Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1998, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1998, Qupperneq 34
34 FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998 Afmæli Hafsteinn Guðmundsson Hafsteinn Guðmundsson. ursmerki KSÍ og er heið- ursfélagi Ungmennafé- lags Keflavíkur. Fjölskylda Hafsteinn kvæntist 2.8. 1952 Jóhönnu Guðjóns- dóttur, f. 25.8. 1932, fyrrv. verslunarmanni og hús- móður. Hún er dóttir Guðjóns Klemenssonar, f. 6.10. 1898, d. 14.11. 1979, skipsmiðs í Keflavík, og Sigrúnar Kristjánsdóttur, f. 17.6. 1912, d. 9.3. 1993, Hafsteinn Guðmundsson, fyrrv. sundhallarstjóri og fyrrv. einvaldur landsliðsins í knattspymu, Suöur- >,ötu 8, Keflavík, er sjötíu og flmm ara í dag. Starfsferill Hafsteinn fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Samvinnuskólann frá 1943 og lauk þaöan prófum 1945, stundaði nám við íþróttakennaraskóla ís- lands og lauk þaðan prófum 1947 og stundaði framhaldsnám við íþrótta- háskólann í Köln í Þýskalandi 1951. Hafsteinn var íþróttakennari við skólana í Keflavík, Garði og Sand- gerði 1947-53, var sundhallarstjóri við Sundhöll Keflavíkur 1954-93 og var síðan í hlutastarfi þar í tvö ár. Hafsteinn var formaður ÍBK frá stofnun 1956-76, sat í stjóm KSÍ 1968-72, var einvaldur landsliðsins í knattspyrnu 1969-73, átti sæti í stjóm HSÍ og Knattspymufélagsins Vals í Reykjavík, var formaður Handknattleiksráðs Reykjavíkur 1948-50, for- maður Ungmennafélags Keflavíkur 1978-82, for- maður Knattspyrnuráðs Keflavíkur 1979-80, átti sæti í íþróttadómstól KSÍ í nokkur ár og í íþrótta- dómstól HSÍ. Hafsteinn lék knatt- spyrnu með meistara- flokki Vals 1942-54 og með ÍBK 1956-60, var ís- landsmeistari með Val 1944 og 1945 og lék fjóra landsleiki á árunum 1946-51. Hann lék handbolta með meist- araflokki Vals 1942-54 og varð ís- landsmeistari í handbolta innan- húss með Val 1944,1947,1948 og 1951 og utanhúss 1951. Þá lék Hafsteinn þrjá landsleiki í handbolta á þessum árum. Hafsteinn var sæmdur heiðurs- krossi ÍSÍ, var sæmdur æðsta heið- húsmóður. Böm Hafsteins og Jóhönnu em Hafdís, f. 6.2. 1953, leikskólastjóri í Kópavogi, og eru böm hennar Ragn- heiður, f. 19.3. 1979, og Brynjar, f. 10.7. 1982; Haukur, f. 14.9. 1954, lög- fræðingur í Reykjavík, en kona hans er Þóra Ólafsdóttir og era dæt- ur þeirra Sigrún, f. 22.7. 1977, Vig- dís, f. 27.1.1981, og Jóhanna, f. 30.10. 1987; Svala, f. 12.6. 1956, fóstra í Kópavogi, en maður hennar er Magnús B. Magnússon og era börn þeirra Hafsteinn, f. 24.11. 1987, og Sólveig, f. 26.5. 1993; Brynja, f. 6.12. 1960, tækniteiknari í Keflavík, en maður hennar er Skúli Jónsson og era synir þeirra Arnar Guðjón, f. 7.5. 1991, Andri Þór, f. 8.9. 1993, og Birkir Öm, f. 6.11. 1996; Sigrún, f. 26.7. 1967, kennari í Hafnarfirði, en maður hennar er Bjöm Pétursson og er sonur þeirra Ingvar Þór, f. 15.3. 1995. Systkini Hafsteins era Ásta, f. 8.12. 1921, húsmóðir í Reykjavík; Ólafur, f. 21.1.1927, verkfræðingur í Reykjavík; Guðný, f. 23.11.1924, hús- móðir í Bandaríkjunum. Foreldrar Hafsteins voru Guð- mundur Sigmundsson, f. 26.9. 1896, d. 20.10. 1975, sjómaður í Reykjavík, og k.h„ Vigdís Ólafsdóttir, f. 16.9. 1899, d. 29.1. 1978, húsmóðir. Hafsteinn er í útlöndum á afmælisdaginn. Margrét Árnadóttir Margrét Árnadóttir. Margrét starfaði í íþrótta- félaginu Hugin á unglings- árum, stundaði sund, var fyrsti formaður Golfklúbbs ísafjarðar 1978 og hefur starfað í Soroptomista- klúbbi Kópavogs. Fjölskylda Margrét giftist 23.6. 1951 Guðjóni Valgeirssyni, f. 13.5. 1929, d. 7.3. 1992, hdl. og deildarstjóra. Hann var sonur Valgeirs Guðjóns- sonar, f. 25.7. 1905, d. 15.7. Margrét Arnadóttir, Fannborg 8, Kópavogi, er sjötug í dag. Starfsferill Margrét fæddist að Há- nefsstöðum við Seyðis- fjörð, ólst upp að Háeyri og á Seyðisfirði. Hún stund- aði nám viö Alþýðuskól- ann á Eiðum og við Hús- mæðraskólann Ósk á ísa- firði. Margrét hefur unnið ýmis störf um ævina en lengst af og um árabil hefur hún hannað ullarvörur. Þá hefur hún skipulagt og haft umsjón með félags- málum og tómstundaiðju sl. tólf ár, fyrst í Múlabæ og í Hliðarbæ en síð- ustu níu árin að Sunnuhlíð í Kópa- vogi. 1979, múrarameistara í Reykjavík, og Sigríðar Arinbjargar Sveinsdóttur, f. 20.7. 1903, d. 21.6. 1967, húsmóður. Margrét og Guðjón skildu. Böm Margrétar og Guðjóns eru Valgeir, f. 23.1.1952, tónlistarmaður í Reykjavík, kvæntur Ástu K. Ragnars- dóttur, forstöðumanni námsráðgjafar HÍ, og era böm þeirra Ámi Tómas, f. 9.5.1977, Arnar Tómas, f. 10.5.1989, og Vigdís Vala, f. 9.3.1993; Guðrún Ama, f. 13.6. 1957, hjúkrunarfræðingur hjá Thorarensen-Lyf ehf, gift Pétri H. Bjarnasyni framkvæmdastjóra og eru börn þeirra Bjarni Þór, f. 19.7.1979, og Edda Björk, f. 1.5. 1984; Sigríður Anna, f. 2.2. 1959, kennari við Flata- skóla í Garðabæ, gift Ragnari B. Mar- teinssyni þjónustustjóra og eru börn þeirra Margrét, f. 10.6.1983, Ragnheið- ur, f. 24.10. 1984, og Guðjón, f. 19.5. 1992. Bræður Margrétar: Vilhjálmur, f. 15.9.1917, hrl; Þorvarður, f. 17.11.1920, d. 1.7. 1992, forstjóri; Tómas, f. 21.7. 1923, fyrrv. ráðherra og seðlabanka- stjóri. Foreldrar Margrétar voru Ámi Vil- hjálmsson, f. 9.4.1893, d. 11.1.1973, út- vegsbóndi á Hánefsstöðum, og k.h., Guðrún Þorvarðardóttir, f. 7.1.1892, d. 26.10.1957, húsfreyja. Ætt Árni var bróðir Sigríðar, móður Vilhjálms Einarssonar skólameistara. Ámi var sonur Vilhjálms, útvegsb. á Hánefsstöðum Ámasonar, b. á Hofi, Vilhjálmssonar. Móðir Áma á Hánefsstöðum var Björg, systir Stefaníu, móður Vil- hjálms Hjálmarssonar, fyrrv. ráð- herra. Björg var dóttir Sigurðar, b. á Hánefsstöðum, Stefánssonar, bróður Gunnars, afa Gunnars Gunnarssonar skálds. Guðrún var dóttir Þorvarðar, í Keflavík, Þorvarðarsonar beykis Helgasonar. Móðir Þorvarðar beykis var Guðrún, systir Jakobs, langafa Vigdísar Finnbogadóttur. Sigurlín Kristmundsdóttir Sigurlín Kristmundsdóttir frá Eskifirði, húsmóðir og verkakona, nú til heimilis að Dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík, er áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferill Sigurlín fæddist að Ási við Hjalt- eyri í Eyjafirði og ólst þar upp og á Eskifirði. Hún hefur stundað ýmis verkamannastöf, einkum fisk- vinnslu, auk húsmóðurstarfa. Sigurlín starfaði lengi í Verka- mannafélaginu Árvakri á Eskifirði þar sem hún var trúnaðarmaður og sat í varastjóm um árabil. Þá sinnti hún umönnun aldraðra í Skjaldar- vík við Akureyri í fjölda ára en þar var hún sjálf vistkona á áranum 1991-98. Fjölskylda Eiginmaður Sigurlínar var Ólaf- ur Bjamason frá Neskaupstað, f. 2.6. 1909, d. 2.9. 1947. Hann var sonur Bjama Hávarðssonar og Rannveig- ar Ólafsdóttur í Neskaupstað. Sigur- lfn og Ólafur slitu samvistum 1944. Böm Sigurlínar og Ólafs eru Kristín Hjálmveig, f. 21.12. 1938, d. 14.11. 1944; Hjálmar, f. 1.2. 1941, húsasmiður í Neskaupstað, kvænt- ur Bimu Bjamadóttur og era böm þeirra Bjami Ólafur, Hjörvar og Hrönn. Dóttir Sigurlínar og Friðriks Ámasonar, hreppstjóra á Eskifirði, er Vilborg Guðrún Frið- riksdóttir, f. 4.10. 1946, húsmóðir á Dalvík, gift Jóni Hreinssyni, bif- reiðarstjóra og verktaka á Dalvík, en fyrri maður hennar er Stefán Guð- mundsson stýrimaöur og era böm þeirra Krist- mundur Sævar, Hanna Kristín, Sigurlín Guðrún og Stefán Friðrik. Sigurlín átti þrjá hálfbræður sem nú era látnir. Þeir vora Jón Sig- tryggsson, f. 1902, kvæntur Sigur- björgu Jóhannsdóttur; Ragnar Sigtryggsson, f. 1904, kvæntur Guðrúnu Hallgrímsdóttur; Hregg- viður Sveinsson, f. 1908, kvæntur Jóhönnu Jó- hannsdóttur. Foreldrar Sigurlínar voru Kristmundur Jóhannsson, f. í Víkurkoti í Akra- hreppi 2.6. 1877, d. 3.8. 1964, verkamaður á Hjalt- eyri og Eskifirði, og Krist- ín Hallgrímsdóttir, f. á Stóru-Hámundarstööum í Eyjafirði 9.7. 1876, d. 31.3. 1956, verkakona og húsmóðir. Sigurlín Kristmundsdóttir. Steinn M. Guðmundsson Steinn Márus Guðmundsson raf- veituvirki, Ölduslóð 5, Hafnarfiröi, er fertugur í dag. Starfsferill Steinn fæddist á Hofsósi og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Rafiðnaðarskóla íslands og lauk þaöan prófum sem rafveituvirki. Steinn varð línumaður hjá RARIK er hann var sextán ára, var flokksstjóri þar 1979-84, stundaði sjómennsku 1984-86, vann ýmis störf fyrir Hofsóshrepp sumarið .' 1986, vann við malamám vegna Kröfluvirkjunar 1986-91, hóf þá störf hjá Landsvirkjun og hefur starfað þar síðan. Fjölskylda Steinn kvæntist 13.5. 1978 Guð- rúnu Jónu Gunnarsdóttur, f. 5.3. 1955, matráðskonu hjá Landsvirkj- un. Hún er dóttir Gunnars Bald- vinssonar, fyrrv. vöurbílstjóra, og Margrétar Þorgrímsdóttur, ganga- varðar við Austurbæjarskólann. Böm Steins og Guðrúnar Jónu era Gunnar Freyr Steinsson, f. 19.6. 1975, nemi en kona hans er Hólm- fríður Steinþórsdóttir; Guðmundur Vignir Steinsson, f. 2.8. 1979, verka- maður í Hafnarfirði, en kona hans er Kolbrún Ósk Guðjónsdóttir og sonur þeirra er Þröstur Bjami; Bergný Heiða Steinsdóttir, f. 1.2. 1986, nemi. Systkini Steins era Sigmundur Guðmundsson, f. 12.7. 1945, banka- starfsmaður á Akureyri, kvæntur Amalíu Sigm-ðardóttur og eiga þau þrjá syni; Steinunn Anna Guð- mundsdóttir, f. 21.9. 1946, búsett á Blönduósi, gift Ragnari Tómassyni og eiga þau þrjú böm; Jón Guð- mundsson, f. 26.3. 1952, trésmiður í Grindavík, kvæntur Margréti Guð- mundsdóttur og eiga þau saman tvö böm og hann á einn son frá fyrra sambandi; Björgvin Margeir Guð- mundsson, f. 12.4. 1954, rafvirki á Sauðárkróki, kvæntur Margréti Pét- ursdóttur og eiga þau fjögur böm; Guðmundur Örn Guðmundsson, f. 17.8. 1955, framleiðslustjóri á Sauð- árkróki, kvæntur Ernu Baldursdótt- ur og eiga þau saman eina dóttur auk þess sem hann á dóttur frá fyrra sambandi og hún einn son frá fyrra sambandi; Hólmfríður Dröfn Guðmundsdóttir, f. 29.5.1960, búsett á Sauöárkróki, gift Friðriki Jóns- syni og eiga þau tvö böm. Foreldrar Steins: Guðmundur Vilhelm Steinsson, f. 24.12. 1921, d. 25.6. 1993, múrari og Stefanía Jóns- dóttir, f. 12.3. 1925, húsmóðir. Þau bjuggu á Hofsósi til 1979 og síðan á Sauðárkróki. Til hamingju með afmælið 1. október 85 ára Jóhanna Sigurðardóttir, Klettaborg 2, Akureyri. Jórunn Þorkelsdóttir, Lindargötu 57, Reykjavík. Þorsteinn Glslason, Miðleiti 7, Reykjavík. 80 ára Karl Valdimarsson, Brekkustíg 16, Reykjavík. 75 ára Bjarni Jóhannesson, Brekkug. 12, Hvammstanga. Sigríður Ingimarsdóttir, Dalbraut 25, Reykjavík. Hún verður að heiman. Þorbjöm Jónsson, írabakka 6, Reykjavík. 70 ára Ásta Sigríður Guðjónsdóttir, Klettahlíð 16, Hveragerði. 60 ára Anna M. Valdimarsdóttir, Hraunbraut 8, Kópavogi. Hanna Ósk Jónsdóttir, Starhólma 4, Kópavogi. Skarphéðinn Njálsson, Sólvallagötu 9, Keflavík. 50 ára Aðalgeir Karlsson, Múla 2, Húsavík. Jeronimo Jóhann Luchoro, Hjaltabakka 24, Reykjavík. Kristrún Gimnarsdóttir, Giljalandi 18, Reykjavík. Magnús Guðmundsson, Hlíðarhjalla 10, Kópavogi. Víðir Jóhannsson, Fagurhólstún 8, Grundarfirði. 40 ára Barbara Irena Koziol, Karmelitaklaustrinu, Hafnarfirði. Bergljót Þorsteinsdóttir, Halldórsstöðum II, Fosshóli. Einar Bjami Bjamason, Klapparbergi 15, Reykjavík. Erlingur E. Erlingsson, Kjarrhólma 4, Kópavogi. Guðmundur Brynjólfsson, Bjargi, Seltjamamesi. Jóhann Páll Helgason, Brennu II, Eyrarbakka. Jón Þorsteinsson, Lækjarhúsi, Höfn. Kjartan Guðmundsson, Laugamesvegi 102, Reykjavík. Óskar Thorberg Traustason, Fellsmúla 15, Reykjavík. Sigmundur Heiðar Ámason, Presthúsabraut 28, Akranesi. Þorkell Helgason, Miðvangi 41, Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.