Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1998, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1998, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998 Fréttir Fræðslufundur á Akureyri um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði: Mál þjóðarinnar allrar - sagði Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar DV, Akureyri: Um eitt hundrað manns sóttu op- inn fræðslufund íslenskrar erfða- greiningar um miðlægan gagna- grunn á heilbrigðissviði en fundur- inn var sá áttundi í röð fræðslu- funda sem fyrirtækið hefur efnt til víðs vegar um land að undanförnu. Iðnskóladellan: Engin afskipti ráðherra „Við höfum heyrt af þessu máli eins og aðrir en það hefur ekki komiö formlega tii kasta ráðuneytisins," segir Bjöm Bjamason menntamálaráð- herra vegna þeirra deilna sem em innan Iðnskólans í Reykjavík þar sem fjöldi kenn- Björn ara íhugar upp- Bjarnason. sagnir vegna ýmissa ágreiningsmála við skólameistara. Svo sem DV greindi frá fyrir helgi er sérlegur sáttasemjari innan skólans í því skyni að fmna sáttaleið. Mennta- málaráðherra segist fylgjast með framvindu mála enda nauðsyn- legt öllum skólum að andinn innan þeirra sé góður. -rt Þýfið úr Strandar- kirkju fundið Þýfi, sem stoliö var úr Strand- arkirkju aðfaranótt mánudags, fannst við Djúpavatn á Reykja- nesi. Vegfarandur gengu fram á þýflð, að sögn lögreglu á Selfossi. í innbrotinu var stolið fallegum og verðmætum kertastjökum auk skímarskálar. Ekki er vitað hverjir frömdu innbrotið. -RR Þrír starfsmenn fyrirtækis- ins, Kári Stefánsson for- stjóri, Hákon Guðbjartsson, framkvæmdastjóri upplýs- ingasviös, og Jóhann Hjart- arson lögfræðingur, fluttu framsöguerindi á fundin- um. „Ástæða þess að efha til kynningarfunda af þessu tagi er fyrst og fremst sú að verði miðlægur gagna- grannur á heilbrigðissviði að veruleika er það mál þjóðarinnar allrar frekar en ákveðinna hópa og það er skylda okkar að kynna úti í þjóðfélaginu hugmyndina sem að baki liggur,“ sagði Kári. Hann sagði að áhætta fylgdi stofnun miðlæga gagnagrunnsins en hún væri lítil og hverfandi lítil miðað við þann mikla ávinning sem myndi fylgja tilkomu gagnagrannsins. Hann gerði þann ávinning að umræðuefni og sagði að í höfuðdráttum mætti skipta honum niður í líkanasmíð í fyrirbyggjandi læknisfræði, líkanasmíð í kostnaðar- stjóm í heilbrigðisþjónustu, skilning á flóknustu erfða- þáttum heilsu og sjúkdóma, betri stjóm heilbrigðisþjón- ustu og aukna atvinnu og atvinnuþróun hér á landi. „Þetta er það sem fyrst og fremst ávinnst við að taka þá litlu áhættu sem fylgir þvi að stofna mið- lægan gagnagrunn," sagði Kári. Upplýsinga vel gætt Kári rakti þessa hluti lið fyrir lið en eyddi síðan talsverðum tíma í að ræða um verndun persónuupplýs- inga í miðlæga gagnagranninum. Hann sagði að sífellt væra uppi meiri og háværari kröfur um aukið öryggi í vemdun persónuupplýs- inga og fyrir því væru margar ástæður sem bæri að virða, enda um eðlilegar kröfur að ræða. Upp- lýsinga í væntanlegan miðlægan gagnagrann á heilbrigðissviði yrði aflað á sjúkrahúsum, í heilsugæslu- stöðvum og öðrum stofnunum á heilbrigðissviði og þær yrðu dulkóðaðar af starfsmönnum þess- ara stofnana. „Það koma engir Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar, á fundinum á Akureyri. DV-mynd gk grænklæddir menn með sólgler- augu til að vinna það verk,“ sagði Kári. Hann sagði að upplýsingarnar yrðu dulkóðaðar þrívegis, sérstakar aðgengishindranir settar upp og ógemingur ætti að vera að ná til upplýsinganna af þeim sem vildu misnota þær. „Þegar kemur að flóknu verkefni eins og vemdun persónuupplýsinga á heilbrigðissviði myndast jafnvægi í samfélaginu sem markast annars vegar af tilhneigingu fólks til að misnota upplýsingarnar og hins vegar af þeim erfiðleikum sem hljótast af því að vemda þær mjög vel. Þetta jafnvægi í íslensku samfé- lagi, sem hefur myndast í tímans rás, markast af því að það er full- komið aðgengi að þessum persónu- upplýsingum á þeim stofnunum þar sem þær verða til, ekki bara fyrir fólk sem vinnur við að veita þjón- ustu heldur jafnvel þá sem vildu misnota þær. Þó þekki ég ekki eitt einasta dæmi þess að menn hafi notað persónuupplýsingar á heil- brigðissviði til að berja á náungan- um,“ sagði Kári. Hann sagði heildarútkomuna af miðlægum gagnagranni þá að mun minna aðgengi yrði að upplýsing- um fyrir þá sem vildu misnota þær. Smíði gagnagrunnsins yrði til að stórauka framfarir í læknastétt og yrði það besta sem fyrir þá stétt hefði komið. Þá benti Kári á að ís- lensk erfðagreining hefði laðað til sín starfsfólk frá þekktum stofnun- um erlendis, bæði íslenska og er- lenda vísindamenn,og tilkoma gagnagrannsins yrði til að stórefla alla heilbrigðisþjónustu í landinu. -gk Læknar halda áfram að lækna Enn eitt hneykslið hefur komist upp í spít- alarekstrinum. Upplýst er að læknar hafa hald- ið áfram að lækna þrátt fyrir þá ákvörðim spítalastjómarinnar að setja þak á læknisað- gerðir. Læknamir hunsuðu þessa ákvörö- un og hafa þess vegna enn einu sinni sett rekstur Ríkisspítal- anna í uppnám. Stjómamefnd Land- spítalans hafði fyrir- skipað tuttugu milljóna króna spamað vegna fyrirhugaðs samdráttar í hjartaþræðingum og kransæðavíkkunum. Var þá við það miðað að þessum aðgerðum fækkaði sem svaraði tuttugu milljóna króna útgjöldum. Guðmundur G. Þórarinsson, formaö- ur stjómamefndarinnar, segir að þessi sparn- aður hafi átt að gerast með þeim hætti að dregið yrði skipulega úr aðgerðum, en læknamir hafi hins vegar afgreitt sjúklinga jafnt og þétt eins og alltaf áður og lögðu síðan fram þá fyrirspum á dögunum hvort þeir ættu að hætta núna. Þetta er auövitaö megnasta ósvífni hjá læknum og sýnir enn og aftur að það er ekki hlaupið að því aö spara i spítalarekstrinum þegar læknar haga sér á þennan hátt og skera og lækna sjúk- linga sem leggjast inn á spítalana, í blóra við ákvarðanir stjómcU'innar. Rekstur spítala hlýtur að miðast við þá pen- inga sem fást til rekstursins en ekki við þarfir sjúklinga. Sjúklingar verða að sætta sig við það að komast ekki í aögerð þegar peningamir eru uppurnir. Það sér hver heilvita maður. Þessi sí- fellda meðaumkun með sjúklingum ríður sjúkra- húsunum að fullu og læknar standa með sjúkling- um og hafa engan skilning á stjómun eða hag- ræðingu eða spamaði. Sjúklingar geta ekki komið hvenær sem er með sjúkdóma sína og krafist lækninga. Þeir verða að gjöra svo vel að sitja uppi með sinn krankleika og drepast ella, enda er ekki hægt að kenna neinum um sjúkleika þeirra nema þeim sjálfum. Það eru sjúklingamir sjálfir sem bera ábyrgð á því að þeir era veikir og þeir geta ekki heimtað læknis- þjónustu, þvert ofan í ákvarðanir stjómamefnd- ar, bara að því að þeim er illt eða liggja fyrir dauðanum. Þess vegna verður að að taka á þessu máli af hörku. Ekki aðeins að setja sjúklingum stólinn fyrir dymar heldur og læknum sem sýna slíkt ábyrgðarleysi að sinna sjúklingum sem spítalinn hefur ekki efni á að sinna. Hér er um mjög aö- kallandi grundvallarafstöðu að ræða. Læknamir verða hér eftir að vísa sjúklingum á dyr, ef stjómin hefur ákveöið að spara með því að neita sjúklingum um þjónustu, sem koma of seint eða sýna af sér þá frekju aö leggjast inn á spítala, eft- ir að búið er aö loka á að lækna þá. Ella verður aö fækka læknunum og senda þá heim. Með sjúk- lingunum. Dagfari Stuttar fréttir r>v Aðför Sighvatur Björgvinsson, for- maður Alþýðuflokksins, sakar Kristin H. Gunnarsson, þingmann Al- þýðubandalags- ins, um aðför að sér og fólki sem stendur að sam- fylkingu vinstri- manna. Kristmn vill allt sem heitir veiðileyfagjald út úr málefnaskrá vinstriflokk- anna. Annars verði hann ekki með. Stöð 2 sagði frá. Bíó fyrir tvo milijarða íslenskar kvikmyndir fyrir ráma tvo milljarða hafa veriö framleiddar undanfarin átta ár, að sögn Morgunblaðsins. Opin- berir styrkir á hvem áhorfanda íslenskra mynda nema um 1.100 krónum, að sögn blaðsins. Vaka harmar Stjórn Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði harmar að Þormóður rammi skuli í annað sinn á 20 mánaða tímabili ekki hafa önnur ráð við minni rækjuafla en að grípa til uppsagna verkafólks. Skorað er á bæjaryfirvöld á Siglu- firði og ríkisstjóm að leita lausna á atvinnuvandanum i bænum. Brotahöfuð Vaka-Helga- fell hefúr samið við breska bóka- forlagið Merar- hreiður, eða Mare's Nest, um útgáfú á skáld- sögu Þórarins Eldjáms, Brota- höfuð. Vilja stööugleika Fjórðungssamband Vestfirð- inga samþykkti á þingi sínu ný- veriö að skora á þingmenn Vest- flarða og ríkisstjórnina að endur- skoða ákvæði fiskveiðistjómunar- laga um sóknardagakerfi smábáta með það fyrir augum að koma á stöðugleika í því. Flug á Vestfjörðum Þing Fjórðungssambands Vest- firðinga krefst þess aö tryggðar verði flugsamgöngur milli V- Barðastrandarsýslu og ísafjarðar. Flug sé nánast eini samgangna- kosturinn milli þessara svæða. Betri Vestfjarðaímynd Þing Fjórðungssambands Vest- firðinga samþykkti að fela stjóm- inni að vinna áfram að bættri ímynd Vestfjarða og veita fé til þess að kynna Vestfiröi og mál- efni Vestfiröinga. Vilja endurskoðun Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Baldurs á isafirði krefst þess að laun verkafólks verði leiðrétt strax miðað við núverandi af- komu fyrirtækja og stöðu í efna- hagsmálum. Bregðist forysta ASÍ og Verkamannasambandsins ekki við hinu yfirþyrmandi óréttlæti í launamálum standi forysta verka- fólks ekki undir nafni. Hagaskóli hæstur Nemendur 10. bekkjar í Haga- skóla náðu bestum árangri á sam- ræmdum prófum í grunnskólum landsins. Þetta kemur fram í skýrslu frá Rannsóknarstofnun uppeldis- og menntamála. Kortavandi í dag Kaupmenn mega frá og með deginum í dag leggja greiöslu- kortakostnað sinn ofan á vörukaup við- skiptavina sinna. Einar S. Einarsson, for- stjóri VISA ís- land, segir við RÚV að af þessu geti skapast uggvænlegt ástand. Með í Kosovo íslendingar munu taka þátt í hugsanlegum hernaðaraðgerðum NATO í Kosovo. Þetta var ákveð- ið á ríkisstjómarfundi á þriðju- dag. Ákveðið verður ef þar að kemur hvemig þátttöku íslend- inga verður háttað,- -SÁ i Bretlandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.