Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1998, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1998, Side 15
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1998 15 Pissað í skó Reykvíkinga „Flugvöllurinn er ógnun við öryggi almennings, hann er Ijótur, hann er lítill og vanhæfur til þess að anna eðlilegri flugumferð," segir m.a. í greininni. Flugvöllurinn í Reykjavík hefur oft vakið furðu mína. Það er eig- inlega dálítill vandi að taka til máls um jafn- heimskulegt og fráleitt fyrirbæri. Það er engin haldbær röksemd fyrir þvi að hafa hann þar sem hann er. Flugvöll- urinn er ógnun við öryggi al- mennings, hann er ljótur, hann er lítill og vanhæfur til þess að anna eðlilegri flugum- ferð. Flugstöðin er einstaklega sóðaleg og bjálfaleg og afgreiðsla þar öil til skammar. Eini kosturinn sem ég kem auga á er sá að með því að láta hann standa er hægt að fresta því að byggja raunverulegan flugvöll sem ekki lítur út eins og afgangur af gatnakerfinu. Því fylgir auðvitað spamaður meðan beðið er eftir óbætanlegu tjóni. Orðatiltækið að pissa í skó einhvers merkir að leysa eitthvað til skamms tíma, þannig að það verð- ur verra á eftir. Það getur einnig merkt að aðhafast eitthvað fráleitt eða heimskulegt. Hvað sem því líður lýs- ir þetta orðatiltæki ágæt- lega þeirri ráðstöfun að láta Reykjavíkurflugvöll standa þar sem hann er. Viðhorf almennings Nú á tímum endalausra skoðanakannana væri fróðlegt að frétta hvað fólki finnst um þá ráð- stöfun að hafa mengandi, gamla flugvélarokka í lágflugi yfir miðbæ Reykjavíkur. Það hlýtur að vísu að vera mjög erfitt að setja saman könnun á þessu máli án þess að spyrja ávirkra spurninga. Á til dæmis að spyrja hvemig fólki lít- ist á að flugvél nauðlendi á Miklu- brautinni þegar að því kemur að aðfiug mistekst? Á að spyrja fólk hversu margir Reykvíkingar megi láta lífið í flugslysi til þess að það borgi sig betur en að eyða í nýjan flugvöll? Á að spyrja hvers vegna gull- fallegt svæði í miðri höfuðborg- inni sé frekar notað undir samgöngutæki en húsnæði handa íbúum borgarinn- ar? Rétt fyrir utan borgina breiðir úr sér hin flata og ljóta Vatns- leysuströnd sem ekki er nýtileg til nokkurs nema ef vera skyldi að þar mætti byggja nútímalegan og þægilegan flugvöll. Ef til vill mætti spyrja fólk á göt- unni þessarar spurningar: Hvaða ráðstöfun telur þú asnalegasta og verst heppnaða innan borgar- marka Reykjavíkur? Ef allir svara að það sé staðsetning flugvallarins þá væri þar komin nokkur vís- bending um viðhorf almennings. Rammíslensk stjórnmálaumræða Kosningar eru ekki langt undan og það hefur tæpast farið fram hjá nokkrum manni að nú hillir undir rammíslenska stjórnmálaumræðu. Við höfum fengið að heyra ýmiss konar spakmæli um það hver hafi rangt við og hver sé barn og asni (sem sumir virðast telja að sé eitt og hið sama) og hver borði þunnildi og hvað ömmur hinna og þessara stjórnmálamanna sögðu við þá þegar þeir voru að vaxa úr grasi. Áður en lýkur munu fulltrú- ar allra flokka og utanflokka setj- ast saman í hring á öllum sjón- varpsstöðvum og lýsa ást sinni á menntamálum með mörgum og fögrum orðum og jafnvel víkja að því hvort rétt sé að byggja nýtt heilbrigðiskerfi á rústum þess gamla. - Þetta vitum við því að auðvitað verða fastir liðir eins og venjulega. Ég legg til að einhver stjóm- málaflokkur gefi nú það kosninga- loforð að gereyða Reykjavikurflug- velli og byggja nothæfan flugvöll á vel völdum stað í nágrenni Reykja- víkur. Það gæti orðið til þess að kjósendur fengju trú á viðkomandi stjórnmálaflokki og segðu við sjálfa sig: Þeir segja þó að minnsta kosti eitthvað af viti. - Ég kýs þá. Kristján Jóhann Jónsson Kjallarinn Kristján Jóhann Jónsson rithöfundur „Á að spyrja fólk hversu margir Reykvíkingar megi láta lífið í flugsiysi til þess að það borgi sig betur en að eyða í nýjan flugvöll? Á að spyrja hvers vegna gullfal- legt svæði í miðri höfuðborginni sé frekar notað undir samgöngu- tæki en húsnæði handa íbúum borgarinnar?“ Ég biðst afsökunar Ég skammast mín. Samviskan, eða það litla sem eftir er af henni, hefur bitið mig slíku andlegu þursabiti að þegar ég endasendist í neðra fyrir þann glæp sem ég hef framið mun mér létta stórum. Sú vissa að það eru fleiri sekir en ég er lítil huggim harmi gegn enda alls óvíst að þeir geri sér grein fyrir sekt sinni. Þess vegna vil ég í stór- um dráttum reyna að útskýra fyrir þeim hvað þeir hafa gert. Fórnarlömb minnihlutans Staðreyndir málsins era þær að stór hluti íslendinga er sekur um mannréttindabrot; gott ef ekki þjóð- armorð eða þjóðarmorðstilraun. Þótt ég segi stór hluti þá er samt sem áður um minnihluta að ræða. Reyndar er meirihluti þjóðarinnar í þessu tilfelli fómarlömb minnihlut- ans og þessum minnihluta tilheyri ég. Við höfum alltaf verið leiðinleg- ir í garð meirihlutans; við höfum féflett hann og við höfum oftast haft meiri vinnu en hann. Tekjur okkar hafa verið hærri en samt sem áður höfum við fengið til baka úr sam- eiginlegum sjóðum margfalt meira en okkur ber. Þó tók fyrst steininn úr þegar í ljós kom að við ættum fleiri þing- menn á löggjafarsamkundunni en við ættum innstæðu fyrir. Já, þrefalt fleiri! Þegar ég heyrði þetta brotnaði ég, harðsviraður afbrota- maðurinn, saman og grét eins og bam. Þetta var meira en samviska mín gat afborið. Ég sá strax að ég og mínir kónar höfðum þarna farið langt yfir öll velsæmismörk. Að við skyldum hafa getað gert þetta; hlunnfarið meirihluta þjóðarinnar um nokkra tugi þingmanna! Vil gera yfirbót En þetta var ekki allt. í örvinglan minni gerði ég mér grein fyrir því að þetta var bara einn angi þess af- brota-kolkrabba sem ég tilheyri. Það sem verra er: við höfum neytt meirihlut- ann til þess að skjóta skjólshúsi yfir alla þessa þingmenn og allt það embættis- bákn sem þeir hafa búið sér. Nokkur ráðu- neyti, sjúkrahús sem við höfum vogað okkur að nota, háskóli sem við blygðunarlaust sækjum og margar fleiri stofnanir sem vesal- ings meirihlutinn hefur orðið að þola á sér. Það hlýtur að vera hryllilegt að þurfa að búa við svona nokkuð og ég leyfi mér að biðjast afsökunar fyrir glæp minn þótt hann sé auðvitað ófyr- irgefanlegur. Og ég vil gera yfirbót. Ég er líka viss um að allur minni- hlutinn er tilbúinn til þess, nú þegar hann veit hvað hann hefur gert. Við getum reynt að bæta fyrir þetta því mig langar hvorki fyr- ir mannréttinda- né stríðsglæpadómstól. Reyndar er ég með nokkuð mótaða tillögu til lausnar þessmn vanda en að sjálfsögðu mun framganga henn- ar ekki bæta þann skaða sem þegar er orðinn. - Það er hægt að snúa þessu við. Væg refsing Ég er svo óforskammaður að búa í hreppi sem telur tæplega þrjú hundruð sálir, syndum hlaðnar að sjálfsögðu. í kjördæminu öllu, sem er afar víðfemt, eru einungis um ellefu þúsund íbúar. Það gefur augaleið að þessar fáu hræður eiga ekki rétt á nema svona einum til tveimur þingmönnum. En núna eru þeir fimm. Það þýðir að þrír til fjór- ir fara til annarra kjördæma, vænt- anlega þeirra tveggja sem verst hafa orðið úti. Og ég leyfi mér að bjóða betur: Þið, hinn hrjáði meiri- hluti landsmanna, megið fá þá alla. Já, alla með tölu. Við munum að sjálfsögðu sakna þeirra mjög en það er væg refsing okkur til handa. Þetta er ekki allt. Við, þessar fáu hræður í þessu auma kjördæmi, skulum létta af ykkur plágunni miklu. Við skulum taka til okkar alla stjórnsýsluna eins og hún leggur sig. Alþingi skulum við hýsa sem og ráðu- neytin. Sjúkrahúsun- um finnum við stað og við skulum veita Hæstarétti skjól. Við viljum létta af ykkur því oki sem Háskóli íslands er og þeirri byrði sem Ríkisút- varpið leggur á ykk- ur með nærveru sinni. Hafrannsókna- stofnun viljum við líka sem og allar at- vinnutengdar rann- sóknastofnanir. Sem sé allt. - Við skulum taka þetta allt svo að meirihluti þjóðarinnar geti um frjálst höfuð strokið. Og kannski losar samviska okkar um takið. Bandaríki Norður-Ameríku hafa löngiun verið okkur fyrirmynd, einkum og sér í lagi á seinni árum. Þar er þó einn þáttur sem ekki hef- ur verið tekinn upp hér á landi, en hann mun verða innleiddur hér þegar stjórnsýslan er komin í okk- ar hendur. Við munum afsala okk- ur kosningarétti því íbúar Wash- ingtonborgar, sem þurfa að þola stjórnsýsluna i sínum reit, hafa hann ekki. Að lokum vil ég ítreka afsökunarbeiðni mína og ég vona að þið finnið í hjarta ykkar þann kærleik sem þarf til þess að fyrir- gefa mér. Björgvin Valur Guðmundsson „Þó tók fyrst steininn úr þegar í Ijós kom að við ættum fleiri þing- menn á löggjafarsamkundunni en við ættum innstæðu fyrir. Já, þrefalt fleiri! Þegar ég heyrði þetta brotnaði ég, harðsvíraður afbrotamaðurinn, saman og grét eins ogbarn.” Kjallarinn Björgvin Valur Guðmundsson oddviti Stöðvarhrepps Með og á móti Var rétt aö flýta stefnu- ræðu forsætisráöherra? Tíðkast í mörg- um löndum „Mér finnst það mjög ánægju- legt að nú skulu loksins hafa tek- ist að flytja stefnuræðu forsætis- ráðherra og tengja hana setningu Alþingis með beinum hætti. Fyrir því eru mörg rök, ekki síst þau að þing- setningarat- höfnin sjálf verður enn mikilvægari og að þetta fyrir- komulag tíðkast í flestum lönd- um í kringum okkur. Mér skilst reyndar að sums staðar geti liðið nokkr- ir dagar þar til þingmenn fái tæki- færi til þess að ræða stefnuræðu forsætisráðherra. Hér var hins vegar lögð áhersla á það að um- ræður færu fram strax að kvöldi sama dags. Það er auðvitað eðli- legt að stefnuræðan og íjárlögin séu fyrstu mál þingsins, það gerir störf þingsins mun skilvirkari og skerpir hin pólitxsku skil, ekki síst í ljósi þess að þing starfar nú í skemmri tíma og kosningar eru fram undan. Viðbrögð sumra stjórnarandstöðuþingmanna við ræðunni um að hún hafi verið pólitísk eru mér hins vegar óskilj- anleg. Ég bara spyr, ef forsætis- ráðherra landsins og formaður Sjálfstæðisflokksins er ekki í póli- tík, nú hver þá?“ Verra en ég bjóst við „Forseti Alþingis hefur lagt til nokkur undanfarin ár að stefnuræða forsætisráðherra verði flutt við þingsetningarat- höfnina en rædd um kvöldið. Þetta hefur ekki fengið stuðning fyrr en nú að ákveðið var að prófa það fyrir- komulag. Ég hef ekki verið hlynnt þessu fyrirkomulagi vegna þess að það mundi draga úr vægi sjónvarpsum- ræðunnar þar sem fjölmiðlar væru búnir að gera ræðunni skil og heyra viðbrögð þingmanna við henni og fólk nennti síður að hlusta á umræður um ræðu sem það heföi ekki heyrt í heild sjnni. í ljós kom aö ræöan fékk mikið rými i fréttatímum án þess að stjórnarandstaöan kæmist al- mennilega að fyrr en i sjónvarps- umræðunni og síðar. En það sem kom mest á óvart var að upplifa það við þingsétningarathöfnina þar sem þingmenn, auk fjöl- margra virðulegra gesta, sátu prúðbúhir í hátíðarskapi eftir messu i Dómkirkjunni og frábæra predikun sr. Sigríðar Guðmars- dóttur, að hlusta á „skítkast" frá forsætisráðherra án þess að hafa möguleika á því að svara. Annað- hvort verður stefnuræðan að vera yfir skítkast hafin eða það á að flytja hana að fjarstöddum gestum þegar þingmenn hafa tækifæri til að koma með viðbrögð." -GLM Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á Netinu. Netfang ritstjórnar er: dvritst@centrum.is Guöný Guöbjörns- dóttir, þingkona Kvennalistans. Sólveig Pétursdótt- ir, þingmaöur og varaformaöur þing- flokks Sjalfstæöis- flokksins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.