Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1998, Síða 33
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998
'fffffff 41
Framundan
20. júní: Óshlíðarhlaup
Hlaupið er á milli Bolung-
arvíkur og ísaQarðar. Vegalengd-
i ir: 4 km, 10 km og hálfmaraþon
| með tímatöku. Hlaupið hefst kl.
i 14.00 (mæting í rútu kl 13.00 á
Silfurtorgi fyrir 10 km og hálf-
maraþon). Flokkaskipting bæði
5 kyn: 14 ára og yngri (4 km), 15-39
i ára (10 km), 16-39 ára (hálfmara-
I þon)), 40-49 ára, 50 ára og eldri.
: Allir sem ljúka keppni fá verð-
: launapening. Upplýsingar gefur
Jónas Guölaugsson í síma 456
3123.
21. júní: Kvennahlaup ÍSÍ
Kvennahlaup ÍSÍ fer fram um
land allt. Það hefst klukkan 14.00
j við Garðaskóla, Garðabæ. Vega-
i lengdir eru 2 km, 5 km og 7 km
án tímatöku. Allir sem Ijúka
hlaupunum fá verðlaunapening
og T-bol. Upplýsingar á sta'ifstofu
j ÍFA (íþróttir fyrir alla), íþrótta-
i miðstöðinni í Laugardal í síma
581 3377.
23. júní: Miðnæturhlaup á
Jónsmessu
Hlaupið hefst kl. 23.00 við
; sundlaugina í Laugardal í
i Reykjavík. Vegalengdir: 3 km án
tímatöku og flokkaskiptingar, 10
km með tímatöku. Flokkaskipt-
; ing bæði kyn: 18 ára og yngri,
; 19-39 ára, 40-49 ára, 50 ára og
eldri. Verðlaun verða veitt fyrir
þrjú fyrstu sætin í heildina og
fyrsta sæti í hverjum flokki. Út-
dráttarverðlaun fyrir þátttakend-
ur í 3 km. Allir sem ljúka keppni
fá verðlaunapening og T-bol.
I Búningsaðstaða í sundlauginni
og frítt í sund. Upplýsingar á
i skrifstofu Reykjavíkur maraþons
I í síma 588 3399.
; 25. júní: Víðavangshlaup HSÞ
í Upplýsingar á skrifstofu HSÞ í
síma 464 3107.
27. júní: Mývatnsmaraþon
Keppni í maraþoni hefst
j klukkan 12.00, hálfmaraþoni
; klukkan 13.00, 3 km og 10 km
j klukkan 14.00 með tímatöku.
Mæting viö Skútustaði.
11.júlí: Fjallaskokk ÍR
Hlaupið hefst klukkan 13.00
; við skíðasvæði ÍR í Hamragili,
[ skráning frá klukkan 11.00 um
morguninn. Vegalengd: 12 km
i með tímatöku. Flokkaskipting
bæði kyn: 18 ára og yngri, 19-39
i ára, 40-49 ára, 50-59 ára, 60 ára
* og eldri. Þetta er sjálfstæð keppni
en einnig hluti af tvíþraut frjáls-
: íþrótta- og skíðadeildar (svipuð
leið einnig gengin á öðrum árs-
tíma á skíðum og reiknuð heild-
arúrslit).
i 11. júlí: Hvalfjarðargangahlaup
! Vegalengd er 6 km án tíma-
: töku. Skráning fer fram í vik-
unni fyrir hlaup. Upplýsingar:
Ozone, Akranesi, í sima 431 1301
I og Reykjavíkur maraþon í síma
j 588 3399.
j 12. júlí: Bláskógaskokk HSH
j Hlaupið hefst klukkan 12.00,
j skammt frá Gjábakka. Vega-
: lengdir 5 km og 16 km með tíma-
; töku. Flokkaskipting bæði kyn:
; 16 ára og yngri (5 km), 17-39 ára,
; 40-49 ára, 50 ára og eldri. Upplýs-
j ingar á skrifstofu HSK, Engja-
vegi 11 Selfossi, sími 482 1189 og
j FAX 482 2909.
18. júlí: Akureyrarmaraþon
Hlaupið hefst og endar á
j iþróttaveUinum á Akureyri.
Vegalengdir: 3 km skemmtiskok,
! einn flokkur, 10 km og hálfmara-
; þon með tímatöku. Flokkaskipt-
j ing bæði kyn: 13-15 ára (10 km),
! 16-39 ára (hálfmaraþon), 40-49
j ára, 50-59 ára, 60-69 ára og 70 ára
j og eldri. Verðlaun fyrir þrjá
fyrstu i hverjum flokki. Allir sem
j ljúka keppni fa verðlaunapening.
j Upplýsingar hjá UFA, pósthólf
! 385, 602 Akureyri.
Miðnæturhlaup á Jónsmessu
Nú fer að líða að hinu skemmti-
lega og árlega Miðnæturhlaupi á
Jónsmessu. Miðnæturhlaupið fer
nú fram í sjötta sinn mánudaginn
23. júní og hefst klukkan 23.00.
Vegalengdir í hlaupinu eru tvær.
Sú lengri er 10 km með tímatöku
og flokkaskiptingu. Keppt verður í
aldursflokkum, 18 ára og yngri,
19-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60
ára og eldri. Einnig verður hlaupið
skemmtiskokk án flokkaskiptingar
og tímatöku.
Miðnæturhlaupið fer fram í
Laugardalnum og hefst og endar
við Laugardalslaugina. Skráning í
hlaupið hefst klukkan 14.00 á
hlaupadag og eru hlauparar beðnir
að mæta tímanlega til skráningar.
Þátttökugjald verður krónur 800 á
manninn en 600 krónur fyrir 12
ára og yngri. Innifalið í því gjaldi
er verðlaunapeningur, T-bolur og
fleira. Eftir hlaupið er síðan öllum
þátttakendum boðið í sund.
Umsjón
ísak Örn Sigurðsson
Hlauparar koma gagngert í
hlaupið víðs vegar að af landinu.
Töluverður fjöldi útlendinga hefur
tekið þátt í hlaupinu á hverju ári
og þykir þeim mikið til þess koma
að hlaupa á þessum tíma sólar-
hrings í björtu veðri. Sigmar
Gunnarsson hefur unnið sigur í
þessu skemmtilega hlaupi síðast-
liðin flmm ár og forvitnilegt verð-
ur að fylgjast með því hvort hann
vinnur i sjötta sinn í röð. Þess má
geta að Miðnæturhlaupið er jafn-
framt ólympíuhlaup ársins. -ÍS
íslandspóstur hf.
stvður konur
íslandspóstur hf. hefur ákveðið að
greiða þátttökugjaldið í Kvennahlaupi
ÍSÍ fyrir allar konur sem vinna hjá
fyrirtækinu. Alls vinna um 1000 kon-
ur hjá íslandspósti og þykir forsvars-
mönnum póstsins þetta kærkomið
tækifæri til þess að hvetja til útivistar
og heilsuræktar. -ÍS
Þeir sem taka þátt í Miðnæturhlaupinu á Jónsmessu fá sérstakan T-bol til eignar, sams konar og þessir hressu
hlauparar klæddust á æfingu sinni í Laugardalnum í síðustu viku. Að sjálfsögðu stefna þeir allir að því að verða með
í hlaupinu í ár. _________________________________________DV-mynd GVA
Hlaupaá
Vika 3
Mánudagur
Þriöjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Laugardagur
Sunnudagur
Hraðaæfing:
Hraðaleikur:
Skemmtiskokk
hvíld
25 mín. skokk eða ganga
hvíld
30 mín skokk eða ganga
hvíld
25 mín skokk eða ganga
sund eða hjólreiðar
10 km byrjendur
25 - 35 mín. rólega
hvíld
25 - 35 mín. rólega
hvíld
25 - 35 mín. rólega
sund eða hjólreiðar
30 - 40 mín. róiega
raþon 1998
22.-28. júní
10 km lengra komnir
6 - 8 km rólega
20 mín. rólega og hraðaæfing
hvíld
40 mín. hraöaleikur
hvíld eða létt skokk
6 - 8 km rólega
8 -14 km rólega
15 x ÍOO m meö 100 m rólegu skokki á milli spretta. Hraöinn sé
meiri en kepnishraði í 10 km hlaupi en alls ekki sprettur á fullri ferð.
Hlaupa rólega í 5 -10 mín, síðan til skiptis álag 11 mín og
rólegt skokk í 1 mín, alls í 20 mín. Skokka rólega I lokin.
Álagskaflarnir séu á 10 km keppnishraöa eða hraðar.
Vika 3 Hálfmaraþon og maraþonhlauparar.
Þrjár lykilæflngar:
1. 50 mín hraðaleikur. 10 mín upphitun, síöan álagshluti þar sem skiptast
á álagskaflar og skokk sem tekur sama tíma, álagskaflarnir séu 2 mín, 3
mín, 4 mín, 3 mín, 2 mín, 10 mín skokk t lokin. Hraöi í álagsköflum sé 10
km keppnishraði eða hraöar.
2. 10 -15 km á vaxandi hraöa. Byrja rólega en fara vel yfir keppnishraöa.
3. 14 - 26 km rólega (maraþonhlauparar yfir 18 km)
Aðrar æfingar séu róleg langhlaup (30 - 60 mín). Róleg æfing daginn eftir
erfiöa æfingu.
Friðarhlaup í kringum landið
Þann 19. júní lagði hópur fólks
land undir fót á vegum Heimsfriðar-
hlaupsins £Bri Chinmoy Oneness-
Home Peace Run“. Stutt upphafsat-
höfn fór fram í Reykjavík kl. 12 á
hádegi en að henni lokinni lögðu
hlauparar af stað eftir Þjóðvegi 1 í
austurátt. Friðarhlauparar verða á
ferðinni í tíu daga og þrjár nætur.
Með lokaathöfn verður tekið á móti
Friðarhlaupinu í Reykjavík um
klukkan tvö sunnudaginn 28. júní
eftir um það bil 1400 kílómetra
hlaupaleið eftir Þjóðvegi 1. 12
manna hlaupahópur fylgir hlaupinu
en Friðarhlaupið er fyrst og fremst
almenningsboðhlaup og hlauparar
um allt land koma til með að bera
kyndil Friðarhlaupsins sín á milli.
Friðarhlaupið er alþjóðlegt
kyndilboðhlaup sem haldiö hefur
verið annað hvert ár frá því árið
1987. Það er sífellt að stækka og er
nú hlaupið í um 80 löndum heims.
Stórt hlaup er nú í gangi eftir Nor-
egi endilöngum og frá Strassbourg í
Frakklandi til Cardiff á Englandi
sem er í tengslum við fund Evrópu-
sambandsins seinna i mánuðinum.
Nú þegar er hafm skipulagning á
gríðarlega stóru Friðarhlaupi á síð-
asta ári aldarinnar og árþúsunds-
ins. Hlaupið verðrn- i öllum löndum
heims og hvem dag ársins verður
hlaupið einhvers staðcir í heimin-
um. Þannig gefst fólki um allan
heim tækifæri til að tjá þrá manns-
ins til hugsjóna friðar, frelsis og
bræðralags.
Á næsta ári verður íslenska Frið-
arhlaupið enn stærra 1 sniðum en í
ár. Hlaupið verður eftir strönd
landsins, samtals 3200 kílómetra
leið. Einnig er reiknað með að Fær-
eyingar og Grænlendingar hlaupi
með okkur á svipuðum tíma. Þátt-
taka í Friðarhlaupinu er opin öllum
þeim sem hafa áhuga á að hlaupa í
þágu friðar. Fólki er frjálst að
hlaupa hverja þá vegalengd sem það
kýs og er engra þátttökugjalda kraf-
ist. Hægt er að hafa samband við
Friðarhlaupið í síma 553-2354 til að
fá frekari upplýsingar og einnig sjá
íþrótta- og ungmennafélög víða um
land um hlaupið á sinu svæði. -ÍS
Friðarhlaupiö er alþjóölegt kyndilboöhlaup sem haldiö hefur veriö annaö
hvert ár frá því áriö 1987.
Komdu og fáðu hlaupaskó sem henta:
* þinni þyngd og hlaupalagi
* þinni vegalengd og því undirlagi sem þú hleypur á
Mesta úrval landsins af hlaupaskóm og sérhæföum hlaupafatnaöi.
Skoöum hvernig þú stígur niöur.
Notum hlaupabretti og
upptökubúnaö. ___________________________
Láttu fagmennina finna /xmmmmmm
réttu skóna fyrir þig. Fætur eru okkgr fag
XSTOÐTÆKNl
64 dagar til Reykjavíkur maraþons