Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Blaðsíða 36
44 MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1998 nn Ummæli Hlutverk safnarans „Um áratugi hef ég verið i hlutverki safnar- ans, knúinn áfram af innri, með- fæddri hvöt en aldrei haldinn þeim hégóma að , ég væri að vinna ( eitthvað til lofs.“ Þórður Tómasson safnvörður, sem fékk um- hverfisverðlaun Ferðamála- ráðs, i Degi Hagsmunagæsla Kristjáns „Kristján Ragnarsson hvorki þarf né getur kennt mér neitt um mikilvægi sjáv- arútvegs á íslandi. Aðstæður hafa gefið mér kost á að sjá málefni sjávarútvegsins frá öðrum og víðari sjónarhorn- um en Kristján hefur getað leyft sér í hagsmunagæslu sinni.“ Jón Sigurðsson, fyrrv. fram- kvæmdastjóri, í Morgun- blaðinu Rúgbrauð og smjör „Þeir vildu ekki spila plöt- una, helst ekki i útvarpi og alls ekki sem síðasta lag fyrir fréttir. Þar átti að vera íslensk plata; , rúgbrauð og smjör, helsf með Guðmundi Jónssyni og ekkert kjaftæði." Kristján Jóhannsson óperu- söngvari, um viðtökur á fyrstu plötu sinni, í Morgun- blaðinu. | Snýst hring eftir hring „Kristinn snýst hring eftir hring og talar út og suður i einhverjum véfréttastíl seni hann heldur að sé töff.“ G. Margrét Óskarsdóttir, stjórnarmaður í Alþýðu- bandalaginu, í Degi Margar skoðanir „Það liggur við að skoðarí- irnar á þessu máli séu jafnmargar og mennirnir." f ísólfur Gylfi Pálma- son, alþingismað- ur um skoðanir þingflokks Fram- sóknar á kjör- dæmamálinu, í Degi I Vitleysan í Davíð „Þetta eru alvarlegar ásak* anir í garð Hæstaréttar og ég skil ekki hvaða vitleysu Davíð er að láta hafa sig út í.“ Örn Clausen hæstaréttarlög- maður og fyrrum verjandi í Geirfinnsmálinu, t DV Guðmundur Sigurðsson, íslandsmeistari á beltagröfu: Ætlar að verða besti gröfumaður í Evrópu DV, Suðurnesjum: „Það var mjög skemmtilegt að vinna titilinn. Mótið fór þannig fram að við áttum meðal annars að moka á bíla og færa til hluti --- og það var tímataka. Það var síðan á lokahófinu um kvöld- ið sem tilkynnt var um sigur- vegarann og fékk ég smáfiðring í magann þegar nafn mitt var kallað upp,“ sagði Guðmundur Sigurðsson sem varð íslandsmeistari á belta- gröfu í keppni sem fram fór fyrir rúmum hálfum mánuði í Reykja- vík. Jafnframt var þetta fyrsta ís- landsmótið sem haldið hefur verið hér á landi á beltagröfu. Mótið var haldið á vegum Caterpillar og Heklu og tóku 70 manns þátt í því. Guðmundur mun keppa fyrir ís- lands hönd á Evrópumeistaramót- inu sem haldið verður 18.-25. októ- ber á Malaga á Spáni. Þar munu all- ir bestu gröfumenn Evrópu etja kappi um hinn eftirsótta titill. „Það leggst mjög vel i mig að taka þátt í mótinu og það verður án efa virkilega gaman. Að vísu er ég mjög spenntur en ég ætla mér að stefna á titilinn. Þar verður keppt á belta- gröfu, jarðýtu og hjólaskóflu. Ég er ekkert farinn að æfa mig sérstaklega fyrir mótið en maður er alltaf að moka dags daglega." Guðmund- ur, sem er fæddur og uppal- inn í Keflavík, hefur unnið Guðmundur Sigurðsson. DV-mynd Ægir Már hjá vérktakafyrirtækinu SEES i Reykjanesbæ í 10 ár. Þar vinnur hann á þungavinnuvélatækjum. En hvernig hafa eigendur fyrirtækisins og vinnufélagar tekið íslandsmeistar- Maður dagsins anum? „Þeir eru mjög hressir með þetta og mannskapurinn styður við bakið á mér. Það var ekkert mál að fá frí í vinnu til að komast á Evrópu- mótið." Guðmundur hef- ur unnið við þungavinnuvélar í 22 ár samfleytt: „Þetta er mjög spennandi starf. Það er alltaf eitt- hvað nýtt að gerast á hverjum degi, meðal annars í mokstri eða að hlaða grjóti. Ég byrj- aði í þessu starfi þegar ég var 16 ára og var þá fyrst á trakt- orsgröfu. Eg ætlaði mér að verða bóndi þegar ég var ungur en þá var ég alltaf í sveit austur í Landeyjum þangað til ég náði 16 ára aldri. Þetta starf hefur fylgt manni síðan.“ Guðmundur var í 10 ár á hálendi landsins og starfaði þar í virkjunar- framkvæmdum á stærstu vinnuvél- um heims sem voru fluttar inn sér- staklega í virkjunarfram- kvæmdirnar. Guðmund- ur segir að vinnan sé stór hluti af áhugamáli sínu. „Ég hef einnig áhuga á skyttiríi og gönguferðum útivist heillar mig.“ Eiginkona Guðmundar er Gunnfríður Friðriksdóttir og eiga þau 3 böm, Kolbrúnu, 18 ára, Sigurð, 16 ára, og Frið- rik, 8 ára. -ÆMK Pink Floyd um það leyti sem iagið Dark Side of the Moon varð til. Dúndurfréttir flytja Dark Side of the Moon Hljómsveitin Dúndur- fréttir, sem hefur sérhæft sig í tónlist stóm rokksveit- anna á sjöunda og áttunda áratugnum, meðal annars Led Zeppelin, Pink Floyd, Who, Deep Purple og fleiri sveita, halda tónleika á Gauk á Stöng í kvöld. Á fyrri hluta hluta tónleik- anna hljóma kunnuglegir smellir auk nokkurra frumsaminna laga. í síðari hlutanum ætla Dúndurfréttir svo að flytja eitt mesta stór- virki poppsögunnar, Dark Side of the Moon, sem Pink Floyd flutti svo eftirminnilega á samnefndri plötu að hún var á lista yfir mest seldu plötur í meira en tvo ára- tugi. Tónleikar Kaffi Reykjavík Ingi Gunnar mun mæta með gítarinn sinn á Kaffi Reykjavík í kvöld og flytja lög fyrir gesti staðarins. Annað kvöld munu svo Rut Reginalds og Birgir Birgis skemmta. Myndgátan Iðnó. Þar heyja leikarar spennandi keppni í kvöld. Leikhússport Leikhússportið hefur slegið rækilega í gegn í Iðnó. Troðfullt hefur verið út úr dyrum öll kvöld- in. Næsta keppni verður í kvöld kl. 20.30. Ákveðið hefur verið að Leik- hússport verði háð annan hvem mánudag í Iðnó í allan vetur. í sumar kynntust landsmenn Leikhússporti í fyrsta skipti í Iðnó. Skemmst er frá þvi að segja að þessi nýstárlega „iþrótt" heppnað- ist vonum framar. Ungir sem aldn- ir flykktust í Iðnó og stemningin var ólík þvi sem menn eiga að venj- ast í leikhúsi. Dómarar dæma um árangur þátttakenda. Leikhús Á síðustu keppni var metið sleg- ið í leikhússporti því sigurvegarar kvöldsins, Leikhúslúðamir, hlutu 55 stig sem er mun hærra en gefið hefur verið í leikhússporti hérlend- is frá því að hafin var keppni í leik- hússporti í sumar. Gefur þetta góð fyrirheit um framtfðina. Hver veit nema íslendingar verði innan skamms farnir að skipa sér f flokk bestu leikhússportþjóða heims. Áhorfendur og leikarar em jafn- vígir í upphafi kvölds og enginn veit hvaða stefnu kvöldið tekur. í leikhússporti leggja leikararnir starfsframa sinn að veði og stökkva til sunds og vita ekkert hvað bíður þeirra. Mistökum er fagnað inni- lega. Leikstjóri er Martin Gejer. Leikhússportið er samstarfsverk- efni Kramhússins og Iðnó. Bridge Þrír tíglar doblaðir á suðurhönd- ina er dauðadæmdur samningur - eða hvað? Það eru alltaf 5 tapslagir, tveir á tromp og einn á hvern hinna litanna. Daninn Villi Dam „fann“ hins vegar leiðina til vinnings í spil- inu, ef svo má að orði komast. Spil- ið kom fyrir í tvímenningskeppni HM á Lille í lok sumars. Sagnir gengu þannig, austur gjafari og allir á hættu: ♦ 1075 »1083 ♦ 94 ♦ Á10752 4 Á63 »D72 ♦ Á1083 * D64 N 4 D9842 » G964 ♦ 7 * KG9 Hafnarbakki Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. 4 KG »ÁK5 ♦ KDG652 4 83 Austur Suður Vestur Noröur pass 1 ♦ pass pass li 1 grand 2 4 3 * pass 3 ♦ dobl p/h Eins og lesendur sjá er vinnings- leiðin ekki til í spilinu en Villi Dam færði sér í nyt þá staðreynd að vörnin hefur ekki yfirsýn yfir allar hendurnar í spilinu. Útspilið í upp- hafi var hjarta- tvistur, áttan i blindum og Dam drap níu austurs á ás. Dam eyddi litlum tíma í um- hugsun og spil- aði strax litlum tígli á níuna í blindum. Austur var í vandræð- um, vildi ógjaman eyða tigultíunni í háspil hjá félaga og setti lítið spil. Eftir þessa spilaleið þurfti Dam að- eins að hitta á að setja spaðagosann þegar spaða var spilað og fékk að sjálfsögðu hreinan topp fyrir spilið. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.