Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1998, Side 49
I>X/' LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998
Viola Kramer - Hringrásir. „Hring-
urinn er tákn hringrásar allrar
veru í heimi sýnar; stöðugt verð-
andi, hverfun og nýsköpun.“
Líkt og vængjablak
Kynning á listaverkum á nátt-
úrulistaþinginu Líkt og vængja-
blak verður að Þingeyrum i Aust-
ur- Húnavatnssýslu í dag kl. 14.
Hefst hún með ávarpi dr. Rein-
hards Ehni, sendiherra Þýska-
lands í Reykjavík, sem jafnframt
er verndari sýningarinnar. þá
mun Jóna Fanney Svavarsdóttir
frá Litla-Dal syngja íslensk þjóð-
lög i Þingeyrarkirkju.
Sýningar
Líkt og vængjablak er samsýn-
ing listakvenna úr Seltene Erden
hópnum frá Þýskalandi og ís-
lenskra listamanna og er um að
ræða tilraun til þess að eiga sam-
tal við náttúruna með listrænni
sköpun. Listaverkin verða til á
staðnum úr náttúrulegum efni-
viði og verða þau hluti af náttúr-
unni eins og manneskjan er hluti
hennar. Sýningin er opin fram
eftir sumri.
Glósumyndlist
í gær var opnuð myndlistarsýn-
ing í Skemmtihúsinu, Laufásvegi
22, sem hefur yflrskriftina Glósu-
myndlist. Nokkur listaungmenni
hafa unnið úr glósuteikningum
vetrarins og skapað sjálfstæð lista-
verk. Sýningunni lýkur í kvöld.
Biskupsvisitasía í Viðey
Biskup íslands, herra Karl Sig-
urbjömsson, hefur vísitasíu sína
í Viðey á sunnu-
dag. Setur hún
svip sinn á helg-
ardagskrána 1
Viðey en göngu-
ferð dagsins
verður þó á sín-
um stað I dag
kl. 14.15. í dag
verður einnig
opnuð ljósmyndasýning.
Drauga-, trölla og skrímslaráðstefna
i öKaniuiu i msK.upsLungum verður haldin drauga-, trölla- og skrímslaráðstefna Ráðstefnan Lúðrasveitin Svanur leikur á Ingólfstorgi í dag.
sem haldin er til heiðurs Hreini
heitnum Erlendssyni, drauga-
fræðingi frá Dalsmynni í Bisk-
upstungum, er öllum opin.
Samkomur
Framhaldsaðalfundur verður
haldinn í safnaðarsal Digranes-
kirkju á morgun eftir messu kl. 11.
Vorfundur og fjölskyldudagur
Alþýðubandalagsfélagar og
stuðningsmenn Alþýðubandalags-
ins í Norðurlandskjördæmi eystra
halda vorfund og fjölskyldudag á
Húsavík í dag. Kjördæmisráð Al-
þýðubandalagsins stendur fyrir
dagskránni sem er blanda af leik
og starfi eins og oft áður.
Jónsmessuhátíð
Jónsmessan verður haldin há-
tíðleg að norrænum siö við Nor-
ræna húsið i kvöld kl. 21. Að há-
tíðinni standa norrænu vinafé-
lögin og Norræna húsið. Eftir
fjölbreytta dagskrá verður kveikt
á Jónsmessubálkestinum.
Dálítil súld eða rigning
Milli Islands og Noregs er 1007 mb
lægð sem hreyfist vestur í átt til ís-
lands og grynnist. Hæðarhryggur
milli Jan Mayen og Grænlands teyg-
Veðrið í dag
ir sig suðvestur um Grænlands-
sund. Um 1000 km suðsuðvestur í
hafi er allvíðáttumikil lægð sem
hreyfist hægt norðaustur á bóginn.
Það verður hið sæmilegasta veður
í dag í flestum landshlutum. Spáð er
norðaustangolu eða kalda við norð-
auaturströndina. Dálítil súld eða
rigning verður, einkum norðan- og
austanlands. Hitinn á landinu verð-
ur 5 til 16 stig. Hlýjast verður á Suð-
ur- og Suðvesturlandi, kaldast á
norðausturhorninu.
Sólarlag í Reykjavík: 24.04
Sólarupprás á morgun: 02.54
Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.15
Árdegisflóð á morgun: 03.41
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri léttskýjaö 7
Akurnes skýjaö 5
Bergstaóir
Bolungarvík skýjaö 7
Egilsstaöir 5
Keflavíkurflugv. hálfskýjaö 10
Kirkjubkl. súld 8
Raufarhöfn alskýjað 4
Reykjavík léttskýjaö 9
Stórhöföi léttskýjaö 9
Helsinki skýjaö 13
Kaupmannah. skýjaö 13
Osló léttskýjaö 11
Stokkhólmur 12
Þórshöfn skýjaö 7
Faro/Algarve heiöskírt 23
Amsterdam rign. á síö.kls. 16
Barcelona þokumóöa 18
Chicago hálfskýjaö 19
Dublin skýjaö 15
Frankfurt skýjaö 15
Glasgow rigning og súld 13
Halifax þoka 13
Hamborg súld 14
Jan Mayen alskýjaö 2
London mistur 15
Lúxemborg skýjaö 14
Malaga léttskýjaö 18
Mallorca skýjaö 17
Montreal léttskýjaö 18
París hálfskýjaö 16
New York léttskýjaó 22
Orlando hálfskýjaö 26
Róm heiöskírt 20
Vín skýjaö 15
Washington hálfskýjaó 21
Winnipeg þoka 19
Lúðratónar á Ingólfstorgi
Lúðrasveitin Svanur heldur tón-
leika á Ingólfstorgi í dag. Hefur
hún leik kl. 14 á Lækjartorgi og
mun svo marsera eftir Austur-
stræti að Ingólfstorgi þar sem leik-
Tónleikar
in verða lög í léttum dúr. Svanur-
inn er að mestu skipaður ungu
fólki undir stjóm Haralds Áma
Haraldssonar. íslenskar lúðra-
sveitir starfa nær eingöngu yfir
vetrartímann og því er þetta
endirinn á þessu starfsári hjá
Svaninum.
Útidjass í miðbænum
Þriðju sumardjasstónleikarnir á
vegum veitingáhússins Jómfrúar-
innar verða í dag kl. 16-18. Að
þessu sinni leika Eðvarð Lárusson
á gítar, Jóel Pálsson á tenórsaxó-
fón, Þórir Baldursson á Hamm-
ondorgel og Einar Scheving á
trommur. Tónleikamir fara fram
á Jómfrúartorginu á milli Lækjar-
götu, Pósthússtrætis og Austur-
strætis ef veður leyfir en verða
annars inni á Jómfrúnni.
íslenski kórinn í Gautaborg
íslenski kórinn í Gautaborg hef-
ur verið á tónleikaferð um landið
og er komið að lokum feröarinnar
og kveður kórinn með tónleikum í
Seljakirkju í dag kl. 17.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 2131:
XTv/Á VO/!UM a
ÍODÚA A RANGÁFl- '
, \jaiLurA þeóAK.
V HANN SKAH
/h ('ysjÁiFuM
Skarst í odda
EVþoR-
Myndgátan hér aö ofan lýsir orðtaki.
dagsönn *
John Goodman leikur eitt aðal-
hlutverkið.
Búálfarnir
Hefuröu týnt sokk? Eða skart-
gripum? Telurðu þig vita hvar þú
skildir eftir penna án þess að þú
getir fundið hann? Skýringuna
má finna hjá búálfunum sem eru
f aðalpersónumar í The Borrowers
sem Háskólabíó hefur sýnt að
undanfornu. Búálfarnir búa í hí-
Íbýlum okkar. Þeir nota sokkinn
sem rúm og penninn er orðinn að
brú. Búálfarnir mega ekki sjást
og þeir mega ekki fá meira lánað
en þeir hafa þörf fyrir. Búálfarnir
í The Borrowers lifa sáttir viö sitt
þar til þeir þurfa að skipta um
húsnæði, þá vandast málin.
Kvikmyndir
Aðalhlutverkin eru í höndum
Johns Goodmans, Jims Broad-
bents, Celiu Imrie, Marks Willi-
ams, Bradleys Pierce og Hughs
j Lauries. Leikstjóri er Peter Hewitt.
The Borrowers er byggð á vin-
sælum barnabókum eftir Mary
Norton. Hugmyndina að þessu
litla fólki fékk hún þegar hún lék
sér sem barn að máluðum postu-
línsbrúðum.
Nýjar myndir:
Háskólabió: Þúsund ekrur
Háskólabíó: Grease
Laugarásbíó:The Wedding Singer
Kringlubíó: Six Days, Seven
INights
Saga-bíó: Með allt á hælunum
Bíóhöllin: The Man Who Knew too
Little
Bíóborgin: Mad City
Regnboginn: Hard Rain
Stjörnubíó: Wild Things
Heimilistónar á Akureyri
Leikkonupoppararnir Elva Ósk
Ólafsdóttir, bassi, Halldóra
Björnsdóttir, söngur, ÓLafia
Hrönn Jónsdóttir, trommur, og
Vigdís Gunnarsdóttir, píanó, sem
kalla sig Heimilistóna, halda
skemmtun í Sjallanum á Akureyri
kl. 20.30. Þær stöllur munu syngja
og dansa, fá til sín góða gesti úr
bæjarlífinu og bregða á leik með
ýmiss konar brellum og óvæntu
glensi, auk þess sem þær vekja til
lífsins þekkt erlend lög frá sjötta
og sjöunda áratugnum sem þær
flytja við nýja íslenska texta.
Skemmtanir
8-vilit á Ólafsvík
Hljómsveitin 8-villt er á ferð um
landið. I kvöld verður hljómsveit-
in á Ólafsvík og leikur í félags-
heimilinu Klifi. Hljómsveitina
skipa söngkonurnar Regína, Bryn-
dís, Katrín og Lóa Björk auk
þeirra Andra Hrannars á tromm-
ur, Árna Óla á bassa, Sveins á gít-
ar og Daða á hljómborð.
Gengið
Almennt gengi LÍ19. 06. 1998 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 71,080 71,440 71,590
Pund 118,890 119,490 119,950
Kan. dollar 48,390 48,690 50,310
Dönsk kr. 10,4110 10,4670 10,6470
Norsk kr 9,3710 9,4230 9,9370
Sænsk kr. 8,9550 9,0050 9,2330
Fi. mark 13,0430 13,1200 13,4120
Fra. franki 11,8280 11,8960 12,1180
Belg. franki 1,9219 1,9335 1,9671
Sviss. franki 47,5200 47,7800 50,1600
Holl. gyllini 35,1800 35,3800 35,9800
Þýskt mark 39,6700 39,8700 40,5300
it. líra 0,040320 0,04058 0,041410
Aust. sch. 5,6340 5,6690 5,7610
Port. escudo 0,3872 0,3896 0,3969
Spá. peseti 0,4672 0,4701 0,4796
Jap. yen 0,526300 0,52950 0,561100
írskt pund 99,850 100,470 105,880
SDR 94,450000 95,02000 97,470000
ECU 78,4700 78,9500 80,3600
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270