Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1998, Blaðsíða 26
26 ^ikmyndir
■ ★ ★
Hesturinn, skaparans meistara-
mynd,//er mátturinn steyptur í
hold og blóð“ orti Einar Benedikts-
son eitt sinn í eftirminnilegu ljóði.
Margar ágætar kvikmyndir hafa
verið gerðar um þessa fallegu
skepnu og þótt hugtakið hrossa-
ópera sé venjulega fyrst og fremst
notað um vestra mætti vissulega
fella eftirtaldar myndir undir hug-
takið líka:
National Velvet (1944):
Elizabeth Taylor leikur hér stúlk-
una Velvet Brown sem ákveður að
skrá hestinn sinn til keppni í virt-
ustu kappreiðum Englendinga. Hún
klippir hár sitt stutt og riður sjálf til
sigurs. Þessi mynd gerði Taylor að
stórstjömu, en hún hafði áður leik-
ið á móti hundi í hinni sívinsælu
Lassie Come Home (1943). Leik-
stjóri: Clarence Brown. Önnur hlut-
verk: Mickey Rooney, Anne Revere
og Angela Lansbury.
My Brother Talks to
Horses (1946):
★★
Þetta er langt í frá besta kvik-
mynd hins ágæta leikstjóra Fred
Zinnemann. í henni leikur bama-
stjaman Jackie „Butch“ Jenkins, en
hann lék einnig í Natioúal Velvet,
strákorm sem dundar sér við það að
tala við hross. Með önnur hlutverk
fara Peter Lawford og Spring By-
ington, sem eins og venjulega er i
hlutverki móðurinnar.
Equus (1977):
★★★
Þessi kvikmynd Sidney Lumet er
byggð á þekktu leikriti Peters Shaf-
fer. í henni leikur Richard Burton
sálfræðing sem reynir að grafast
fyrir um rætur þess að hestasveinn-
inn Alan Strang (Peter Firth) hefur
blindað sex hesta. Strang hefur hlot-
ið strangt trúaruppeldi en fært guð-
hræðsluna og sterk áhrif móður
sinnar yfir á hrossin. I þessari
mynd ræður Hollywood-freudism-
inn ríkjum. Með önnur hlutverk
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998 DV
Sambíóin-The Horse Whisperer: ★★*
Hrossalæknirinn
The Horse Whisperer er gerð eftir samnefndri
metsölubók Nicholas Evans. Þetta er þriggja tima
melódrama um menn og dýr i hrikalegri náttúrufeg-
urð Klettafjalla. I upphafi myndarinnar missir Grace
MacLean (Scarlett Johansson) annan fótinn í bílslysi
en hesturinn hennar, Pílagrímur, slasast svo illa að
hann hálfsturlast. Foreldrar Grace, Ahnie og Robert
(Kristin Scott Thomas og Sam Neiil), vilja kosta öllu
til að dóttir þéirra taki gleði sína aftur. Þegar Annie
fréttir af kúrekanum Tom Booker (Robert Redford),
sem kemur líkamlega sem andlega bækluðum hest-
um til heilsu, flytur hún hestinn og dóttur sína frá
New York yfir þver Bandaríkin til Montana í von um
að græðandinn" nái að lækna sár beggja. Ekki líður
á löngu þar til hún er orðin ástfangin af hestahvísl-
aranum en það er nafngiftin sem hrossalæknir mynd-
arinnar gengur undir. Þetta er kvikmynd sem ætti að
höfða til allra sem kunnu að meta Brýmar í Madison-
sýslu en vissulega reynir lengd hennar á þolrif þeirra
sem ekki hafa smekk fyrir væmnum stórmyndum frá
Hollywood.
Bók Nicholas Evans hlaut misjafnar viðtökur og
var annars vegar lofúð sem glæsilegt meistaraverk
og hins vegar gagnrýnd sem innihaldslaus loftbóla.
Myndin brúar að mínu mati bilið, og kannski má
kalla hana fallega loftbólu. Þannig eru allar persón-
umar flatar en leikaramir gera þeim eftirminnileg
skil; sagan er röð af klisjum, en vel
er farið með þær í öguðu handriti
Erics Roth; Klettafiöllin minna á
glæsilegt póstkort og verða aldrei
neitt meira í glansmyndatöku Ric-
hardssons. Öll umgjörð myndarinn-
ar gefur til kynna að hér sé stór-
mynd á ferðinni og ekki er loku fyrir það skotið að
hún verði útnefnd til einhverra óskarsverðlauna. En
það eina sem skilur hana frá meðalmynd er góður
leikur Redfords, Scott Thomas og Johansson. Unn-
endur ástarsagna ættu að skella sér á myndina. Hin-
ir ættu að halda sig heima.
Leikstjóri: Robert Redford. Handrit: Eric
Roth. Aðalhlutverk: Robert Redford,
Kristin Scott Thomas, Sam Neill, Scar-
lett Johansson, Oianne Wiest og Chris
Cooper.
Guðni Elísson
KVIKMY;
A
T§ PP S1 O
í Bandaríkjunum
- aðsókn dagana 24. tll 27. september. Tekjur í mllljónum dollara og helldartekjur -
The Man from
Snowy River (1982):
★★★
Þessi ástralski „vestri" vakti
verðskuldaða athygli þegar hann
var fnunsýndur og ekki sist fyrir
margar stórfenglegar senur með
villtum stóðhestum. Tom Burlinson
leikur tmgan mann sem ræður sig á
búgarð auðkýfings (Kirk Douglas)
og verður ástfanginn af dóttur hans.
Leikstjóri: George Miller. Önnur
hlutverk: Sigrid Thomton og Jack
Thompson.
Sylvester (1985):
★★
Söguþráðurinn í þessari mynd er
ekkert sérlega frumlegur. Melissa
Gilbert (úr Húsinu á sléttunni) leik-
ur unglingsstúlkuna Charlie sem
reynir eftir fremsta megni að sjá
um bræður sína og láta þá ósk ræt-
ast að temja hesta. í hrossinu Sylv-
ester sér hún möguleikann á mikl-
um veðhlaupahesti. Leikstjóri: Tim
Hunter. Önnur hlutverk: Richard
Famsworth og Michael Schoefiling.
Dark Horse (1992):
★★
Líkt og í Hestahvíslaranum fiall-
ar þessi mynd um unga fatlaða
stúlku og hestinn hennar. Þegar
unglingurinn Allison Mills (Ari
Meyers) keyrir bíl í klessu í af-
brýðiskasti er hún dæmd til þess að
vinna á hestabúgarði fyrir fötluð
böm. Mills slasast sjálf alvarlega
eftir að hún reynir að bjarga hestin-
um Jet úr bílslysi og myndin lýsir
uppgjöf stúlkunnar og hrossins, sem
ná reyndar bæði heilsu í lokin.
Leikstjóri: David Hemmings. Önnur
hlutverk: Ed Begley, Jr., Chad
Smith og Mimi Rogers.
Black Beauty (1994):
★★i
Kvikmyndin er byggð á klassískri
bamasögu Anna Sewell sem fyrst
kom út árið 1877. Hér er sögð saga
hestsins Fagra-Blakks frá því að
hann er folald í haganum hjá
mömmu sinni og allt þar til hann er
orðinn gamalt hró, kominn að hóf-
um fram. Eigendur hans fara misvel
með hann, en í lokin rætist úr öllu.
Þessi skemmtilega bamamynd er
þriðja útgáfa sögunnar, en fyrri
tvær myndimar komu út 1946 og
1971. Leiksfióri: Caroline Thomp-
son. Helstu hlutverk: Sean Bean,
David Thewlis, Jim Carter og Peter
Cook. -ge
Robert DeNiro náði
ekki að ógna Jackie
Black Stallion, 1979.
Chan
Rush Hour, nýjasta kvikmyndin með hin-
um smávaxna og flinka Jackie Chan, hélt
efsta sætinu á listanum yfir vinsælustu
kvikmyndirnar í Bandaríkjunum og hafa
vinsældir hennar komið á óvart.í ööru sæti er sakamálamyndin Ronin meö
Robert DeNiro, Stellan Skarsgard og Jean Reno í aöalhlutverkum. Leikstjóri
hennar er hinn reyndi John Frankenheimer sem á aö baki nokkrar frábærar
kvikmyndir þótt ekki hafi honum tekist vel upp á undanförnum árum. Þrátt
fyrir aö Robert DeNiro hafi oröiö aö lúta I lægra haldi fyrir Jackie Chan get-
ur hann verið ánægöur því þótt ótrúlegt sé hefur engin kvikmynd meö hon-
um náö jafnmiklum peningum inn í fyrstu umferö. Best hjá honum áöur var
Cape Fear sem náöi inn rúmum 10 milljónum dollara fyrstu vikuna á listan-
um. -HK
Tekjur Heildartekjur
1. (1) Rush Hour 21.202 64.037
2. (-) Ronln 12.697 12.697
3. (-) Urban Legend 10.514 10.514
4. (2) One True Thing 4.438 13.191
5. (3) There's something about Mary 4.430 153.259
6. (5) Simon Birch 2.591 11.672
7.(6) Saving Private Ryan 2.511 181.818
8. (6) Rounders 2.364 19.853
9. (9) Blade 2.009 64.280
10. (8) Ever after 1.315 61.413
11. (9) Armageddon 0.951 197.134
12. (-) Lethal Weapon 4 0.751 128.056
13. (11) The Parent Trap 0.648 63.942
14. (17) Everest 0.596 43.497
15. (-) Pecker 0.541 0.541
16. (12) Dr. Dolittle 0.501 141.743
17. (12) How Stella Got Her Groove Back 0.471 36.079
18. (13) The Mask of Zorro 0.431 90.837
19. (10) Snake Eyes 0.414 54.581
20. (-) Mulan 0.386 119.561
rspa
fara: Colin Blakely, Joan Plowright
og Jenny Agutter.
The Black Stallion (1979):
★★★
Líkt og í National Velvet segir
hér frá ungum dreng sem eignast
svartan stóðhest sem hann skráir til
þátttöku í miklum veðreiðum. Kélly
Reno leikur strákinn Alec og
Mickey Rooney leikur þjálfarann.
Svarti folinn er stórglæsileg skepna
og stærsta aðdráttarafl myndarinn-
ar. Leikstjóri: Carroll Ballard. Önn-
ur hlutverk: Teri Garr, Hoyt Axton
og Michael Higgins. Áframhaldi
myndarinnar, The Black Stallion
Retums (1983), var leikstýrt af Ro-
bert Dcdva.
The Electric
Horseman (1979):
★★'i
Nú þegar Hestahvíslarinn er í
Sambíóunum er rétt að minna á
aðra mynd þar sem Redford er í
hlutverki hestamannsins. Hér leik-
ur hann hinn drykkjusjúka ródeó-
kúreka Sonny sem rænir verð-
launahesti og þeysir á honum út í
auðnina. Jane Fonda leikur frama-
gjarna fréttakonu sem eltir hann í
von um góða sögu. Leiksfióri: Sydn-
ey Pollack. Önnur hlutverk: Valerie
Perrine og Willie Nelson.
The Horse Whisperer, 1998
Hrossaóperur