Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1998, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1998, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1998 Utlönd Stuttar fréttir r>v Milosevic Júgóslavíuforseti heldur neyöarfund: Árásum svarað Þúsundir ganga fylktu liði um götur Moskvu Gennadí Zjúganov, leiðtogi rússneskra kommúnista, fór fyrir sex þúsund manna kröfugöngu um götur Moskvu í gær þar sem minnst var valdaránstilraunar- innar árið 1993. Zjúganov hvatti göngumenn til að taka þátt í alls- herjarverkfóllum á miðvikudag tU að mótmæla versnandi lífskjör- um og efnahags- og stjórn- málakreppunni í landinu. Mótmælin í Moskvu bar upp á sama tíma og stjórn Jevgenís Prímakovs forsætisráðherra glím- ir við það erfiöa verk að leggja fram skýra áætlun um að binda enda á efnahagskreppuna. Rússneskir embættismenn við- urkenndu eftir viðræður í Wash- hington við fulltrúa Alþjóðagjald- eyrissjóösins að byrja þyrfti við- ræður um frekari lán upp á nýtt. Prímakov hefur fullvissað er- lenda kaupsýslumenn um aö ekki verði aftur snúið til sovéskra efnahagsaðgerða. Spáð í nóbel Portúgalski rithöfundurinn Antonio Lobo Antunes og sá belgíski, Hugo Claus, voru í gær nefndir sem hugsanlegir nóbels- verðlaunahafar fyrir bókmenntir. Meðal annarra sem hafa verið nefndir eru Carlos Fuentos frá Mexíkó og Mario Vargas Llosa frá Perú. Skýrt verður frá verðlauna- hafanum í þessum mánuði. Júgóslavnesk stjórnvöld hétu því í gær að verjast loftárásum NATO með kjafti og klóm. Þá vöruðu Rúss- ar við því að hernaðaríhlutun Vest- urlanda í Kosovo myndi mjög spilla samskiptum austurs og vesturs. Slobodan Milosevic Júgóslavíu- forseti boðaði til fundar í land- vamaráði landsins eftir neyðarfund með sendimönnum rússneskra stjómvalda, þar á meðal ígor ívanov utanrikisráðherra og ígor Sergjev landvamaráðherra. í yfirlýsingu, sem send var rúss- neskum ríkisfjölmiðlum, segir að Júgóslavía vilji friðsamlega lausn á átökunum í Kosovohéraði þar sem albanski meirihlutinn vill fá sjálf- stæði. Svo segir: „Ef ráðist verður á okkur munum við verja landið með öllum tiltækum ráðum." Nágrannaríkin á Balkanskaga, Grikkland, Búlgaría og Rúmenía, sem óttast að átökin breiðist út láti NATO til skarar skríða, hvöttu til þess að vopnahléi yrði þegar í stað komið á í Kosovo og að samið yrði í kjölfarið. Javier Solana, framkvæmdastjóri NATO, sagði að júgóslavnesk stjórn- völd ættu að taka hótunina um loft- árásir alvarlega af því að tíminn til pólitískra lausna væri að renna mönnum úr greipum. George Robertson, landvarnaráð- herra Bretlands, sagði í gær að NATO þyrfti að senda hermenn til Kosovo til að framfylgja hugsanlegu pólitísku samkomulagi. Ekki hefur jafnháttsettur vestrænn stjórnmála- maður fyrr viðurkennt að hernað- arundirbúningur NATO í Kosovo einskorðast ekki við loftárásir. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, er nú að skrifa skýrslu um hvort júgóslav- nesk stjórnvöld hafi farið nægilega eftir ályktunum Öryggisráðsins um að binda enda á átökin í Kosovo og sýna friðarvilja sinn í verki. Á grundvelli þeirrar skýrslu verður ákveðið hvort ráðist verður til at- lögu gegn Serbum. Spænska prinsessan Elena heldur á syni sínum, Felipe Juan Froilan, sem var skírður í Zarzuelahöll í Madrid í gær. Eiginmaður prinsessunnar, Jaime de Marichalar, heldur hugfanginn um höfuð sonar síns. INNKA UPA S TOFNUN REYKJA VIKURBORGAR - Fax 562 26 16 - Netfang: l TIL SÖLU Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Strætisvagna Reykjavíkur, óskar eftir tilboði í húsið Grensásvegur 15 sem er biðstöð og söluturn. Húsið selst til flutnings í því ásigkomulagi sem það er nú. Kaupandi skal annast flutning hússins og umsókn um brottflutning til embættis byggingafulltrúa í Reykjavík, samkv. byggingareglugerð nr. 441,1998. Húsið er 62 m timburhús og er byggt á stálbitum til flutnings. Flutningi skal vera lokið innan 14 daga frá samþykkt tilboðs. Upplýsingar um húsið gefur Jan Jansen hjá SVR í síma 581-2533. Tilboðsverð skal vera með virðisaukaskatti og miðað við staðgreiðslu. Tilboðum skal skila til Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, Frfkirkjuvegi 3, 101 Reykjavík, eigi síðar en kl. 16.00 miövikudaginn 14. október nk Þjóðaratkvæðagreiðsla í Lettlandi: Rússum auðveldað að gerast ríkisborgarar Guntis Ulmanis, forseti Lett- lands, bar lof á landsmenn sína í gær fyrir að samþykkja breytingar á lögum um ríkisborgararétt sem gera munu 650 þúsund landlaus- um Rússum kleift að fá lettneskt ríkisfang. Stjómmálaskýrendur sögðu að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar á laugardag ætti að leiða til þess að Lettar yrðu samferða öðr- um ríkjum í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Max van der Stoel, framkvæmda- stjóri RÖSE, fagnaði niðurstöðunni. Hann sagði að með henni hefði lett- neska þjóðin stigið stórt skref i átt til lausnar þjóðemisdeilum í landinu. Þingkosningar fóm einnig fram á laugardag. Flokkur Andris Shkel- es, fyrram forsætisráðherra, fékk flest atkvæði, eða 21 prósent. Slagsmál í Ósló Mikil slagsmál bratust úr milli tveggja hópa Pakistana og Sómala á aðaljárnbrautarstöðinni í Ósló aðfaranótt sunnudagsins. Fjöldi manna hlaut sár í átökunum. Vilja fara sáttaleið Hosni Mubarak Egyptalands- forseti ræddi við Hafez al-Assad Sýrlandsforseta í gær um deUur Sýrlendinga og Tyrkja. Forset- arnir lýstu sig fylgjandi diplómatískri lausn. Tyrkir saka Sýrlend- inga um að styðja uppreisnar- menn úr Verkamannaflokki Kúrda. Fleiri drukku minna Gestum á hina miklu Oktober- fest bjórhátíð í Múnchen fjölgaði um eitt hundrað þúsund frá í fyrra en engu að síður voru drukknir 200 þúsund færri lítrar af öli á meðan á hátiðinni stóð. Páfi heim til Rómar Jóhannes PáU páfi hélt heim til Rómar frá Króatíu í gær. Við lok ferðarinnar hvatti hann tU friðar í Kosovo. Fyrrum forseti látinn Jean-Pascal Delamuraz, fyrram forseti Sviss, lést um helgina, 62 ára að aldri. Hann hafði átt við vanheilsu að stríða. Ekki alls staöar góðæri Ekki verða aUir Danir varir við góðærið sem þar ríkir því heimil- islausum hefur fjölgað. Cardoso endurkjörinn Fernando Cardosa, forseti Bras- Uíu, var endurkjörinn með yfir- gnæfandi meirihluta atkvæða í gæ þrátt fyrir að kreppa sé yfir- vofandi i landinu. Ritt til í málsókn Ritt Bjerregaard, umhverfis- málastjóri Evrópusambandsins, er reiðubúin að höfða mál á hendur danska umhverfis- og orkuráðherran- um til að fá úr því skorið hvort Danir megi banna sölu á bjór og gosdrykk McDowall látinn Kvikmyndaleikarinn Roddy McDowall lést úr krabbameini á heimUi sínu í Kaliforniu á laugar- dag, sjötugur að aldri. Hélt velli Rikisstjórn Johns Howards í Ástralíu hélt naumlega velli í kosningunum sem fram fóru um helgina. Stjórnin hefur nú aðeins sex sæta meirihluta á þingi. Toyota LandCruiser turbo disil 86, VW Combi '94, 4 d., 5 g., 5 d„ 5 g„ blár, mjög gott eintak. ek. 248 þ. km, hvítur, dísil. Verð 1.180.000. Verð 1.200.000. Opel Astra GL '95, 4 d„ 5 g„ ek. 38 þ. km, grár, álfelgur. Verð 950.000. Mazda 323 '98, 4 d„ 5 g„ ek. 3 þ. km, grænn. Verð 1.295.000. Toyota Corolla station '97, 5 d„ 5 g„ ek. 58 þ. km, blár, 4x4. Verð 1.490.000. Nissan Primera '93, 5 d„ ssk„ ek. 55 þ. km, rauður. Verð 1.070.000. MMC Pajero '90, 5 d„ ssk„ ek. 119 þ. km, blár/silfurl., topplúga. Verð 1.190.000. Renault Megané CL '97, 4 d„ 5 g„ ek. 14 þ. km, rauður. Verð 1.190.000. Borgcotúni 26, dmcn 561 7510Á 561 7511

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.