Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998 9 Utlönd Þrettán verkamenn ellefu milljörðum ríkari: Talan þrettán reið baggamuninn Þrettán starfsmenn ATZ-verk- smiðjunnar í Ohio í Bandaríkjunum duttu heldur betur í lukkupottinn í gær þegar þeir fengu allar tölur rétt- ar í Powerball-lottóinu og unnu þar með hæsta vinning sem um getur þar í landi. Heildarvinningsupphæðin nam 296 milljónum dollara eða rúmum 19 milljörðum íslenskra króna. Venjan er að greiða vinningsupp- hæðina út á 25 árum en vinnings- hafarnir kusu að fá peningana strax og fá því aðeins rúma ellefu millj- arða íslenskra króna eða um 850 milljónir á mann. Hópurinn hefur keypt saman lottómiða árum saman en vinnings- miðann keyptu þau síðastliðinn þriðjudag og lagði hver út sem nem- ur um 700 krónum en fyrir það feng- ust 130 raðir. Fleiri unnu í lottóinu því 79 manns fengu sjö milljónir hver fyr- ir fimm tölur réttar en sá hópur átti það sammerkt að hafa ekki valið töl- una 13 en það var sú tala sem réð Larry Sturtz lögfræðingur kom fram fyrir hönd vinningshafanna í gær. úrslitum hjá verkamönnunum þrettán. Vinningshafarnir hyggjast halda nafnleynd en talsmaður hópsins, Larry Sturtz lögfræðingur, talaði við fjölmiðla í gær og sagði hópinn enn vera að jafna sig á „áfallinu". „Hver fjölskylda er að velta því fyrir sér hvað hún eigi að gera við peningana en svona miklir peningar breyta auðvitað öllu,“ sagði Sturtz. Hann sagðist ekki vita hvort þeir ætluðu að hætta störfum í verk- smiðjunni en í gær var ljóst að fjór- ir höfðu þegar sagt upp. Hinir níu hyggjast halda áfram, að minnsta kosti fyrst um sinn. Þrátt fyrir nafnleynd tókst banda- rískri sjónvarpsstöð að grafa upp einn vinningshafann í gærkvöld. „Við erum enn óttaslegin yflr þess- um tíðindum en mest langar okkur að losna við ykkur fjölmiðlamenn og halda áfram að lifa okkar venju- bundna lífi. Reuter Móttökustöö ólöglegra innflytjenda stendur í Ijósum logum á eyjunni Lampedusa undan ströndum Italíu. Ólöglegir innflytjendur frá Noröur-Afríku, sem þar eru í haldi, efndu til uppþota f gær þar sem nýjar og strangar reglur kveöa á um aö þeir veröi tafarlaust sendir aftur til sfns heima. Nærri 3000 ólöglegir innflytjendur hafa komiö til Suöur-ítal- fu í þessum mánuði. Símamynd Reuter Milosevic sagöi ekki satt og rétt frá: Serbneski herinn er enn í stórsókn Serbneskar hersveitir sóttu að vígi skæruliða albanskra aðskilnað- arsinna í vestasta hluta Kosovohér- aðs í morgun, þótt Slobodan Milos- evic Júgóslavíuforseti hefði heitið því í gær að stórsókninni væri lok- ið. Opinberir serbneskir heimildar- menn sögðu að aðeins nokkrir tugir harðlínumanna meðal skæruliða hefðu þorpið Junik enn á valdi sínu og að foringjar þeirra væru þegar farnir yfir landamærin til Albaníu. Milosevic sagði sendinefnd frá Evrópusamandinu í gær að sókn- inni gegn albönsku aðskilnaðarsinn- unum væri nú lokið. Hann lofaði einnig að umsátrinu um Junik og aðra staði vestast í héraðinu þangað sem skæruliðar flúðu yrði aflétt. Serbnesk leyniskytta mundar riffil sinn nærri þorpinu Junik í Kosovo þar sem setiö er um skæruliða aö- skilnaöarsinna. \Lokað\ | laugardagy sunnudag ,°s, manudag TM - HÚSGÖGN SíSumúla 30 -Slmi 568 6822 Kalt kryddsmjör í sneiðum á laxinn Brætt kryddstnjör penslað á kjúklinginn Rjómaostur í pylsubrauðið undir heita grillaða pylsu 1 Jmk Rifinn maribo á hamborgarann 4 Sneið af 26% osti á hamborgarann Bræddur og grillaður, sneiddur eða rifinn ostur, rjómaostur, gráðaostur - fáðu þér ost og notaðu hugmyndaflugið. Ostur er toppurinn á grillmatnum í sumar! Ostur í allt sumar ÍSLENSKIR OSTAR, v í AlLT S' www.ostur.is 'R HVÍTA HÚSIÐ / SÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.