Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Qupperneq 36
40
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
Hvíta ströndin
Costa Blanca eða Hvlta strönd-
in var nær ókönnuð af feröa-
mönnum þar til á fimmta ára-
tugnum. Fyrir meira en 100 árum
reyndi innfæddur at-
hafnamaður
aö gera
Benidorm að
sumarleyfis-
stað með
reglulegum
ferðum vagna
inn og út úr bænum en ekkert
gekk. Það var ekki fyrr en um
1960 að hjólin fóru að snúast og
nú hafa sprottið upp hundruð
hótela og búða þar sem áður
bjuggu fiskimenn. Á sumrin er
varla þverfótað fyrir ferðamönn-
um og hefur Benidorm m.a. notið
mikilla vinsælda íslenskra ferða-
manna.
Ferðamönnum fjölgar
í Asíu
The World Tourism Organ-
ization hefur spáð að ferðamönn-
um í Asíu muni íjölga um 7% á
þessu ári. Ástæðan er lágt vöru-
verð sem er afleiðing efnahag-
skreppunnar í Asíu. Evrópsk og
bandarísk mynt er sterk í þessum
hluta heims og það geta vestræn-
ir ferðamenn fært sér í nyt.
Tréskór og túlipanar
Þrátt fyrir að Holland sé ein-
ungis um þriðjungur af stærð Is-
lands búa þar um 15 milljónir
manns. Áöur fyrr var Holland
þekkt fyrir
vindmyllur,
tréskó og túlíp-
ana en í dag
eru það ein-
ungis túlípan-
arnir sem lifa
góðu llfi.
Höfuðborg Hollands, Amster-
dam, er byggð á síkjum og hafa
þau átt stóran þátt I að skapa
þessari frægu borg sin sterku ein-
kenni. Annars er Amsterdam
þekktust fyrir Rauða hverfið og
„kafFihúsin" þar sem boöið er
upp á ýmislegt fleira en kaffi og
kökur!
Flugleiðir hætta á
Kanarí
Eftir um 20 ára starfsemi eru
Flugleiðir hættar með ferðaþjón-
ustu á Kanaríeyjum. Stærstan
hluta af starfsemi Flugleiða á
Kanarí munu dótturfyrirtæki
Flugleiða, Úrval Útsýn og Plús-
ferðir, taka yfir. Samvinnuferðir-
Landsýn munu einnig auka sæta-
framboð og gistingar sínar á
Kanarí í vetur. Búist er við að
ferðaskrifstofurnar hefji sölu á
Kanaríeyjaferðunum um miðjan
ágúst.
Sólgleraugu á Islandi
Undanfarin ár hefur sala á sól-
gleraugum á íslandi aukist tii
jnikilla muna. Þessa þróun
má m.a. rekja til
aukinnar umræðu
um skaðleg áhrif
útfjólublárra geisla
sólar á augun. ís-
lendingar eru jafn-
framt farnir að
leggja aukna áherslu
á að ganga með
vönduð og góð gleraugu og er
ekki óalgengt að fólk sé að borga
á milli 8.000 og 12.000 kr fyrir ný
sólgleraugu.
Nýttlyf
í Bretlandi er verið að þróa
nýtt lyf gegn malaríu. Lyfið lof-
ar góðu og í tilraun sem var
gerö meö lyfið hlutu 98% sýktra
þátttakenda fullan bata. Það
sem betra er, lyfið virðist ekki
hafa neinar aukaverkanir en
Lariam, lyfið sem er notað í dag
gegn malaríu, vill oft hafa
slæmar aukaverkanir. Nýja lyf-
ið, sem hefur verið kallað
Prophylaxis, er væntanlegt á
markaðinn eftir u.þ.b. eitt ár.
-me
ferdir
Kerlingarfjöll
Nýtt hlutverk
f hugum flestra tákna Kerlingar-
fjöll aðeins eitt, skíði og aftur skíði.
í sumar verður breyting þar á.
„Það verða engin skíðanámskeið í
Kerlingarfjöllum í sumar einfald-
lega vegna þess að það er enginn
snjór í fiöllunum,”segir Haukur
Þorsteinsson staðarhaldari í Kerl-
ingarfiöllum. „Reyndar tel ég að
Skíðaskólinn i Kerlingarfiöllum sé
að líða undir lok og svæðið muni í
framtíðinni verða rekið sem al-
mennur ferðamannastaður. Rekst-
ur skiðaskólans hefur gengið frem-
ur illa og svæðið hefur upp á ýmis-
legt fleira að bjóða en skíðaiðkun.
Norðurleið ekur daglega yfir
Kjöl með viðkomu í Kerlingarfiöll-
um og eru ýmsir sem verða hér eft-
ir og gefa sér tíma til að skoða
svæðið.
Kerlingarfiöll eru á þriðja
stærsta hverasvæðinu á íslandi og
bjóðum við upp á gönguferðir um
svæðið í fylgd leiðsögumanns. Hér
er ýmislegt fallegt að sjá og ekki
þarf að labba nema nokkra metra
upp á fiall til að fá stórkoslegt út-
sýni yfir hálendið. Héðan sjást
Langjökull og Hofsjökull og í góðu
skyggni sjáum við alla leið til
Vatnajökuls.
Tveir íshellar 400 og 600 m lang-
ir eru hér í nággrenninu og hafa
ferðir í þær verið afar vinsælar.
Fólk fær ljós og svo er labbað inn
þröngan helli niður eftir læk en
allt í einu breikkar hellirinn og
menn eru staddir á mjög stóru
svæði. Þetta er alveg einstök upp-
lifun.”
Góö aöstaða
Mikið skjól og veðursæld er í
Kerlingarfiöllum. Skálinn er í
grónum og fallegum dal og um
hann rennur áin Jökulfall. „Við
bjóðum upp á gistingu fyrir allt að
100 manns í skálanum héma og
að auki leigjum við út sjö hús.
Hér er allt til alls, veitingarstað-
ur, sjoppa, tjaldstæði, fiórir heitir
pottar, trampolín og skemmtilegt
leiksvæði fyrir bömin. Við leggj-
um mikla áherslu á að í sumar
erum við að reka hér hefðbundið
ferðamannasvæði sem skemmti-
legt er að heimsækja.”
-me
Áhugaverðar borgir:
Menningarreisa í lok sumars
23. ágúst-6. september verður
farið í menningarreisu á vegum
Samvinnuferðar-Landsýnar.
Helstu menningarborgir Þýska-
lands, Tékklands og Austurríkis
verða skoðaðar en þessar borgir
eiga afar merka sögu og hefur
hver með sínum hætti markað
djúp spor i menningu og stjórnmál
Evrópu.
Flogið er með beinu flugi til
Berlínar þar sem er gist á Sorat-
Art-hótelinu í hjarta stórborgar-
innar. Fyrstu tveimur dögum ferð-
arinnar er eytt í hinni merku
borg, Berlín. Ekið verður að
Brandenburgarhliði sem áöur
markaði skilin milli Austur- og
Vestur-Berlínar og eftir hinni
frægu götu Unter den Linden en
við götuna standa stórmerkar
byggingar eins og Berlínaróperan,
Humboldt-háskólinn og dómkirkj-
an. Hin stórkostlega Charlotten-
burgerhöll verður heimsótt en
höllin var byggð sem sumardval-
arstaður Soffiu Charlottu keisara-
ynju.
Eftir góða dvöl í Berlín verður
haldið af stað til Dresden. Dresden
var lögð í rúst í seinni heimsstyrj-
öldinni en með miklum dugnaði
hefur tekist að endurreisa hana í
fyrra horf. Hinar stórkostlegu
byggingar og höggmyndir borgar-
innar verða skoðaðar og farið
verður í gönguferð um Altmarkt
sem er sérstætt gamalt torg.
m ■ A
3 3 1 1
'Í'í ttlSR ,j
'T
Fyrstu tveimur dögunum er eytt f Berlfn sem er skemmtileg borg með merka
sögu.
Þeir sem hafa komiö til Prag segja hana eina fallegustu borg f heimi.
28. ágúst verður lagt af stað til
höfuðborgar Tékklands, Prag, þar
sem hópurinn dvelur í þrjá daga.
Prag er sérstaklega falleg borg.
Hópurinn heimsækir Kastala-
hverflð, Karlsbrúna og miöbæinn
með öllum sínum fögru bygging-
um. Farið verðir í hið fræga gyð-
ingahverfi borgarinnar og á Vés-
leifstorg þar sem hundruð þús-
unda manna komu saman árið
1989 og veltu stjóm kommúnista.
31. ágúst verður lagt af staö til
Vínar. Skoðunarferð um Vínar-
borg er ógleymanleg. Stórkostleg-
ar byggingar eru á hverju strái og
andi Beethovens, Mozarts, Strauss
og fleiri snillinga svífur þar yfir
vötnum. Farið verður í Hofburg,
sem er fyrrum aðsetur keisar-
anna, Schönbrunn-höllina og Stef-
ánskirkju, svo að fátt eitt sé nefnt.
2. september verður farið í dags-
ferð frá Vín um sléttur Ungverja-
lands til hinnar stórkostlegu höf-
uðborgar landsins, Búdapest. í
Búdapest verður Mattheusar-
kirkja m.a. skoðuð, Gellerthæöin
og þinghúsið sem er byggt í sama
stíl og það breska.
4. september er lagt af stað til
Munchen þar sem síðustu dögum
feröarinnar er eytt. Farið verður í
Ólympíuþorpið, háskólahverfið,
miðbæinn og fleiri áhugaverða
staði. -me