Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1998, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1998, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ1998 Verðlaun í átaki til atvinnusköpunar: Smáhús og servíettuhringir úr beitukúngi DV. Vesturlandi:___________________ Þær Hugrún ívarsdóttir og Lára Gunnarsdóttir í Stykkishólmi tóku þátt í minjagripasamkeppni sem Átak til atvinnusköpunar hélt í samstarfi við Handverk og hönnun. Markmiðið með samkeppninni var að efla nýsköpun og fá meiri fjöl- breytni í minjagripi fyrir ferða- menn. Alls bárust tæplega 300 tillög- ur í keppnina. Veitt voru þrenn verðlaun og auk þess sérstök viður- kenning fyrir athyglisverðustu til- löguna úr endurunnu/nýttu efni. Hugmynd Láru, smáhús, fékk fyrstu verðlaun í samkeppninni. Húsin hennar Láru eru í íslensku birki. „Ég hef lengi haft áhuga á húsum, enda byrjaði ég að læra arkitektúr á sínum tíma. Þetta er ekki ný hug- mynd. Hús sem minjagripur er eitt- hvað sem maður sér cills staðar í út- löndum en hingað til hefur þetta ekki sést hér á íslandi. Mér fannst þetta kjörin hugmynd, að minnast sögu bæjanna með húsunum. Húsin eru ekki orðin sýnileg fyrr en síð- ustu árin þegar menn fara að gera upp þessi gömlu hús úti um allt land. Þau hafa sums staðar verið óprýði en um leið og þau eru tekin í gegn er þetta ein helsta prýði hvers bæjar og það sem ferðamenn taka helst eftir í bæjunum. Vilja gjarnan taka þau með sér heim til minningar um bæinn,“ sagði Lára í samtali við DV. Hún skrifaði sögu þessara húsa á bakhlið þeirra, fannst það nauðsyn- legt. „Ég hugsaði þetta ekki bara þannig að ég væri að taka fyrir minn heimabæ, Stykkishólm, held- ur væri hægt að finna þessi hús víða um land. Ég sé ekki fyrir mér að ég taki allt landið með trompi einn, tveir og þrír. Þetta þarf svolít- inn undirbúning til að koma þessu í framleiöslu," sagði Lára enn frem- ur. Fór að fikta Athyglisverðasta tillagan úr endurunnu/nýttu efni kom frá Hug- rúnu ívarsdóttur en hún sendi inn servíettuhringi úr beitukóngi. „Hugmyndin kviknaði þannig að það er svo mikið af alls konar skel og dóti héma sem hefur ekki verið nýtt í neitt. Ég velti því fyrir mér hvort hægt væri að gera eitthvað sniðugt úr þessu. Við fórum að fikta og á endanum varð þetta úr. Þó að ég sé ekki byrjuð enn á framleiðslu þá hefur eftirspurn verið mikil. Ég er bíða eftir að beitikóngsveiðar hefjist hérna upp á að fá kuðunga. Þeir sem eru í þessu bíða bara eftir að Kóreumarkaður opnist. Það eru nokkrir aðilar búnir að biðja um þetta, til dæmis þeir hjá norska hús- inu í Stykkishólmi, Máli og menn- ingu í Reykjavík og svo ætla ég að selja þetta hér heima í gegnum síma,“ sagði Hugrún við DV. Sýning með munum úr keppninni fer víða um landið á næstunni. -DVÓ Athugið Nemendur úr Spartan flugskólanum Spartan flugskólinn býður þeim sem útskrifast hafa frá skólanum til endurfunda á Flughótelinu í Keflavík frá kl. 18.00 -21.00 laugardaginn 27. júní 1998. Komið og hittið gamla vini og eignist nýja. Hittið fulltrúa Spartan skólans sem verður á staðnum. Gjörið svo vel að senda okkur staðfestingu með tölvupósti, ef þið sjáið ykkur fært að mæta: spartanaero@mail.webtek.com, með faxi 001-918-831-5234 eða með því að hringja í síma 001-918-836- 8820 East Pine Street Tulsa, Oklahoma 74115 USA Heimsækið okkur á veraldarvefnum: www.spartanaero.com www.visir.is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR Hugrún, til vinstri á myndinni, og Lára með sýnishorn af handverki þeirra, servíettuhringjum og smáhúsum. DV-mynd Birgitta Bragadóttir NYOG rníi-Tn HUGMYND T I Þarsem ferskleikinn býr Garðabæ, Mosfellsbæ, Kjörgarði, Seltjarnarnesi, Grafarvogi, Hólagarði og Kringlunni. www.nykaup.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.