Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ1998
Útlönd___________________
Óttast um 15
eftir árekstur
tveggja flugvéla
Óttast er að fimmtán manns
hafi týnt lífi þegar tvær litlar flug-
vélar rákust á í lofti og hröpuðu í
sjóinn undan borginni Lorient á
vesturströnd Frakklands í gær.
Sex lik hafa fundist en níu að
minnsta kosti er saknað.
Önnur flugvélanna var á leið
frá Lyon til Lorient með fjórtán
manns innanborðs. Aöeins einn
maöur var í hinni flugvélinni.
Ekki er að fullu Ijóst hvað olli
árekstrinum en fyrstu athuganir
benda til þess aö stærri flugvélina
hafi borið aðeins af leið.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háö á þeim sjálf-
um sem hér seglr:
Þrastanes 14, Garðabæ, þingl. eig. Andr-
és Pétursson, gerðarbeiðendur Ferða-
skrifstofa íslands hf., Garðabær, Samein-
aði lífeyrissjóðurinn, Sparisjóður Reykja-
víkur og nágr., Sýslumaðurinn í Hafnar-
firði og Vestfjarðaleið Jóh. Ellertss. ehf.,
fimmtudaginn 6. ágúst 1998 kl. 11.30.
SÝSLUMAÐURINN í HAFNARFIRÐI
Saksóknarinn Kenneth Starr gerir dauðaleit:
Sæðisblettir í
sumarkjólnum
Bandaríska alríkislögreglan FBI
hefur fengið það verkefni að leita að
sæðisblettum og öðru erfðaefni í
sumíirkjól sem Monica Lewinsky lét
saksóknaranum Kenneth Starr í té.
Leitin er liður í umfangsmikilli
rannsókn Starrs á því hvort Bill
Clinton Bandaríkjaforseti hafl átt í
kynferðislegu sambandi við Monicu
og hvort hann hafl reynt að hylma
yfir það með saknæmum hætti.
Þegar FBI hefur lokið rannsókn
sinni fær Starr skýrslu um niður-
stöðurnar. Einhver dráttur gæti þó
orðið þvi, allt eftir því hvort eitt-
hvert sæði eða annað erfðaefni er
enn að flnna á kjólnum og hversu
stór bletturinn er.
Monica, sem eitt sinn var lærling-
ur í Hvíta húsinu, féllst í þessari
viku á að bera vitni fyrir ákæru-
kviðdómi.
í staðinn veitti Starr henni frið-
helgi og á hún ekki á hættu að
Monica Lewinsky geymir skítuga
kjóla og safnar segulbandsspólum.
verða sótt til saka þótt hún hafi til
saka unnið, til dæmis borið ljúg-
vitni. Móðir Monicu fékk einnig
friðhelgi. Búist er við að Monica
segi að þau hafi átt í kynferðislegu
sambandi, þótt bæði hafi neitað því
í eiðsvömum yfirlýsingum. Clinton
mun gefa vitnisburð þann 17. ágúst
og verður hann tekinn upp á mynd-
band í Hvíta húsinu.
En Monica lét Starr ekki aðeins
fá sumarkjólinn með meintum sæð-
isblettum úr forsetanum, heldur
einnig segulbandsspólur úr sím-
svaranum sínum. Að sögn heimild-
armanna má heyra í forsetanum á
spólunum þeim.
Skoðanakannanir sem birtust í
gær benda til að einhver hluti amer-
ísku þjóðarinnar sé nú kominn á þá
skoðun að sækja eigi forsetann til
saka fyrir embættisafglöp. Aðrir
láta sér hneykslismálið í léttu rúmi
liggja. „Þetta er hans mál,“ sagði
repúblikani sem kaus Clinton ekki í
síðustu kosningum.
ICELANDIC RENT-A-CAR
BÍLALEIGA ÍSLANDS
Ferðist um landið
á ykkan iiátt.
Leigið fanartæki
á sanngjörnu verði.
Breskir hermenn standa vörö um brunarústir forngripabúðar í bænum
Portadown á N-írlandi. Prjá verslanir á þessum slóðurn eru rústir einar eftir
sprengjuárásir í gærkvöld. Símamynd Reuter
jgP' jiijw: 1
Michael Douglas í nýju starfi:
Boðberi friðar
Kvikmyndaleikarinn Michael
Douglas hefur veriö gerður að frið-
arboða á vegum Sameinuðu þjóð-
anna. Meðal verkefna leikarans
verður að berjast fyrir eyðingu
kjarnavopna, vopnaeftirliti og því
að Bandaríkin greiði skuldir sínar
við Sameinuðu þjóðimar.
„Ég ætla að nýta mér þau sam-
bönd sem ég hef í skemmtanaiðnað-
inum og tala um þau málefni sem
skipta máli,“ sagði Douglas.
Að sögn leikarans var þaö kvik-
myndin China Syndrome sem öðru
fremur dýpkaði skilning hans á
vandanum sem fylgir notkun kjam-
orkuvopna.
Douglas sagðist í gær mundu ein-
beita sér að því finna leiðir til að
koma í veg fyrir vopnasölu til landa
á borð við Albaníu. Reuter
Michael Douglas er nýr erindreki
Sameinuöu þjóöanna og er ætlaö
aö stuöla aö friöi í heiminum.
Stuttar fréttir i>v
Meiri flóð
íbúar í austurhluta Kína eiga
von á að flóðin þar um slóðir færist
í aukana á næstu dögum þar sem
úrhellisrigning er þar nú.
Jeltsín upplýstur
Borís Jeltsín Rússlandsforseti,
sem þurfti að hraða sér heim úr fríi
á dögunum
vegna efnahags-
kreppunnar í
landinu, hittir
aðalsamninga-
mann sinn við
erlenda lánar-
drottna í dag.
Þar á að upplýsa
forsetann um nýjasta framlag Vest-
urlanda.
Meira fé til Indónesíu
Indónesar fengu loforð i gær um
560 milljarða króna í erlenda aðstoð
á þessu ári til að reyna að koma
efnahag landsins aftur á réttan kjöl.
Lostabæli í hættu
Yfirvöld í Texas íhuga nú leiðir
til að leysa upp lostamiðstöðina Bu-
ford, 50 manna smábæ með fata-
fellubörum og klámbúllum í vestur-
hluta rikisins, vegna þess að þar er
engin bæjarstjóm.
Slæmar fréttir
Keizo Obuchi, nýr forsætisráð-
herra Japans, fékk heldur óþyrmi-
lega áminningu í gær um vandann
sem bíður hans þegar gengi jensins
lækkaði gagnvart dollamum. Þá
sýna nýjustu tölur að atvinnuleysi
hefur aldrei verið meira.
Kosovo-Albanar farast
Sjö farþegar létust og 21 særðist
þegar langferðabíll fullur af Albön-
um frá Kosovo ók á tré á flótta und-
an þýskum landamæravöröum.
VIII íhlutun
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, og ástr-
alskur kollegi
hennar hafa beð-
ið Kofi Annan,
framkvæmda-
stjóra SÞ, um að
reyna að fá her-
stjórnina í
Burma til að
ræða við stjórn-
arandstöðuleiðtogann Aung San
Suu Kyi.
Skipt um kyn á Netinu
Fyrst var það fæðing, svo kynlíf
og nú hyggst fyrirtæki í Flórída
verða fyrst til að sýna kynskiptiað-
gerð á Netinu. Aðgerðin mun taka 6
stundir og verður gerð í nóvember.
Líklega súrefnislausir
Vonir um að austurrísku björg-
unarmennimir tíu, sem hafa verið
lokaðir ofan í námu í tvær viku,
finnist á lífi fara dvínandi með
hverjum deginum. Taliö er líklegt
að þeir séu orðnir súrefnislausir.
Þeirra verður leitað áfram.
Tíu slasaðir
Bögglasprengja sprakk í strætis-
vagni í Alsír í gær. Tíu manns slös-
uðust og þar af tveir alvarlega.
Múslímskir uppreisnarmenn em
taldir aö baki sprengingunni.
Kennt um samsæri
Spænski sósíalistaflokkurinn
heldur því fram að fangelsisdómur
yfir fyrrverandi
ráðherrum
flokksins, Jose
Barrionuevo og
Rafael Vera,
vegna „óhreina
stríðsins" gegn
aðskilnaðarsinn-
um Baska sé
ekkert annað en samsæri gegn
Felipe Gonzales, sósíalista og fyrr-
um forsætisráöherra Spánar.
Flokkurinn segir sína menn alls
saklausa í þessu máli.
í óvænta heimsókn
Sendinefnd á vegum Sameinuðu
þjóðanna fór i óvænta eftirlitsferð
til Alsír á dögunum. Tilgangurinn
var að rannsaka nýlegt fjöldamorð
á tólf manns.