Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Side 10
enning FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 JLlV »;< ★ W i Þóiunn Hrefna Abstrakt-expressjónískir tilfinningastraumar í Nýló Umsjón Bræður í listinni: Ásmundur Ásmundsson, Magnús Sigurðarson og Erlin Drengirnir Ásmundur Ásmundsson, Erling Þ.V. Klingenberg og Magnús Sigurðarson segja að Nýlistasafnið sé mjög stórt og þar fái þeir allir að blómstra hver í sínu hominu. í Nýlistasafninu hafa þeir nefnilega staðið fyr- ir sýningunni „Lista- menn á barmi Einhvers" hinar síðari vikur. „Ég sýni ljósmyndir af sjáifum mér í Ameríku,“ segir Magnús þegar hann er beðinn að segja frá verkum sínum á sýn- ingunni. „Ég fór tvær ferðir yfir Ameríku og aðra þeirra á kúrekastíg- vélum. Sú sería heitir Yfir þvera Ameríku á kúrekastígvélum en hin röðin heitir ekkert. Þar er ég að nema Ameríku í annað sinn og hef með mér íslenskan fána.“ Erling segir að hans verk séu tvískipt, annars vegar videó sem er heim- ildarmynd I af lista- mannahefðinni svokölluðu, landslagsmálaran- um og drykkjumanninum. „Svo sýni ég mynda- röð af sjálfum mér þar sem ég tek fyrir andlit helstu listamanna sögunnar og blanda andliti mínu 50 prósent saman við með tölvutækni. Ég er að sýna minn listheim, það sem ég sæki í, en landslagsmálarinn á vídeóinu er algjörlega ómeðvitaður um það.“ Ásmundur segist vera með málverk á sýning- unni sem heitir Sektarkenndin, en það verk fái enginn að skoða nema sá sem sérstaklega óskar eftir því. „Og það sem af er hefur aðeins einn óskað eftir því,“ segir Ásmundur. Þegar hann er inntur eftir því hvers vegna hann sýni ekki fleirum verkið segist hann ragur við aö sýna ókunnugu fólki inn í kviku sálarlífs síns. Myndin sé abstrakt expressjónískur tilfinninga- straumur sem félagi hans, Erling, hafi af næmi hjálpað sér að mála og eigi ef til vill ekki erindi til allra. Annað verk sem Ásmundur er með á sýningunni ber líka tilfinningum hans vitni en það er myndband sem fjallar um reiði einstak- lingsins. í því ógnar Ásmundur heiminum með belti og segir „Are you talking to me?“ Drengirnir segjast vera vel menntaðir í myndlist. Magnús og Ásmundur með masters- próf frá myndlistarskóla í Bandaríkjunum og Erling er með masterspróf frá myndlistarskóla í Kanada. Nú eru þeir hins vegar komnir heim til að vera en ætla þó að gefa sér örlítinn tíma til að meika það í Evrópu og byrja strax í haust. Þá setja þeir upp sýningu í Hannover og Frankfurt í Þýskalandi og ef til vill Kaup- mannahöfn. Undir brúðarslörinii í dag og á morgun, kl. 16, verða leiksýningar í Norræna húsinu á verkinu Under brudslöjan eða Und- er brudesloret. Bomerang teatret er danskt-sænskt leikhús sem hefur sýnt þetta verk víða um Norður- lönd og Eystrasaltsríkin. Umfjöllunarefnið í Norræna hús- inu verður spumingin um það hvaða gjald konur á Norðurlöndum hafa þutft aö greiða fyrir það mikla frelsi sem þær hafa náð. Varpað verður fram svörum úr okkar sam- norrænu arfleifð. Maria er að fara að gifta sig og hiin pr ifnmin í skrúðann. En henni finnst hún ekki alveg tilbúin. Enn er ýmsum spurningum ósvarað. Hvað er ást? Er hægt að lofa að elska einhvern „þar til dauðinn aðskil- ur oss“? Hvernig fer maður að því að láta samband endast? Þess- um grundvallarspurn- ingum um lífið og tilver- una veltir Maria fyrir sér síöustu klukku- stundina áður en hún giftir sig. Hún leitar svara í söngvum, þjóð- sögum og ævintýrum og á vegi hennar verða harmþrungnar, fyndnar og heillandi kvenpersónur. Leikformið er sambland af leik- húsi, dansi og frásögn og er tónlist- in einnig veigamikill þáttur í sýn- ingunni. Leikari er Lisa Brand og fiðlu- leikur í höndum Kerstin Backlin. Handrit er unnið af Lisu Brand og Birgitte Norholt. Þeir segjast vera mjög spenntir fyrir framhcddinu og vonast eftir frekara samstarfi. Við þessa prófraun, sem sýningin í gekk allt upp og félagamir segjast best geta trúað því að þeir vinni saman þar til þeir verði frægir og fari í samkeppni hver við ann- an. í dag kl. 6 verður loka- hóf í Nýló í tilefni af þvi að síðasta sýningar- helgi er fi-am undan. Þar heiðra góðir gestir listamennina með nær- veru sinni, eins og óp- erusöngvarinn Jón Rúnar Arason sem hef- ur gert samning við Gautaborgaróperuna og er auk þess góður vinur Magnúsar. Erling teiknaði portrett af honum á Grandrokk og í staðinn samþykkti hann að syngja í lokahóf- inu. Til gamans minnist Magnús á að hann hafi sjáifur komið fram sem kórdrengur í Ameríku. „Ég fer í ákveðin jakkafót sem ég kalla kórbún- inginn, stend uppi á stól og syng lög eins og Heyr himnasmiður sem ég hef áður þýtt. Til dæmis varð Heyr himnasmiður í minni þýð- ingu „Hey you carpenter of the universe". Ég syng mjög fallega og kannski geri ég þetta í kvöld, það er aldrei að vita,“ segir Magnús. Listamennimir bæta við að allir megi koma i hófið,en algjört skilyrði sé að muna eftir góða skapinu. Þ.V. Klingenberg. DV-mynd E.ÓI. Karlmennska Júlíhefti tímaritsins Við karl- menn er komið út. Þetta er afskap- lega karlmannlegt blað þar sem fjallað er um fluguhnýtingar, tor- fæmr, gamla vörubíla og því velt upp hvort Samtök um þjóðareign verði sigurvegari næstu alþingis- kosninga. Þarna má líka lesa þing- stökur Hjálmars Jónssonar, nokkra léttbláa brandara og erótíska sögu ; sem ber það spennandi naín, Tungl- 1 skinsgyðjan. Hvað vilja karlmenn | hafa það meira? Ritstjóri er Hjörleifur Hallgríms- I son og útgefandi Fálkafell ehf. i ----------------------------- Bréf Silos til vina Hverfisfélag Húmanista í vestur- bænum (sem er víst eitthvað allt annað en Húmanistaflokkur Meth- úsalems Þórissonar) hefur nú gefið út bókina Bréf til vina minna eftir Mario Luis Rodrigues Silo, argent- ínskan húmanista. Silo hefur gefið út fjölda bóka og í október 1993 fékk hann nafhbót heiðursdoktors frá vísindaakademíu Rússlands. Bókin sem hér um ræðir hefur undirtitilinn Um félagslega og per- sónulega kreppu í heiminum í dag og í tíu áleitnum bréfum setur Silo fram sjónarhorn nýhúmanisma, frjálslyndis og fjölbreyti- leika og beinir því að helstu spurningum og þverstæðum vorra tíma. Spurningar eins og Hvert munu siauknar eftiahagslegar og tækni- legar breytingar leiða okkur? Er allt að gliðna í sundur eða að þjappast saman í sálarlaust heimsveldi? Erum við að nálgast betri tíma fyr- ir alla eða er heimshrun yfirvof- andi? Á bókarkápu segir aö „nýju fótin keisarans i raunsæishyggju nútím- ans séu aðeins innantóm skel utan um hrömandi goðsögn sem getur ekki lengur falið hræðilegt gang- verk ómennsks félagslegs og efna- hagslegs kerfis sem löngu er þörf á að gagnrýna og umbreyta á heiðar- legan hátt.“ Kjartan Jónsson hafði umsjón með íslensku þýðingunni. Bjartar nætur „Sýningin ætti éf til viíl frekar að heita Dimmar nætur held- ur en Bjartar nætur þar sem fólkið sat í rökkvaöri baðstpf- unni við vinnu sína og hlustaði á sögur, kveðskap og gamlar frásagnir á svokölluð- um kvöldvökum. Þannig hvarf fólkið inn í ímyndaðan heim og gleymdi fá- tæktinni um stund. Sögumar voru birtan í myrkrinu." Þetta segir Kristín G. Magnús en hún er frumkvöðullinn að sýningunum Light Nights í Tjamarbíói. Kristín er einnig leik- stjóri, leikari, efnis- höfundur og listrænn stjómandi. „Á sínum tíma útskrifaðist ég úr Royal Academy of Dramatic Art í London. Þegar ég kom heim vann ég í Þjóðleikhúsinu, við kennslu, og tók að mér nokkur hlutverk, bæði stór og smá. Svo fór ég að velta fyrir mér, af því að allt mitt nám fór fram á ensku, hvort ekki væri hægt að setja eitthvað rammíslenskt upp á ensku, og þá fyrir erlenda feröamenn. Ég ákvað að prófa þetta eitt sumar, það var árið 1970. Síð- an vatt þetta upp á sig og við maðurinn minn, Halldór Snorrason, höfum sett upp sýningar á hverju sumri þessi 28 ár sem liðin eru. Á hverj- um vetri segi ég svo við sjálfa mig: „Nei, ég get þetta ekki aftur í sumar, þetta er allt of mikil vinna og fjárhættuspil!" En af einhverjum ástæðum er þetta oröinn fastur liður hjá okkur og um leið I menningarlífi borgarinnar. í byrjun fengum viö inni í Glaumbæ, sem er núna Listasafn íslands. Við fórum þaðan yfir á Kristín G. Magnús fyrir miöju f fríöum hópi víkinga á sýningu Light Nights í Tjarnarbíói. Loftleiðahótel en lengst af höfum við verið í Tjamarbíói. í byrjun var dagskráin ósköp ein- föld, það voru engin tjöld eða búningar og mað- ur las einfaldlega upp, líkt og á kvöldvöku. Núna erum við hins vegar komin með massífa leikmynd sem er eiginlega þrjár leikmyndir: víkingasalur, baðstofa og svokallað einskis manns land sem er miðdepillinn. Fyrir ofan eru svo sýndar skyggnur á stóru tjaldi sem eru sam- hæföar tali, tónlist og leikhljóðum. í sumar bjóðum við svo upp á sautján atriði. Við byrjum á nútímanum, förum svo yfir í aldamótabaðstof- una, segjum þjóðsögur og reynum að endur- skapa kvöldvökustemninguna. Fyrir hlé endum við á Djáknanum á Myrká, sem er afskaplega hryllilegt atriði, og við erum lítið ánægð ef ein- hver áhorfenda æpir ekki upp yfir sig. Eftir hlé förum við síðan yfir i vikingana og þeirra tíma og endum svo á Ragnarökum úr Völuspá, þanhig að við förum aftur á bak um söguna." Þegar Krist- ín er spurð að því hvort það bara útlendingar sem sækja sýning- una segir hún að sem betur fer komi íslendingar oft í fylgd útlendinga sem þeir eru að sýna land og þjóð. Kristín segir að þau séu mjög ánægð að fá íslend- inga á sýninguna og þeir sem hafa komið séu allir á einu máli um að sýningin sé miklu betri en þá nokkurn tíma óraði fyrir. Kristín segir að engin leið sé að reikna aðsóknina út. Stundum, þegar borgin er full af erlendum ráðstefnugestum, þá koma fáir, en aftur á móti getur verið fullt aðra daga þeg- ar feröamenn eru hér á eigin vegum. „Fólk fær þarna á silfurfati, á tveimur tím- um, góða innsýn í okkar menningu. Það fær matreidd skemmtileg atriði sem eru færð í leik- búning, það fer út fróðara og með bros á vör. Ég hef feröast mikiö um allan heim og víða er al- gengt að sýndir séu þjóðdansar og sungið en það er hvergi sem maður fær að heyra sagnir viökomandi lands. Mér finnst það mikilvægt því að sögumar segja svo mikið um þjóðarsál- ina. Hvort sem við viljum eða ekki þá erum við bundin fortíðinni að einhverju leyti," segir Kristín G. Magnús að lokum. Sýningar á Light Nights eru á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum og þær standa út ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.