Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Page 13
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
13
I>V
Fréttir
íslenskar markaðsrannsóknir, Gallup:
Flestir hafa heimsótt Vísi.is
nýir vefir fyrir verslunarmannahelgina
I könnun sem Islenskar mark-
aösrannsóknir hf„ Gallup, fram-
kvæmdu dagana 11.-23. júní kem-
ur fram að Vísir.is er mest heim-
sótti vefur eða heimasíða á ís-
landi. Spurt var hvaða islensk
heimasíða var heimsótt síðast og
sögðust 16,6% þeirra sem nota
Netið hafa heimsótt Vísi.is síðast.
13,7% aðspurðra heimsóttu Mbl.is
siðast og 7,7% sögðust síðast hafa
heimsótt heimasíður banka eða
sparisjóða. Úrtak könnunarinnar
var 1200 manns á aldrinum 16-75
ára af öllu landinu og var
nettósvörun 71,7%.
Könnun þessi staðfestir fyrri
kannanir um að Vísir.is sé mest
heimsótti íslenski netmiðillinn.
Vísir.is mest heimsóttur
- hvaöa íslensku heimasíöu heimsóttir þú síöast -
í'j;/
/;/
r- r*
•J/J
j| jt
j| jI
■t,t
V)
vislr.is mbl.is Bankar Internet Tölvu- Feröa- Háskóli flolnet.is
j v,j /sparisj. þjón. fyrirtæki þjónustu- isl./
aöilar aöilar KHI
Hugskotskönnun Gallup 11.-23. Júní 1998
aöilar KHI
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra og Helgi Ingvarsson, framkvæmdastjóri Ingvars Helgasonar hf., við undirritun samningsins.
Heilsugæslustöðvar landsbyggðarinnar:
Athygli vekur að samkvæmt þess-
ari könnun er Vísir.is jafnstór og
næstu tveir netmiðlar þar á eftir
til samans. í könnuninni kemur
jafnframt fram að íslenskir net-
verjar nýta sér í æ ríkari mæli
netþjónustu banka og sparisjóða.
Sem kunnugt er hafa þeir á síð-
ustu mánuðum lagt þyngri
áherslu en margir aðrir á að
hasla sér völl á Netinu.
Verslunarmannahelgin á
www.visir.is
Nú eru nærri fjórir mánuðir frá
því að Vísi.is var hleypt af stokk-
unum. Hann samanstendur af yfir
tuttugu vefum sem eru eins ólíkir
og þeir eru margir. Ljóst er að
flestir gestanna sækja fréttavefina
sem, auk almennra frétta, greina
frá tíðindum úr heimi íþrótta og
viðskipta. Getraunir og leikjavef-
ir á Vísi.is eru einnig fjölsóttir. Ef
marka má þátttöku almennings
þá njóta þeir mikilla vinsælda og
eru skráningar í leiki hjá Vísi.is
orðnar yfir 60.000 talsins.
Nýlega var viðmót veðurvefsins
á Vísi.is endurbætt. Vefurinn er
sá fullkomnasti sinnar tegundar í
heiminum og er hann unninn í
samvinnu við Halo, haf- og loft-
hjúpfræðistofuna. Vefurinn er
upplýsingabrunnur um veðrið
næstu daga. Gestir geta valið
hvort þeir vilja upplýsingar um
hita, úrkomu, vind eða skýjafar
og þeir geta valið um allt landið
og miðin, auk 11 staða allt í kring-
um landið. Gestir geta einnig val-
ið spátíma og þess vegna má núna
komast að því hvort heppilegt sé
að grilla annað kvöld og eða á
sunnudagskvöld.
Nýjasta viðbótin á Vísi.is er
vefur um allar opinberar útihátíð-
ir sem í boði eru yfir helgina. Þeir
sem enn eru að velta fyrir sér
hvert eigi að fara ættu að byrja
helgina á Vísi.is og kanna hvað er
í boði og hvar vænta megi sólar
og blíðu. Jafnframt býður Vís-
ir.is, í samvinnu við Skímu, Aco
og Landssímann, ferðalöngum um
helgina að fylgjast með nýjustu
fréttum á Vísi.is og sækja tölvu-
póstinn sinn í gegnum frínetið
sem er að finna á 6 stöðum víðs
vegar um landið. -JH
NGK
kerti, notuð af
fagmönnum.
Fá jeppabifreiðir
Ríkiskaup hafa fyrir hönd heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytisins
gert samning við Ingvar Helgason hf.
um að fyrirtækiö útvegi jeppabifreið-
ir fyrir heilsugæslustöðvar lands-
byggðarinnar, 26 Subaru Forester og 8
Nissan Terrano. Um er að ræða
reksírarleigusamning sem gildir í
þrjú ár. Rekstrarleiga er nýjung á
bílamarkaðnum en hún felur í sér að
leigutaki greiðir fyrir afnot af bifreið-
inni á leigutimanum. í leigugreiðslun-
um er innifalið allt venjubundið við-
hald á bifreiðinni.
Kostimir við leiguformið eru að
áhættan við endursölu er úr sögunni
auk þess sem ekkert íjármagn er
bundið i bifreiðinni.
Fyrirtæki hafa nýtt þennan valkost í
auknum mæh en þetta er í fyrsta skipti
sem ríkisfyrirtæki taka bifreiðar á
rekstrarleigu. Þetta er jafnframt
stærsti rekstrarleigusamningur sem
Ingvar Helgason hf. hefúr gert til þessa.
Deilur um staðgengil Hrannars í borgarstjórn:
R-listinn er stjórn-
málaflokkur
- leitum úrskurðar ráðherra, segir oddviti D-lista
„Málið hefur ekki verið tekið fyrir
og við erum því að undirbúa máiflutn-
ing okkar og safna gögnum og upplýs-
ingum og vinna að kæru sem við síð-
an sendum félagsmálaráðherra. Því
verki ljúkum við á næstu dögum,“
sagði Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokks í borgarstjóm
Reykjavíkur, í samtali við DV um
deilu sjálfstæðismanna og R-listans
um hver megi taka borgarstjómarsæti
Hrannars B. Amarssonar, þriðja
manns R-listans i kosningunum, með-
an beðið er þess að fjármál og virðis-
aukaskattsmál hans verði útkljáð.
Deiluefhið er í raun hvort R-listinn
sé stjómmálaflokkur eða laustengt
kosningabandalag. Sé hann hið siðar-
nefnda getur hver sem er af listanum
tekið sæti Hrannars, þess vegna 13.
maður listans, alþýðuflokksmaðurinn
Pétur Jónsson, eins og ætlunin er. Sé
R-listinn á hinn bóginn stjómmálaflokk-
ur skal kalla inn fyrsta varamann list-
ans, Önnu Geirsdóttur. Við það raskast
valdahlutfóll flokkanna innan listans.
Inga Jóna Þórðardóttir segir tals-
menn R-listans vera orðna tvísaga í
tengslum við þetta mál. Nú segi þeir
listann vera kosningabandalag, borið
fram af þremur stjómmálaflokkum,
þótt raunin sé sú að stofhuð hafi verið
sérstök samtök um hann og þau sem
sjálfstæður lögaðili borið listann ffarn
í kosningunum. Þetta hafi m.a. Helgi
Hjörvar, efsti maður R-listans, staðfest
í fjölmiðlaviðtölum bæði fyrir og eftir
kosningamar og talað þar ítrekað um
tvo flokka í borginni. „Það lá alveg af-
dráttarlaust fyrir af þeirra hálfú fyrir
kosningamar að þessi breyting var
gerð, þótt þeir telji það nú þjóna hags-
munum sínum að draga úr gildi henn-
ar,“ sagði Inga Jóna Þórðardóttir. -SÁ