Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1998, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1998
Fréttir
Hópur Islenskra íþróttamanna hyggst auðgast á sölu næringarefna:
Töfraúði er sagður
lækna á stundinni
- er sagður ráða bót á höfuðverk, hálsbólgu, tannpínu og hósta á örskotsstundu
Hundruð manns, þar af fjölmarg-
ir þekktir íþróttamenn, hafa gengið
til liðs við amerískt fyrirtæki sem
boðar byltingarkennt bandarískt
„lyf‘, Waves. Efhinu er úðað undir
tungu sjúklings og sagt lækna fólk á
örfáum mínútum af kvillum á borð
við hálsbólgu, kvef, þreytu, stress,
svefhleysi og tannpínu, svo eitthvað
sé nefnt, jafnvel þunglyndi og of-
virkni. Fyrirtækið Waves
Intemational, sem væntanlega verð-
ur í meirihlutaeigu íslendinga,
hyggst hefja alþjóðlega markaðs-
setningu á „byltingarkenndum
markaðsvörum" sem framleiddar
era með nýrri tækni sem kallast lí-
pósómatækni. Fyrirtækið, sem
verður 70% í eigu íslendinga, hygg-
ur á alheimssölu.
Ný tækni læknar fljótt
„Við höfum prófað þetta sjálfir,
þetta virkar, það geta margir stað-
fest með okkur," sagði Heimir
Karlsson, fyrrverandi íþróttafrétta-
maður Stöðvar 2 í gærkvöld. „Líp-
ósómar era ný tækni í næringar-
fræðinni. Þeir eru fljótvirkir og
þessi 99% náttúraefni virka því
fljótt, til dæmis á höfuðverk og
tannpínu. Milli 400 og 500 manns
era komin til liðs við okkur.“
DV er ókunnugt um innihald Wa-
ves en viðmælandi blaðsins taldi að
í blöndunni mundi vera um að ræða
fjögur ólögleg efni samkvæmt stöðl-
um Lyfjaeftirlitsins. Forráðamenn
Waves Intemational, þeir Heimir
Karlsson, fyrram sjónvarpsfrétta-
maður, og Birgir Viðar Halldórsson,
fyrram veitingamaður og rallkappi,
sögðu í gær, rétt áður en fjölmenn-
ur fundur hófst með þátttakendum
á Grand Hótel Reykjavík, að öll efn-
in væra Lyfjaeftirliti Bandaríkj-
anna þóknanleg. Hér væri um nátt-
úrlega afurð að ræða, vel þekkt efni,
en í réttri samsetningu. Inn í fyrir-
tækið hefðu gengið heimilislæknar,
hjúkranarfræðingar og fleiri úr
heilbrigðisgeiranum.
Hér á landi hafa ýmsir notað efn-
ið að undanfömu, enda
þótt það sé ekki formlega
komið á markað. Þann
20. október verður stofn-
hátíð fyrirtækisins hald-
in í Reykjavík. Á fundin-
um í gær ríkti mikil
stemning. Klappað var
fyrir ræðumönnum þeg-
ar þeir kynntu lyfið og
virkni þess. Fundarmað-
ur sem blaðið náði í
seint í gærkvöld sagði að
vissulega hefði fundur-
inn stundum minnt á
heilaþvott.
Birgir Viöar Halldórsson, Heimir Karlsson og Einar Vilhjálmsson rétt áöur
en fjölmennur fundur hófst hjá Waves International í gærkvöld.
DV-myndir ÞÖK
Waves-brúsar meö náttúrlegu uöaefni er blásið til stórfundar með
sem á aö lækna fólk hratt og gera fjöl- „founderam", eins og það er orö-
marga íslendinga auöuga í alþjóölegri aö í fundarboði, en þar skiptast
sölu sem hefst senn.
Samkvæmt upplýsingum DV á
Waves-úðinn að breyta til batnaðar
ýmsu í lífi nútímamannsins. Efn-
inu er úðað úr úðabrúsa undir
tunguna, því er haldið þar í 20 sek-
úndur og síðan kyngt. Lípósóma-
“blöðrar", ný tækni, bera næring-
arefnin til frumna líkamans. Á inn-
an við 30 sekúndum munu fram-
umar taka við næringarefnunum
og áhrifanna fer að gæta innan
fárra minútna. Loforðin um bata
eru stór. Lofað er orku, bata á
stressi, og ýmsa stöðuga kvilla á að
vera hægt að lækna með úðanum.
Lyfið má líka nota til grenningar.
Birgir Viðar Halldórsson fundaði
með hópi fólks í sumar og kynnti
málið. Hópurinn hefur stækkað og
mun nú nálgast þúsund manns. Nú
menn í fjögur virðingarlög. Selt
var inn á fundinn, 500 á manninn.
Söluherferð er í undirbúningi og
er fjölmargir þekktir íþróttamenn
vora boðaöir á stofnendafúndinn á
Hótel Reykjavík í gærkvöld. Meðal
þeirra vora Einar Vilhjálmsson,
spjótkastari og alþjóðaviðskipta-
fræðingur, og Vésteinn Hafsteins-
son, kringlukastari og þjálfari,
Bjami Friðriksson júdókappi,
Bjarki Gunnlaugsson fótboltamaöur
og Valdimar Grímsson handbolta-
maður, svo einhveijir séu nefndir.
Einar sagði í gær að „lipasomal
spray" væri nýjung sem kæmi nær-
ingar- og bætiefnum Qjótt og vel til
líkamsvefjanna og væri afar merk
nýjung sem kæmi í staöinn fyrir
sprautur.
Waves-fyrirtækið hyggst byggja
sölukerfi sitt upp á svipuðum nót-
um og gerist hjá Herbalife sem kom-
ið hefur stóram hluta íslendinga á
umdeilt megranarlyf.
Efnið verður ekki boðið í verslun-
um heldur í einstaklingssölu. Sölu-
mönnum era boðnir „griðarlegir"
tekjumöguleikar gangi þeir til liðs
við fyrirtækið. Alls er um að ræða 6
vöruQokka næringarefna sem til-
búnir era en aðeins einn þeirra er
leyfður í sölu á íslandi. Að sögn Ein-
ars Vilhjálmssonar spjótkastara era
allir 6 vöruQokkamir löglegir í
Bandarikjunum. Þeir sem koma inn
sem meðeigendur geta fjárfest í vör-
um fyrir 103 þúsund krónur. Hund-
rað íslendinga hafa þegar lagt fjár-
magn í fyrirtækið og er jafnvel talið
að sá hópur verði ráðandi þar.
DV leitaði viðbragða Ólafs Ólafs-
sonar landlæknis vegna hins nýja
„undraúða" á fóstudag. Hann sagð-
ist ekki hafa heyrt af þessu máli en
myndi kynna sér það eftir helgi.
-JBP/-rt
^ Alþjóöa flutningaverkamannasambandið, ITF:
Aætlunarskip Eimskips kyrrsett
ÁæQunarskip Eimskipafélags ís-
lands, Hanne Sif, var tekið úr um-
ferð í Kaupmannahöfn á fimmtudag
fyrir rúmri viku, að kröfú Alþjóða
Qutningaverkamannasambandsins.
Boðað hafði verið verkfall gegn út-
gerðinni vegna þess að danskir sjó-
menn höfðu verið settir á land í lok
Starfsmenn Landsvirkjunar fóra
í gær yfir gögn og launayfirlit frá
rússneska fyrirtækinu
Technopromexport varðandi starfs-
menn fyrirtækisins við Búrfells-
línu. Starfsmenn Landsvirkjunar
vora að kanna hvort farið hefði ver-
ið eftir íslenskum reglum og kjara-
samningum.
„Viö höfum í höndunum launayf-
irlit ásamt kvittunum allra hlutað-
eigandi starfsmanna. Hvort við telj-
um ástæðu til að vefengja þessar
upplýsingar á eftir að koma í ljós,“
segir Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar.
Halldór segir að skýringar rúss-
neska fyrirtækisins á að mennimir
hafi veriö sendir heim þær að þeir
hafi verið fengnir að láni frá fyrir-
ágúst en rússneskir á lágum laun-
um settir í staðinn. Hér á landi
hefði verið gripið til samstöðuað-
gerða gegn skipinu ef á hefði þurft
að halda. Eimskip stendur utan
þessara átaka að sögn talsmanns fé-
lagsins í gær.
Borgþór Kjæmested, eftirlitsfull-
tæki sem þurfi nú aftur á þeim að
halda. Halldór segir aö samkvæmt
samningi við Technopromexport
geti Landsvirkjun haldið eftir and-
virði launa starfsmanna og tekið
ábyrgð á launagreiðslum til þeirra.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra segist líta það mjög alvarleg-
um augum ef tveir Rússanna hafi
farið úr landi án þess að skilyrði
ráðuneytisins hafi verið uppfyllt og
mennimir fengið laun sín að fullu
greidd. Páll sagði að málið væri í at-
hugun hjá ráðuneytinu.
„Við erum ekki i neinni krossferð
gegn Technopromexport eða Lands-
virkjun en við viljum að farið sé eft-
ir íslenskum lögum og vinnuveit-
endur séu ekki með þrælahald hér á
landi," segir Páll. -RR
trúi sambandsins, sagði að í stað
Hanne Sif hefði komið Lone Sif með
danskri áhöfn og þjónar skipið áæQ-
unarsiglingum Eimskips í stað
kyrrsetta skipsins.
Rússarnir sem ráðnir hafa verið
um borð í skipin hafa verið á afar
lágum launum, allt niður í 750 doll-
ara á mánuði, eða rúmar 50 þúsund
íslenskrar krónur. Á síðasta sumri
átti Borgþór viðskipti við annað
skip sem sigldi fyrir Eimskip, frysti-
skipið Venera.
“Skipstjórinn á því skipi fékk
skipun um að undirrita kjarasamn-
an var ekki borgað samkvæmt
samningunum. Þess vegna þurfti ég
að elta hann til Danmerkur og
stöðvaði skipið. Nú á að fara að
selja þrjú af skipum þessa útgerðar-
fyrirtækis á nauðungarappboði. Ég
mun leggja fram kröfu um launa-
greiðslu til sjómannanna upp á 15
milljónir króna. Sú krafa verður of-
arlega í bunkanum og fæst vonandi
greidd," sagði Borgþór Kjærnested.
Eimskipafélag íslands hefur í
einu og öUu farið að reglum Alþjóða
Rutningaverkamannasambandsins
að sögn Þórðar Sverrissonar fram-
kvæmdastjóra Qutningasviðs Eim-
skips. Þórður sagði í gær
að skipaskiptin heföu ver-
ið gerð í samráöi við Knud
I. Larsen A/S. Eimskip
hefði þurft stærra skip,
óróleiki vegna danskra
eða rússneskra áhafna
hefði hér engu breytt.
Skipaskipti þessi vora
löngu áformuð, fóra fram
og höfðu engin áhrif á
áæfiun Eimskips.. „Við
fylgjum þeim reglum að á
skipum sem við erum með
á leigu séu áhafnarmeð-
limir sem fá greidd laun
samkvæmt reglum Al-
þjóða Qutningaverka-
mannasambandsins. -JBP
inga ITF, sem hann og gerði. En síð-
Haröur tveggja bíla árekstur varö á gatnamót-
um Bústaöavegar og Litluhlíöar í fyrrakvöld.
Farþegi f öörum bflnum slasaöist og var flutt-
ur á slysadeild en aörir sluppu án meiðsla, aö
því taliö er. Meiösl farþegans eru ekki talin al-
varleg. Báöir bflarnir voru illa farnir eftir
áreksturinn.
Starfsmenn Landsvirkjunar:
Fara yfir gögn
Stuttar fréttir x dv
Fólksfjölgun á Akranesi
í fyrsta skipti í tíu ár.er fólks-
Qölgun á Akranesi og þá hefúr
mikill kippur komið í húsbygging-
ar í kaupstaðnum. Aukin umsvif á
Akranesi má meðal annars rekja
til framkvæmda og opnunar Hval-
fjarðarganga og Jámblendiverk-
smiðjunnar. Árið 1996 hófst smíði
fjögurra nýrra húsbygginga sem
þykir ekki mikið í 5000 manna bæ.
í fyrra fjölgaði nýbyggingum og í
ár er talið að nýbyggingafram-
kvæmdir séu á fjórða tugnum. Rás
1 sagði frá.
Minnisvarði afhjúpaður
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra afhjúpaði minnisvarða í
fyrradag um
breska sjómenn
að Hnjóti í Ör-
lygshöfn, að við-
stöddum alþing-
ismönnum, for-
stjóra Landhelg-
isgæslunnar og
Qeirum ásamt
einum eftirlifandi sjómanni af tog-
aranum Sargoney sem fórst fyrir
tæpum fimmtíu áram. Bjami Jóns-
son hannaði minnisvarðann. Við
athöfnina Quttu margir ávörp,
meðal annars Egill Ólafsson safn-
vörður, en hann hefur unnið mik-
ið að þessu verkefni.
Bslensk stúlka í bílveltu
Tuttugu og tveggja ára gömul ís-
lensk stúlka lenti í bilveltu rétt fyr-
ir utan Bogotá í Kólumbíu fyrir
stuttu. Er hún skiptinemi þar í
landi og var á ferðalagi ásamt öðr-
um skiptinemum þegar slysið
varð. Finnsk stúlka lést í slysinu.
íslenska stúlkan slasaðist á andliti
og dvelst hún á einkarekinni
sjúkrastofu í Bogotá þar sem hún
bíður eftir að gangast undir að-
gerð. Morgunblaðið greindi frá.
Kröfu Tals hafnað
Samkeppnisyfirvöld hafa hafnað
beiðni Tals hf. um bráðbirgðaúr-
skurö þar sem
farið er fram á
að Landssími ís-
lands hf. aftur-
kalli lækkanir
sínar á farsíma-
þjónustu að und-
anfórnu. Sam-
keppnisstofnun beinir í leiðinni
þeim tilmælum til Landssímans að
ráðast ekki í frekari verðlækkun á
GSM-þjónustu á meðan rannsókn
samkeppnisyfirvalda stendur yfir.
Ný sjónvarpsstöð
Fyrirtækið Friðarland, sem gef-
ur út Dagskrá og á póstdreifmgar-
fyrirtæki, æQar að hefja sjónvarps-
útsendingar 22. október. Á dagskrá
nýju sjónvarpsstöðvarinnar verðar
nær eingöngu kynningar á dag-
skrám annai-ra sjónvarpsstöðva.
Útsendingar stöðvarinnar eiga að
nást á suðvesturhorni landsins.
Síðar er fyrirhugað að stöðin verði
á breiðbandinu.
Verð á ull lækkar
Á þessu ári hefur ullarverð
lækkað verulega á heimsmarkaði.
Að hluta til er
kreppu í Asíu um
að kenna. Sam-
keppni frá öðrum
efnum hefur
einnig sín áhrif
og má þar sér-
staklega nefna
Qísfatnað sem hefur náð mikilli út-
breiðslu sem útivistarfatnaður.
Bændablaðið greindi frá.
Ólympíuskákmótlð
Eins og alþjóð veit er íslenska
landsliðið í skák á Ólympíumótinu
í Kalmykíu um þessar mundir.
Mikil óvissa var hvað biði lands-
liðsins þegar komið væri til þessa
einangraða lands. Þær fréttir hafa
nú borist að vel fari um íslensku
skáksveitina og það getur hún
þakkað því að liðið var í áttunda
sæti á síðasta Ólympíumóti en þær
tíu sveitir sem voru efstar á síðasta
móti fá betra viðurværi en aðrar.
Aðstæður á skákstað hafa samt oft
verið betri, að sögn fararstjóra liðs-
ins. Rás 1 sagði frá. -HK