er ekki
á sama máli,“ sagði Jan Henrik Erik-
sen, sjóliðsforingi í norsku strand-
gæslunni, en hann ákvað að Sigurður
VE skyldi færður tU hafnar í fyrra og
stjómaði aðgerðum.
Eriksen sagðist mundu skoða dóm-
inn gaumgæfilega og strandgæslan
yrði í framtíðinni að haga gerðum
sínum i samræmi við hann.
„Ég fylgdi bara reglunum en
kannski túlkaði ég þær of strangt. Eft-
ir á er hægt að segja að þetta mál
hefði mátt leysa strax á miðunum,"
sagði Eriksen.
Norsk yfirvöld vUja annars biða
með viðbrögð við dómnum þar sem
hann er nýr og ekki hefur unnist tími
tU að skoða hann gaumgæfilega. -GK
^ Verðstríð:
Obreytt
ástand
Hiö lága verð stórmarkað-
anna er enn stöðugt. Að sögn
Þórðar Þórissonar, innkaupa-
stjóra matvöru í Hagkaupi, sit-
ur við það sama.
„Það er óbreytt staða. Menn
hljóta að skoða hækkanir þegar
þeir skoða kostnaðarveröið.
Miðað við útsöluverð í dag
gengur þetta ekki til langs
tíma,“ segir Þórður. -sf
Georg Lárusson:
Ekki vitað til
menn hafi nýtt
sér heimildir
DV spurði Georg Kr. Lárus-
son, settan lögreglustjóra í
Reykjavík, hvort lögreglumenn
nýttu sér þá heimild í kjara-
samningum að feUa niður mat-
artíma og hætta fyrr eða að fá
matartímann borgaðan.
„Það upplýsist að ekki er vit-
að til að lögreglumenn hjá lög-
reglustjóraembættinu í Reykja-
vík hafi nokkum tíma nýtt sér
þessa heimild,“ segir Georg.
Tímamótahandaband: Þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, nýbakaður forstjóri Hagkaups, og Óskar Magnússon, sem nú
verður stjórnarformaður Hagkaups, takast í hendur til marks um upphaf starfa í nýju Hagkaupsfyrirtæki sem felur í
sér bæði Hagkaup og Bónus. Fyrirtækið verður líklega sett á hlutabréfamarkað síðla árs. DV-mynd ÞÖK
Kaupverðið ieyndarmál
Þrátt fyrir tilkynninguna í gær er
ýmislegt á huldu um kaupverð Hag-
kaups og hvernig staðið var að fjár-
mögnun kaupanna. Hvorki Sigurður
Gísli Pálmason, fráfarandi stjómar-
formaður Hagkaups, Óskar Magnús-
son forstjóri né Bjami Ármannsson,
bankastjóri Fjárfestingarbankans,
vildu láta neitt uppi um kaupverðið
og samið hefur verið um að það
verði ekki gert. Fjármálaspekingar
giska flestir á að kaupverðið sé ná-
lægt 6 milljörðum og sé það rétt fær
fjölskyldumeðlimur Hagkaupsfjöl-
skyldunnar 1,2 milljarða í sinn hlut.
Að sögn Bjama Ármannssonar varð
einnig samkomulag um að láta ekk-
ert uppi um hvernig og hvaðan Fjár-
festingarbankinn og Kaupþing fengu
fjármagn til kaupanna. Þá er heldur
ekkert látið uppi um hvort þessi fyr-
irtæki hafi þegar tryggt sér nýja
kaupendur að Hagkaupi. „Það eina
sem ég vil segja um þetta er að félag-
ið fer ekki á hlutabréfamarkað fyrr
en seinna á árinu. Áður en það ger-
ist fer fram flókið ferli samruna þar
sem margir þættir koma til skoð-
unar,“ sagði Bjami. Aðspurður um
hvort erlendir aðilar kæmu aö kaup-
unum sagði Bjarni erlenda sem ís-
lenska aðila eiga kost á að kaupa
hlutabréf, rétt eins og gengur á al-
menninn hlutabréfamarkaði.
Áhyggjur af samkeppni
Með sameiningu Bónuss og Hag-
kaups í eitt verslunarfélag hafa
vaknað spumingar um hvort fá-
keppni á markaðnum sé ekki komin
á hættulegt stig og að einokun sé i
aösigi. Jón Ásgeir Jóhannesson, nýr
forstjóri Hagkaups, þvertók fyrir
slíkt: „Það er lífsnauðsynlegt fyrir
bæði Hagkaup og Bónus að vera í
samkeppni. Ég vil benda á í þessu
sambandi að aðgengi að matvöru-
markaðnum er mjög greitt og ef við
erum ekki á varðbergi munu aörir
aðilar einfaldlega taka af okkur
markaðinn. Þegar Hagkaup eignað-
ist hlut í Bónusi 1992 vom uppi radd-
ir um að að nú færi samkeppnin
minnkandi. Ég tel hins vegar að
reynslan hafi orðið önmu-.“ -kjart
Helga Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Kvennahlaups ÍSÍ, til
hægri á myndinni, og Anna Möller
voru önnum kafnar í gær við undir-
búning Kvennahlaupsins. Hlaupið
verður í níunda sinn um allt land
sunnudaginn 21. júní. Kvenna-
hlaupið er haldið á 82 stöðum um
allt land. Fjölmennasta hlaupið er í
Garðabæ. Þar hlupu 8500 konur í
fyrra. Útlit er fyrir að u.þ.b. 21-
23.000 konur verði með í ár.
DV-mynd ÞÖK
Kvennahlaupið 1998
Bjarni geimfari fór í gönguferö um gamla hverfið sitt:
Frábær tilfinning
Bjarni Tryggvason segist vera búinn að hitta um 80
skyidmenni sín á íslandi síðustu daga. DV-mynd BG
„Það var frábær tilfinning að
koma aftur á bernskuslóðirnar í
Reykjavík. Ég bjó í Hólmgarði þegar
ég var lítill. Ég gekk um götuna og
hverfið og naut þess að hugsa til
baka. Það rifjaðist svo margt upp
fyrir mér eins og þeir staðir sem ég
og krakkarnir í hverfinu lékum okk-
ur á,“ segir Bjarni Tryggvason geim-
fari í samtali við DV í gær.
Bjami og fjölskylda hans dvelja á
Laufásveginum meðan þau eru í
Reykjavík. Þar gafst þeim tími í gær
til að hvíla sig eftir annasama fyrstu
dagana á íslandi.
„Við erum sannarlega búin að
gera margt þessa fyrstu daga. Við
tókum þátt í hátíðahöldunum 17.
júní. Það var mjög gaman, bæði
fyrir mig og konuna mína og ekki
síst börnin mín. Þau skemmtu sér
konunglega. Við höfum fariö að
veiða og munum fara á hestbak i
dag. Við skoðuðum líka Þingvelli
og munum síðan skoða Gullfoss og
Geysi um helgina. Þetta eru búnir
að vera mjög
ánægjulegir
dagar og ég er
sannfærður um
að við munum
koma aftur til
íslands fljót-
lega. Ég er bú-
inn að hitta um
80 skyldmenni
mín síðustu
daga. Ég man
eftir sumum en
öðrum ekki. Ég
geri ráð fyrir að
hitta fleiri
skyldmenni
þegar ég fer til
ísafjarðar og Dalvíkur í næstu
viku,“ segir Bjarni sem er án efa
umtalaðasti maður á íslandi þessa
dagana. -RR
stuttar fréttir
Halldór Ás-
grímsson, formað-
in Framsóknar-
flokksins, hefur
verið beðinn um
að miðla málum í
deilum innan Fé-
lags ungra fram-
sóknarmanna. Þar kljást þeir Árni
Gunnarsson og Þorlákur Trausta-
son en Ámi hefur verið sakaður
um að hafa rangt við í nýafstöðnum
formannskosningum.
ísólfur formaöur
Á aðalfundi Vestnorræna ráðs-
! ins, sem haldinn var nýlega á
Grænlandi, var ísólfur Gyifi Pálma-
son alþingismaður kosinn formað-
ur ráðsins. í ráðinu sitja 18 þing-
menn írá Grænlandi, íslandi og
Færeyjum.
Ráöherrar funda
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
: isráðherra sótti á dögunum árlegan
■ fúnd heilbrigðis- og félagsmálaráð-
j herra í Danmörku. Á fundinum var
| m.a. ákveðið að meinatæknar og
I talmeina- og fótaaðgerðafræðingar
j fengu aðild að non’ænum samningi
; um gagnkvæma viðurkenningu á
> menntun heilbrigðisstétta.
Nígeríumenn áffam
Nígeríumenn urðu í gær þriðja
þjóðin til að tryggja sér sæti í 16
I hða úrslitunum á HMþegar þeir
I lögðu Búlgara að velli, 1-0. Sigur-
; markið skoraði Victor Ikpeba,
j' knattspymumaður ársins í Afríku,
j í fyrri hálfleik.
Margmiölunarverkefni
Menntamála-
É ráðherra hefur
i veitt átta milljónir
• króna til sameigin-
j legs verkefnis
j framhaldsskóla á
1 sviði upplýsinga-
: tækni og marg-
| miðlunar í námi og kennslu. 18
I milljónum króna að auki var ný-
?: verið úthlutað til ýmissa verkefna
I i framhaldsskólum og til fullorðins-
fj fræðslu.
íslenskt 911
Neyðarlínan hefúr gert þáttaröð
I sem sýnd verður á Stöð 2 og ríkis-
I sjónvarpinu í sumar. Þar eru sett á
svið óhöpp sem geta átt sér staö í
j raunveruleikanum og er sýnt
J hvemig Neyðarlínan bregst við.
Þættimir munu bera heitið 1-1-2
Neyðarlínan og verða sýndir í rik-
j issjónvarpinu á fimmtudögum og
i; Stöð 2 á sunnudögum.
Dæmdur
Stjómarformaður og fi-am-
j kvæmdastjóri útgáfúfyrirtækjanna
; Steina hf. og Vínyls hf. var á
j fimmtudag dæmdur af Hæstarétti
til þess að greiða 2,2 milljónir í
sekt vegna brota á lögum um virð-
isaúkaskatt. Fyrirtækin stóðu ekki
skil á virðisaukaskatt á níu milljón-
um króna á árunum 1992 og 1993.
Bylgjan sagði frá.
Andmælir
Ásta Möller,
formaður Félags
íslenskra hjúkr-
unarfræðinga,
; hefur mótmælt
orðum Daviðs
Oddssonar forsæt-
I isráðherra en
: hann efaðist um
;; lögmæti uppsagna hjúkrunarfræð-
i inga. Ásta segist ekki sammála
1 þeirri fúllyrðingu Davíös að hjúkr-
I unarfræðingar hafi hlaupist undan
j undirrituðum kjarasamningi.
800 hross
Líklega munu 800 keppnishross
I úika þátta í Landsmóti hestamanna
j sem fer fram á Melgerðismelum í
j júlí. Beinar sjónvarpsútsendingar
! verða ffá mótinu og er þaö í fyrsta
; sinn sem slíkt er gert á landsmóti.
Bjartsýni
Niðurstöður vorleiðangurs rann-
sóknarskipsins Bjama Sæmunds-
sonar sýna að átumagn við ísland
er yfir meðaltali. Þetta gefur góðar
vonir um vaxtarskilyrði nytja-
stofna viö ísland. Viðskiptavefúr
Vísis greindi frá. _jhþ