Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1998, Síða 25
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998
25
Fréttir
Örlygur Kristfinnsson safnstjóri við tækjabúnað sem sóttur var í Strandasýslu. DV-mynd Örn
Maraþon-orgelleikur i Seyöisfjaröarkirkju:
Kirkjukórinn til Kantara-
borgar næsta vor
DV, Seyðisfirði:
María Gaskell er ung ensk tónlist-
arkona sem kom hingað fyrir fjór-
um árum. Hún hefur síðan starfað
við tónlistarskólann og verið org-
anisti við Seyðisfjarðarkirkju. Áður
hafði hún verið tónlistarkennari við
Húnavallaskóla einn vetur og fallið
mjög vel við landið og fólkið.
Nokkrum árum síðar frétti hún af
að tónlistarkennara vantaði á Seyð-
isfirði, sótti um og fékk starfið og
hefur verið hér síðan. Hún er að
hefja fimmta starfsárið og hefur
eignast hér eiginmann og fjöl-
skyldu. María er greinilega atorku-
kona með margt á prjónunum - og
er nú að hefja starf eftir sex mánaða
bamsburðarleyfi.
Fréttamaður DV hitti hana í
kirkjunni nýlega en þá var hún að
hefja 10 klukkustunda orgelleik til
fjársöfnunar fyrir væntanlega ferð
kirkjukórsins til Englands á næsta
vori. Fyrst er ferðinni heitið til
Kantaraborgar - Canterbury - til að
skoða dómkirkjuna stórfenglegu en
einnig stundaði María tónlistarnám
sitt þar.
Vegna kunnugleika síns á staðn-
um er hún því sérstaklega ákjósan-
legur leiðsögumaður og fagnaðar-
efni fyrir samferðafólkið að kynnast
þessum sögufræga stað með hennar
leiðsögn. í Kantaraborg er aðsetur
erkibiskupsins yfir öllu Englandi. Á
miðöldum og lengi síðan vitjuðu
pílagrímar grafar heilags Tómasar
Beckets þangað.
María og kórinn hennar hafa þeg-
ar hafið æfingar fyrir gospelmessu
sem verður hér í kirkjunni í nóvem-
ber. Einnig eru æfingar á íslenskum
þjóð- og dægurlögum fyrir Eng-
landsferðina i gangi næstu mánuð-
ina og undirbúningur að útgáfu
geisladiska. J.J.
^ Takið þátt í \
krakkapakkaleik
Kjörís og DV!
Klippið út Tígra og límið á
þátttökuseðil sem fæst á næsta
sölustað Kjöris krakkapakka.
Sendið svo inn ásamt
strikamerkjum af
V krakkapökkum. ^
Nöfn vinningshafa
birtast í DV
á miðvikudögum.
KLIPPTU ÚT
verið fargað. Þeim hefði hins vegar
tekist að hafa upp á þessu annars
staðar svo það glatist ekki endan-
lega og það verður því væntanlega
til sýnis á Siglufirði um ókomin ár.
Þá sagði Örlygur að á næstu
árum væri fyrirhugað að reisa ann-
að safnhús á vegum Síldarminja-
safnisns þar sem skipi, nótabátum
og veiðarfærum frá síldarárunum
verður komið fyrir til sýnis. Efnið í
skemmumar fékk safnið að gjöf frá
SR-mjöli en það er úr gömlu mjöl-
húsi sem rifið var í sumar.
Varðandi fjármögnun fram-
kvæmdanna er búið að tryggja tvo
þriðju af áætluðum kostnaði við
byggingarnar. Menntamálaráðu-
neytið veitti 10 millj. króna styrk á
síðasta ári og Siglufiarðarbær hefur
lofað 10 milljónum sem greiddar
verða safninu á næstu fimm árum.
-ÖÞ
María við orgelið.
DV-mynd Jóhann
Síldarminjasafniö á Siglufirði:
Sækir muni á
Strandir og Hjalteyri
Þeir voru ekki lofthræddir, smiðirnir sem unnu við að reisa nýja fþróttahús-
ið á Hellu. DV-mynd Njörður
DV, Siglufirði:
Ahugamenn um Síldarminjasafn-
ið á Siglufirði hafa í haust verið að
sækja vélbúnað i gamlar og aflagðar
verksmiðjur og á að koma honum
fyrir í bræðsluminjasafni sem þeir
safnmenn hyggjast koma upp á
næstu árum. Mest af búnaðinum er
sóttur í verksmiðjuna í Ingólfsfirði
á Ströndum og á Hjalteyri við Eyja-
fiörð. Þessi tæki voru notuð á sild-
arárunum og eru í misjöfnu ástandi
en með því að hreinsa þau og mála
má koma þeim í gott horf. Örlygur
Kristfinnsson safnstjóri sagði að á
næsta ári væri áformað að byggja
bræðsluminjahús á lóð safnsins þar
sem komið verður fyrir margs kon-
ar tækjabúnaði sem tilheyri síldar-
vinnslu fyrri ára. Ástæða þess að
Siglfirðingar eru að sækja búnað í
önnm- héruð er að mest af tækjum
úr verksmiðjum á Siglufirði hefur
Nýtt íþróttahús á Hellu.
Mikið byggt í
Rangárvallahreppi
DV, Suðurlandi
A Hellu er verið að byggja íþrótta-
hús og hafa framkvæmdir við það
gengið samkvæmt áætlun. Stefnt er
að því að loka byggingunni öðru
hvorum megin við næstu mánaða-
mót. í síðustu viku voru smiðir að
reisa burðargrind hússins, sem er úr
límtrésbitum, og haldið var reisugilli
í tilefni þess 25. september.
Töluverðar byggingaframkvæmdir
eru í Rangárvallahreppi. Auk íþrótta-
hússins er verið að byggja á Hellu
nýtt húsnæði yfir Skattstofu Suður-
lands sem ráðgert er að verði tilbúið
um næstu áramót. Þá eru þrjú flutn-
ingafyrirtæki að byggja skemmu yfir
starfsemi sína og því til viðbótar er
verið að byggja nokkra sumarbústaði
í hreppnum. Sumarbústöðum hefur
fiölgað töluvert í Rangárvallahreppi
á undanfornum árum. I lok sumars-
ins verða þeir orðnir tvöfalt fleiri en
árið 1991.
-NH
A V•
. \ á er ved/v’d tilad lem
1 -...... .17*“.
* a S)
KtOssn '
Ss9ata _ ,
sPakm