Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1998, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1998, Page 17
FEMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998 17 j™'.er ódýrast tWSRSÆa:? °g skyrta Hoftshrað- hrelnsun Vasapeningar barna og unglinga: Uppeldi hjá Pétri Margir foreldrar eiga erfitt með að ákveða hvort og hversu mikið börn þeirra eiga að fá i vasapen- inga. Sumir eiga líka erfitt með að halda uppi aga og fá börnin til að hlýða. Pétur Blöndal þingmaður notar eftirfarandi aðferðir til að kenna börnum hlýðni og gildi pen- inga. „Aðferðir mírxcu: felast í því að í stað þess að banna bömum eitt- hvað á að lokka þau til þess að gera það, þ.e. vera strangur á jákvæðan hátt en ekki neikvæðan," segir Pét- ur um inntak uppeldisaðferða sinna sem hann notar við uppeldi á Bald- ri, níu ára gömlum syni sinum. Hvatning á morgnana Baldur, sonur Péturs, fær 200 krónur á viku í vasapeninga en getur unnið sér inn peningaverðlaun í viðbót með því að leysa ýmis verk- efni. „í fyrravetur fékk hann t.d. ákveðna upphæð á morgnana ef hann gat klætt sig á inn- an við tíu minút- um. Það virkaði mjög vel enda héld- um við vel utan um þetta verkefni hans. Eft- ir fjórar vikur var hann svo sjálfur farinn að klæða sig og búa um rúmið á hverj- um degi.“ Mikið álag hvílir oft á foreldrum sem þurfa að hlaupa á milli her- bergja á morgnana til þess að vekja bömin sem vilja kúra lengur. En Pétur kann ráð við því. „Sonur minn fékk tíu krónur fyrir að ná að slökkva á vekjaraklukkunni sinni á undan mér. Síðan fékk hann 20 krónur fyrir að klæða sig á i n n a n við tíu mínútum." Baldur getur því unnið sér inn 30 krónur á morgni eða 210 krónur á viku og þar með rúmlega tvöfaldað vasapeningana sína. Þessar reglur vom allar samdar í samráði við Baldur sjálfan. Virkt aðhald Enn eitt dæmið um árangur af aðferð Péturs var að hann bauð syni sínum að æfa sig í 20 mínútur samfleytt á hverju kvöldi að halda rétt á blýanti í stað þess að nota alla hendina við að skrifa eins og sumum börnum er tamt Feðgarnir tóku verkefnið alvarlega því Baldur lagði sig fram um að halda rétt á blýantinum. Ef honum varð á í messunni tapaði hann tíu krónum af þessum þrjátíu krónum. „Þetta gekk mjög vel og var jákvætt fyrir hann þvi hann græddi alltaf á þessu. Kúnstin er því sú að fá krakkana til að gera eitthvað gegn einhverri umbun, t.d. að þau fái að horfa á ákveðinn þátt í sjónvarpinu sem þau gera jafnvel hvort sem er,“ Unglingar fjár- frekir Pétur Blöndal telur þörf á að kenna börnum að fara með peninga. Að mati Péturs eykst vand- inn við vasapeningana mikið þegar börnin komast á unglingsaldur og fjár- þörfin verður meiri. „Að- alvandinn við að ákveða upphæð vasapeninga er þegar um vasapeninga unglinga er að ræða. Eiga þeir að vera 10.000 krónur eða 500 krón- ur á viku? Pétur tel- ur hærri upphæð- ina vera alltof háa. Hann telur einnig rétt að krakkar noti þá peninga sem þeir vinna sér inn á sumrin og nýti þá sem vasapeninga fram eftir vetri. „Mér finnst vanta ákveðna umræðu um ung- lingana. Það er stundum eins og unglingamir hafi miklu meiri fjár- ráð en foreldramir því foreldramir leyfa sjálfum sér ekki sama munað og þeir leyfa unglingunum sínurn." Pétur veltir einnig þeirri spumingu upp hvað bömin eiga að kaupa fyrir vasapeningana: Eiga peningarnir að fara i sælgæti. bíó, fot eða jafnvel nesti og strætókort? Reglur um vasapeninga Pétur telur nokkuð skorta á al- menna umræðu um vasapeninga bama og unglinga. Foreldrar hafi engar fyrirmyndir i þessum efnum og viti því ekki hvað sé hæfileg upp- hæð á viku eða hvað sé of mikið. „Málið er það að þegar krakkar fá vasapeninga eiga þeir sjálfir að kaupa sér ákveðna hluti, t.d. sæl- gæti eða fara í bíó. Með því að setja nokkra hluti inn í vasapeningana læra krakkar að velja og hafiia því það er ekki hægt að gera allt fyrir vasapeningana." Pétur hefur haft þá stefnu að gefa börnum sínum vasapeninga frá um fjögurra ára aldri. I fyrstu á upp- hæðin að vera lítil, t.d. 50 krónur á viku, en eykst svo meö ámnum. „Foreldrar em örugglega á mjög mismunandi skoðunum um hvenær hæfilegt sé að fara að gefa bömum vasapeninga. Sumir gefa jafnvel aldrei vasapeninga og telja þá leiða til peningahyggju. En þá er greitt fyrir t.d. hverja bíóferð sem leiðir til þess að bömin nauða stöðugt. Ég tel hins vegar að það sé nauðsynlegt fyrir böm að læra að fara með pen- inga. En það gildir um þessar reglur eins og aðrar að það verður að fara eftir þeim,” segir Pétur Blöndal að lokum. -GLM Of salt í súpur og pottrétti er best að setja nokkrar sneiðar af hráum kartöflum sem hent er að lokinni eldun. Þá hafa kartöflumar sog- ið í sig saltið. Annað ráð í sömu rétti er að setja sína hvora skeiðina af epla- ediki og sykri út í eða að bæta bara sykri út í. Brakandi morgunkorn Herða má deigt morgunkorn og kex með því að setja það á bökunarpappír og setja í ofn í nokkrar minútur. Ef kartöfluflögurnar tapa ferskleika sínum er gott að setja þær undir ofnagrillið í smá- stund. Gætið þess að brenna þær ekki. Veturinn er á næsta leiti og því em væntan- lega margir búnir að dusta rykið af vetraryfir- höfnum og öðrum flíkum sem lágu inni í skáp í sumar. Þeir sem hyggjast láta fagmenn hreinsa flíkur sinar ættu að hafa í huga mismunandi verð og þjónustu fatahreinsana. Neytendasíðan kannaði hvað kostar að hreinsa fimm flíkur: jakkaföt, skyrtu, síða ullarkápu og heila lopa- peysu, í tíu fatahreinsunum á höfuðborgarsvæð- inu. Fyrirtækin sem könnuð vora em: Fatahreins- un Kópavogs, Fönn, Hreinn, Kjóll og hvítt, Fata- hreinsunin Nóatúni, Glitra, Holtshraðhreinsun, Hraði, Nýja efnalaugin og Hvíta húsið. Svo virðist sem meðferðin á flíkunum sé í flest- um tilfellum svipuð. Fyrst er leitað að blettum og þeim náð úr með viðeigandi efnum, síðan er flik- in hreinsuö (oft- ast þurr- hreinsuö) og síðan g u f u - pressuð ef hún hefur komið al- veg hrein úr hreins- uninni, annars er flíkin hreinsuð aftur. B i ð - t í m i eft- ------— ir flíkunum var mislangur eftir fyrirtækjum. Flestir vom tilbúnir að afhenda fötin samdægurs ef mik- ið lá við en annars var biðtíminn misjafn. Hjá Fatahreinsun Kópavogs, Kjól og hvítu, Nýju efna- lauginni og Holtshreinsun máttu viðskiptavinir búast við um eins dags bið eða minni. Hjá Hvíta húsinu, Hreini, Nóatúni, Glitru og Hraða var bið- in að meðaltali 11/2 dagur. Hjá Fönn var biðtím- inn hins vegar að meðaltali þrír dagcir. Af þeim stöðum sem kannaðir vom reyndist Verðkönnun á fatahreinsunum: Hrein og fín I vetur ódýrast að hreinsa ullarkápu, lopapeysu, jakkaföt og skyrtu saman í Holtshreinsun á 2955 krónur. Þar á eftir kom Hvíta hús- ið með sama pakka á 2960 krónur. Fata- hreinsunin Nóatúni, Hraði, Fatahreinsun Kópavogs, Hreinn, Glitra og Kjóll og hvítt buðu síðan hreinsun á þessum flíkum á 3000-3060 krónur. Lestina ráku svo Fönn, sem hreinsar áðurtaldar flíkur fyrir 3210 krónur, og Nýja efnalaugin sem hreinsar flíkurn- ar fyrir 3525 krónur. Þjónusta fatahreinsananna er talsvert mismun- andi. Á öllum stöðunum, nema hjá Fatahreinsun- inni Nóatúni, Nýju efnalauginni og Hraða, em festar tölur sem losna við hreinsunina. Hjá Kjóli og hvítu og Glitru er sérstaklega tekið fram að gert sé við fald, t.d. á kápu, sem losnar við hreins- un. -GLM Niður- sneiddir ávextir Veltið nýsöxuðum ávöxtum upp úr sítrónusafa, þá heldur hann lit sínum. Safi hálfrar sítrónu nægir fyrir 1/4—1/2 ávöxt. Einnig má dýfa ávöxtun- rnn í bolla af sykurlegi sem er soðinn saman úr sykri og vatni (til helminga). J Veturinn er á næsta leiti og því rétt að hafa jakkafötin hrein og strokin fyrir komandi árshá- tíðir og önnur veisluhöld. Gömul raftæki Til að losna við gula slikju af hvítum heimilistækjum má reyna eftirfarandi: Blandið sam- an: 1/2 bolla af bleikiefiii, 1/4 bolla af matarsóta og 4 bollum af heitu vatni. Berið á með svampi og látið bíða í 10 mínútur. Skolið síðan og þumkið vel. í staðinn fyrir bón má nota sótthreinsunarspritt til að fægja hluti. Einnig má mota blöndu af vatni og ammoníaki til þess eða einfaldlega sódavatn. -GLM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.