Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1998, Qupperneq 10
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998 X3 X-‘
10
i ■
ic
ðtal
★ ★
Vanda Sigurgeirsdóttir hefur á
undanfórnum misserum náð frábær-
um árangri sem þjálfari knatt-
spyrnulandsliðs kvenna. Liöið er nú
viö þaö að komast á heimsmeistara-
mótið og er í 9.-12. sæti í Evrópu. Ef
liðið kæmist á heimsmeistaramótið
yrði það í fyrsta skipti sem íslenskt
A-landslið kæmist á stórmót.
Vanda náði þeim árangri sem
þjálfari og leikmaður Breiðabliks að
verða íslandsmeistari sex sinnum á
sjö árum. Auk knattspymunnar æfði
Vanda frjálsar íþróttir, skíði, sund,
blak og körfubolta en hún á að baki
10 landsleiki í körfuknattleik.
Nafnið frá Sigge Stark
Vanda er fædd á Sauðárkróki árið
1965 og er að mestu alin þar upp þótt
hún hafi búið til skamms tíma á Dal-
vík og í Danmörku. Foreldrar henn-
ar eru Sigurgeir Angantýsson og
Dóra Þorsteinsdóttir. Nafn hennar er
mjög sérstakt og á sér sögu.
„Mamma las það i ástarsögu eftir
Sigge Stark þegar hún var 14 ára.
Bókin hét Skógardísin. Hún var um
háa, granna og brúneygða stelpu
sem hét Vanda,“ segir Vanda og bæt-
ir við hlæjandi: „Það eina sem við
eigum sameiginlegt er nafnið."
Ein af strákunum
Áhugi hennar á fótbolta vaknaði
mjög snemma.
„Ég byrjaði að leika mér í fótbolta
þegar ég var sjö ára og byrjaði að
spila með strákunum í Tindastóli þeg-
ar ég var 10 ára, þá i 5. flokki. Þá var
enginn kvennafótbolti.
Fólkinu á Króknum þótti það ekk-
ert skrýtið að ég spilaði með strákun-
um. Ég held að allir hafi vanist þessu
fljótlega. En stundum rak fólk upp
stór augu þegar ég kom í nágranna-
bæina að keppa. Mér er mjög minnis-
stætt þegar við fórum til Siglufjarðar
til að keppa. Fótboltavöllurinn er
niðri í bæ og þar voru eldri menn að
fylgjast með. Ég fór eitthvað illa með
bakvörðinn og þeir voru alltaf að
hlæja að honum og segja: „Læturðu
stelpuna fara svona með þig“? Það
fannst mér ekki leiðinlegt!"
Vanda spilaði fyrst fótbolta með
konum þegar hún fór í Menntaskól-
ann á Akureyri. Þar lék hún eitt tíma-
bil með KA.
„Það var öðiuvísi reynsla. Það var
mjög gaman fyrir mig því eftir að
hafa lent í vandræðum með strákana
út af stærð og hraða var ég orðin voða
góð. Þetta var mjög gott fyrir sjáifs-
traustið. Það er engin spuming að ég
hafði gott af baráttunni viö strákana."
Afrekskonur
Kvennaknattspyma á íslandi hefur
orðið æ meira áberandi á síðustu
árum. Árangur Breiðabliks hefur ver-
ið frábær og um tíma bám liðið höfuð
og herðar yfir önnur lið. Efsta deildin
hefur hins vegar verið að jafnast und-
anfarið. Aukin breidd hefur verið að
skila sér inn í landsliðið sem nú er ná-
lægt því að komast á HM. Vanda er
bjartsýn á að það takist.
„Við unnum Úkraínu hér heima og
erum einu stigi á eftir þeim. Við eig-
um eftir að spila við þær og Sviþjóð.
Það getur því allt gerst. Við emm
búnar að vinna þær einu sinni og því
ekki aftur?
Árangurinn eins og hann er núna
er frábær. Við skiljum Spánveija, sem
vom í undanúrslitum á siðasta Evr-
ópumóti, eftir og erum í raun i 9.-12.
inn. Ég hef alltaf viljað byrja inni á.
En ég hef ekki skipt mér neitt af
stjórnmálum hingað til þannig að ég
vildi byrja í rólegheitunum og læra
og sjá hvernig mér líkar.“
Fótboltanum allt
Vanda segir aldrei hafa hvarflað
að sér að hætta í fótbolta. Hún hafi
örsjaldan fengið fótboltaleiða og
hann hafi aðeins varað í dagpart.
Fómimar sem þarf að færa til að ná
árangri eru þó miklar.
„Það sem ég sé helst eftir em
tengslin við vini og fjölskyldu. Ef
maður ætlar að ná árangri þá er
öllu sleppt fyrir íþróttina. Það þýðir
að ef fótboltaliðið ætlar að hittast í
kvöld og vinimir líka þá velur mað-
ur alltaf liðið.
í gegnum tíðina man ég ekki eftir
að hafa komið í veislu á réttum
tíma og farið úr henni um leið og
hinir. Ég hef komið keyrandi í brúð-
kaup þegar fólkið er að ganga út úr
kirkjunni eða jafnvel misst alveg af
því. Það er það leiðinlegasta. En ég
hef auðvitað eignast vini til lífstíðar
í fótboltanum."
Brúðkaup og barn
Vanda ætlar um næstu helgi að
giftast Jakobi Frímanni Þorsteins-
syni og í nóvember eiga þau von á
bami. Það hefur breytt ýmsu fyrir
Vöndu og hefur til dæmis orðið til
þess að hún hefur ákveðið að fresta
því að taka ákvörðun um það hvort
hún heldur áfram sem landsliðs-
þjálfari eftir að ráðningartími henn-
ar rennur út í haust.
„Forgangsröðunin breyttist mjög
snögglega í febrúar síðastliðnum.
Allt í einu var eitthvað sem skaust
upp listann. En þó þekki ég margar
sem hafa náð að samræma barn-
eignir og bolta mjög vel. Ég sé þvi
ekkert því til fyrirstöðu að halda
áfram í boltanum og stefni að því að
þjálfa áfram í mörg, mörg ár.“
-sm
„Mér finnst aö þurfi aö nýta árangur
liösins. Þaö er sóknarfæri f kvenna-
fótboltanum þvf aö þaö vantar svo
lítiö upp á aö viö séum komnar á
Stórmót." DV-mynd Teitur
sæti í Evrópu í dag. Það era ekki
margir íslenskir íþróttamenn sem era
svo ofarlega. Þegar talað er um ís-
lenska afreksmenn í íþróttum er eig-
inlega aldrei minnst á árangur
kvennalandsliðsins. Það vill gleymast.
Mér finnst að það þurfi að nýta ár-
angur liðsins. Það er sóknarfæri í
kvennafótboltanum því að það vantar
svo lítið upp á að við séum komnar á
stórmót. Það þarf að vinna markvisst
að því og taka ákvörðun um að hing-
að ætlum við!“
Á bekknum í pólitíkinni
Vanda situr í 15. sæti á Reykja-
víkurlistanum en var á tíma orðuð
við 9. sætið.
„Ég vildi það nú eiginlega ekki.
Þetta er í fyrsta skipti á ævinni sem
ég setti stefnuna á varamannabekk-
Breiöabliksstúlkur fagna enn einum íslandsmeistaratitli f lok sumars 1996 meö þvf ab tollera Vöndu. Þetta sumar
slógu þær flest met sem hægt var aö slá í deildinni og unnu alla leiki sfna. DV-mynd bg