Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Side 60
©
JÖKFJ?
Allíi ....
i —j j j -^j j ->v vy' ) j ^j ^j
trir kixoisto Ci ímiijarda§
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FOSTUDAGUR 31. JULI 1998
Erill í Vesfr
mannaeyjum
Talsverður erill var hjá lögregl-
unni í Vestmannaeyjum í nótt. Þrír
sitja I steininum vegna ölvunar. Þá
voru tveir teknir fyrir ölvun við
akstur. Mikið af fólki kom til Eyja í
gær en þar var sól og blíða í morgun.
Að sögn lögreglu er viðbúnaður
talsverður þar sem straumurinn
virðist liggja nokkuð þétt 1 Eyjar.
Tólf aukalögreglumenn voru fengn-
ir úr landi fyrir helgina.
Tveir voru teknir með amfetamín
i gær. Hvor um sig var með í kring-
um tvö grömm. Hundur var fenginn
að láni frá landi til að leita í far-
angri þjóðhátíðargesta. -sf
Halló Akureyri:
Um 500
manns mættir
DV, Akureyri:
Talið er að a.m.k. 500 gestir hafi ver-
ið mættir á hátíðina Halló Akureyri í
morgun. Um 300 þeirra höfðu komið
sér fyrir á unglingatjaldsvæðinu á fé-
lagssvæði KA en aðrir voru á öðrum
tjaldsvæðum.
Nokkur erill var hjá lögreglunni á
Akureyri i nótt en ekkert alvarlegt
kom upp á. Dagskrá Halló Akureyri
hófst i gærdag með skemmtun á Ráð-
hústorgi og í gærkvöldi voru dansleik-
ir sem stóðu fram á miðja nótt. -gk
Bílvelta í
Öxnadal
DV, Akureyri:
Tveir menn voru fluttir á slysa-
deild Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri í nótt eftir að bifreið sem þeir
voru i valt i Öxnadal.
Talið er að ökumaðurinn hafl dott-
að undir stýri með þeim afleiðingum
að bifreiðin fór út af veginum, valt og
hafnaði loks á toppnum. Mennirnir
sluppu við alvarleg meiðsli, en bifreið
þeirra er talin ónýt. -gk
DV kemur næst út þriðjudaginn
4. ágúst.
Smáauglýsingadeild DV er opin
til kl. 18 í dag. Lokað laugardag og
sunnudag. Opið verður á mánudag
frá kl. 16-22.
Blaðaafgreiðsla DV er opin til kl.
20 í dag. Lokað verður laugardag,
sunnudag og mánudag.
Síminn er 550 5000.
Góöaferð og akið varlega!
ÆTLI MA0UR LATI
EKKI EINA OG EINA
FRUMU!
Auður Laxness hélt upp á áttatíu ára afmæli sitt í Hlégarði í Mosfellssveit í gær. Mikið fjölmenni vina, ættingja og íbúa í Mosfellssveit fögnuðu hinum merku tímamótum
í lífi Auðar og ríkti glaumur og gleði lengi kvölds. Margar ræður voru haldnar, en nafna afmælisbarnsins, Auður Jónsdóttir, kom mest á óvart með ræðu sinni. Á myndinni
er Guðný Halldórsdóttir, kvikmyndaleikstjóri og yngri dóttir Auðar og Halldórs heitins Laxness, að punta móður sína í aðdraganda afmælisins. Mynd E.ÓI.
Heilbrigðisgögn sjúkrastofnana:
Hugsanlega millj
arðatuga virði
- erlendir sérfræðingar ekki spurðir
Stóru spítalamir hafa ekki látið gera neitt mat
á hugsanlegu virði heilbrigðisupplýsinga í vörslu
þeirra. Að sögn Guðríðar Þorsteinsdóttur,
lögfræðings heilbrigðisráðuneytisins hefur
Hagfræðistofnun talið slíkt mat
óframkvæmanlegt. Sérfræðingar sem DV talaði
við telja hins vegar að virði upplýsinganna gæti
numið tugum milijarða, og mögulega hundrað
milljörðum.
verður að gera það með þeim hætti að tekið sé
mesta mögulega tillit til öryggis og réttinda
þeirra sem upplýsingarnar fjalla um.“
óframkvæmanlegt," segir Guðríður. „Ráðuneytið
hefur ekki formlega leitað til erlendra sérfræð-
inga um framkvæmd slíks mats.“
Óskir um verðmætamat
Háar uppphæðir
„Ég tel að heilsufarsupplýsingar sem geymdar
eru í heilbrigðiskerfmu séu gríðarlega verðmæt-
ar, hvort sem litið er til gildi þeirra í vísinda-
vinnu eða sem viðskiptalega söluvöru," sagði Jón
Jóhannes Jónsson, læknir og sérfræðingur í
erfðafræði.
„Verðmætið geti hlaupið á tugum eða hund-
ruðum milljarða króna. Ég hefði talið rétt að
fram hefði farið mat á því hversu verðmætar
þessar upplýsingar eru áður en byrjaö var að
ræða ráðstöfun þeirra. Þá er óvíst hvað mikið, ef
eitthvað, af þessum gögnum ætti að vera sölu-
vara Ef það er ákveðið að það sé réttlætanlegt þá
Vegna óvissunnar um verðmæti gagnanna hef-
ur verið stungið upp á þvi að láta óháða ráðgjafa
meta hugsanlegt verðgildi þeirra. Hér er átt við
erlenda ráðgjafa eða sérfræðinga á sviði lífiðnað-
ar. Hugmyndinni hefur verið komið á framfæri
við heilbrigðisráðuneytið og samkvæmt heimild-
um DV hefur hún verið viðruð við stjórnendur
stóru spítalanna.
Eftir þvi sem blaðið komst næst hefur enginn
aðili í íslenska heilbrigðiskerfinu óskað eftir
slíku mati.
Töldu mat óframkvæmanlegt
DV spurði Guðríði Þorsteinsdóttur, lögfræðing
heilbrigðisráðimeytisms, hvort ráðuneytið hefði
látið framkvæma verðmætamat á upplýsingun-
um. „Ráðuneytið ráðfærði sig við Hagfræðistofn-
un við endurskoðun gagnagrunnsfrumvarpsins.
Þá kom fram að þeir töldu slíkt verðmætamat
Spítalarnir aðgerðalausir
DV leitaði til forsvarsmanna stóru spitalanna
og spurði hvort þeir hefðu gert ráðstafanir til
þess að meta hugsanlegt verðmæti gagna sem
spítalarnir eru varðveisluaðilar að.
„Við höfum verið að skoða hvaða lyktir þetta
mál fengi að lokum," sagði Guðmundur G. Þórar-
insson, formaður stjómar Ríkisspítala. „ Þar að
auki kostar slíkt verðmætamat verulega fjár-
muni. Við munum hins vegar að sjálfsögðu áður
en að við fórum i einhverjar alvarlegar samn-
ingaviðræður velta því fyrir okkur hvað það er
sem við höfum í höndunum."
Þorvaldur Veigar Guðmundsson, lækningafor-
stjóri Sjúkrahúss Reykjavíkur, var spurður að
því af hverju spítalarnir hafi ekki gert ráðstafan-
ir til þess að meta gögnin. „Ég veit það ekki. Ég
held hins vegar að það sé fúll ástæða til að gera
það.“ Aðspurður sagði hann það ekki vera á dag-
skrá hjá sér að óska eftir slíku mati.
-JP
Veðrið á morgun:
Bjartviðri
um allt land
A morgun verður vestan- og
suðvestangola eða kaldi. Bjart-
viðri verður um mestallt land en
þykknar upp vestanlands með
vaxandi suðaustanátt undir
kvöldið. Hiti verður á biiinu 11 til
15 stig vestan til en 14 til 20 stig
norðanlands og austan.
Veörið í dag er á bls. 61.
4
4
4
4
4
4
4
4
FLUGFELAG ISLANDS
Air Iceland
&
Pantanir í síma
750 3030
14
ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO. ehf.
Pöntunarsími 5252660
4