Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1998, Page 8
8 HeIkerinn
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998 T>V
Konráð Þorsteinsson á Akureyri gengur í það heilaga í dag:
Innbakað lamb fyrir
brúðguma - að elda
í Akureyrarkirkju en sú heppna er
Sólrún Torfadóttir.
Nú er líka um að gera fyrir karl-
ana að rífa sig upp úr HM-sófanum
og setja á sig kokkahúfuna. Þá yrðu
skoruð mörg mörk. Hér kemur svo
uppskriftin en hún miðast viö 4-6
manns:
1-1‘/2 kg lambafilet
smjör til steikingar
2 dl ferskar kryddjurtir (t.d.
blanda af myntu, basiliku og stein-
selju)
2 msk. matarolía
1 msk. franskt sinnep
400 g smjördeig (tilbúið)
1 egg
Þá er það aðferðin. Þið byrjið á að
brúna kjötið í smjöri og kæla að því
loknu. Grófsaxið kryddjurtirnar og
blandið þeim saman. Hrærið saman
matarolíu og sinnepi og blandið sam-
an við kryddjurtimar.
Fletjið næst út smjördeigið þar til
það er orðið nógu stórt til að pakka
lambvöðvanum inn í. Smyrjið krydd-
jurtablöndunni ofan á smjördeigið,
leggið kjötið ofan á, penslið sam-
skeytin með vatni, pakkið saman og
lokið vel. Penslið loks deigið með
léttþeyttu eggi og bakið í 200 gráðu
heitum ofni í 15-20 mínútur.
Sveppasósa með
Sem meðlæti þá mælir Konráð
með kartöflum, tómötum og
spergilkáli og að sjálfsögðu sósu.
Hann lét okkur í té uppskrift að góm-
sætri sveppasósu sem verður að
fylgja með:
200 g sveppir
smjör til steikingar
2 dl rjómi
1 msk. franskt sinnep
V2 tsk. sykur
2 msk. viski
1 msk. niðursoðin rauð piparkorn
Skerið sveppina í sneiðar og steik-
ið í smjöri. Hellið ijóma út í og
kryddið með sinnepi, viskíi, sykri og
piparkornum. Sjóðið þar til sósan
þykknar. Þá er allt tilbúið og við
Konráð segjum við „til hamingju
með daginn“ og alla hina: Verði
ykkur að góðu! -bjb
Konráð Þorsteinsson yfir pottunum hjá Lostæti á Akureyri. DV-mynd gk
„Þetta er einfaldur réttur sem
hentar vel fyrir alla karlmenn að
elda fyrir konurnar sínar, ekki síst á
hveitibrauösdögunum," segir Kon-
ráð Þorsteinsson, matreiðslumaður á
Akureyri og sælkeri vikunnar, sem
gefur okkur uppskrift að innbökuð-
um lambvöðva með ferskum
kryddjurtum. Konráð starfar
hjá veislu- og veitingaþjón-
ustunni Lostæti á
Akureri.
Svo skemmtilega
vill til að Konráð
ætlar að kvænast
í dag
Þessi kaka er tilvalin með
sunnudagskaffinu eða hvenær
sem fólk viO fá sér ljúffenga
kökusneið og kannski
smárjóma með.
2 egg
225 g flórsykur
100 g smjörlíki
1,5 dl nýmjólk
175 g hveiti
3 tsk. lyftiduft
3-4 epli
Aðferðin:
ISmyrjið eldfast mót eða
form. Þeytiö eggin og 200 g af
flórsykri saman þangað til
blandan verður þykk og þeyt-
arinn skilur eftir sig for þegar
honum er lyft upp úr.
Setjið smjörið og mjólkina í
pott. Látið sjóða og hræriö
eggin og sykurinn saman við.
Sigtið hveitið og lyftiduftið
saman við en varist kekkja-
myndun. HeUiö deiginu síðan
Ií formið.
Flysjið eplin og skerið nið-
ur. Setjið þau síðan ofan á
deigið og dreifið afgangnum af
flórsykrinum yfir.
Bakið í ofni við 200° í 20-25
mínútur eða þangað til hún er
oröin gullbrún á lit.
Leyfið kökunni að kólna,
skerið síðan í sneiöar og berið
fram. Það er ósköp gott að
hafa rjóma með. -sm
Wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
matgæðingur vikunnar
Kolbrún Erna Pátursdóttir leikkona:
Buff a'la Kolbrún
„Þessi uppskrift litur kannski út
fyrir að vera flókin en í raun eru hún
það ekki. Þetta er mjög gómsætt,"
segir matgæðingur vikunnar, hún
Kolbrún Ema Pétursdóttir leikkona
sem um þessar mundir vinnur við
talsetningu teiknimynda á
Barnarásinni, nýju sjónvarpsstöðinni
fyrir unga fólkið.
Kolbrún býður okkur upp á kjúkl-
ingabauna- og hnetubuff. Segir upp-
skriftina vera í stærra lagi en þá sé
bara að frysta buffin og taka t.d. út
þegar verið sé að grilla. Við byrjum á
hráefninu:
200 g kjúklingabaunir (lagðar í
bleyti í 6 tíma og soðnar í 1 klst.)
1 dl kúskús (sjóðið ca 114 dl af
vatni, takið pottinn af hellunni og
setjið kúskúsið út í vatnið, setjið
lok yfir og látið standa í 2 mínútur)
150-250 g muldar jarðhnetur (mag-
nið fer eftir smekk en geymið eitt-
hvað fyrir heitu sósuna)
2-3 meöalstór hvítlauksrif
sojasósa
grænn pipar
Herbes de provens (krydd frá
Pottagöldrum)
arabískt kjúklingakrydd (Potta-
galdrar)
1 dl brauðmylsna
Maukið baunirnar annaðhvort í
blandara eða með kartöflustappara.
Hrærið kúskúsið og jarðhnetumar
saman við og bleytið í með sojasó-
sunni. Athugið að ef notaðar em salt-
aðar jarðhnetur ber að varast að nota
mikið af sojasósunni þar sem sumar
tegundir eru mjög saltar. Einnig er
hægt að setja jarðhneturnar inn í
viskastykki áður en þær era muldar
til að taka af þeim mesta saltið.
Kryddið út í smátt og smátt og það
er bara að bragða á „deiginu" til að
vita hvenær er komið nóg!
Brauömylsnan er síðan notuð til
að halda „deiginu" saman og ef sett
er of mikið er bara að setja örlítið
vatn saman við.
Þá eru bufiln mótuð og steikt í ólíf-
ulolíu við meðalhita þar til þau eru
orðin vel gullin (6-10 minútur á
hvorri hlið, fer eftir hitanum).
Buffið er gott bæði heitt og kalt. Ef
það er borið á borð með heitri sósu er
gott að sefja buffið á beð af grænu
tagliatelle pasta og með fersku græn-
metissalati. Ef buffin eru borin fram
með kaldri sósu er gott að hafa hris-
grjón með.
Heit sósa
14-1 dl af þurrkuðum black fungus
sveppum (má líka nota venjulega
sveppi)
1 niðursneidd gulrót
1 lítil paprika
pilsner eða
bjór (ekki
rammur)
rjómi
Aðferð-
in:
Leggið
sveppina í
bleyti í
soðið vatn og leyfið þeim að liggja í
nokkrar mínútur. Skolið sveppina í
sigti og þerrið lítillega og skellið
þeim á heita pönnu ásamt gulrótinni
og paprikunni.
Kryddið með því kryddi sem notað
var í buffm eða öðra uppáhalds-
kryddi. Steikið við háan hita í u.þ.b.
mínútu í ólífuolíu. Hristið pönnuna
vel og athugið að það brestur og
brakar i fungusinum. Að lokum er 1
dl af vatni skellt á pönnuna og allt
látiö krauma í þrjár mínútur. Af-
ganginum af jarðhnetumylsnunni er
hrært út í.
Pilsner eða bjór er skellt saman
við þannig að freyði vel og látið
krauma í 1-2 mínútur. Sósan er síðan
þykkt með rjóma í lokin og ef sósan
þykir of þunn þá er hún þykkt með
maísmjöli.
Köld sósa
2 dl af AB-mjólk
2 hvítlauksrif
svartur pipar
örlítið salt
Kolbrún segir
einnig gott að
hafa súrsæta
sósu á móti
köldu sós-
unni.
Hún skor-
ar svo á
Bryndisi
Hilmars-
dóttur að
verða næsti
matgæðingur
DV.
-bjb/-sm
Kolbrún Erna
Pétursdóttir
leikkona ásamt
Rebekku, dóttur
sinni, meö
hráefniö tilbúiö.
DV-mynd Teitur
burrito
Það er eitthvað óstjórnlega
sumarlegt við mexíkóskan mat
og þess vegna er hér uppskrift
að ljúffengu og hollu bauna-
Iburrito.
4 mjúkar tortillakökur
400 g nýmabaunir
175 g rifmn ostur (cheddar t.d.)
V2 haus af icebergsalati
H stórt avokadó, sneitt
4 msk. sýrður rjómi
salsasósa
Aðferðin:
Leggið tortillakökurnar á
borð og setjið fjórðung af
nýrnabaununum á miðju hverr-
ar köku. Dreifið ostinum yfir og
leggið salatið og avokadóið ofan
á. Rúllið kökunni síðan upp og
lokið endunum.
Setjið rúllurnar á plötu og
bakið í ofni við 200° í 10-12 mín-
útur.
Setjið rúllurnar á disk og
sýrðan rjóma yfir. Berið siðan
fram með salsasósu.
Salat með fetaosti
og oregano
tilvalið er að minnka uppskrift-
ina og hafa með baunaburritoinu
sem er hér fyrir ofan.
Salatið:
1 stór salathaus (fíngert salat)
500 g tómatar, skomir í báta
1 gúrka, skorin endilöng og
sneidd niður
1 græn paprika, snyrt og
sneidd
250 g fetaostur í teningum
1 msk. söxuð mynta
1 msk. þurrkað oregano
24 svartar ólífur
salt og pipar
Salatsósan:
4 msk. sítrónusafi
6 msk. extra virgin ólífuolía
Nú eru allar verslanir að
springa utan af fersku og góðu
grænmeti. Það er því tilvalið að
nýta sér þaö og búa til salat.
Þetta salat er fyrir 6-8 manns en
Aðferðin:
Þvoiö salatið og þurrkið. Rífið
það niður og setjið í stóra skál
með hinu grænmetinu og krydd-
inu.
Blandið sítrónusafanum og
ólífuolíunni saman og hellið yfir
salatið rétt áður en það er borið
fram og hristið skálina.
-sm