Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1998 15 Ég vil hvorki kóð- un né dulkóðun - á mínar persónuupplýsingar! Nú er svo komið að skrifimnum og möppu- dýrum samfélagsins hefur tekist að útþynna hina snjöllu hugmynd um gagnagrunn á heibrigðissviði. Not gagnagrunnsins verður því ekki eins og efni stóðu til. Vekur það bæði ugg og furðu að heilbrigðisstarfsmenn skuli ganga fram fyrir skjöldu og berjast gegn hugmyndum sem færa okkur aðeins lengra í þekkingu og þroska. Það gleymist stund- um að gerð gagna- grunns á heilbrigðis- sviði kemur þeim best sem okkur þykir vænst um, afkomendum okkar. Það verða ekki eingöngu læknar eða „Hin ómarkvissa og skammsýna umræða um kóðun og dulkóðun fram og aftur hefur leitt til þess að nú verður aldrei hægt að rekja eitt eða neitt i gagnagrunninum sem tengist þessum persónum sem alltaf er verið að tala um og verja.u Kjallannn Sigurjón Benediktsson tannlæknir á Húsavík lögfræðingar hvað þá aðeins al- þingismenn sem mesta happ og hamingju munu hljóta vegna framfara í læknavísindum sem gagnagrunnur á heilbrigðissviði getur skapað. Að fara offari Hin ómarkvissa og skammsýna umræða um kóðun og dulkóðun fram og aftur hefur leitt til þess að nú verður aldrei hægt að rekja eitt eða neitt í gagna- grunninum sem tengist þessum per- sónum sem alltaf er verið að tala um og verja. En hverjar eru þessar persón- ur? Það eru ég og þú. Ég óska hér með eftir því að upplýsingar um mig verði hvorki kóðaðar né dulkóð- aðar i fyrirhuguð- um gagnagrunni. Ég fer fram á að öll- um upplýsingum um mig verði hald- ið saman rrndir kennitölu minni. Ég tel það siðferði- lega og læknis- fræðilega rangt að liggja á upplýs- ingum sem geta komið fjölda manns til góða. Ég óska þess að ef einhverjir sjúkdómar eða gallar tengist mér og mínum gemnn þá verði hægt að gera eitt- hvað í því. Auð- vitað. er langt í land að hægt sé að laga alla skap- aða hluti og ekk- ert takmark í sjálfú sér að svo verði. En að sitja á vitneskju um sjúkóma fólks og vita jafnframt hvaða þættir geta breytt til batn- aðar lífsgæðum þess og hamingju er meiri ábyrgð en ég vil axla. Það er ekki hægt að ætlast til að neinn axli þá ábyrgð. Hvað með aðrar upplýsing- ar í kerfum og kjöllurum? Þeim sem beijast sem hatramm- ast gegn gagnagrunni á heilbrigð- issviði og frumvarpi því tengdu ættu að hugsa sig um. Það er ljóst að í þjóðfélaginu, og þá helst í heil- brigðiskerfmu, er urmull upplýs- inga sem tengdar eru persónum og engin kóðun eða dulkóðun hefur verið notuð til að fela þessar upp- lýsingar. Þessar upplýsingar eru t.d. grunnurinn að heilbrigðiskerf- inu. Þær hafa verið nýttar til að fullnægja persónulegum metnaði einstakra vísindamanna og stund- um hefur læknisfræðilegt gildi verið mikið. Aldrei, aldrei hefur ein einasta persóna sem gefíð hef- in efniviðinn i þessar upplýsingar verið spurð hvemig mætti nýta gögn hennar. Persónan mikilvæga hefur ekki einu sinni haft hug- mynd um að mikilvægar upplýs- ingar tengdar persónu hennar hafi fleytt einhverjum lækninum inn á merka vísindaráðstefnu úti í heimi. Frumvarp um gagnagrunn á heilbrigðisssviði er orðið þannig að mikil hætta er á að kverúlantar samfélagsins og forsjárhyggjupost- ulamir sjái til þess að öllum skráningum í samfélaginu verði kollvarpað og öllu beint inn á braut kóðunar á dulkóðun ofan. Vemd persónuupplýsinga er mik- ilvæg en heldur vil ég vita hvem- ig og hvaða upplýsingar um mig eru geymdar um mig í miðlægum gagnagrunni en hafa yfir mér spekinga kverúlanta og forsjár- hyggju sem liggja yfir kóðunum og duldum merkjum til að koma í veg fyrir að þessar upplýsingar nýtist einhverjum, einhvers staðar, ein- hvem tíma. Sigurjón Benediktsson Bláeygðir ungliðar LÍÚ Bláeygð ungmenni era mötuð á áróðri íslenskra útvegsmanna í heilsíðuauglýsingum Morgun- blaðsins viku eftir viku og segja þar drjúg með sig, „Við eigum kvótann!" að allt sé nú harla gott hjá hirðpostulum LÍÚ. Þeir séu Guðs útvöldu og þeim einum sé trúandi fyrir fjöreggi þjóðarinnar. Þetta minnir á heilaþvott æsku- fólks í anda nasista sem töldu sig vera æðri kynstofn eða hina hreinu Aría. Hitt fólkið í landinu er undirmáls og má bera erfiði og þunga í sveita síns andlits og er í raun best geymt inni við 40 stiga hita í álverksmiðjum og feta þannig í fótspor asnans og burðar- klárins í frægri sögu, „The animal farm“. Þess vegna skrifa ráða- menn ekki undir Kyotun and- rúmsloftsins. Þráist sjómenn enn við og vilji róa til fiskjar þá skal sérhver greiða leigurentur til heilagra reglubræðra Kristjáns ellefta. En Suðumesjamenn sjást í röðum biðjandi um þá náð að mega leigja nokkur þorskígildi af gjafakvótan- um ef einhver skyldi bíta á öngul- inn. Ráðgjafar landsfeðranna í fræðsluátaki á ári hafsins og mitt í sláturtíöinni var borið út blátt kver sem inniheldur bók- stafstrú bláeygðra ungliða. Þar telja lærisveinar LÍÚ kvótakónga eiga allan fisk í sjónum á Is- landsmiðum og þeim einum beri aukning veiði- kvóta um aldir alda. Enn fremur dásama ungliðar stjómarhætti í Chile og leiða landann í heilag- an sannleika um góða stjórnun þar við nýtingu auðlinda sem ís- lendingar geti tekið sér til fyrir- myndar. Og ég sem hélt að í Chile væri herforingjaharðstjórn og stór hluti Chilebúa lifði undir sultar- mörkum. Þessir bláeygðu ungliðar era einnig ráðgjafar landsfeðranna og í bláa kverinu vara höfundar frumbyggja íslands alvarlega við hollensku veikinni. Sú bráðapest veldur kollsteypu með upp- gangi. En látið hugg- ast því að íslendingar eiga hauk í horni, hann Kára sem getur fundið gen bláeygðu kvótaerfingjanna en þeir eru víst ónæmir fyrir þessari mann- skæðu hollensku veiki. Þá mega fiski- menn aftur róa á gjöf- ul heimamið. í heilagri krossferð glymur nú heróp þar sem gjallarinn lætur þau boð út ganga til þegnanna að þeir kaupi dýrum dómum pappírs- snepla í gjafakvóta af lénsgreifun- um. En hagnaðinn af sölunni flyt- ur kvótahirðin til fjarlægra heims- álfa þar sem rísa um þessar mund- ir musterisverksmiðjur þeim til dýrðar. Þannig komast risaútgerð- ir hjá því að greiða af milljarða söluhagnaði skatta til þessarar guðsvoluðu þjóðar. Á krossgötum Við stöndum á krossgötum þar sem okkar er valið hvort íslenska þjóðin sem hefur unnið tvö þorkastríð ætli að taka upp lénsskipulag fyrri alda og láta við- gangast að afkomend- ur útvaldra lénsgreifa fái fiskimið íslands í vöggugjöf. En þjóðin hefur orðið í áranna rás að reiða fram digra sjóði skattpen- inga til landhelgis- gæslu á fiskimiðunum auk rannsókna á fiskigengd í þeirra þágu. Kvótahirðin gleymir þó einu veiga- miklu atriði. Almennt er sauðsvart- iu almúginn á íslandi læs og skrifandi, öfugt við íbúa Chile. íslenska þjóðin er full samúðar með undirokuðum þjóðum eins og arðráni Afríku- þjóða og gerræði Serba í Kosóvó. Skaparinn gaf manninum dóm- greind. Enn leikur því vafi á hvort á spjöld sögunnar verði skráð ör- lög fískveiðiþjóðar sem rekin er inn i 21. öldina sem leiguliði blá- eygðra erfmgja LÍÚ. - í sveitaskóla austur á fjörðum var nemendum kennt að forðast falsspámenn. Ólöf Stefania Eyjólfsdóttir „í heilagri krossferð glymur nú heróp þar sem gjallarinn lætur þau boð út ganga til þegnanna að þeir kaupi dýrum dómum pappírs- snepla í gjafakvóta af lénsgreif■ unum.“ Kjallarinn Ólöf Stefanía Eyjólfsdóttir skrifstofumaður og húsmóðir Með og á móti íslensk liö ekki með á Evrópumótunum í handknattleik í vetur Peningum eytt í leikmannakaup „Það segir sig alveg sjálft að það hlýtur að skaða handboltann tii lengri tíma litið að vera ekki með á Evrópu- mótum félags- liða. Menn hafa bent á peninga- skort í þessu sambandi og sagt að lítið komi inn vegna þáttök- unnar í mótun- um. Hinu er hins vegar ekki að leyna að félögin hafa að stórum hluta eytt peningum í staðinn í leikmannakaup en það vita allir að þeir bestu eru á launum. Það er sorglegt fyrir íslenskan handbolta, sem hefur talið sig á meðal þeura bestu í heimi, að það skuli koma upp sú staða að við getum ekki lengur keppt við bestu félagsliöin í Evr- ópu. Þetta er ekki bara félögun- um að kenna heldm' á hand- knattleikshreyfmgin þai- einnig sök á. Útbreiðsla íþróttarinnar á íslandi undanfarin ár hefúr nán- ast engin verið. Þaö er alveg sama hvað menn segja og vilja segja að þeir hafa sofnað á verð- inum. Þessari þróun verða menn að snúa við og skoða hvort ekki er hægt að taka þátt i Evrópu- keppninni. Verði það hins vegar ekki líst mér illa á málin, sér í lagi vegna þess að núna er und- ankeppni heimsmeistaramótsins í gangi og þar eigum við góða möguleika á að komast áfram. Gangi það hins vegar ekki eftir, spyr ég: Hvar eigum við þá að keppa?" Engin breyting er í augsýn „Þetta er fyrst og fremst pen- ingaspursmál. Ég tala nú af reynslu í þess- um efnum en í fyrra komumst við i KA í meistaradeild Evrópu og var það meirihátt- ar reynsla fyrir leikmenn. Þátt- takan í þeirri keppni gerði mínu liði gott og það mun búa að henni í framtíðinni. Fýrir okkur héma fyrir norðan kostaði þátttakan óhemjufé. Þetta er bara kostnaður því tekj- ur er sáralitlar, aðeins i aðgangs- eyri en hann dugai- skammt upp í allan ferðakostnaðinn. Viö þurf- um að bera meiri kostnað en önnur lið í Evrópu en þau geta langflest keyrt á milli. Það væri langbesta lausnin éf til kæmi ein- hver styrkur frá Evrópusam- bandinu ef það væri hægt. Mað- ur öfúndar stundum knatt- spyrnumennina en um leiö og þeir komast í Evrópukeppnina eru þeir nánast búnir að bjarga fjárhag deildanna. Á sama tíma er okkur nánast refsað fyrir að komast í keppnina. Ég er því miður hræddur um að þetta sé viðvarandi ástand því engin breyting á þessum málum er í augsýn. Það era fjögur lið sem ná þessu takmarki að tryggja sér sæti í Evrópukeppni en ekkert liðanna nýtir sér réttinn. Það er ömurlegt að leikmenn sem ná þessum árangri fái ekki tækifæri til að njóta hans.“ -JKS Atli Hilmarsson, þjálfari handknattlciksliös KA á Akureyri. Guöjón Guömundsson, íþróttafróttamaöur á Stöö 2.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.