Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1998, Blaðsíða 46
■Hlfmæli____
Til hamingju
með afmælið
20. júní
90 ára
Katrín Sólbjartsdóttir,
Fannafold 158, Reykjavík.
75 ára
Þorsteinn Bjömsson,
Kolgröf, Lýtingsstaðahreppi.
Guörún Guðmundsdóttir,
Þormóðsgötu 22, Siglufirði.
Sigriður Tryggvadóttir,
Lundargötu 3, Akureyri.
70 ára
Eðvarð Kristjánsson,
GuUsmára 7, Kópavogi.
60 ára
Guðmundur Ágúst Jónsson,
Bankastræti 14, Reykjavík.
Bárður Ragnarsson,
Norðurbraut 35A,
Hafnarfirði.
50 ára
Marinó Pétur Hafstein,
Skildinganesi 9, Reykjavík.
Sævar Ámason,
Gnoðarvogi 66, Reykjavík.
Hafdis Sigurgeirsdóttir,
Logafold 163, Reykjavík.
Ása Margrét Ásgeirsdóttir,
Löngubrekku 10, Kópavogi.
Michael Anthony Claxton,
Vesturgötu 146, Akranesi.
Reynald Smári Gunnarsson,
Grenihlíð 20, Sauðárkróki.
Hanna Stefánsdóttir,
Heiðargerði 7, Húsavík.
Vigdís Þorsteinsdóttir,
Syðri-Hömrum 2, Ásahreppi.
40 ára
Sólveig Þóra Jónsdóttir,
Baldursgötu 22A, Reykjavík.
Davíð Bjömsson,
Dalseli 17, Reykjavík.
Sigurður Unnar Þorleifsson,
Mýrarseli 7, Reykjavík.
Erla K. Kjartansdóttir,
Grófarsmára 27, Kópavogi.
Sigríður Ema
Valgeirsdóttir,
Bröttuhlíð 4, Mosfellsbæ.
Sigrún Jónsdóttir,
Naustabúð 8, Hellissandi.
Birgir Thomsen Karlsson,
Fjarðargötu 30, Þingeyri.
LAUGARDAGUR 20. JUNI1998
Páll B. Helgason
Páll Bergsson Helgason læknir,
Grænatúni 8, Kópavogi, verður sex-
tugur á mánudaginn.
Starfsferill
Páll fæddist í Svíþjóð en ólst upp
í Reykjavík frá tveggja ára aldri.
Hann gekk í Vesturbæjarskólann í
Reykjavík, lauk stúdentsprófi frá
MR 1959, stundaði nám í læknis-
fræði við HÍ og lauk þaðan cand.
med., et chir.-prófi 1967.
Páll var námskandídat á Land-
spítalanum, Landakotsspítala og
Borgarspítalanum þar sem hann var
einnig við framhaldsnám á svæfing-
ardeild 1968-70. Hann stundaði
framhaldsnám i orku- og endurhæf-
ingarlækningum við Mayo Gradu-
ate School of Medicine í Rochester í
Minnesota 1970-74. Páll er viður-
kenndur sérfræðingur í orku-og
endurhæfingarlækningum í Banda-
ríkjunum og á íslandi og hefur sótt
námskeið og ráðstefnur á því sviði í
Bandaríkjunum, Bretlandi og víðar.
Páll var lektor í líffærafræði við
HÍ 1974-84, stundakennari í læknis-
fræðilegri endurhæfingu við Hl um
árabil frá 1975 og sömu-
leiðis stundakennari
við Nýja hjúkrunarskól-
ann veturinn 1975-76.
Páll var sérfræðingur
í orku- og endurhæfing-
arlækningum á Land-
spítalanum 1974-81 og
yfirlæknir endurhæf-
ingardeildar Landspít-
alans 1981-94, sérfræð-
ingur í endurhæfingar-
lækningum við öldrun-
ardeild Landspítalans
og Vífilsstaðaspítalann
1994-96, settur yfirlækn-
ir í endurhæfingu aldraðra við
Lénssjúkrahúsið í Sundsvall í Sví-
þjóð 1997 og héraðslæknir á Ólafs-
firði frá ársbyrjun 1998.
Páll hefur verið ráðgefandi lækn-
ir ýmissa félaga og stofnana, t.d.
Hjálpartækjabankans og íþróttasam-
bands fatlaðra, sem Páll var varafor-
seti fyrir 1979-84. Þá hefur Páll starf-
að í ýmsum félögum og nefndum.
Fjölskylda
Páll kvæntist 7.4. 1962 Sigurlaugu
Ragnheiði Karlsdóttur,
f. 20.6. 1943, d. 7.4. 1995,
lögregluvarðstjóra í
Reykjavík. Hún var
dóttir Karls Guðmunds-
sonar, lögregluvarð-
stjóra í Reykjavík, og
k.h., Gunnlaugar
Charlotte Eggertsdóttur
húsmóður en þau eru
bæði látin.
Böm Páls og Sigur-
laugar era Ama Hrönn,
f. 13.3.1961, fatahönnuð-
ur og sjúkraliði í Kaup-
mannahöfn; Gunnlaug
Dröfn, f. 20.8. 1969, bókmenntafræð-
ingur og starfsmaður hjá íslands-
flugi; Ragnheiður Líney, f. 27.11.
1972, háskólanemi og starfsmaður
DV í Reykjavík; Snorri Karl, f. 8.7.
1975, nemi og starfsmaður við Skála-
tún.
Systkini Páls eru Líney Hallfríð-
ur, f. 22.6. 1949, skólastjóri á Raufar-
höfn; Jóhannes, f. 25.6. 1946, útibús-
stjóri SPRON, búsettur í Kópavogi.
Foreldrar Páls: Helgi Magnús
Bergsson, f. 25.1. 1914, d. 23.8. 1978,
hagfræðingur og forstjóri, og Líney
Jóhannesdóttir, f. 5.11. 1913, rithöf-
undur.
Ætt
Helgi var sonur Bergs, skipstjóra
í Reykjavík, Pálssonar og k.h.,
Helgu Magnúsdóttur húsmóður.
Líney er systir Jónu Kristjönu,
móður Benedikts Ámasonar leik-
stjóra. Líney er dóttir Jóhannesar
Bcddvins Sigurjónssonar, óðalsb. á
Laxamýri, bróður Jóhanns skálds
og Snjólaugar, móður Sigurjóns,
fyrrv. lögreglustjóra, og Ingibjargar,
móður Magnúsar Magnússonar,
fyrrv. rektors Edinbogarháskóla. Jó-
hannes var sonur Sigurjóns, dbrm. á
Laxamýri, Jóhannessonar, og Snjó-
laugar Þorvaldsdóttur. Móðir Lín-
eyjar var Þórdís Þorsteinsdóttir.
Páll tekur á móti vinum og
vandamönnum í Félagsheimili
Kópavogs sunnudaginn 21.6. milli
kl. 18.00 og 20.00.
Páll afþakkar vinsamlega blóm og
gjafir en þætti vænt um að fólk léti
fremur andvirðið renna í söfnun
fyrir tónlistarhús í Reykjavík.
Páll Bergsson Helgason.
Guðrún Jóhannesdóttir
Guðrún Jóhannesdóttir, fulltrúi í
Kringluútibúi Búnaðarbankans,
Flétturima 21, Reykjavík, verður
fertug á morgun.
Starfsferill
Guðrún fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún hóf störf hjá Bún-
aðarbankanum í Reykjavík haustið
1977 og starfaði við bankann í
Reykjavík og síðar á Blönduósi.
Hún flutti siöan aftur til Reykjavík-
ur, hefur verið starfsmaður Búnað-
arbankans í Reykjavík frá 1986 og
er nú fulltrúi í Kringluútibúi bank-
ans.
Fjölskylda
Guðrún giftist á Blönduósi 2.5.
1979, Unnari S. Friðlaugssyni, f.
18.5. 1927, á Litlu-Völlum í Bárðar-
dal. Hann er sonur Friðlaugs Tóm-
assonar og Sigríðar Daníelsdóttur
landpósts. Guðrún og Unnar skildu
1986.
Böm Guðrúnar og Unnars era
Davíð Brár, f. 9.9. 1979; Hanna
Sigga, f. 14.4. 1981.
Sambýlismaður Guðrúnar frá
1988 var Stefán Egill Þorvarðarson,
f. 19.6. 1948, á Söndum í Miðfirði.
Hann er sonur Þorvarðar Júlíusson-
ar, bónda frá Hítamesi á Mýrum, og
Sigrúnar Kristinar Jónsdóttur frá
Skinnastöðum í Austur-Húnavatns-
sýslu. Guðrún og Stefán Egill
bjuggu í Reykjavík og síöar á Kjal-
arnesi en þau slitu samvistum 1995.
Böm Guðrúnar og Stefáns Egils
era Stefán Gunnar, f. 9.11. 1989,
grunnskólanemi; Aldís Inga, f. 28.3.
1995.
Systkini Guðrúnar em Helgi Vil-
berg, f. 22.5. 1952, bóndi á Arnar-
drangi í Landbroti, kvæntur Sigur-
dísi Þorláksdóttur; Sigurður Svan-
berg, f. 11.4. 1954, verkstjóri hjá
Halldóri Jónssyni, kvæntur
Kristrúnu Erlendsdóttim; Margrét,
f. 26.12. 1960, dagmóðir í Reykjavík,
gift Kára Ólafssyni; Páll, f. 15.7.
1964, iðnaðarmaður í Reykjavík,
kvæntur Helgu Kristínu Sigurðar-
dóttur; Ragnheiður Guðbjörg, f. 7.12.
1967, húsmóðir í Reykjavík, gift is-
leifi Erlingssyni.
Foreldrar Guðrúnar:
Jóhann Valdimar Guö-
mundsson, f. 22.4. 1921,
strætisvagnastjóri í
fjörutiu ár, og Kristjana
Sigríður Pálsdóttir, f. 7.3.
1931 i Reykjavík, starfs-
maður hjá SVR.
Ætt
Jóhann er fæddur í
Gilhaga í Hrútafirði, son-
ur Guðmundar Þórðar-
sonar frá Grænumýrar-
tungu, og Ragnheiðar
Guðbjargar Sigurðardóttur frá
Junkarargeröi í Höfhum Hieronym-
ussonar. Móðir Ragnheiöar var Jó-
hanna Jóhannesdóttir frá Litla-
Gerði í Hvolhreppi Bergsteinssonar
en sá Jóhannes var bróðir Eiríks,
fóðurafa sr. Franks M. Halldórsson-
ar, pr. í Nessókn, og Bergsteins, afa
Sigurðar Gizurarsonar, sýslumanns
á Akranesi, og Bergsteins Gizurar-
sonar.
Guðmundur, faðir Jóhanns, var
sonur Þórðar Sigurðs-
sonar, b. í Grænumýr-
artungu, og Sigriðar
Jónsdóttur frá Bálka-
stöðum í Hrútafirði.
Bróðir Guðmundar var
Gunnar, varaþingm.
Fi'amsóknarflokksins
og b. í Grænumýrar-
tungu.
Kristjana Sigríður
Pálsdóttir er dóttir
Margrétar Jónsdóttur
Níkulássonar frá
Hamri í Flóa sem var
systir Júlíusar, föður
Einars Júlíussonar,
söngvara í Keflavík, og Páls Gisla-
sonar frá Vatneyri á Patreksfirði
Sigurðssonar, b. og sjómanns í Vest-
ur-Botni, Gíslasonar Ólafssonar, pr.
í Sauðlauksdal. Páll, afi Guðrúnar
var um langt árabil vörubifreiðar-
stjóri á Þrótti, svo og tvíburabróðir
hans, Guðmundur. Vom þeir elstu
lifandi tvíburar á landinu meðan
þeir báðir lifðu.
Guðrún verður að heiman.
Guðrún Jóhannesdóttir.
Sveinbjörn
Sveinbjöm Stefáns-
son, pipulagningarmað-
ur og atvinnubílstjóri,
Klyfjaseli 37, Reykjavík,
varð fimmtugm- í gær.
Starfsferill
Sveinbjörn fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp. Hann var i Austur-
bæjarskólanum, lauk
gagnfræðaprófi frá Rétt-
arholtsskólanum, stund-
aði síðan nám við Iðn-
skólann í Reykjavík,
lauk sveinsprófi í pípu-
lögnum 1972 og öðlaðist meistara-
réttindi í þeirri grein 1975.
Sveinbjörn starfaði við pípulagn-
ir í u.þ.b. fimmtán ár eftir að hann
lauk sveinsprófi. Hann vann síðan
hjá Orkustofnun um skeið en hefur
verið atvinnubílstjóri undanfarin
Sveinbjörn starfaði
um hríð að félagsmál-
um hjá Frama, félagi
leigubílstjóra.
Fjölskylda
Sveinbjöm kvæntist
8.7. 1967 Ástu B. Eð-
varðsdóttur, f. 16.11.
1948, starfsmanni við
leikskóla. Hún er dóttir
Eðvarðs B. Helgasonar,
f. 7.8. 1915, d. 1980,
byggingarverkamanns,
og Guðbjargar Hjartar-
dóttur, f. 23.12. 1917, d. 1994, hús-
móður og verkakonu.
Börn Sveinbjörns og Ástu em
Kristjana, f. 14.1. 1966, framreiöslu-
meistari við Lækjarbrekku, búsettt
í Reykjavík, og er dóttir hennar
Anna Dagbjört, f. 31.3. 1995; Stefán,
Sveinbjörn Stefánsson.
Stefánsson
f. 16.10. 1968, leigubílstjóri í Reykja-
vík; Eðvarð Hlynur, f. 15.11. 1973,
tölvuður hjá Tæknivali í Reykjavík,
og er dóttir hans Ásta Fanney, f. 2.3.
1994; Sveinbjöm, f. 29.10.1981, nemi.
Systkini Sveinbjöms: Amþór, f.
1949, atvinnubílstjóri í Reykjavík;
Ragnheiður, f. 1951, húsmóðir í
Reykjavík; Anna Jóhanna, f. 1953,
húsmóðir í Reykjavík; Ema Dag-
björt, f. 1956, skrifstofumaður í
Reykjavík; Guðmundur Birgir, f.
1957, framreiðslumeistari í Reykja-
vik; Stefán Hinrik, f. 1959, rafvirki á
Akranesi; Hans Helgi, f. 1963, kokk-
ur í Reykjavík; Hólmfríður, f. 1964,
húsmóðir í Svíþjóð; Hrafnhildur, f.
1966, starfsmaður við veitingahús,
búsett í Reykjavík.
Foreldrar Sveinbjörns: Stefán
Guðmundsson, f. 6.8. 1927, atvinnu-
bílstjóri, og k.h., Kristjana Ragnars-
dóttir, f. 24.10.1930, d. 1990, húsmóð-
ir.
Sveinbjörn og Ásta era að
heiman.
>/m
Askrifendur fá
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
TÆÆÆÆ/rÆIIÆÆÆÆÆÆÆÆÆ..
al'tmill<%„f
X.
Smáauglýsingar
EHS
550 5000