Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998 Fréttir Stuttar fréttir dv Reglugerð um uppkaup húsa á snjóflóðahættusvæðum: Aðeins örugg hús keypt - hús á hættusvæði falla ekki undir reglugerð samkvæmt skýringum ráðuneytisins Byggingarsjóði ríkisins er einungis heimilt að lána sveitarfélögum til upp- kaupa húsa á snjóflóðahættusvæði ef húsin eru vísindalega örugg fyrir snjóflóðum en ekki ef hætta er á að snjóflóð geti fallið á svæðinu. Sam- kvæmt skýringum við reglugerð, sem félagsmálaráðuneytið hefúr sett, virð- ist lánafyrirgreiðsla Byggingarsjóðs bundin við hús sem íbúar treysta sér ekki til að búa i þrátt fyrir að vísinda- menn telji húsunum ekki hætta búin vegna náttúruhamfara. Lánaflokki þessum er ætlað að gera Húsnæðisstofnun kleift að aðstoða sveitarstjómir við að kaupa upp íbúð- ir þar sem áfóll hafa orðið vegna nátt- Alli ríki ekki meðal efstu Sigurjón Valdemarsson, skipstjóri Síldarvinnslunnar á Neskaupstað, greiðir hæst opinber gjöld ailra aðila á Austurlandi, alls rúmlega fimm millj- ónir. Hann var í fjórða sæti fyrir síð- asta ár. Annað sætið skipar Kristinn Aðalsteinsson, umboðsmaður og fram- kvæmdastjóri Nýjungar hf. á Eskifirði, en hann hefúr rétt tæplega fjórar millj- ónir á mánuði. Kristinn er sonur Aðal- steins Jónssonar, Alla ríka, og hefúr m.a. umboð fyrir Skeljung á Eskifirði. Þriðja sætið skipar tengdasonur Aila ríka, Þorsteinn Kristjánsson, loðnu- skipstjóri á Hólmaborg. Hann greiðir einnig tæplega fjórar milljónir í opin- ber gjöld. Bjöm Magnússon, yfirlækn- ir Fjórðungssjúkrahússins í Neskaup- stað, er fjórði með rúmlega þrjár millj- ónir. Fimmti á listanum er Jóhann Sigurður Kristjánsson, stýrimaður á Hólmaborg og bróðir Kristins skip- stjóra. Athygli vekur að Aðalsteinn Jónsson, sem hafði tæplega átta millj- ónir á siðasta ári, er ekki hálfdrætting- ur miðað við ofangreinda aðila og nær ekki þremur milljónum. -hb Fimra efstu á Norðurlandi: Allir í sjáv- arútvegi Á Norðurlandi eystra er ívar Geirsson með hæst álögð gjöld eða 8,072 miiljónir. Ivar starfar hjá Fisk- iðjusamlagi Húsavíkur og vinnur viö fiskmóttöku. Samkvæmt heim- ildum DV munu hans tekjur eink- um vera hagnaðartekjur en ekki at- vinnutekjur. í öðru sæti er Önund- ur Kristjánsson, skipstjóri á Raufar- höfn, en hann gerir út eigin skip. Fáum kemur á óvart að Samherja- menn skulu vera ofarlega á lista. Þorsteinn Már Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri útgerðarinnar, er í fjórða sæti en bræðumir Þorsteinn og Kristján Vilhelmssynir skipa síð- an fimmta og sjötta sætið. úruhamfara eða réttmætur ótti vegna þessa. Um íbúðakaup á hættusvæðum fer hins vegar eftir lögum um snjó- flóðavamir en samkvæmt þeim er sveitarstjóm heimilt að gera tillögu um að hús á hættusvæði verði keypt upp. Slík tillaga er þó háð því að íbúðakaup séu hagkvæmari kostur en að reisa vamargarða og því þarf að liggja fyrir sérfræðilegt hættumat áður en ákvörðun er tekin. „Sveitarfélög hafa ákvörðunarvald um hvort hús á snjóflóðahættusvæði verða keypt upp eða reistir vamar- garðar í kringum þau. Ofanflóðasjóð- ur hefur heimild til að styrkja sveitar- félög til slíkra uppkaupa en aðeins Litlu mátti muna að illa færi þeg- ar bíll festist í Krossá síðasta sunnudag. Ámi Samúelsson í Sam- bíóunum átti leið um ásamt fleirum á Hummerbíl og bjargaöi bílstjóra og farþegum. „Við sáum glitta í rauðan bíl úti í Krossá á leiðinni úr Þórsmörk. Far- ið var að fljóta upp á gluggana og flæða inn í hann. Fólkið, þrir full- orðnir og tvö börn, var fast í bíln- um,“ segir Ámi. „Við vorum sem betur fer á Hum- mer sem umboðið lánaöi okkur. Ég og Alfreð, sonur minn, ákváðum að láta reyna á hvort við kæmumst yfir ána. Hummerinn fann ekki fyr- ir þessu, fór léttilega yfir. Á sama tíma kom Snorri, tengdafaðir sonar míns, að. Hann er í Hjálparsveit skáta i Hafnarfirði." Snorri og Alfreð óðu að bílnum, með þvi skilyrði að uppkaup séu ódýrari kostur en bygging vamar- garða. Áður en tekin er ákvörðun um uppkaup þarf því aö liggja fyrir mat á kostnaði við gerð vamarmannvirkja,“ segir Magnús Jóhannesson, ráðuneyt- isstjóri í umhverfisráðuneytinu. Áð sögn Magnúsar fór sams konar mat fram í Hnífsdal á sínum tima. í Ijósi þess var talið að dýrara væri aö byggja vamargarða en kaupa upp hús og styrkti Ofanflóðasjóður því kaup á húsunum. Svipað var upp á teningn- um á Húsavík þar sem hagkvæmara var talið að flytja byggðina heldur en reisa vamargarða um hana,“ sagöi Magnús. sem sökk sífellt meira, og huguðu að fólkinu. „Þeir byrjuðu á aö taka fólkiö út um einn gluggann og koma því í land. Svo kafaði Snorri niður til að koma tógi í bílinn. Ekki gekk að ná honum upp úr í fyrstu tilraun. Ann- að tóg var því sett í bílinn. Þá náð- ist hann upp. Það mátti ekki seinna Engin fyrirgreiðsla í Bolungarvík Eins og greint hefúr verið frá í DV ætlar Byggingarsjóður að veita ísa- fjarðarbæ lán upp á 33,6 milljónir til uppkaupa á húsum á Flateyri. Þetta hefur verið gert þrátt fyrir að húsin séu varin með vamargörðum sem kostuðu ríkissjóð um 400 milljónir króna og húsin því ekki skilgreind á hættusvæði lengur. Samkvæmt upp- lýsingum DV virðist reglugerðinni enn fremur einungis hafa verið ætlað að gilda á Flateyri þrátt fyrir að eng- in slík takmörkun á gildissviði komi fram í henni sjálfri. 21. febrúar 1997 féllu tvö snjóflóð í Bolungarvík. Snjóflóðið féll meðal annars á tvö ibúðarhús og urðu um- talsverðar skemmdir á báðum húsun- um. Fjölskyldumar tvær sem búa í húsunum hafa því þurft að búa á snjó- flóðahættusvæði síðan 1997 og enga fyrirgreiðslu fengið til þess að bæjar- félagið kaupi upp hús þeirra. Ástæða þess að húsin fást ekki keypt mun einmitt vera sú að þau em á hættu- svæði og samkvæmt lögum um snjó- flóðavamir verður að liggja fyrir mat á því hvort hagkvæmara sé að reisa vamargarða á svæðinu eða kaupa upp húsin. Það mat mun vart liggja fyrir fyrr en 2001. Kristinn H. Gunnarsson, þingmað- ur Alþýöubandalagsins á Vestflörð- um, er meðal þeirra sem hafa gagn- rýnt hvemig staðið hefur verið að þessum málum. „Mér fmnst mjög óeðlilegt að hús séu keypt upp þar sem búið er að reisa vamargarða fyr- ir stórfé meðan hús sem sannanlega em á hættusvæði fást ekki keypt," sagði Kristinn. -kjart vera því vatnið var komið yfir fram- rúðuna. Það var eins og einhver stjómaði því ofan frá að við komum þama að. Bíllinn hefði oltið af stað nokkrum mínútum seinna. Þá hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum," segir Ámi. -sf Sameing banka Formaður efnahags- og viðskiptanefnd- ar, Vilhjálmur Egilsson efast um að samein- ing Búnaðar- banka og Fjár- festingabanka atvinnulífsins skili mikilli hag- ræðingu. Hann vill að lögmál markaðarins ráði því hvaða bank- ar sameinist og að ríkið skipti sér sem minnst af því. Kaupir verksmiðju SÍF Fjárfestingabanki atvinnulífsins hefúr kejT>t verksmiðju dótturfyr- irtækis SÍF í Frakklandi fyrir um hálfan milljarð króna. Um er að ræða kaupleigu til sjö ára að ræða. RÚV sagði frá. Aðgát gegn þjófum Lögreglan hvetur fólk til að vetj- ast innbrotsþjófúm. Meginatriði sé að fólk láti hús sín líta út fyrir að einhver sé heima Hafa þvott á snúm, bíl á bílastæði, ljós kveikt og biðja nágranna að fylgjast með húsnæðinu. Fræðsla á hátíðum Ungmenni frá Jafhingjafræðslu framhaldsskólanema munu heim- sækja nokkrar útihátíðir um versl- unarmannahelgina í sérmerktum bíl, staldra við á hverjum stað, dreifa bæklingum og spjalla við fólk. Svíar vilja Landsbanka SE-bankinn í Svíþjóð hefur áhuga á að eignast meiri- hluta í Lands- banka íslands hf. og að bank- inn kaupi þann helming í VÍS sem hann á ekki þegar. Morgun- blaðið hefúr þetta eftir Halldóri Ásgrímssyni. Eiturlyfjamál í Eyjum Lögreglan i Vestmannaeyjum fann á fimmtudag þrjú grömm af amfetamíni og tvö grömm af hassi á hópi ungs fólks. Fólkið var einnig með 18 lítra af landa. Borað í Tungudal 25 tilraunaholur sem boraðar hafa verið i Tungudal við Isaflarð- ardjúp eftir heitu vatni þykja lofa góðu að sögn Kristjáns Haralds- sonar orkubústjóra Vestflarða. Boruð verður kílómeters djúp hola á næstunni að sögn Morgunblaðs- ins. Funda með Ijósmæðrum Samningamenn Ríkisspítala hafa í dag boðað þær ljósmæður sem sagt hafa upp frá og með morgundeginum til fundar um kjaramál, hverja fyrir sig. Fara á yfir flokkun þeirra innan launa- kerfisins. RÚV sagði frá. Stálsmiðjan iægst Átta tftboð bárust í smíði nýrr- ar Hríseyjarferju, tvö erlend og sex íslensk. Lægst var tilboð Stálsmiðj- unnar í Reykjavík, 129 milljónir króna Sóknardagakerfi áftam Landssamband smábátaeigenda vill að sóknardagakerfið verði áfram við lýði og lýsir þungum áhyggjum vegna fækkunar sóknar- daga að sögn Morgunblaðsins. Halli ógnar velferð Takist ekki að sefla ríkiseignir fyrir ll milljarða á næsta ári þarf að skera niður i velferðarkerfinu. Efla þarf spamað ef ekki á illa að fara. Viðskiptahallinn er ógnvekj- andi að sögn Halldórs Ásgrímsson- ar í Degi. Eimskip hagnast Hagnaður Eimskips af reglulegri starf- semi varð 401 milflón krónur á fyrra árshelm- ingi eftir skatta Velta Eimskips og dótturfélaga þess varð 8.528 milljónir króna. Flutningar jukust um 11% frá því á sama tima í fyrra. -SÁ Málefni íbúa á snjóflóðahættusvæðum í biðstöðu: Mat liggur fvrir 2001 engin afstaða tekin fyrir mat, segir bæjarstjóri Bolungarvíkur sagði Ólafur Kristjánsson, bæjar- stjóri í Bolungarvík, þegar DV spurði hann hvers vegna hús á hættusvæðinu í Bolungarvík fengjust ekki uppkeypt. „Umhverf- Snjóflóðahættumat fyrir stærstu byggðir landsins, þar sem hætta er á snjóflóðum, mun ekki liggja fyr- ir fyrr en 2001 samkvæmt upplýs- ingum frá Veöurstofu íslands. „Sem stendur er í gangi áætlun um að hættumat fyrir flesta stærri staðina verði tilbúið snemma á ár- inu 2001,“ segir Kristján Jónasson, verkefnisstjóri snjóflóðahættu- mats á Veðurstofu íslands. „Per- sónulega hef ég talið að það hafi verið meiri hægagangur á þessu en þörf var á, sérstaklega hvað varðar mannafla." Kristján segir hættumat þó ekki leysa allan vanda þeirra sem búa á svæðunum. „Þó að hættumat liggi fyrir er engu að síður mjög óljóst hvað þá tekur við, til dæmis hvort menn geti þá sótt um að hús þeirra verði keypt upp. Það er vitaskuld mjög slæmt fyrir þá sem eru á mestu hættusvæðunum að búa við þessa óvissu. Annars er öll um- ræða um hvað eigi að gera í þess- um málum skammt á veg komin, hvort sem það varðar uppkaup húsa eða byggingu vamargarða. „Það verður engin afstaða tekin til uppkaupa húsa fyrr en fyrir liggur hvað á að gera og hvemig," isráðuneytið er að vinna hættu- mat og það er fyrst að því loknu að ákveðið verður hvort hús verða keypt upp eða byggðir vamargarð- ar. Annars hefúr ráðherra sagt mér og öðrum Bolvíkingum að fmmdrög að mati muni liggja fyr- ir í haust og þá fer væntanlega að skýrast hvemig staðið verður að þessum málum,“ sagði Ólafur. -kjart Fólk á öllum aldri er farið að tínast á útihátíðir úti um land. Hjá Umferðarmiðstöðinni fengust þær upplýsingar að flestir legðu leið sína á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, Halló Akureyri og á Bindindismótið í Galtalæk. Uppselt er í Herj- ólf í dag og á mánudaginn er uppselt í þær þrjár ferðir sem farnar verða frá Vestmannaeyjum. -SJ DV-mynd E.ÓI. Björguðu fólki úr Krossá - mátti ekki tæpara standa, segir Árni Samúelsson Mikil mildi var að ekki fór verr jjegar jeppi stöðvaðist í Krossá. Árni Samú- elsson dró hann upp með aðstoð fleiri manna. DV-mynd Guðný
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.