Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1998 Fréttir Órói á veröbréfemörkuðunum hefur áhrif á áætlanir Norsk Aluminium Hikar við að reisa álverið á íslandi - hlutabréf í Norsk Hydro hafa fallið um fimmtung á einum mánuði DV. Ósló: „Það er tvennt sem hægt er að segja um stöðuna núna. Áhugi okk- ar á að reisa álver á íslandi er sá sami og áður en óróinn á verðbréfa- mörkuðunum veldur því hins vegar að flest fyrirtæki vilja fara varlega í að nota peningana sína og vilja biða og sjá hverju fram vindur. Þess vegna útiloka ég ekki að frest- un verði á áætlunum okkar varð- andi Island,“ segir Jostein Flo, upp- lýsingafulltrúi hjá Hydro Alumini- um í Noregi, við DV. Hydro Aluminium er dótturfyrir- tæki Norsk Hydro sem hefur átt erfitt uppdráttar á verðbréfamörk- uðunum í óróanum síðustu vikum- ar. Síðustu þrjátíu dagana hafa hlutabréf í fyrirtækinu fallið um 20% og féllu enn i kauphöllinni í Ósló í gær. „Fyrirtækið er vel statt fjárhags- lega þrátt fyrir þetta en þaö er eðli- legt að menn fari varlega þegar óvissan er svona mikil,“ sagði Jostein. Hydro Aluminium hefur undanfarið kannað möguleikana á að hefja álframleiðslu á Reyðarfirði árið 2005 eða 2006. Ákvörðunar um hvort nokkuð verður af þessum áætlunum er hins vegar að vænta á næsta ári. „Ég vil ekkert segja um hvort frestur verður á þessum áætlunum; bara að það er einn af möguleikun- um í stöðunni," sagði Jostein. Hydro Aluminium hefur ákveðið að auka framleiðslu sina verulega á næstu árum, bæði með því að end- urbæta álver í Noregi og byggja ný. Fyrst í byggingarröðinni er nýtt ál- ver i Katar eða Trínidad og svo á ís- landi. Ákvörðunar um álver í Katar eða Trínidad er að vænta eftir ára- mótin. -GK Fjölmennur fundur um stóriðju á Egilsstöðum: Viðtæk sátt um stóriðju - segir formaður ASA „Menn hafa auðvitað velt því fyrir sér hvaða áhrif þetta ástand í efnahagsmálum veraldar hefur á þessi mál hér. Það segir sig auð- vitað sjálft að ýmislegt getur gerst í þeim efnum sem hefur áhrif á framvinduna hér hjá okkur. Það kemur okkur ekkert á óvart,“ sagði Smári Geirsson, formaður Samtaka sveitarfélaga á Austur- landi, þegar DV bar undir hann fregnir af því að vegna verðfalls hlutabréfa í Norsk Hydro og ótryggs ástands á verðbréfamörk- uðum heimsins hikuðu stjómend- ur Hydro Aluminium í Noregi við að ráðast í það að byggja nýtt ál- ver sem talað er um að fyrirtækið reisi á Reyðarfirði. Alþýðusamband Austurlands hélt fundi í gær í Hótel Valaskjálf um væntanlega stórvirkjun á Austurlandi og ál- ver við Reyðar- fjörð. Hátt á ann- að hundrað manns var á fund- inum, að sögn Sig- urðar Ingvarsson- ar, formanns Al- þýðusambands Austurlands. Á honum heföi það enn fengist stað- fest að á Austur- landi væri víðtæk sátt um það að landshlutinn þyrfti á því að halda Smári Geirs- son, formaöur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. að ráðist yrði í virkjun og stóriðju ef þess væri kostur. En jafnframt yrði farið eins varlega og kostur væri í umhverfismálum. Ákvörðun um virkjunina hefur ekki formlega verið tekin, en Smári Geirsson sagði við DV að það lægi í loftinu að hún yrði tek- in á miðju næsta ári. „Við hér eystra teljum hins vegar að bæði í félags- og atvinnulegu tilliti sé mjög mikilvægt fyrir Austurland að slíkt gerist. Við höfum horft upp á mjög óhagstæða íbúaþróun að undanfórnu og þess vegna leggjum við sveitarstjómarmenn á Austurlandi mikið upp úr því að það sem um hefur verið rætt eigi sér stað.“ -SÁ í gærkvöld var heföbundin messa í upphafi kirkjuþings í Dómkirkjunni og í henni var minnst 50 ára afmælis Alkirkjuráösins, sem eru samtök 330 kirkna í yfir hundraö þjóö- löndum. Þar predikaöi biskup fslands, herra Karl Sigurbjörnsson. Vígslubiskuparnir séra Bolii Gústavsson og séra Siguröur Siguröarson sitja viö hliö biskups. DV-mynd Pjetur Kirkjuþing kirkjunnar. Kirkjuþing verður sett kl. 10 árdegis í safnaðarheim- ili Háteigskirkju en þetta árið verður kirkjuþing haldið þar en ekki í Bústaðakirkju. Á dagskrá fyrsta fundar kirkju- þingsins í dag er setning herra Karls Sigurbjörnssonar biskups og ávarp dóms- og kirkjumálaráð- herra, Þorsteins Pálssonar. Bisk- upinn flytur stefnuræðu sina og síðan verður kjörbréfanefnd kos- in. Eftir hádegi fer fram kosning þingforseta, fyrsta og annars vara- forseta þingsins og þingskrifara, en einnig kosning þingnefnda og úrskurðarnefndar. Skýrsla kirkju- ráðs verður flutt af kirkjuráði sem og reikningar kristnisjóðs og jöfn- unarsjóðs sókna. -þhs hefst í dag í dag hefst þrítugasta þing Þjóð- Stofnfundur Búmanna: Þorf fyrir fleiri valkosti í húsnæðismálum „Við reiknuðum með því að það kæmu ef til vill hundrað manns á fundinn en þeir urðu þrjú hundruð. Greinilegt er að þörfin fyrir fleiri valkosti í húsnæðismálum eldra fólks er mikil,“ segir Reynir Ingi- bjartsson, einn stofnenda Búmanna, nýs húsnæðisfélags, en stofnfundur félagsins var haldinn á Grand hóteli í gær. Formaður var kjörinn Guð- rún Jónsdóttir arkitekt. Eins og nafn félagsins ber með sér þá hvetur það fólk til þess að sýna fyrirhyggjusemi og búa í haginn fyr- ir ævikvöldið í tima. Lögð er áhersla á að fólk hugi að sínum mál- um í kringum fimmtugt, breyti til og selji eignir sínar fyrr en það hef- ur gert en bíði ekki eftir því að það sé komið á eftirlaun. Búmenn gera mönnum kleift að kaupa sér búsetu- rétt eða eignarhlut í íbúð og munu nýta sér húsbréfakerfiö en jafnframt hafa lánsrétt hjá væntanlegum íbúðalánasjóði. Félagið er öllum opið og félagssvæðið er landið allt en til þess að kaupa búseturétt þarf að hafa náð 55 ára aldri. Reynir segir að formið henti öll- um, óháð því hvar þeir eru staddir fjárhagslega. „Við erum hvorki að búa til félag fyrir ríka né fátæka, heldur þverskurðinn af íslending- um. Það brennur á fólki að geta tryggt sér öðruvísi húsnæði en hing- að til hefur verið boðið upp á. Fólk er ekki ánægt með að láta skikka sig til þess að búa í himinháum fjölbýl- ishúsum heldur vill það geta verið í jarðsambandi og búa í raðhúsum eða þríbýlum. Við krefjumst einnig öðruvísi þjónustu en þjónustuíbúðir eins og þær eru í dag standa ekki alltaf undir nafni. Þjónustan verður að snúa að heilsu og því verða tengsl við hvers konar umönnun hluti af byggðinni, en jafnframt því að fólk geti sinnt starfi eða tóm- stundum á efri árum,“ segir Reynir. Þegar eru hafnar viðræður við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu en félag af þessu tagi kallar á nýja hugsun í skipulagsmálum, að sögn Reynis. Félagsmenn vonast til þess að geta hafist handa við byggingar á næsta ári. -þhs Stuttar fréttir i>v Persónuvernd kynnt Ný sjálfstæð ríkisstofnun, Per- sónuvernd, mun taka viö hlutverki Tölvtmefndar. Þorsteinn Páls- son dómsmála- ráðherra til- kynnti um stofnun Per- sónuverndar á málþingi Háskóla íslands um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði. Sjónvarpið greindi frá þessu. Vímuvarnir dýrar Kostnaður við vímuvamir hér á landi var hátt í 750 milljónir í fyrra. Þar af greiddi ríkið um 600 milljónir. Líkur á að íslendingar greinist með áfengisfikn eru meiri en meðal flestra annarra þjóða. RÚV greindi frá. Tilboð í Iðnskóla Nýsir hf. og ístak hf. buðu lægst í byggingu og rekstur nýs húsnæðis fyrir Iðnskólann í Hafn- arfirði. Tilboðið hljóðar upp á 65,8 milljónir á ári sem er talsvert lægri flárhæð en gert hefur verið ráð fyrir. Mbl. skýrði frá. Styrkir til hafrannsókna Engir aðrir en Samtök iðnaðar- ins og forverar þeirra hafa sótt um styrki til hafrannsókna í Iön- lánasjóð. Alls fengu samtökin 77 milljónir króna úr sjóðnum á ár- unum 1990 til 1996. Stöð 2 greindi frá. Ragnar Björnsson látinn Ragnar Bjömsson, skólastjóri og fyrrverandi dómorganisti, er látinn, 72 ára að aldri. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fimm upp- komnar dætur. Neyð í vímuvörnum Biðtími eftir greiningarmeð- ferð að Stuðlum hefur flórfaldast á síðasta ári. Hækkun sjálfræðis- aldurs ræður þar miklu um. For- stjóri Barnavemdunarstofu telur að neyðarástand sé að skapast í þessum málum. Stöð 2 greindi frá. Ótakmarkaðar veiðar Rjúpnaveiðitímabilið hefst á fimmtudaginn og verða veiðamar á Suövestur- og Vesturlandi ótak- markaðar eins og verið hefur. Líkur era þó á að þær verði tak- markaðar á næsta ári vegna of- veiöi á þessu svæði. Mbl. skýrði frá. Prófkjör á Reykjanesi Ekki er endanleg niðurstaða komin á það með hvaða hætti verður stillt upp á lista samfylk- ingar jafnaðarmanna í Reykja- nesi. Að sögn Dags bendir þó flest til aö listinn verði ákveðinn með prófkjöri. Risaálver á Reyðarfirði Lagt verður til á næsta fúndi stjómvalda og Norsk Hydro að viðræðumar miðist við 120.000 tonna álver á Reyðarfirði og bygg- ingu Fljótsdalsvirkjunar. Fundur- inn verður í Noregi í næsta mán- uði. Mbl. sagði frá. Kór vinnur verðlaun Schola Cantorum, kammerkór Hallgrims- kirkju, varð í fyrsta sæti í kórakeppni í Frakklandi um helgina ásamt rúmenskum kór. Milli 40 og 50 kórar tóku þátt í keppninni. Hörður Áskels- son stjórnar kórnum. RÚV greindi frá þessu. -KJA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.