Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Qupperneq 28
28
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998
nn
Ummæli
Hættir að treysta
viðsemjendum
„Viö höfum veriö svikin og
þaö er alveg kristal-
! tært að eftir þá
, reynslu sem viö
höfum nú fengið j
veröa ekki gerðir
þriggja ára kjara-
samningar næst
því það er ekki
hægt að treysta
viðsemjendum okkar og rík-
isvaldinu."
Haildór Björnsson, formaður
Dagsbrúnar, í Degi.
Þunginn hvílir á þeim
lægstlaunuðu
„Enn einu sinni virðist eins
og allur þunginn af því að ná
verðbólgunni niður eigi að
hvíla á þeim lægstlaunuöu. Ég
vil benda á að það eru enn þá
66.000 kr. launataxtar í gangi
hjá verkafólki. Og reyni hver
sem er að lifa af því.“
Sigurður T. Sigurðsson, for-
maður Hlífar, í DV.
Þeir sem ráða í
Sjálfstæðisflokknum
„íslensku stórfyrirtækin sem
ráða Sjálfstæðis-
flokknum og
Vinnuveitenda- \
sambandinu búa
ekki við mikla
samkeppni. Þau
eiga hlut hvert í
öðru og hafa að
hluta sömu stjómarmenn." |
Ágúst Einarsson alþingis-
maður, í Degi.
Þurfum engar
aftökusveitir
„Við þurfúm engar aftöku- f
sveitir - fangar sjá um þau mál
sjálfir, svipta sig lífi í röðum.
Hvað er að gerast á Litla-
Hrauni?"
Hrund Smáradóttir grunn-
skólakennari, í Morgunblað-
Dró skektu sína í naust
„Rétt er það að Sverrir Her-
mannsson gerði út
á pólitík á upp-
hafsárum kvóta-
kerfisins. En
hann brýndi
þeirri skektu
sinni og dró
hana í naust 17.
maí 1988.“
Sverrir Hermannsson, fyrrv.
bankastjóri, í Morgunblaðinu.
Harmleikurinn
„Aukalandsfundur Alþýðu-
bandalagsins var harmleikur í
þeim klassíska skilningi að
lengi var séð að hverju dró án
þess að hægt væri að fá rönd
við reist.“
Þorvaldur Þorvaldsson, for-
maður Sósíalistafélagsins, í
Morgunblaðinu.
i i, *)\ i
4 9i
Árni Heimir Ingólfsson píanóleikari:
Kominn tími til að hlaða batteríin
í tengslum við Sumartónleika í
Skálholtskirkju mun Árni Heimir
Ingólfsson, píanóleikari og dokt-
orsnemi í tónvísindum við Harvard-
háskóla, flytja erindi í Skálholtsskóla
sem hann nefnir Guð faðir, vér þökk-
um þér. Fjallar hann um tvísöng i ís-
lenskum sönghandritum eftir -------
siðaskipti: „Ég hef í sumar ver-
ið að vinna að fræðilegri út-
tekt á tvísöngslögum í íslensk-
um miðaldahandritum ög það er sú
vinna sem ég ætla að fjalla um. Þetta
er allt mjög merkilegt. Tvísöngurinn
er í raun eina fjölraddaða tónlistin
sem var iðkuð hér á landi í mörg
hundruð ár. Áður fyrr héldu margir
að þetta væri séríslenskt fyrirbrigði
en það er alltaf að koma betur og bet-
ur í ljós að tónlistarlega einangrunin
var ekki eins mikil og talið var og
sjálfsagt hafa alls konar straumar
verið að berast til landsins."
Árni Heimir fékk í fyrrdag mynd-
arlegan styrk úr minningarsjóði Jean
Pierre Jacquillat: „Þessi styrkur er til
rannsóknar á ferli Jóns Leifs í Þýska-
landi og mun ég kynna niðurstöðurn-
ar á aldarafmæli hans á næsta ári. Ég
hef haft áhuga á tónlist Jóns Leifs
mjög lengi. Ég heyrði tónlist hans
fyrst vel þegar verið var að halda upp
á 90 ára afmæli hans og Sinfóníu-
hljómsveitin var með tónleika í Há-
skólabíói af því tilefni. Ég var fimmt-
án ára gamall og hafði áhuga á að
fara á tónleikana og fór einn því ég
fékk engan til að fara með mér. Eftir
þá tónleika gerði ég mér grein fyrir
að mig hafði aldrei grunað að íslend-
ingur hefði samið svona stórfenglega
tónlist og síðan hef ég verið
mjög spenntur fyrir öllu sem Árni Heimir Ingólfsson.
Jón Leifs gerði.”
Ámi Heimir er búinn að vera áber-
andi í tónlistarlífinu í sumar: „Þetta
er búið að vera annasamt sumar og
nú er ég á leiðinni í frí tU að hlaða
batteríin, fer á sunnudaginn tU Flór-
ens og verð þar fjórar vikur tU að
Maður dagsins
læra ítölsku og þegar sá tími er
liðinn ætla ég að dvelja í eina
viku i Benediktsklaustri í Frakk-
landi sem heitir Solesmes. Þar
ætla ég að kynna mér gregorískan
söng en þetta klaustur stendur
einna fremst í slíkum söng í
heiminum. Aö þessu
loknu fer ég til
Bandaríkjanna og
held áfram mínu
námi.“
Árni er spurð-
ur hvort píanó-
leikarinn muni
víkja fyrir tón-
vísindamannin-
um: „Ég hef
aldrei hugsað
mér að vera
bara hljóðfæra-
leikari, píanó-
námið er að-
eins hluti af
minu námi. Mitt
takmark er að
vera músíkant í
fyUstu merkingu
þess orðs sem felst í
því að vita mikið og
hafa víðtæka þekkingu sem nær út
fyrir tæknUega spilamennsku."
Þótt Ámi Heimir sé öUum stundum
í tónlistinni þá beinist áhugi hans að
mörgu öðru: „Ég hef mörg önnur
áhugamál og þar
sem ég er einn á
báti og barn-
laus get ég
sinnt þeim
: líka. Ég hef
mikinn
áhuga á bók-
menntum,
myndlist og úti-
veru, svo eitt-
hvað sé nefnt."
-HK
Hjólabrettalist
Þessa dagana stendur yfir
sýning á hjólabrettalist í
GaUerí Geysi, Hinu húsinu
við Ingólfstorg. Það er versl-
unin Smash og GaUerí
Samkomur
Geysir sem standa fyrir
sýningunni sem opin er aUa
daga tU 2. ágúst.
Under Brudslöjan
í norræna húsinu verður
í dag og á morgun kl. 16
báða dagana sýnt leikritið
Under brudslöjan/Under
brudsloret. Það er Bomer-
ang teatret sem sýnir leik-
ritið sem fjaUar um Mariu
sem er að fara að gifta sig
og er komin í skrúðann. En
henni finnst hún ekki alveg
tUbúin. Enn er ýmsum
spurningum ósvarað. Leik-
arar eru Lisa Brand og
Kerstin Backlin.
Félagsvist
SpUuð verður félagsvist á
vegum Félags eldri borgara
í Kópavogi í Gjábakka,
Fannborg 8, í kvöld kl.
20.30.
Myndgátan
Stendur í hárinu á konu sinni. Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnoröi.
Sólveig Anna Jónsdóttir og Ragn-
hildur Pétursdóttir leika í Varma-
hlíð f kvöld.
Sumartón-
leikar í
Skagafirði
Ragnhildur Pétursdóttir fiðlu-
leikari og Sólveig Anna Jónsdótt-
ir píanóleikari verða með tónleika
í kvöld í Miðgarði, Varmahlíð.
Flutt verða verk eftir Beethoven,
Fritz Kreisler, Þórarin Guð-
mundsson, Sigfús Einarsson, Atla
Heimi Sveinsson, Sigvalda Kalda-
lóns, Karl Ó. Runólfsson, Jules
Massenet og Vittorio Monti.
Tónleikar
Ragnhildur Pétursdóttir stund-
aði framhaldsnám fyrst í
Minnesota og útskrifaðist 1992 frá
The Manhattan School of Music í
New York. Sama ár hlaut hún
Thor Thors-styrkinn frá The
American Scandiavian Founda-
tion tU að stunda einkanám. Auk
þess aö taka þátt í tónleikahaldi
viða um lönd er Ragnhildur fast-
ráðin í Sinfóniuhljómsveit ís-
lands.
Sólveig Anna Jónsdóttir var í
framhaldsnámi 1 Bandaríkjunum.
Hún starfar við tónlistarkennslu
og píanóleik í Reykjavík og hefur
meðal annars leikið með Sinfóníu-
hljómsveit íslands og Kammer-
sveit Reykjavíkur.
Bridge
Góöir spUarar gera oft ótrúleg-
ustu mistök. f þessu spili, sem kom
fyrir á HM í parasveitakeppninni á
Ródos 1996, gerði austurríska lands-
liðskonan EmUia Erhart dýrkeypt
mistök. SpUið kom fyrir í leik lands-
liða Austurríkis og Bandaríkjanna.
í opnum sal hafði suður opnað á
einum tígli eftir pass frá norðri og
austri. Vestur doblaði, norður sagði
einn spaða og enginn hafði neitt við
þá sögn að athuga. Sagnhafi fékk 7
slagi í þeim samningi. Sagnir gengu
þannig á hinu borðinu, norður gjaf-
ari og n-s á hættu:
* D8652
D1072
♦ -
* G764
* ÁK93
4» 9843
* Á6
* D82
* G74
* G5
* KG54
* ÁK105
Noröur Austur Suður Vestur
Erhart Chamb. Weigkr. Deas
pass pass 1 ♦ dobl
pass? pass pass
Passið er óskUjanlegt með öUu,
sérstaklega þegar tiUit er tekið tU
þess að tígulopnun suðurs var opn-
un i Bláa laufinu
og lofaði aUs
ekki tíguUit
(tígulopnunin í
opnum sal var
eðlUeg og lofaði
lit). Bandarísku konumar voru ekki
í vandræðum með vömina, tígulás
út og meiri tígli spUað. Sagnhafi
fékk 4 slagi, 2 á tígul og 2 á lauf. Það
vom 800 stig í dálk andstæðinganna
og 13 impar tapaðir.
ísak öm Sigurðsson