Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1998, Side 40
Vinningstölur miðvikudaginn 30. 9. ’98
FRETTASKOTI0
SSSIMINN SEM ALDREI SEFUR
550 5555
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998
Harðar umræður urðu um gagnagrunnsmálið á fundi Kára Stefánssonar og Læknafélagsins í gærkvöld.
DV-mynd Teitur
Læknar, Kári og ráöuneyti funduöu um gagnagrunninn:
Sáttahljóö
- segir formaður Læknafélagsins
Harðar umræður urðu um gagna-
grunnsmálið á kynningarfundi
Læknafélags íslands i gærkvöld.
Fundurinn var fjölsóttur og frum-
mælendur voru Kári Stefánsson, for-
stjóri íslenskrar erfðagreiningar, og
Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra, auk læknanna
Gísla Einarssonar og Tómasar
Zoega. Þeir síðarnefndu lýstu megin-
stefnu Læknafélagsins í málinu sem
er sú að telja miðlægan gagnagrunn
á heilbrigðissviði óæskilegan og
hafna beri gagnagrunnsfrumvarp-
inu óbreyttu.
„Fundurinn var mjög gagnlegur
og á honum voru viðraðar nýjar
hugmyndir um hugsanlegar lausnir
á ágreiningsefnum við lækna. Þá
kom fram eindreginn stuðningur
lækna við stjóm félagsins í málinu,“
sagði Guðmundur Björnsson, for-
maður félagsins, við DV í morgun.
Hann sagði að vilji hefði komið fram
af hálfu heilbrigðisráðuneytisins um
að taka meira tillit til ábendinga
lækna um málið
en áður og kvaðst
telja að svo yrði
gert. „Það óska
þess allir innilega
að . sátt náist, því
að allir vita að
gagnagrunnurinn
verður gagnslaust
Guðmundije verkfæri ef ekki er
Björnsson. sátt um hann,“
sagði Guðmundur.
Guðmundur vildi ekki að svo
stöddu greina frá hvað fælist í þeim
nýju hugmyndum sem ráðuneytið
hefði kynnt á fundinum, en sagði að
í stórum dráttum snerast þær um
aukið eftirlit með rekstri gagna-
grunnsins sem byggðist að hluta á
þeim hugmyndum sem fram hafa
komið hjá Siðanefnd lækna og
Tölvunefnd.
Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra, kynnti ráð-
herra niðurstöður fundarins nú í
morgun. Hann sagði við DV að fund-
urinn hefði sýnt
mjög glögglega að
það væri þörf á
því að kynna mál-
ið meir meðal
lækna. Hann
kvaðst hafa lýst
vonbrigðum sín-
um yfir því að
Þórir Haralds- Læknafélagið hefði
son- ekki á sínum tíma
treyst sér til að
standa að þeirri kynningu með ráðu-
neytinu eins og það hefði á sínum
tíma óskað eftir. Að öðru leyti sagði
Þórir að umræður hefðu verið góðar
með ákveðnum undantekningum þó.
Enn fremur hefði komið skýrt fram
að ákveðinn hópur lækna mun
aldrei verða sáttur við málið, hversu
vel sem að því verður staðið á allan
hátt. Hann sagði að frumvarpið væri
enn opið og tími til að breyta því og
bæta það áður en það verður lagt
fram í endanlegri gerð.
-SÁ
Akureyri:
Hraðkaup opn-
að í morgun
DV, Akureyri:
Baugur, sem á og rekur verslan-
ir í nafni Hagkaups, Bónuss, Ný-
kaups og Hraðkaups, opnaði í
morgun verslun í Kaupangi á Ak-
ureyri þar sem áður var Kjörbúð-
in Kaupangi. Nýja verslunin ber
nafnið Hraðkaup.
Þetta er svar Baugs-manna við
„innrás“ KEA á matvörumarkað-
inn í Reykjavík, en KEA opnaði
fyrir mánuði Nettó-verslun í
Mjódd í Breiðholti. Hraðkaups-
verslunin á Akureyri verður með
svipað vöruverð og verslanir Hag-
kaups, en ein slík hefur verið rek-
in á Akureyri í tæpa tvo áratugi.
DV hefur heimildir fyrir því að
leitað hafl verið að húsnæði á Ak-
ureyri fyrir Bónusverslun. Mun
það mál hafa verið komið á loka-
stig í sumar og húsnæði fundið við
Dalsbraut þegar einhver aftur-
kippur kom í málið. Eins og kunn-
ugt er rak Bónus verslun á Akur-
eyri fyrir nokkrum árum en hætti
þeim rekstri eftir nokkurn tíma
eftir grimmilega samkeppni við
KEA-Nettó.
_______________________-Sk
Hornaf]örður:
Eldur í Bjarna-
neskirkju
DV, Hö£n:
Töluverðar skemmdir urðu í
Bjarnaneskirkju í Hornafirði
vegna elds og reyks siðdegis í gær,
30. september. Þegar Hreinn Ei-
ríksson meðhjálpari kom í kirkj-
una var þar mikill reykur.
Kviknað hafði i loftræsiblásara í
kjallara og eldur komist í frauð-
plastseinangrun í lofti - af orðið
mikill reykur og sót farið um allt
húsið.
Slökkvilið Hornafjarðar fór á
staðinn og reykræsti. Ekki er vit-
að með vissu hvenær atburðurinn
átti sér stað en eldurinn hafði
slokknað í kirkjunni þegar komið
var að.
-JI
Áfengið hækkar
Verð á áfengi breytist í dag. Bjór
hækkar um 0,83% og annað áfengi
um 1,45% að meðaltali. í frétt frá
ÁTVR segir að hækkunin sé vegna
hækkana birgja. Ný verðskrá hef-
ur verið gefin út með upplýsingum
um 630 tegtmdir áfengis sem seld-
ar eru í verslunum ÁTVR sem
kjamavara eða í reynslusölu og
1697 tegundum sem hægt er að sér-
panta.
-SÁ
Frú Guðrún
Katrín á gjör-
gæslu
Heilsu Guðrúnar Katrínar Þor-
^Wérgsdóttur forsetafrúar hefur
hrakað undan-
farna daga og er
hún nú á gjör-
gæslu. Guðrún
Katrín fór á
sjúkrahús fyrir
viku og greindist
með alvarlega
lungnabólgu.
Þetta kemur
Fru Guðrún fram j tilkynn-
Katrin Þor- jngu sem ólafur
bergsdóttir. Ragnar Gríms-
son, forseti ís-
lands, sendi frá sér í gær.
Forsetinn kveðst jafnframt ekki
geta farið frá Seattle við þessar að-
i-œtæður og hefur falið forsætisráð-
herra að flytja forsetabréf um setn-
ingu Alþingis í dag.
Ungt og at-
hafnasamt
í Fókusi sem fylgir DV á morgun
rætt við Hildi Óttarsdóttur,
* -KOi'nungan dansara og einn þann
efnilegasta, krakkana sem mtmu
sjá um Kolbraþbann, nýjan þátt
fyrir ungt fólk sem verða mun í
Sjónvarpinu alla virka daga í vet-
ur, Vilhjálm Hjálmarsson leikara
sem keypti sér réttinn á vinsælu
hrollvekjuleikriti til að fá eitthvað
að gera og tískuhönnuði sem sett
hafa upp gallerí til að sýna verk
sin. Þá er rætt við unga menn sem
taka að sér að framkvæma það sem
öðrum vex í augum, athafnamenn
með GSM-síma að vopni. Hallgrím-
ur Helgason skrifar um ferð lands-
liðsins í skák til Kalmykíu, Dr.
Gunni skrifar um Marilyn Manson
og fjallað er um frumsýningamynd-
helgarinnar og annað sem I boði
verður um komandi helgi.
Veðrið á morgun:
Skúrir fyrir
sunnan og
vestan
Á morgun verður hæg suðaust-
læg eða breytileg átt og léttskýjað
á Norðausturlandi en skúrir ann-
ars staðar. Hiti verður á bilinu 4
til 9 stig, mildast um landið sunn-
anvert.
Veðrið í dag er á bls. 37.
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-220 ný vél
íslenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgeröir, 6 stæröir
6, 9, 12, 18 mm borðar
Prentar í 4 línur
Aðeitis kr. 10.925
m
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport