Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
fréttir
Framkvæmdir viö Gullinbrú:
Óánægja með tafir
Miklar biðraðir mynduðust við
Gullinbrú vegna malbikunarfram-
kvæmda um kvöldmatarleytið á
miövikudaginn. Margir sátu fastir í
bOum sínum í rúma klukkustund.
Sífellt háværari raddir hafa verið
uppi um að framkvæmdir af þessu
tagi fari fram á nóttunni. Það er
ekki gerlegt að sögn starfsmanna
gatnamálastjóra.
„Svona framkvæmdir eru nánast
aldrei gerðar á nóttunni nema í ýtr-
ustu neyð. Við höfum ekki leyfi til
þess í grennd við íbúðarbyggð inn-
an borgarinnar vegna hljóðmeng-
unar. Þetta er samkvæmt lögreglu-
samþykkt," segir Guðbjartur Sig-
fússon, yfirverkfræöingur hjá
gatnamálastjóra.
Að hans sögn er reynt að malbika
á kvöldin þegar flestir eru komnir
heim til sín.
„Byrjað var á malbikun við Gull-
inbrú um kvöldmatarleyiið þetta
kvöld. Reynt var að vara menn við
með auglýsingum í útvarpi. Staðan
í umferöarmálum á þessum stað er
frekar slæm. Það er nokkurn veg-
inn sama hvenær þetta er gert, það
er alltaf til vandræða. Þetta er
flöskuháls eins og er en verið er að
bæta úr því.“
Guðbjartur segir rangt að loka
eigi Gullinbrú, eins og fram hefur
komið í fréttum.
„Hið rétta er að hringtorginu
verður lokað 7. ágúst, ineðan verið
er að endurnýja það. Framhjáhlaup
verða í báðar áttir, inn á Fjallkonu-
veg og Lokinhamra. Engu verður
lokað,“ segir Guðbjartur.
-sf
AUníiiA'j
þá myndi hann
Sæðanna vegna
láta framkalla
sínar myndir
hjá MYNDSÝN
1*380,.
®S36 mynda
kodak GOLD
Wsir með!
Samdæsurs á höfuðborsarsvæðinu
Aiyhdsýh
Umboðsmenn um land allt:
Bókabúð Keflavíkur
Lyng, Hafnarfirði
Innrömunn og hannyrðir, Mjódd
Toppmyndir, Breiðholti
Blómabúð Michelsen, Hólagarði
Tónborg, Kópavogi m
Söluturninn, Engjahjalla
Duggan, Þorlákshöfn
Hlíðarendi, Hvolsveili
Shell, Hveragerði
Flugvélin á Selfossflugvelli og flugstjórarnir Tómas Dagur Helgason og
Óskar Sigurðsson. DV-mynd Kristján
Landgræðsluflugvélin:
í loftið á ný
DV, Selfossi:
Landgræðsluflugvélin Páll Sveins-
son, sem nauðlenti á Selfossflugvelli
fyrir sex vikum, hóf sig til flugs á ný
að kvöldi 28. júlí eftir viðgerð á
hreyflunum. Eldur braust út í öðrum
þeirra í áburðarflugi yfir Suðurlandi.
Flugvélin hefði getað farið i loftið
tveimur vikum fyrr en vegna rangrar
afgreiðslu á slökkvitækjum frá
Bandaríkjunum komst hún ekki í
loftið fyrr en rétt tæki komu frá Ástr-
alíu.
Slökkvitækin eru innbyggð í
hreyfilinn. Réttu tækin komu til
Keflavíkur kl. 16 28. júlí og á Selfoss
stuttu síðar. Flugvirkjar settu þau
tafarlaust í vélina.
Eftir miklar inngjaflr og
áreynslupróf á hreyflunum fór flug-
vélin i loftið frá Selfossflugvelli og
ferðinni var heitið upp á Auðkúlu-
heiði í vinnu fyrir Landgræðsluna.
Flugstjórar í þessari ferð voru
Tómas Dagur Helgason og Óskar
Sigurðsson. -K.Ein.
Rollurnar erfiöar á vegum:
Tveir á toppinn
Onnur bifreiðin á hvolfi utan Siglu-
fjarðarvegar, hún kemst þó í vinnu
aftur. DV-mynd Örn
DV, Fljótum:
„Við vinnum af fullum krafti við
veginn. Fyrri hlutinn, um 4 km, er
nánast búinn - slitlagið er komið á
og við erum nú komnir áleiöis við
Uppsagnir ljósmæðra:
Hreppaflutning-
ar fyrirhugaöir?
Ef ekki tekst að semja í kjaradeil-
um ljósmæðra hætta um mánaðamót-
in 40 ljósmæður af 102 sem starfa á
fæðingardeild Landspítalans. Talað
hefur verið um að sumar konur af
höfuðborgarsvæðinu þurfi að ala
böm sín úti á landi þar sem ekki
verði nægilegur mannskapur á fæð-
ingardeildinni til að taka á móti
bömunum.
Áætlað er að funda í dag og reyna
að leysa málið áður en allt fer í óefni
en víst er að ófremdarástand muni
skapast ef Ijósmæðumar hætta.
8 böm fæddust í nótt en 4-5 þós-
mæður era að jafnaði á næturvakt.
Ef ekki verður gengið að launakröf-
um ijósmæðra verður ein ljósmóðir á
næturvakt aðfaranótt laugardags.
Það sýnir sig að fæðandi konur á höf-
uðborgarsvæðinu geta ekki ahð böm
sín á fæðingardeild Landspitalans.
síðari hlutarm. Verkið sjálft hefur
gengið vel en það hafa farið tveir
vörubílar illa út af og auðvitað er það
slæmt. Svona óhöpp eru alltaf að ger-
ast og mest um vert að ekki urðu slys
á mönnum," sagði Sveinn Ámason,
verkstjóri yfir framkvæmdum sem
nú standa yfir á Siglufjarðarvegi,
skammt frá Hofsósi.
Þama var um aö ræða tvær vöra-
bifreiðar með tengivagna sem unnu
við vegagerðina og fóra út af og á
hvolf með stuttu millibili. Annað
óhappið varð með þeim hætti að
kindur hlupu skyndilega upp á veg-
inn. Bílstjórinn reyndi að komast hjá
ákeyrslu en missti þá stjóm á bílnum
með áðumefndum afleiðingum og
var sá bíll dæmdur ónýtur. í hinu til-
fellinu fór betur þó svo aö tengivagn-
inn væri fulllestaður af möl og sagð-
ist Sveinn vonast til að sá bíll kæm-
ist aftur í vinnu eftir verslunar-
mannahelgi að lokinni talsverðri við-
gerð.
Kaflinn sem unnið er við í sumar
er liðlega 8 km langur. Þá verður eft-
ir um 13 km kafli ómalbikaður milli
Sauðárkróks og Siglufjarðar og verð-
ur unnið við hann næsta sumar.
Verktaki er Fjörður sf. sem er félag
vinnuvéla- og tækjaeigenda í Skaga-
firði og munu þeir eirrnig vinna það
sem gert verður næsta sumar. -ÖÞ
Nú geta allir feigt öruggu
barnabílstólana frá VÍS
- Kynntu þér hvernig þú tryggir
barninu þínu öruggt sæti í umferðinni
og þú nýtur bestu
kjara - strax
Sfmi: 560 5060 • www.vis.is
w