Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1998 45 Listakonurnar fimmtán sem sýna í Gallerí Svartfugli. Ferskar að sunnan Á laugardaginn opnuð fimmtán myndlistarkonur sýningu á verk- um sínum í Gallerí Svartfugli á Akureyri. í sýningarhópnum eru listakonur sem reka Gailerí Lista- kot, Laugavegi 70 í Reykjavík, Þær hafa unnið saman síðan 1995 og haldið fjölda samsýninga og einnig einkasýningar hver um sig. í sumar héldu þær sýningu við Steinkross við Heklurætur sem nefndist Til jarðarinnar. Á sýningunni í Galleri Svartfugli kenir margara grasa. Þar eru gler- verk, grafik, leirverk, textíll, mál- verk og fleira. Sýningar Þær myndlistarkonur sem standa að sýningunni á Akureyri eru: Málun: Guðný Jónsdóttir, Freyja Önundardóttir. Skúlptúr: Dröfn Guðmundsdóttir. Grafík: Jóhanna Sveinsdóttir, Guðný Björk Guðjónsdóttir, Gunnhildur Ólafsdóttir. Textíll: Hrönn Vil- helmsdóttir, Áslaug Saja Davíðs- dóttir, María Valsdóttir, Hugrún Reynisdóttir. Leirlist: Auður Jónsdóttir, Charlotta R. Magnús- dóttir, Olga S. Olgeirsdóttir, Árdís Olgeirsdóttir og S. Helga Olgeirs- dóttir. Sýningin stendur til 27. október. Veðurá Faxaflóasvæði næstu viku - samkv. tölum frá Veöurstofu íslands - Listaklúbbur Leikhúskjallarans: Ljóð og djass Listaklúbburinn fór vel af stað síðastliðið mánudagskvöld. Gamlir og nýir félagar áttu saman notalega kvöldstund með Bandamönnum sem lásu úr bréfsögu Sveins Einars- sonar Rafmagnsmanninum sem kemur út nú í haust hjá bókaforlag- inu Ormstungu. í kvöld verður aft- ur svipast um á bókamarkaði haustsins. Að þessu sinni í ljóðlist- inni. Dagskráin heitir Ljóð og djass, en hinir góðkunnu tónlistarmenn Tómas R. Einarsson, Matthias Hem- stock og Árni Heiðar Karlsson sjá um tónlistarhliðina. Fimm ljóðskáld lesa úr óútkomnum verkum sínum. Þessi ljóðskáld eiga það öll sameig- inlegt að hafa fengist við gölda birt- ingarforma listarinnar. Kristín Ómarsdóttir hefur skrifað ljóð, smásögur, skáldsögur, leikrit og videoverk. Hún skrifar að þessu sinni ljóðabókina Lokaðu augunum og hugsaðu um mig, ljóð um ástina, gimdina og hin óljósu skil þar á milli. Skemmtanir Hallgrímur Helgason myndlistar- maður, rithöfundur, leikskáld, pistlahöfundur, myndskreytir og uppistandsspaugari á sér ekki síst merkilega hlið sem ljóðskáld. í haust kemur út tuttugu ára úrval kvæða og ljóða Hallgríms í bókinni Ljóðmæli. Sveinbjörn I. Baldvinsson er einnig fjölhæfui' listamaður. Hann hefúr samið smásögur, ljóð, kvik- myndahandrit og tónlist. Bók Svein- björns að þessu sinni heitir Stofa kraftaverkanna. Hún skiptist í tvo hluta, annars vegar eru hughrif og myndir frá Grænlandi og hins veg- ar ljóðmyndir úr eigin lífi. Sjón, sem fengist hefur við skáld- sagnagerð, ljóðlist, tónljóð, kvik- myndagerð og er nú hugverkamað- ur hjá Oz, les upp úr bók sinni Myrkar figúrur. Haraldur Jónsson er myndlistar- maður, leikritahöfundur, vid- eosmiður, skáld, greinahöfundur, leiðsögumaður um víðáttur íslands og handhafi Snorrans. Bók Harald- ar, Fylgjur, er óvenjulegt marg- radda verk, þar sem kveða sér hljóös ólíkir einstaklingar sem visa okkur veginn um eigin hugarheima. Umsjónarmaður og kynnir kvölds- ins er Sigþrúður Gunnarsdóttir. Skáld og tónlistarmenn sem veröa á sviðinu í Leikhúskjallaranum í kvöld. FBI-mennirnir Fox Mulder (David Duchovny) og Walter Skinner (Mitch Pileggi). Ráðgátur Vinsælustu sjónvarpsseríu síð- ari ára, The X-files, hefur nú verið pakkað inn í stórar umbúðir kvik- myndarinnar og er afraksturinn sýndur þessa dagana í Regnbogan- um. Hætt er við að þeir sem ekki hafa fylgst með ævintýrum Fox Mulders og Dana Scully eigi í vand- ræðum með að botna eitthvaö í söguþræðinum en hinir sem hafa fylgt þeim Mulder og Scully í gegn- um súrt og sætt eru sjálfsagt him- inlifandi yfir því að fá tækifæri til að berja augum hetjur sínar á stóru tjaldi kvikmyndahúsanna. Hvort svör viö ýmsum spumingum sem '////////, Kvikmyndir brunnið hafa á sjón- varpsáhorfendum í nokkur ár fást verður ekki upplýst hér, sjón er sögu ríkari. Það eru sem fyrr David Duchnovy og Gilli- an Anderson sem leika Fox Mulder og Dana Scully, aðrar fastapersón- ur í sjónvarpsþáttunum eru einnig í myndinni. Má þar nefna Mitch Pi- leggi sem FBI foringinn Walter Skinner og William B. Davis sem hinn dularfulli sígarettumaöur. Nýjar kvikmyndir: Bíóhöllin: Hope Floats Bíóborgin: Hestahvíslarinn Háskólabíó: Dr. Doolittle Háskólabfó: Smáir hermenn Kringlubíó: A Perfect Murder Laugarásbfó: Species II Regnboginn: Phantoms Stjörnubíó: The Real Howard Krossgátan Suðaustan stinningskaldi í fyrramálið verður suðaustan stinningskaldi og rigning um vest- anvert landið og einnig í öðrum Veðrið í dag landshlutum þegar kemur fram á daginn. Suðvestan stinningskaldi með allhvössum skúrum verður sunnanlands og vestan síðdegis en hægari og léttir til norðaustanlands. Hiti verður víða á bilinu 6 til 10 stig. Sólarlag í Reykjavík: 18.19 Sólarupprás á morgun: 08.11 Síðdegisflóð í Reykjavík: 24.05 Árdegisflóð á morgun: 00.05 Veðrið kl. 12 á hádegi í gær: Akureyri rigning 5 Akurnes skýjaö 9 Bergsstaðir súld 4 Bolungarvík alskýjaó 3 Egilsstaðir 6 Kirkjubœjarkl. léttskýjaö 9 Keflavíkurflugvöllur úrkoma i grennd 7 Raufarhöfn súld 5 Reykjavík léttskýjað 7 Stórhöfði léttskýjað 7 Bergen rign. á síð. klst. 8 Kaupmannahöfn (jcln skýjað 12 KJoíU Algarve léttskýjaö 20 Amsterdam súld 12 Barcelona léttskýjað 20 Dublin léttskýjaó 13 Halifax rigning 12 Frankfurt rigning 11 Hamborg súld á síó. klst. 10 Jan Mayen léttskýjað 2 London skýjað 17 Lúxemborg rigning 9 Mallorca hálfskýjaö 22 Montreal þoka 12 New York skýjað 16 Nuuk snjókoma -3 Orlando hálfskýjað 21 París rigning 12 Róm skýjað 20 Vín skýjað 16 Washington léttskýjað 12 Winnipeg alskýjað 5 T~ T~1 rr r~ $ 9 10 n 1 lí T l, ir Isr T 1 1 ii [ Lárétt: 1 skilningarvit, 6 dreifa, 8 kvenmannsnafn, 9 léleg, 10 spurðum, 12 oddi, 14 gufa, 15 flökti, 16 hlífa, 18 opi, 19 fjölmæli, 21 utan, 22 ilmur. Lóðrétt: 1 titiÚ, 2 hress, 3 hita, 4 bjálfi, 5 tæpir, 6 árstíðir, 7 keröld, 11 synja, 13 nýlega, 16 stök, 17 beita, 18 gelt, 20 blöskra. Lausn á siðustu krossgátu: Lárétt: 1 deyða, 5 ek, 7 óð, 8 lónir, 10 lag, 11 ráma, 13 grjót, 15 ok, 16 aular, 17 rum, 19 engi, 20 æf, 21 Agnar. Lóðrétt: 1 dólgur, 2 eða, 3 ylgju, 4 an, ,— 5 eim, 6 krakki, 9 óróleg, 12 átan, 14 rauf, 15 orga, 18 MA. Gengið Aimennt gengi LÍ 09. 10. 1998 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollgenni Dollar 68,130 68,470 69,600 Pund 115,960 116,560 118,220 Kan. dollar 44,270 44,550 46,080 Dönsk kr. 10,9690 11,0270 10,8700 Norsk kr 9,1270 9,1770 9,3370 Sænsk kr. 8,5660 8,6140 8,8030 R. mark 13,6920 13,7730 13,5750 Fra. franki 12,4360 12,5070 12,3240 Belg. franki 2,0200 2,0322 2,0032 Sviss. franki 51,5400 51,8200 49,9600 Holl. gyllini 36,9600 37,1800 36,6500 Þýskt mark 41,7000 41,9200 41,3100 ít. líra 0,041800 0,04206 0,041820 Aust. sch. 5,9280 5,9640 5,8760 Port escudo 0,4065 0,4091 0,4034 Spá. peseti 0,4902 0,4932 0,4866 Jap. yen 0,575900 0,57930 0,511200 irskt pund 104,140 104,780 103,460 SDR 96,170000 96,74000 95,290000 ECU 82,5300 83,0300 81,3200 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270 * Tvíburar Ingunnar og Valdemars Myndarlegu tvíburarnir á myndinni fæddust 1. júlí síðastliðinn á fæðingar- deild Landspltalans. Dam- an fæddist á undan og var 2630 grömm og 50 sentí- Börn dagsins metrar og hefur hún feng- ið nafnið Elísabet Heiða. Drengurinn heitir Sveinn Hólm og var 2460 grömm og 50 sentímetrar. Foreldr- ar þeirra eru Ingunn Björnsdóttir og Valdemar Sveinsson. Tvíburamir eiga þrjár hálfsystur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.