Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1998 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfusfjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasfða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar flölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Vísindamönnum mismunað í frægu frumvarpi um gagnagrunn er að finna mein- lega fingurbrjóta sem mismuna vísindamönnum og skerða svigrúm sumra til rannsókna sem hægt væri að gera í krafti gagnagrunnsins. Þetta, ásamt ákvæði um einokunarréttinn, eru í dag helstu gallar frumvarpsins. Nýjungar eru undirstaða framfara. Vísindin eru undirstaða nýjunga. Óskorað frelsi og þar með jafnræði til rannsókna er undirstaða vísindanna. Þess vegna er óþolandi ef lög, sem hafa að markmiði að efla vísindin, meðhöndla vísindamenn ekki jafnt. Nýjasta gerð frumvarpsins er þó að þessu leyti veruleg framfór frá upphaflegri gerð þess. Hún innihélt sovéskar tilskipanir sem bókstaflega heimiluðu íslenskri erfða- greiningu aðgang að rannsóknarniðurstöðum og gagna- söfnum annarra vísindamanna. Þetta birtist í ákvæðum sem fyrirskipuðu að í gagna- grunninn færu ekki aðeins upplýsingar úr sjúkraskrám heldur líka aðrar heilsufarsupplýsingar. í þann flokk féllu augljóslega niðurstöður úr sjálfstæðum, vísinda- legum rannsóknum lækna innan sjúkrahúsanna. Upphaflega frumvarpið náði ekki aðeins yfir hinn miðlæga gagnagrunn heldur aðra grunna líka. Það varð ekki skilið öðruvísi en gagnasöfn samtaka á borð við Hjartavemd og Krabbameinsfélagið yrðu með boðvaldi laganna færð ÍE ókeypis. Frá þessari fráleitu forræðishyggju, sem fól í sér tillögu um löglegan vísindastuld, er góðu heilli horfið í hinu nýja frumvarpi. Það nær ekki lengur yfir aðra grunna en þann miðlæga. Sömuleiðis er skýrt að í hann verða einvörðungu færðar upplýsingar úr sjúkraskrám. Eftir standa þó þrjú ákvæði sem skerða rannsóknar- frelsi vísindamanna. Þeim verður öllum að breyta. í fyrsta lagi er lagt til að einungis þeir sem leggja upplýsingar í grunninn geti sótt upplýsingar úr honum. Þetta stríðir gegn markmiðinu um að gagnagrunnurinn eigi að auka möguleika allra vísindamanna til rann- sókna. Það útilokar til dæmis marga vísindamenn HÍ. í öðru lagi þurfa vísindamenn sem nota læknisfræði- legar upplýsingar að leggja rannsóknaráætlanir sínar fyrir vísindasiðanefnd. Fyrir því liggja tiltekin siðfræði- leg rök. í frumvarpinu er hins vegar ekki gert ráð fyrir að þetta nái til fyrirspuma til gagnagrunnsins. Þetta mismunar öðmm vísindamönnum, sem verða að sæta þessari takmörkun á rannsóknarfrelsi. í annan stað myndi blessun vísindasiðanefndar á öllum rannsóknum í krafti grunnsins veita þeim sem heimila að þangað verði fluttar um þá upplýsingar tryggari vemd en ella. í þriðja lagi er aðgengi vísindamanna utan ÍE að grunninum háð samþykki sérstakrar nefndar. í henni mun fúlltrúi ÍE sitja. Meðan svo er mun óttinn um hugmyndastuld jafnan vaka meðal vísindamanna. Sá ótti er skiljanlegur. Honum þarf að eyða. Gagnagrunnurinn nær aldrei tilgangi sínum nema um hann ríki bærileg sátt. Breytingar eins og hér em reifaðar munu efalítið efla sáttaviljann, ekki síst í hópi lækna. Jafnframt er erfitt að sjá að þær muni torvelda viðskiptalega nýtingu ÍE á gagnagrunninum. Allir vísindamenn verða að eiga sama aðgang að grunninum. Allar rannsóknir sem honum tengjast eiga að fara gegnum vísindasiðanefnd. Fulltrúi ÍE á ekki að vera í aðgengisnefndinni. í staðinn gæti til dæmis komið fulltrúi vísindasiðanefndar. Gagnagrunnurinn er umdeildur. Þessar breytingar em ein af forsendunum fyrir að hægt sé að ná sáttum um hann við vísindasamfélagið. Össur Skarphéðinsson „Það skýtur því skökku við að þeir íslendingar sem ætlað er að lifa í þessari paradís hafa kosið þaö fremur að fiýja land og höndia hamingjuna handan hafsins." - Á íslendingaslóðum í Danmörku. Er hamingjan í Hanstholm? „Hamingjan er í Hanstholm". Þannig hljóðaði fyrirsögn í Morgunblaðinu sunnu- daginn 27. september sl. Þama var um að ræða ítarlega umfjöllun blaðsins um líf íslend- inga í fiskibænum Han- stholm í Danmörku en þangað hefur mikill flöldi íslendinga flutt hin síðari ár. Flestir þessara íslendinga starfa við fiskvinnslu og hafa að eigin sögn flutt frá íslandi til Han- stholm til þess að ná sér á strik í lífsbarátt- unni, verið að flýja basl og skuldasöfnun hér heima, eins og nokkrir viðmælenda blaðsins orðuðu það. Athyglisverð hamingja Þessi hamingja ís- lendinga í Hanstholm í Danmörku er athyglis- verð í ljósi þeirra yfir- lýsinga sem oddvitar ríkisstjórnarflokkanna hafa viðhaft á síðustu dögum og vikum. Þeir hafa ekki dregið af sér við að lýsa þeirri paradís á jörðu sem íslenskt samfélag væri orðið undir þeirra stjóm. Hafa þeir mjög gjarnan vísað þeim efnum til ein- kunnagjafar sérfræðinga í útlönd- um sem ku hafa lýst yfir velþóknun með þróun efnahagsmála hér á landi. Það skýtur því skökku við að þeir íslendingar sem ætlað er að lifa í þessari paradís hafa kosið það fremur að flýja land og höndla ham- ingjuna handan hafsins. Nokkrir þeirra mörg hundmð íslendinga í Hanstholm lýstu því með dæmum í viðtali við Morgunblaðið hversu miklu mun auðveldara er að draga Kjallarinn Guðmundur Arni Stefánsson alþingismaður fram lífið á verka- mannalaunum þar ytra en hér heima. Ekki nóg með það heldur vöktu þeir at- hygli á því að þeim tækist að láta enda ná saman miðað við eðlilega vinnuviku, þ.e. 37 klst. Það tókst þeim ekki þrátt fyrir óhóflegan vinnu- tima, allt að 100 klst. á viku, hér heima á íslandi. Þetta er um- hugsunarvert. Vilja ekki heim Enn fremur sögðu þessir íslendingar frá því í viðtalinu „Pólitík snýst um fólk. Mitt í öllu góðærinu hefur fólk því miður ekki forgang. Áherslur núverandi ríkisstjórnar eru ekki á afkomu- og lífsmöguleika fólks heldur fremur fyrirtækja.u við Morgunblaðið að félagslegt ör- yggisnet, almenn þjónusta ef eitt- hvað bjátaði á, væri miklu mun traustara og tryggari í Danmörku heldur en hér á íslandi. Það ætti við um aðstoð viö fjölskyldur í al- mannatryggingakerfinu, á vett- vangi heilbrigðismála og á fleiri sviðum. Þegar þessir íslendingar voru spurðir hvort þeir væru ekki á heimleið fyrr en síðar var svar þeirra alira neitandi. Þeir sögðust ekki vilja aftur í baslið, vinnu- þrældóminn og skuldasúpuna heima á íslandi. - Vildu ekki í „al- sæluna" hjá þeim Davíö og Hall- dóri. Vissulega eru ekki efni til þess að alhæfa né heldur taka þessa einkunnagjöf nokkurra íslendinga í Danmörku allt of bókstaflega. Vitaskuld eru misjafnar skoðanir uppi, ólík viðhorf, mismunandi staða hjá fólki. Það er hins vegar eftirtektarvert hvemig þessi dóm- ur íslendinga, sem finna það á eig- in skinni hvernig það er að draga fram lífið á almennum lágum launatekjum hér heima, gengur þvert á einkunnagjöf annarra sér- fræðinga sem ekki þekkja innviði íslenska samfélagsins heldur byggja sína dóma, sínar niðurstöð- ur, á tölum á blaði, á meðaltölum, prósentum og línuritum. Stjórnmál snúast um fólk Við skulum ekki gleyma því að hlutverk okkar stjórnmálamanna er ekki fyrst og síðast að sýna árangur á pappír. Ekki bara að sýna í hagtölum mánaðarins viðunandi meðaltalsárangur heldur fyrst og síðast að búa þannig um hnútana að sem flestir íslendingar, og helst all- ir, eigi þess kost að lifa mann- sæmandi lifi með reisn. Pólitík snýst um fólk. Mitt í öllu góð- ærinu hefur fólk því miður ekki forgang. Áherslur núver- andi ríkisstjórnar eru ekki á af- komu- og lífsmöguleika fólks held- ur fremur fyrirtækja. Þama skilur á milli helminga- skipta stjómar íhalds og fram- sóknar annars vegar, sem byggir á óheftri markaðs- og frjálshyggju, og hins vegar þeirra jafnaðar- og félagshyggjusjónarmiða sem sam- fylking Alþýðuflokks, Alþýðu- bandalags og Kvennalista leggur höfuðáherslu á. Við jafnaðarmenn viljum ein- faldlega að hamingjan ríki á ís- landi fyrir íslendinga, þannig að þeir þurfi ekki til Hanstholm í Danmörku eða annað til að leita hennar. Guðmundur Ámi Stefánsson Skoðanir annarra Geirfinnsmálid „Yfirlýsing Davíðs Oddssonar forsætisráðherra á Alþingi sl. þriðjudag þess efnis að það hefði valdið honum vonbrigðum, að Hæstiréttur hefði ekki talið sig hafa lagaskilyrði til að taka svonefnt Geirfmns- mál upp á nýjan leik hefur að vonum vakið mikla at- hygli... Með þessum yfirlýsingum hefur forsætisráð- herra skipað sér í hóp þeirra landsmanna, sem hafa talið að margvíslegir og alvarlegir annmarkar hafi verið á rannsókn Geirfinnsmálsins og málsmeðferð allri og að réttlætinu hafi ekki verið fullnægt með dómsniðurstöðum... Eftir ummæli forsætisráðherra og þessi orð dómsmálaráðherra fer tæpast á milli mála að líkur hafa aukizt á því að Alþingi taki ein- hverja þá ákvörðun sem leitt getur til endurupptöku Geirfinnsmálsins.“ Úr forystugreinum Mbl. 9. okt. Samgönguleysi á Vestfjörðum „Krafan er sú að þama sé hægt að bjóða upp á samgöngur á borð við það sem tíðkast annars staðar á landinu. Framtíðarlausnin er hins vegar sú að þarna verði ráðist í jarðgöng. Við viljum hins vegar ekki leggja það mikla áherslu á kröfuna um jarðgöng nú að það verði til þess að samgönguleysið við norð- vestursvæðið fái ekki aðrar úrbætur á meðan. Við höfum einnig verið að horfa til þess að komið veröi á ferjusamgöngum milli Bíldudals og Þingeyrar... Þetta samgönguleysi veldur hins vegar því að fiskur á mörkuðum hér er frekar seldur til Suðurnesja en ísafjarðar, það er ekki hægt að koma honum norður með góðu móti.“ Haukur Már Sigurðsson, í Degi 9. okt. íslenskir aðalverktakar „Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, undir for- ystu Eiríks Tómassonar lagaprófessors, hefur stað- fest ákvörðun utanríkisráðuneytisins um að neita blaðamanni Viðskiptablaðsins um upplýsingar er varða skiptingu eigna sameignarfélagsins íslenskir aðalverktakar milli eigenda á síðasta ári... Við- skiptablaðið hefur nokkrum sinnum fjallað ítarlega um íslenska aðalverktaka, fjárhag og rekstur fyrir- tækisins, sem og um verktöku fyrir vamarliðið á Keflavíkurflugvelli. Saga samskipta íslenskra aðal- verktaka og bandaríska hersins er saga spillingar þar sem fáeinir útvaldir sátu að kjötkötlunum.“ Úr Viöskiptablaðinu 8. okt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.