Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Síða 16
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
i6 sælkerínn
-------
Örn Árnason leikari:
Grillari af
guðs náð
Verslunarmannahelgin er örugg-
lega ein mesta grillhelgi ársins og
þess vegna höfum við fengið sannan
sælkera og grillmeistara til að
kveikja í bragðlaukunum. Örn Árna-
son er einn vinsælasti leikari lands-
ins en það vita ekki allir að hann er
ekki síðri meistari við grilliö en á
sviðinu. Rétturinn sem hann býður
okkur upp á er varla úr matreiðslu-
bók Boga og Örvars þar sem ekki er
víndropi i uppskriftinni.
„Þetta er uppáhaldið I grillinu hjá
mér og kveikir glæður í bragðlauk-
um mínum svo um munar,“ segir
Örn um réttinn, svo það er ekki
annað að gera en kveikja upp í grill-
inu og byrja eldamennskuna.
Úrbeinaður hryggur, skorinn í 4
bita (fæst tilbúið í Nóatúni). Salti og
pipar nuddað vel í, grillað þar til
kjötið er við brunamörk.
Nykaup
Þarsent ferskleilcimt býr
Grillaðar perur
með Snickers
Namm-namm, æðislega fljót-
legur.
Fyrir fjóra.
4 stk. perur
2 stk. Snickers
Skerið perurnar í tvennt,
hreinsið kjamana úr og pakkiö
í álpappír,
grillið í 3-5
minútur
með sárið
niður. Snú-
ið síðan per-
unum við og
opnið ál-
pappírinn,
skeriö
inickers í
neiðar og
raðið yfir
perumar.
Lokið álpappímum. Grillið
áfram í 3-5 mínútur, eða þar til
perumar era orönar mjúkar.
Meðlæti
Vanilluís, heil jarðarber og
blæjuber.
Súkkulaðifylltir
bananar
Salthnetumar gefa öðravísi
bragð.
4 stk. bananar
100 g suðusúkkulaði
4 tsk. salthnetur
Bananamir skomir langsum
með hýöi eins og pylsu-
brauð,
ekki alveg
í gegn.
Súkkulað-
ið brytjað
niður og
stráð inn í
sárið ásamt
I hnetunum.
Lokað og
pakkað í ál-
pappír.
Grillaö í 7 mínútur.
Meðlæti
Vanilluís, stjörnuávöxtur,
jarðarber og blæjuber.
Kartöflur, í álp
appír.
Laukur, í álpapp-
ír.
Tómatar, í álpapp-
ír.
Stórir sveppir.
Stilkurinn tekinn úr
og fyllt með rifnum
osti (tegund eftir
smekk). Grillað opið
á álpappírsfati.
Ein dolla af sýrð-
um rjóma.
1 tsk. aromat.
1 msk. hunang.
Graslaukur (ef
hann er til í garðin-
um, má sleppa).
Hrært og blandað
eftir smekk.
Eða
Steikja skorna
ferska sveppi á
pönnu og krydda
með aromat og hella
rjóma yfir og þykkja
með maísmjöli.
Eða
Salsasósa yfir kjöt-
ið eftir steikingu.
Hún fæst í öllum
búðum.
-sm
Örn hefur í sumar leyft skeggi sínu aö vaxa og kallar þaö sumarskeggið. Hann segir þaö
vaxa af fúsum og frjálsum vilja og ekki sé um aö ræöa undirbúning undir ákveöiö hlutverk.
DV-mynd E.ÓI.
matgæðingur vikunnar
Magnús Diðrik kynnir okkur framandi uppskrift að laxi:
Dalalax að hætti Miðjarðadiafsbúa
Uppskriftirnar eru fengnar frá
Nýkaupi þar sem alit hráefni í
þær fæst.
í þetta sinn er það Magnús Diðrik Baldursson heim-
spekingur sem er matgæðingur DV.
„Uppskriftin er upphaflega ítölsk, nánar tiltekið frá
Miðjarðarhafsströnd Ítalíu," segir Magnús Diðrik.
„Strangt til tekið er nefnilega ekki til nein ítölsk matar-
gerð í eintölu. Ef ítali er spurður um ítalska matargerð
er aOt eins víst að hann muni fyrst og fremst róma mat-
argerð síns héraðs, hvort heldur sem hann kemur frá
Bologna, Róm, Mílanó, Toskana, Piemont, Sikiley eða
Napolí. Það sem viö dags daglega köllum
ítalska matargerð er í raun saman-
safn ótalmargra staðbundinna venja,
sem höfðu þróast og fest sig í sessi
löngu áður en Ítalía var formlega
stofnsett árið 1861. Þar á undan
tilheyrðu héröðin sjálfstæðum
smáríkjum sem oftar en ekki
áttu í erjum og áttu fátt sameigin-
legt - ekki einu sinni tungumálið og
þaðan af síður matargerðina!
Það var ekki fyrr en eftir heims-
styrjöldina síðari sem ítalska varð al-
mennt talmál þorra þjóðarinnar.
Uppskriftin sem hér fer á eftir er upphaf-
lega hugsuð fyrir gullbrassa en ég hef einnig
eldað íslenska ferskvatnsfiska eftir henni með
góðum árangri.
í þetta sinn ætla ég að elda nýveiddan
lax úr
Dölun-
um
upp-
skriftin
hefur
einnig reynst
vel þegar hin
ljúffenga dala-
bleikja á i hlut. Óþarft er að
taka fram að sami árangur næst |
ekki með eldislaxi enda er hann j
oftast feitur og bragðlitill.
Uppskriftin er afar einföld 1
enda aðhyllist ég þá meginreglu
að þegar gott hráefni á í hlut er best að láta það njóta
sín og eiga sem minnst við það. Þannig mætti til sanns
vegar færa að „rökrétt" íslensk matargerð væri sushi!
Uppskriftin miðast við 3 kg lax og nota ég í hana 4 kg af
grófu salti, 4-5 eggjahvítur og ferskar jurtir á borð við
tímían, estragon, rósmarín og salvíu. Eggjahvítumar
era stífþeyttar og þeim blandað saman við saltið þar til
úr verður deigkenndur massi. Slægður fiskurinn er
fylltur með söxuðum kryddjurtunum og fískurinn síðan
pakkaður inn í massann. Loks er fiskinum stungið inn
í ofn og hann bakaður við 200 gráður í u.þ.b. 40 mínút-
ur. Þegar fiskurinn er borinn á borð er skumin siðan
brotin utanaf honum. Það er hverjum og einum í lófa
lagið hvaða meðlæti hann vill hafa með fiskinum,
ég mæli sérstaklega með rækju-rjómasósu krydd-
með saffran og bættri með örlitlu hvítvíni. Á
undan fiskinum ber ég fram rúkolasalat með aceto
balsamico, ólífuolíu og ferskum parmesanosti,
sem spændur er yfir. Rúkolasalat er nánast
óþekkt hér á landi en konan mín hefur ræktað
það með góðum árangri enda er það náskylt fíflin-
um okkar og dafnar því vel við íslensk skilyrði."
Magnús Diðrik skorar á Bernd Koberling að
vera næsti matgæðingur.
Magnús Diörik er
flinkur í eldhús-
inu.
DV-mynd
Hilmar Þór
WU
Nykaup
Þarseni ferskleikinn býr
Grillað ungnautafilé í
Tortillas-köku með
Acapulco-sósu
VinsælL vandað, öðruvísi.
Fyrir fjóra.
800 g ungnautafilé, skorið
í 4 steikur.
Acapulco-sósa
1 stk. laukur, smátt saxaður.
2 stk. lárperur (avocado).
2 stk. tómatar, smátt saxaðir.
1/2 dl sítrónusafí.
2 stk. nýr chilipipar,
fint skomir.
Meðlæti
Salt og pipar.
1 stk. laukur, smátt saxaöur.
1 bréf mozzarella ostur.
2 dl sýrður rjómi.
11/2 dl ostasósa (Casa Fiesta).
1 stk. jöklasalat, smátt saxaö.
í 1 glas (180 g) salsasósa (mild).
j 1 dl olía.
8 stk. Tortillas kökur.
Acapulco sósa
Hreinsið kjötið úr lárperanni og
i saxið það smátt, blandið saman við
: helminginn af lauknum,
tómötunum og
sítrónusafanum,
kryddið með nýj-
um, fint skomum
chilipipar, salti
og pipar.
Grillsteikið
kjötið í 5-7 mínút-
ur á hvorri hlið,
leggiö það síðan á disk.
Hitið Tortillas-kökumar á grill-
inu í u.þ.b. 10 sekúndur. Smyrjið
þær með sýrða rjómanum og af-
ganginum af lauknum. Bætið við
helmingnum af Acapulco-sósunni,
j 2 msk. ostasósu og örlitlu af jökla-
; salati. Skerið steikumar í strimla
og setjið inn i kökumar ásamt
mozzarella ostinum. Rúllið kökun-
um upp og berið fram með jökla-
salati, rauðlaukshringum og sér-
rítómötum ásamt því sem eftir er
af Acapulco-sósu, ostasósu og sýrð-
um rjóma.
Hickoiy-grillaður
hamborgari
Gott og fljótlegt, hægt að undir-
! búa á meðan grillið hitnar.
8 stk. hamborgarar
4 dl Hickory Barbeque griilsósa
1/2 stk. jöklasalat
4 stk. hamborgarabrauð
12 stk. nýir sveppir
4 stk. rauðlaukar, skornir
í 4 hluta
4 stk. grillpinnar
Salat
3 stk. tómatar, skomir í báta
1 klasi vínber, berin losuð
af stilkunum og hreinsuö
1/4 stk. jöklasalat, skorið
’ í grófa bita
1/2 stk. appelsína, afhýdd
og skorin i bita
safi úr 1/2 appelsínu
safi úr 1/2 sítrónu
Penslið hamborgarana með
Hickory-sósunni, grillsteikið í 4-5
mín. á hvorri hlið. Leggið saman 2
i og 2 hamborg-
ara með jökla-
: salati á milli og
) setjið í ham-
- borgcirabrauð.
Þræðið svepp-
ina og laukinn
upp á
í grillpinnana,
penslið með
; Hickory-sósunni og grillið í 5-6
mínútur.
Meðlæti
Ferskt salat og franskar kartöfl-
ur ásamt grænmetispinnunum.
Uppskriftirnar eru fengnar frá
Nýkaupi þar sem ailt hráefni í þær
fæst.