Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Page 26
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
26 *jfcrgf fólk
Kaþólskir unylingar á faraldsfæti:
íkkttt
á Jæri herra Guö, þetta er hún
JjfAnna, sagði lítil stúlka fyrir
löngu síðan og sameinaði feg-
urð, sakleysi og innileik barnatrú-
arinnar í einni einustu setningu.
Setningu, sem þó sagði meira en
heilu haugamir af rykfollnum guð-
spjöllum. En lítil börn vaxa úr
grasi og verða stór. Þegar það ger-
ist skiptir efnishyggjan oftar en
ekki við guðhræðsluna sem sálu-
hjálparatriði númer eitt, tvö og
þrjú og næsta víst að fá fermingar-
barnanna leiða hugann að mannin-
um „uppi“ þegar þau velja á milli
vélsleða og fjórhjóls eða maula
marsipanköku á meðan sigtað er á
innihald umslaganna eftir þykkt.
Sumir halda þó fastar í trúna en
aðrir og t.d. hefur kaþólski söfnuð-
urinn á íslandi í gegnmn tíðina
sinnt sínu starfi farsællega og end-
urvakið trú fólks og traust á öfl-
ugri kirkju og , um leið, guði sjálf-
um. Innan kaþólsku kirkjunnar á
íslandi eru starfandi samtök ungra
kaþólikka sem ganga undir nafn-
inu Píló eða Pílagrímafélagið.
Markmið þessara samtaka er, eins
og nafhið bendir til, að heimsækja
á nokkurra ára fresti einhverja af
helgustu stöðum kristninnar og
eru þau einmitt um þessar mundir
á leiðinni til Evrópu í þriggja
vikna reisu þar sem farið verður
til Frakklands og Portúgal.
Sylvía Kristín Ólafsdóttir er 18
ára gamall meðlimur Píló. Hún og
séra Jakob Roland hittu blaða-
mann DV að máli og sögðu honum
upp og ofan af samtökunum og fyr-
irhugaðri ferð.
Páfinn kom starfinu af stað
Séra Rolland, sem dvalist hefur
hérlendis síðan 1984, segir kaþ-
ólskt unglingastarf hafa verið lítið
er hann kom fyrst hingað en glæö-
st mikið meö komu páfa árið 1989.
„Þá færðist meira fjör og líf í safn-
aðarstarfið og ég var spuröur
hvort ekki kæmi til greina að fara
pílagrímsferö til Króatíu á stað
þar sem María mey er sögð hafa
birst 6 unglingum. Ákveðið var að
fara þessa ferð, við vorum átta í
hópnum og ferðin heppnaöist mjög
vel í alla staði. Upp frá þessu
myndaðist aftur líflegt unglinga-
starf og krakkarnir tóku sjálfir
upp nafniö Píló eftir þessari píla-
grímsferð. Slíkar meiri
háttar feröir hafa síðan
veriö undirstaðan í
starfi unglingafélagsins.
Þær eru farnar á
þriggja ára fresti en
einnig ferðumst við
talsvert innanlands, til
Skálholts, Hóla og
fleiri staða. Starflð er
á trúarlegum nótum
en auðvitað leggjum
við okkur fram við að
kynnast menningu og
þjóðlífí þeirra staöa
sem við heimsækjum
og skemmta okkur
sem allra best í leið-
inni.“
Ferðatilhögunin
er þannig aö hópur-
inn flýgur til Lúx-
emborgar þar sem
sest verður upp i
bil og keyrt suður
Frakklandi. Meðal
heimsóttir verða er hin fræga lind
í Lourdes þar sem guösmóðirin
birtist smalastúlkunni Bernadettu
hvað eftir annað áriö 1858: „Síöan
þá hefur staðurinn veriö einn sá
Krakkarnir f Pfló fyrir framan Landakotskirkju. Sylvfa og séra Jakob eru þriöju og fjóröu frá hægri. DV-mynd S
helgasti í kristninni og milljónir
pílagríma heimsækja hann árlega.
Við ætlum að reyna að messa í
hellinum þar sem María mey birt-
ist stúlkunni," segir Sylvía og
heldur áfram: „Síðan förum við
m.a. til Loyola, borg heilags Ignatí-
usar, og Salamanca en hápunktur-
inn veröur í Portúgal í borginni
Fatima 13. ágúst. Þar á María mey
að hafa birst þremur
unQllngastarf é Islandf,
eftir
staöa
sem
börniun á
aldrinum sjö til tiu ára árið 1917,
fyrst 13. maí en svo alltaf þrett-
ánda hvers mánaðar allt til 13.
október. Börnunum var refsað
harðlega fyrir frásögn sína af
kraftaverkinu en þau héldu fast
viö sitt og 13. október voru 80 þús-
und manns samankomin og sáu
kraftaverkið þegar María mey
birtist í síðasta sinn. Þarna verö-
um við 13. ágúst."
Hreifst af stemningunni
Blaöamaður, sem viðurkennir
fúslega að hann ræki kannski
ekki guðdóminn sem skyldi, gat
þegar hér var
komið sögu
ekki staðist
freistinguna
að spyrja
þau séra
Rolland og
Sylvíu hvort
þau tryðu því
í raun og veru
að þessi
kraftaverk
heföu átt sér
stað, aö María
heföi heimsótt
okkur mennina
á umræddum
stöðum. „Ég ef-
ast ekki um
það,“ segir séra
Rolland. „En ég
ætla ekki að
troða þeirri vissu
á krakkana í ferö-
inni enda er það ekki aðalatriðið.
Aðalatriðið er að treysta Guði og
finna þar styrk til þess aö lifa
samkvæmt honum og kenningum
hans. En ég hef enga ástæðu til
þess að efast."
Sylvía gerðist ekki kaþólsk fyrr
en hún var tíu ára og segist í
fyrstu mest hafa heillast af um-
hverfmu og stemningunni í kaþ-
ólskri trúariðkun, s.s. að kveikja
á kertum o.þ.h. Síðar fór trúin aö
verða meira fyrir henni: „Viö
erum um 25 sem erum virk í ung-
lingastarfmu, hittumst í hverri
viku og gerum ýmsa skemmtilega
hluti saman, samhliöa trúar-
iðkuninni."
Hún segist ekki hafa orðið
var við fordóma hjá jafnöldrum
sínum: „Þaö voru kannski smá-
stælar i fólki þegar ég var í 8. eða
9. bekk en núna fmnst mér fólk al-
mennt frekar bera virðingu fyrir
trúnni og okkur. Mér finnst líka
að íslenskir unglingar séu trúaðri
en þeir gefa sig út fyrir að vera.
Þaö er algengt aö fólk hafi ranga
mynd af svona starfi. Til dæmis
er bindindi engin skylda hjá okk-
ur eöa neinar reglur og kvaöir
settar á okkur frekar en aðra ung-
linga. Við erum ekkert öfgafólk."
Séra Rolland tekur í sama
streng: „Ég er nú franskur þannig
að þaö gengi seint að gera bind-
indismann úr mér en við gætum
að sjálfsögöu hófs eins og aðrir
sem kunna að fara meö vín. Þetta
snýst ekki bara um það að fara á
bænastundir heldur að skemmta
sér og opna augum fyrir lífinu.
Það er okkar boðskapur."
______________________ -fin
— ætla að heiiíisækja nokkra
helgustu staíi kristninnar
.. í prófil
Páll Ragnar Pálsson er
annar gítarleikara
hljómsveitarinnar Maus.
Hann er í prófil
Fullt nafn:
Páll Ragnar Pálsson
Fæðingardagur og ár:
25. júlí 1977
Maki: Enginn
Börn: Engin
Starf: í sumar hef ég
unnið fyrir
j afningj afræðslu
framhaldsskólanna en
annars reyni ég að
þrauka á
hlj óms veitarbraski
Skemmtilegast:
Spila í hljómsveit, hlusta
á tónlist og skemmta
mér með vinum minum.
Leiðinlegast: Bíða eftir
hlutum sem ég nenni
ekki að bíða eftir.
Uppáhaldsmatur:
Kjúklingur.
Uppáhaldsdrykkur: Ætli
það sé ekki gamla góða
mjólkin.
Fallegasta konan: Franska
gyðjan Beatrice Dalle.
Uppáhaldslíkamshluti:
Vinstra eyrað.
Ertu hlynntur eða and-
vígur ríkisstjórninni?
Pass.
Með hvaða teiknimynda-
persónu myndir þú helst
vilja eyða nótt? Ég myndi
vilja fara út á lífið með
Beavis og Butthead
Uppáhaldsleikari: Steve
Buscemi og Nicholas
Cage.
Uppáhaldstónlistarmaður:
Thom Yorke, söngvari
Radiohead, og David
Bowie.
Sætasti
stjórnmálamaöurinn: Get
ekki gert upp á milli
þeirra - allir jafnsætir.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur:
ER og Simpsons.
Leiöinlegasta kvikmynd:
Coneheads held ég að sé
ein alversta mynd sem
ég hef á ævinni séö en
Twister var líka alveg
rosaleg.
Sætasti sjónvarpsmaður-
inn: Sama og með
stjórnmálamennina.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Kaffibarinn og
Blóbarinn.
Hvað ætlar þú aö verða
þegar þú verður stór:
Ennþá stærri.
Eitthvað að lokum: Takk
kærlega fyrir mig.