Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1998 Fréttir Vestur-Húnvetningar: Kjósa um áfengisútsölu DV, Sauðárkróki: Sveitarstjórn Húnaþings í Vest- ur-Húnavatnssýslu samþykkti á fundi nýlega að samhliða kosning- um til Alþingis næsta vor yrði kosið um opnun áfengisútsölu í sveitarfélaginu. Tillagan var sam- þykkt af sex fulltrúum í sveitar- stjórn, einn sat hjá. Tilefni tillögunnar var undir- skriftarlisti sem barst til sveitar- stjórnarinnar í júlímánuöi. Þar rita 76 manns undir áskorun um kosningu varðandi áfengisútsölu. „Okkur finnst það ótækt hér á þessu svæði að sitja ekki við sama borð og nágrannar okkar með þessa þjónustu. Við getum ekki haft rauðvín eða annað borðvín með matnum nema vera búin að ákveða það með nokkrum fyrir- vara, auk þess sem það er kostn- aðar- og fyrirhafnarsamara að fá þetta sent frá Blönduósi eða Borg- amesi. Þetta er hreinlega mann- réttindamál, finnst okkur,“ segir Gústav Daníelsson, einn forsvars- manna undirskriftarsöfnunarinn- ar, í samtali við DV. Þess má geta að tiltölulega stutt er síöan áfengisútsölur voru opn- aðar á Blönduósi og í Borgamesi. Síöan er það spumingin, þó svo að Vestur-Húnvetningar sam- þykki opnun áfengisútsölu, hvort eða hvenær útsala verður opnuð þar. -ÞÁ Dýpkunarprammi að störfum í Bolungarvikurhöfn. DV-mynd Hörður Whírlpool gæða frystikistur AFG053 134L Nettó H:88,5 B: 60 D: 68 Verð: 29.925 kr AFG073 258L Nettó H:88,5 B: 95 D: 68 Verð: 36.955 kr AFG093 320L Nettó H:88,5 B: 112 D: 68 Verð: 39.900 kr AFG094 400L Nettó H:88,5 B: 134,5 D: 68 Whirlpool frystikistur eru með læsingu á loki, Ijósi f loki og aðvörunarbúnaði. Whirlpool gæða frystiskápar Verð: 46.455 kr AFG065 65 L Nettó H:56,5 B: 52,5 D: 60 Verð: 36.000 kr AFB427 130L Nettó H:85 B: 55 D: 60 Verð: 34.265 kr AFB341 203L Nettó H:140 B: 59,2 D: 60 Verð: 49.875 kr AFG343 283L Nettó H:180 B: 59,2 D: 60 Verð: 54.900 kr Whirlpool frystiskápar eru með aðvörunarbúnaði. öll verð eru stgr. verð Umboðsmenn um land allt Byggingavörudeild KEA Einar Stefánsson Elís Guðnason Eyjaradió Fossraf Guðni Hallgrímsson Hljómsýn Kask - vöruhús K/F Húnvetninga K/F Borgfirðinga K/FHóraðsbúa K/F Þingeyinga K/F V- Húnvetninga K/F Skagfirðinga K/F Vopnfirðinga Akureyri Búðardal Eskifirði Vestmannaeyjum Selfossi Grundarfirði Akranesi Höfn Hornafirði Blönduósi Borgamesi Egilsstöðum Húsavik Hvammstanga Sauðárkróki Vopnafirði Mosfell Póllinn Rafmagnsverkstæði KR Radiónaust Rafborg Rafbær Rás Skipavík Skúli Þórsson Tumbræður Valberg Viðarsbúð Samkaup - Njarðvík Blómsturvellir Hellu ísafirði Hvolsvelli Akureyri Grindavik Siglufirði Þoríákshöfn Stykkishólmi Hafnarfirði Seyðisfirði Ólafsfirði Fáskrúðsfirði Reykjanesbæ Hellissandi Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO http.//www.ht.ls umboösmenn um land allt vel Bolungarvík: Grafið fyrir flotbryggju Nú er lokið dýpkun á innsigling- arrennu í Bolungarvíkurhöfn og dýpkun vegna nýrrar flotbryggju sem unnið hefur verið við að und- anfömu. Það er reykvíska fyrirtæk- ið Hagtak sem annast hefur fram- kvæmdimar. Losa þurfti haft úr hörðu efni á botni innsiglingarinnar þar sem dæmi eru um að skip hafi tekið niðri. Þá var innsliglingarrennan hreinsuð auk þess sem grafið var fyrir nýrri flotbryggju í innri höfn- inni sem sett verður niður næsta vor. -HKr. Páll Pálsson við bryggju á Isafirði Ný vinnslulína sett í Pál Pálsson: Gjörbyltir gæðastýr- ingu á ferskfiski Togarinn Páll Pálsson ÍS liggur nú í höfn á ísafirði þar sem fram fara breytingar á vinnsludekki skipsins. Að sögn Guðmundar Högnasonar hjá Hraðfrystihúsinu hf. í Hnífsdal er um byltingar- kenndar breytingar á isfisktogara að ræða sem felast í nýjum vinnslubúnaði. Hann samanstend- ur af nýjum fiskþvottabúnaði, stærðarflokkara og ískrapavél. Með þessu hyggst fyrirtækið skapa nýja ímynd á togarafiski. Þegar búið er að gera að fiskin- um verður hann aflur þveginn á sama máta og snöggkældur í ískrapa. Þannig hyggjast menn ná hvítara fiskholdi en verið hefur. Þá verður fiskurinn stærðarflokk- aður í íjóra flokka og nákvæmlega skráð hvaða stærð og tegund af fiski er í hverju kari. Hversu margir fiskar eru þar og þyngd þeirra. Þannig er fyrirfram hægt að gefa fiskkaupendum upp hvað skipið er með þegar það kemur að landi. Að sögn Guðmundar er þessi vinnslulína þróuð af starfsmönn- um fyrirtækisins og áhöfn togar- ans. Til liðs við þá hefur síðan ver- ið stuðst við tækniþekkingu fyrir- tækja á staðnum, m.a. 3X-stáls og Póls hf., sem sjá um vinnslulínu og flokkara, og Skipasmíðastöðv- arinnar sem sér um niðursetningu á krapavél og fleiri verk. Ráðgert er að vinnu við breytingarnar ljúki í næstu viku. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.