Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
Fréttir
Reykvíkingar greiða 30 milljarða í skatta:
Dánarbú Þorvaldar hæst
- ný nöfn meðal hæstu greiðenda
Enda þótt Þorvaldur Guðmundsson
í Síld og fiski hf. sé látinn, greiðir
hann hæstu opinberu gjöldin í
Reykjavík árið 1998 áttunda árið í röð.
Hann greiðir nú tæplega 46 milljónir
króna en greiddi árið á undan tæp-
lega 37 milljónir. Næstur á eftir Þor-
valdi er Ingimundur Ingimundarson
loðnuskipstjóri sem greiðir rúmar 18
milljónir en hann var ekki meðal
efstu manna á síðasta ári. Hörður Sig-
urgestsson, forstjóri Eimskips hf., er
nú þriðji hæstur og fer upp um tvö
sæti og greiðir rúmlega tíu milljónir í
opinber gjöld sem er svipað og á síð-
asta ári. Fjórði maður á lista er Guð-
mundur Kristjánsson og fimmti
Gunnlaugur Guðmundsson, verslun-
armaður og íyrrv. eigandi Gunnlaugs-
búðar, með um tíu milljónir hvor en
hvorugur þeirra var meðal hæstu
manna á síðasta ári.
Af öðrum þjóðþekktum einstakling-
um sem eru ofarlega á lista má nefna
Greiðendur hæstu opinberra gjalda í Reykjavík 1998
50.000.000 kr.
30.000.000
45.000.000
40.000.000
35.000.000
25.000.000
20.000.000
15.000.000
10.000.000
5.000.000
ir»gg 0
Skattálagningin á Reykjanesi:
Ný nöfn á toppnum
- fimm af tíu efstu tengjast sjávarútvegi
Greiðendur hæstu opinberra gjalda á Reykjanesi 1998
30.000.000 kr. ---------
25.000.000
20.000.000
15.000.000
Pétur Auðunsson, eigandi Vél-
smiðju Péturs Auðunssonar í Hafn-
arfirði, greiðir hæstu gjöld allra ein-
staklinga á Reykjanesi samkvæmt
álagningarskrá fyrir árið 1998.
Heildarálagning á Pétur er 25,140
milljónir. Pétur var ekki meðal
þeirra 10 efstu í fyrra.
í öðru og þriðja sæti listans eru
þeir Reynir Jóhannsson skipstjóri
og Benoný Þórhallsson vélstjóri,
báðir úr Grindavík. Þeir voru ekki
meðal tíu efstu í fyrra en ástæðan
fyrir því hversu háir þeir eru núna
mun vera sala þeirra á togaranum
Víkurbergi GKl sem var að mestu
leyti í eigu þeirra. Söluhagnaður
kann einnig að vera skýringin á
innkomu Benedikts Sigurðssonar,
lyfsala í Keflavík, á listann en hann
seldi einmitt Apótek Keflavíkur á
síðastliðnu ári. Helgi Vilhjálmsson,
sem er í 8. sæti listans, er aðallega
þekktur fyrir rekstur sinn á Kent-
ucky Fried Chicken og sælgætis-
verksmiðjunni Góu.
Aðeins tveir þeirra sem voru
meðal tíu hæstu skattgreiðenda á
Reykjanesi í fyrra eru enn í sama
hópi. Ómar Ásgeirsson, sem rekur
eigin rækjuvélarþjónustu, er annað
árið i 6. sæti listans yfir hæstu
skattgreiðendur í umdæminu og
greiðir um 11,156 milljónir í skatta.
I fyrra greiddi Ómar hins vegar
8,411 milljónir. Sigurjón S. Helgason
verktaki sem var í öðru sæti yfir
hæstu skattgreiðendur í fyrra er nú
í 9. sæti og greiðir um 9,386 milljón-
ir í skatt. Álagning á hann lækkar
því um fjórar milljónir þar sem hún
var um 13,632 milljónir í fyrra.
Athygli vekur að fimm þeirra tíu
efstu á listanum tengjast sjávarút-
vegi með einhverjum hætti. Þeir
Reynir og Benoný hafa báðir notið
tekna af sjávarútvegi og Sveinn
Bjömsson í 6. sæti listans er útgerð-
armaður. Þá er Pétur eigandi vél-
smiðju eins og áður sagði og Ómar
rekur rækjuvélarþjónustu.
-kjart
Álagningarskrár lagöar fram í dag:
Þjóðin borgar 66
milljarða í skatta
- skiptist jafnt í tekjuskatt og útsvar
Vesturland
Aðeins einn af fimm tekju-
hæstu einstaklingum á Vestur-
landi skipar þann hóp núna mið-
að við árið undan. Það er Viðar
Karlsson, skipstjóri á Akranesi,
sem er nú fjórði tekjuhæsti ein-
staklingurinn á Vesturlandi en
var þriðji i röðinni síðast. Tekju-
hæsti einstaklingurinn er hins
vegar Rakel Olsen, ekkja Ágústs
Sigurðssonar útgeröarmanns og
stjómandi útgerðarfyrirtækisins
Sigurðar Ágústssonar hf. Hún
greiöir rúmar 17 milljónir í út-
svar í ár sem samsvarar því að
hún hafi haft rúmar 12 milljónir
í laun á mánuði á síðasta ári en
heildarskattgreiðslur hennar
nema tæpum 67 milljónum á ár-
inu. Skv. heimildum DV byggj-
ast laun Rakelar á áætlun og
mun hún væntanlega kæra um-
rædda álagningu til skattstjór-
ans á Vesturlandi. Annar í
röðinni er Hjálmar Þór
Kristjánsson útgerðarmaður á
Hellissandi og greiðir hann
tæpar tíu milljónir. -hb
Samanlögö álagning tekjuskatts
og útsvars á einstaklinga fyrir áriö
1997 nemur um 66,5 milljörðum
króna. Þetta er sex og hálfum millj-
arði meira en í fyrra og munar þar
mestu um hækkun útsvars sveitar-
félaganna.
Að því er fram kemur í upplýs-
ingum frá fjármálaráðuneytinu er
heildarálagning skatta á einstak-
linga lægri en i fyrra og munar þar
mestu um skattalækkanirnar sem
gerðar voru í tengslum við síðustu
kjcU'asamninga. Á móti kemur að
útsvar sveitarfélaga hefur hækkaö
um 2,7 % á sama tíma vegna flutn-
ings grunnskólans frá ríkinu til
sveitarfélaga. Álagt útsvar og álagð-
ur tekjuskattur nema nú nánast
sömu upphæðum, eða 33 milljörðum
hvort um sig.
Eignaskattur hefur hækkað um
204 milljónir milli ára og greiðend-
um hans um leið fjölgað. Alls eru
tekjur ríkisins af eignarskatti sam-
kvæmt álagningu 1,826 milljarðar i
ár.
Upplýsingamar sem fram koma
um einstaklinga hér á eftir eru
teknar úr álagningarskrá og verður
því aö taka með þeim fyrirvara að
þær kunna að verða leiðréttar ef
álagningin er kærð til skattstjóra.
Kærufrestur er til 31. ágúst. Nokkuð
breytilegt er milli ára hver álagning
á einstaklinga hefur verið sam-
kvæmt framlögðum álagningar-
skrám og skýrist það meðal annars
af því hvort of háar eða of lágar töl-
ur hafa verið áætlaðar á einstak-
linga. Þá kunna eignir að hafa verið
gerðar aö skattstofni sem ekki vom
það áður auk þess sem tekjur við-
komandi geta að sjálfsögðu hafa
hækkað. -kjart
Indriða Pálsson, stjómarformann
Eimskips hf., og Jón Ólafsson, stjóm-
arformann íslenska útvarpsfélagsins.
Kjartan Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins, er tíundi
með tæpar niu milljónir og Kristinn
Bjömsson, forstjóri Skeljungs, er í 20.
sæti og greiðir rúmar sjö milljónir.
Heildargjöld 29 milljarðar
Heildargjöld í Reykjavik skv. álagn-
ingarskrá vora um 29,5 milljarðar.
Þau skiptust þannig að tekjuskattur,
sem 45.340 einstaklingar greiddu, var
tæplega 14 milljarðar og útsvar, sem
81.724 einstaklingar greiddu, var rétt
um 13 miljjarðar. Eignarskatt greiddu
21.533 að upphæð rúmlega eins millj-
arðs. Alls greiða 909 böm tekjuskatt
og útsvar samtals að upphæð tæplega
sjö milljóna króna. Hafa verður í
huga að aðeins er um álagningu að
ræða og ljóst að margar upphæðir
eiga eftir að breytast en greiðendur
hafa frest til 31. ágúst að kæra álagn-
ingu. DV birtir á næstu dögum lista
yfir tekjuhæstu einstaklingana skipt
niður eftir stétt og búsetu. -hb
Þórður Júlíusson er efstur á
lista skattgreiðenda á Vestfiörð-
um með 5,764 milljónir í álögð
gjöld. Samkvæmt heimildum DV
á Þórður stóran hlut í Gunn-
vöru, ásamt Jóhanni bróður sín-
um, en Gunnvör gerir meðal
annars út togarann Júlíus Geir-
mundsson. Af öðrum meðal
þeirra fimm efstu má nefna
Guðna Einarsson, skipstjóra á
Suðureyri, og Þorstein Jóhann-
esson, yfirlækni á Fjórðungs-
sjúkrahúsi ísafjarðar og fyrrver-
andi oddvita sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn. Loks má nefna Agn-
ar Ebeneserson í fimmta sæti en
hann var einn eigenda í sjávar-
útvegsfyrirtækinu Bakka í
Hnífsdal en það hefur nú verið
selt.
Norðurland
vestra
Nokkrar breytingar eru á röð
fimm hæstu manna á Norður-
landi vestra. Sá sem greiðir
hæsta skatta þar er Guðmundur
Skarphéðinsson framkvæmda-
stjóri og greiðir hann 4,542 millj-
ónir. Þetta er 1,2 milljónum
hærri tala en samkvæmt álagn-
ingarskrá ársins í fyrra. Næst-
hæstur er Lárus Þór Jónsson,
læknir á Hvammstanga, með
3,801milljón í álögð gjöld. í fiórða
sæti er Sigursteinn Guðmunds-
son, læknir á Blönduósi ,en
hann var í fiórða sæti í fyrra
með 2,851 milljón í gjöld.
Suðurland
Gunnar A. Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Fóðurblöndunnar,
er skattaprins Suðurlands fyrir
síðastliðið ár. Hann greiðir um
8,7 milljónir í gjöld tft ríkissjóðs
og hækkar töluvert frá fyrra ári,
eða um Qórar milljónir. Af þeim
sem voru meðal fimm efstu í
fyrra má nefna Þorstein Pálsson,
framkvæmdastjóra KÁ á Sel-
fossi, en hann fer úr þriöja í
sjötta sæti og greiðir nú um
4.393.435. Það er um 400 þúsund
krónum meira en í fyrra. Ragnar
Kristinn Kristjánsson, sveppa-
bóndi á Flúðum, greiðir um 300
þúsundum meira en í fyrra, eða
4,456 milljónir.