Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Side 34
38
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
íþróttir
Bland i poka
Vandrœóin halda stöðugt áfram hjá
enska leikmanninum David Beck-
ham. Hann meiddist nefnilega á ökka
í æfmgaleik með liði sínu Manchest-
er United gegn Valerenga i Ósló á
mánudag.
Beckham hefur verið frá æfingum í
tvo daga og mun líklega ekki vera
með í æfingaleik gegn Bröndby í
Kaupmannahöfn í dag.
Vonir standa til aö Beckham verði
tilbúinn í fyrsta leik Manchester
United gegn West Ham þann 22.
ágúst.
Stórlióió Barcelona hefur boðið
Manchester United 17 milljónir
punda fyrir Beckham og svo fengi
leikmaöurinn sjálfur 40 þúsund pund
á viku í laun án skatta.
Ekki er enn vitaó hvort Manchester
United vill seija Beckham, né heldur
hvort hann er tilbúinn til þess að yf-
irgefa félagið.
Forsvarsmenn United vonast eftir
því að gera samning við hollenska
landsliðsmanninn Patrick Kluivert á
næstu dögum.
AC Milan, félag Kluivert, hefur
sæst á 9 milljóna punda tilboð
Manchester United og því er aðeins
eftir að tala viö hann sjálfan og ganga
ffá samningum.
Kluivert skoraói á HM gegn Argent-
ínu og Brasilíu ásamt þvi að fá rautt
spjald gegn Belgíu.
Arsenal vildi kaupa Kluivert fyrr í
sumar en allt strandaði á þvi að leik-
maðurinn vildi 500 þúsund pund í
undirskriftarfé.
Ef menn er fariö aö lengja eftir
enska boltanum geta þeir fengið smá
forskot á sæluna um verslunar-
mannahelgina þvi Sýn ætlar að sýna
frá æfingamóti á fostudag og laugar-
dag.
Sýn sýnir tvo leiki hvom daginn en
á mótinu keppa Liverpool, Leeds,
Lazio og St. Patrick en mótið fer fram
á Irlandi.
Sýn sýnir frá öóru móti í næstu
viku þar sem Chelsea og Atletico
Madrid spila ásamt tveimur öðrum
félögum. -ÍBE/ÓÓJ
Verður keppt í úr-
valsdeild Evrópu?
- áhugi er á að stofna deild meðal bestu liða Evrópu
Forseti AC Milan hefur áhuga á að stofna úrvalsdeild Evrópu. Keppnisfyrirkomulagið yrði þannig að öll helstu
stórlið Evrópu, alls 32 talsins, myndu mætast í leikjum á virkum dögum á keppnistímabilinu þar sem deildarleik-
ir fara oftast fram um helgar. Ef yrði af stofnun deildarinnar myndu lið eins og Real Madrid, Barcelona, AC Mil-
an, Juventus, Liverpool, Manchester United, Arsenal, Ajax og Bayem Munchen taka þátt. Keppt yrði um peninga-
verðlaun sem nema 60 milljónum punda. Sjónvarpsréttur að leikjunum yrði seldur víða um Evrópu og þar með
myndu forsvarsmenn deildarinnar græða mikla peninga. Deildin ætti að hefjast í septembermánuði árið 2000.
Aðeins eitt stendur í veginum fyrir slíkri deild. Forráðamenn Alþjóða knattspymusambandsins, FIFA, em mjög
á móti slíkri áætlun. Þeir hafa varað félög í Evrópu við þátttöku og hótað að þeim leikmönnum sem tækju þátt
yrði bannað að keppa á öllum stigum knattspyrnunnar, í úrvalsdeildum jafnt sem landsleikjum. Vissulega stend-
ur FIFA þar með í vegi fyrir stofnun deildarinnar og á meðan svo er gerist lítið í stofnun Evrópudeildar. -ÍBE
Hlýtt á þjóðsöngva fyrir landsleik írlands og Liechtenstein f Dublin 12. október 1994. Frá vinstri: Gfsli Björgvinsson,
FIFA-aöstoöardómari, Bragi og Sæmundur Víglundsson, fyrrum FIFA-aöstoöardómari, en Sæmundur hætti
dómgæslustörfum aö loknu síöasta keppnistímabili.
Z* ÚRVAiSPIIlP
Næstum þvl jafnmörg mörk hafa
verið skoruð beint úr aukaspymum
og úr vítum í sumar. 8 hafa komið úr
aukaspymu en 10 úr víti.
Það hefur aldrei gerst í sögu 10 liöa
efstu deildar að fleiri mörk séu gerð
úr aukaspymum heldur en vítum.
Fimm af þeim 8 mörkum sem komið
hafa úr beinum aukaspymum hafa
komið í leik hjá Valsmönnum.
Valsnienn hafa skoraö þijú (Amór)
en einnig hafa andstæðingar þeirra
skorað tvö mörk beint úr auakspym-
um.
Það hefur því verið
skorað beint úr auka-
spymu í siðustu úórum
Valsleikjum í sumar.
Valsmenn unnu sinn fyrsta
útisigur í 10 leikjum gegn Þrótti
en þeir höföu þar af tapað 6 af þessum
tíu útileikjum.
Það hefur verið ellefu marka sveifla á
Þróttumm í síðustu þremur leijkum.
Eftir að hafa skorað fimm síðustu
mörk leiksins gegn Keflavik hafa
Þróttarar fengið á sig sex mörk án
þess að ná að svara fyrir sig.
Þróttarar hafa enn ekki náð að vinna
heimaleik á aðalleikvanginum í Laug-
ardal í þeim 4 leikjum sem þeir hafa
spilaö i sumar.
Tveir fyrstu enduðu með jafhteflum
en nú hafa Þróttarar tapað tveimur
síðustu heimaleikjum sínum á aðal-
leikvanginum.
Auk þeirra hafa þeir leikið tvo á Val-
bjamarvelli, annan unnu þeir en hinn
tapaðist.
Keflvíkingar unnu sinn fjórða 1-0
sigur í gær og hafa nú gert 9 mörk til
að innbyrða sín stig. Hvert mark er
1,9 stiga virði hjá Keflavík í sumar.
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörð-
ur KR, hélt hreinu í gær í sínum 2 leik
í röö en hann hefur aðeins fengiö á sig
eitt mark í 3 efstudeildarleikjum.
Jón Þ. Stefánsson leikur ekki með
Val í 5 síðustu umferðum úrvalsdeild-
arinnar. Hann er á leið til
Bandaríkjanna í nám. -ÓÓJ
Bragi Bergmann dæmdi sinn 1000. leik í gærkvöld:
Fýrir ánægjuna
- heldur áfram að dæma meðan hann hefur gaman af því
Bragi Bergmann dæmdi í gær
sinn þúsundasta leik og er því kom-
inn í hóp fárra dómara á íslandi
sem ná þeim áfanga.
„Ég byrjaði óvenjulega ungur,
var 15 ára þegar ég tók dómarapróf-
ið, haustið 1973, og varð svo strax
mjög virkur og hef veriö mjög virk-
ur síðan,“ sagði Bragi um upphafs-
ár sín í dómgæslunni. Bragi var í
fótbolta í ÍK og starfaði við land-
græðsu í Gunnarsholti þannig að
hann gat ekki stundað æfmgar á
sumrin. „Ég sá að ef ég ætlaði að
vera í tengslum við fótboltann
áfram þá varð ég að gera eitthvað
annaö heldur en að spila og þá
ákvað ég að taka dómarapróf. Dóm-
gæslan er þannig að maöur getur
æft einn og það er alltaf hægt að
taka leiki þótt maður sé að starfa á
daginn," sagði Bragi þannig að
þetta hentaði sérlega vel fyrir hann.
Viö hliö Laudrup-bræöra
„Það eru margir eftirminnilegir
og skemmtilegir leikir en ég hugsa
að mér líði nú seint úr minni lands-
leikur sem ég dæmdi í ágúst 1993.
Þá dæmdi ég leik Danmerkur og Lit-
háen í undankeppni HM og það var
fyrsti leikurinn sem Michael Laudr-
up gaf kost á sér í landsliðið eftir
nokkurra ára hlé. Búist var við að
það yrðu 12-15 þúsund áhorfendur á
þessum leik en þegar Michael
Laudrup gaf kost á sér og spilaði
held ég í fyrsta sinn við hlið bróður
síns þá seldist upp á leikinn á
augnabliki. Það voru þama um 40
þúsund áhorfendur og þetta var af-
skaplega skemmtilegur leikur og
eftirminnilegur. Okkur var vel fagn-
að þegar við gengum fyrstir inn á,
eða við tókum það svo að það væri
verið að fagna okkur. Það voru óg-
urleg fagnaðarlæti þvi Michael
Laudrup var fyrirliði og gekk beint
fyrir aftan okkur inn á völlinn,"
sagði Bragi hlæjandi.
Alltaf aö dæma
Félagar Braga undruðust alltaf
hvers vegna hann væri að dæma.
„Ég sagði bara að maður þyrfti að
byrja ungur ef maður ætlaði að
veröa milliríkjadómari. Ég var nú
minntur á þetta síðar þegar ég náði
þeim áfanga.
Það er náttúrlega gaman núna að
flestir jafnaldrar manns sem voru
að spila í boltanum eru sennilega
hættir,“ sagði Bragi, en hann er að-
eins 39 ára og getur haldið áfram að
dæma til 50 ára aldurs ef hann vill.
„Þetta er mjög gefandi og krefj-
andi starf, bæði andlega og líkam-
lega. Það krefst mikils aga og ein-
beitingar þannig að þetta er mikill
og góður skóli fyrir mann eilíflega
að hafa tök á sjálfum sér og veitir
manni ákveðið aðhald sem er mjög
mikilvægt. Svo er þetta afskaplega
skemmtilegur félagsskapur," sagði
Bragi sem er búinn að dæma í 25 ár.
„Þegar maður lítur til baka yfir
þessa 1000 leiki þá eru einhverjir ör-
fáir þegar hafa orðið einhver leið-
indi og eftirmál þar sem menn hafa
Ferill Braga
@ Dómarapróf 15 ára árið 1973
@ Unglingadómari 1973
® Héraösdómari 1979
@ Landsdómari 1981
@ Milliríkjadómari 1990
@ Hóf dómgæslu í efstu deild 1986.
@ Hefur dæmt 106 leiki í efstu
deild. í Þeim hefur Bragi dæmt 25 víti
og gefiö 21 rautt spjald.
@ Dæmdi fyrsta landsleikinn 1991.
® Leikir í meistaraflokkum: 800
© Leikir í yngri flokkum um: 200
@ Störf á ári að meðaltali um 40
@ Flest störf á ári 70
@ Fæst störf á ári 30
@ Alls um 11.000 stundir alls í dóm-
gæslu eða 1,5 ár.
-ÍBE/ÓÓJ
verið ósáttir við úrskurði manns.
Það eru örfá svoleiðis atriðf sem
sitja eftir í minningunni.
Það sem mér finnst leiðinlegast er
að menn ganga út frá því eiliflega í
knattspymunni að mistök séu eðlileg
hjá leikmönnum.
Einhver veginn er miklu minna
umburðarlyndi gagnvart ákvörðun-
um dómara og dómarar eru oft með-
höndlaðir ansi óþyrmilega, ekki síst í
fjölmiölum, fyrir fúllkomnlega eðli-
legar yflrsjónir vegna þess að við
erum auðvitað bara mannlegir líka,“
sagði hann.
Bragi býr með Dóru Hartmanns-
dóttur og eina þau þrjú böm, Vil-
hjáim, Snæbjörgu og Ingibjörgu.
„Lykillinn að því að vera svona
lengi í þessu og stunda þetta svona
grimmt er að eiga góöa og skilnings-
ríka fjölskyldu sem tekur þessu með
jafhaðargeði.
Maður er náttúrlega í burtu
flestaflar helgar og tekur ekkert sum-
arfrí i þessu því keppnistímabilið er
svo stutt,“ sagði Bragi og bætti við,
„um leið og ég hætti að hafa gaman
að því að dæma þá ætla ég að
hætta.“ -ÍBE
Skilningsrík fjölskylda
I sinni þriðju utanlandsferð sem dómari, línuvörður ásamt Sveini Sveinssyni
með Guðmundi Haraldssyni, fyrrum milliríkjadómara. Þetta var leikur Skota
og Kýpurbúa á Hampden Park og meö þeim á myndinni er Lennart
Johannsson, forseti UEFA.