Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1998
Fréttir____________________________
Stoltur í hjartanu
- sagöi Kristján Jóhannsson eftir tónleikana á Akureyri
Harðgert útigöngufé
kemur fram
DV; Hólmavik:
í leitum í haust hafa komið fram
kindur sem gengið hafa úti síðasta
vetur. Að bænum Miðdalsgröf kom
veturgömul ær frá bænum Bakka í
Reykhólahreppi en talið er að hún
hafi sloppið úr greipum fjárleitar-
manns fyrri hluta vetrar. Hann náði
öðru lambi tvílembdrar ær við illan
leik en varð að sjá á bak ánni með
annað lambið, dró þó ekki af sér við
að reyna að ná öllum kindunum
þremur. Ekki er enn vissa fyrir því
að ærin hafi komið fram á þessu
hausti. Þá kom til fórgunar í slátur-
húsinu á Hólmavík sauðkind, sem
bar þess merki að hafa dvalið fjarri
umsjá manna sl. vetur. Skepna
þessi hefur fæðst sem hrútur en
verið svipt helsta og gleggsta ein-
kenni síns kyns, pungnum. Það hef-
ur gerst af mannavöldum áður en á
fjall var sleppt. Harðar hriðar sið-
asta vetrar höfðu gert það að verk-
um að eymamark var svo ógreini-
legt að eigandi fannst ekki, sást þó
fyrir sneiðingu á vinstra eyra. Lík-
lega var þar einnig um veturgamla
skepnu að ræða. Ekki er talið að
þessar kindur hafi verið í slagtogi
með öðrum útigengnum kindum,
sem náðust skammt sunnan við
Hólmavík snemma á sl. vori en eru
þó skýrt og gott dæmi um mildi síð-
asta vetrar og þó frekar einstaklega
harðgerðan stofn búfjár.
-GF
Norðurland eystra:
Uppstilling
hjá Sjálf-
stæðisflokki
DV, Akuxeyri:
Á kjördæmisfundi Sjálfstæðis-
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra, sem haldið var um helg-
ina, var ákveðiö
að efha ekki til
prófkjörs til röö-
unar á lista
flokksins fyrir
kosningarnar til
Alþingis í vor.
Uppstiilingar-
nefnd var kjörin Halldór
á fundinum og Blöndal.
verðiu- þaö henn-
ar verkefhi að setja saman list-
ann og leggja fyrir kjördæmisráð
til samþykkis. Þessi niðurstaða
þykir tryggja það að Haildór
Blöndal muni leiöa listann og
Tómas Ingi Olrich sem rætt hef-
ur verið um að sótt yrði aö í próf-
kjöri verði áfram í 2. sæti. Svan-
hildur Ámadóttir sem skipaði 3.
sætiö í kosningunum 1995 hyggur
ekki á framboð að nýju. -gk
DV, Akureyri:
Geysilegur fögnuður var á tón-
leikum Kristjáns Jóhannssonar,
Sigrúnar Hjálmtýsdóttur og Jónu
Fanneyjar Svavarsdóttur með
styrktri Sinfóníuhljómsveit Norð-
urlands í íþróttahöllinni á Akur-
eyri á laugardag. Tónleikagestir
voru um tvö þúsund talsins og var
fögnuður þeirra eftir flutning ein-
stakra verka og í lok tónleikanna
slíkur að erfitt er að flnna sam-
jöfnuð.
Jóna Fanney, ung bróðurdóttir
Kristjáns, hóf tónleikana og hlaut
feikigóðar viðtökm- áhorfenda og
húrrahróp í lokin. Síðan tók hver
viðburðurinn við af öðrum, Krist-
ján og Diddú sungu ýmist ein eða
saman og fognuðurinn var geysi-
legur. Lokalag tónleikanna, eitt af
lögunum eftir uppklapp, var
Hamraborgin sem Kristján söng af
miklum krafti og ekki hefur í ann-
an tíma verið fagnað annað eins í
Söngvurunum þremur var innilega fagnað í lok tónleikanna og ætluðu fagnaðarlætin engan enda að taka.
DV-mynd gk
íþróttahöllinni á Akureyri.
Tónleikamir voru í minningu
Jóhanns Konráðssonar, fóður
Kristjáns, sem hefði orðið áttræður
á sl. ári. Kristján ávarpaði tónleika-
gesti í lokin, þakkaði stórkostlegar
viðtökur og öllum sem unnið höfðu
að undirbúningi tónleikanna. „Ég
er stoltur i hjartanu og vona að þið
séuð það líka,“ sagði Kristján.
Til umræðu hefur komið að efna
til tónleika á Akureyri á næsta ári
þar sem karlakóratónlist yrði flutt
og Kristján og bræður hans kæmu
fram. Mikil hefð er fyrir karla-
kóratónlist á Akureyri og er ekki
að efa að slíkir tónleikar yrðu vel
sóttir ef af yrði. -gk
Davíð og dómsmorðin
Dagfari
Sagt hefur verið að skipt-
ingin í framkvæmdavald,
löggjafarvald og dómsvald sé
hornsteinn lýðræðisins og
þýðing þessarar valdadreif-
ingar hefur verið útskýrð og
rösktudd, allt frá frönsku
byltingunni. Þessi þrískipt-
ing felst í því að þingið setur
lög, ríkisstjómin fram-
kvæmir lögin og dómstól-
arnir dæma um það hvort
farið sé að lögum. Hver gæt-
ir annars og heldur sig þó
innan sinna takmarka.
Þessa valdaskiptingu hafa
menn verið að þróa með
ýmsum hætti, enda nokkuð
komin til ára sinna og nýjar
kynslóðir sjá sífellt ýmsa
vinkla á valdinu, sem betur
mega fara og lagfæra og
sníða mestu gallana af. Ekk-
ert er fullkomiö í heimi hér.
Og íslendingar em engir
eftirbátar í þeim efnum. Nú hafa nokkrir alþing-
ismenn með foringja stjómar og stjómarand-
stöðu í broddi fylkingar, tekið sig til og ílutt til-
lögur um nýjar umbætur á þrískiptingu valdsins,
sem fela í sér verulegar umbætur á réttarkerfinu
og réttarfarinu í landinu. í stuttu máli sagt hefur
Svavar Gestsson flutt frumvarp um svokallaðan
réttarfarsdómstól, sem á að hafa það verkefni að
taka við málum, sem dómstólar landsins hafa
fjallað um og dæmt í, og réttarfarsdómstóllinn á
að taka það fyrir hvort dómstólamir hafi komist
að réttri niðurstöðu. Réttarfarsdómstóllinn á sem
sagt að geta endurupptekið mál, þar sem þolend-
ur eða hinir dæmdu, em ekki sáttir við endan-
lega dóma.
Þessu fmmvarpi Svavars hefur verið vel tekið,
einkum og ekki síst af forsætisráðherra, sem
fylgdist á sínum tima afar vel með Geirfinns- og
Guðmundarmálum svokölluðum, og veit af eigin
hyggjuviti, að þar vom framin dómsmorð, ekki
eitt, ekki tvö, heldur mörg, og ráðherrann vill að
þau mál verði endumpptekin og styður þess
vegna nýjan dómstól, réttarfarsdómstólinn hans
Svavars, til að skoða betur þessi dómsmorð, sem
dómstólar landsins og Hæstiréttur sjálfur,
frömdu á saklausu fólki úti í bæ.
Með þessu framtaki þeirra félaga í þinginu er
kominn nýr flötur á réttarfariö, sem bætir úr
þeim göllum, sem felast í því að dómarar sjá ekki
réttlætið í dómsmálunum, heldur einungis tveir
eða fleiri þingmenn, sem sumir hafa lært lög-
fræði og vita mikið betur hvenær fólk er sekt eða
saklaust. Og þegar svona málsmetandi menn eins
og Svavar og Davíð sjálfur átta sig á dómsmorð-
unum og vitleysunum í dómskerfinu, þá bætir
það vitaskuld réttarfarið í landinu, ef til er dóm-
stóll, sem getur lagfært vitleysumar í Hæstarétti
og farið að þeirri réttsýni, sem blasir við ráða-
mönnum í þinginu.
Hér skal tekið skýrt fram að með þessu er þing-
ið og ráðherrarnir ekki að hafa afskipti af dóms-
valdinu, heldur er bara verið að segja dómstólun-
um, að þeir hafa ekki alltaf rétt fyrir sér. Einkum
þegar þeir gera ekki eins og Davíð vill að þeir
geri.
Dagfari
Stuttar fréttir r»v
Altarisverk helgað
Hr. Karl Sigurbjömsson, bisk-
up íslands, helg-
aði nýtt altaris-
verk Árbæjar-
kirkju í gær.
Heitir það Ljós-
stafir og er eftir
myndlistarkon-
una Rúrí. Stöð 2
greindi frá.
Ágreiningur um könnun
Nú stendur yfir ein viðamesta
könnun sem gerð hefur veriö i
starfsmannamálum hér á landi.
Era um 13 þúsund ríkisstarfs-
menn spurðir um viðhorf sín til
vinnustaðarins. Starfsmaður
Tölvunefhdar hefur gert athuga-
semdir við könnunina og sagt að
hægt sé að rekja smn svörin til
starfsmanna. Mbl. greindi frá.
Leyfi vantar
Landsvirkjun þarf leyfi Nátt-
úravemdar ríkisins til að fram-
kvæma 6. áfanga Kvíslaveitu og
Norðlingaöldumiðlunar, að mati
stofhunarinnar. Landsvirkjun
áformar hugsanlega að láta fram-
kvæma mat á umhverfisáhrifum
á framkvæmdunum í vetur. Mbl.
skýrði frá.
Sjónvarpsþáttur styrktur
Ríkisstjómin mun styrkja gerð
sjónvarpsþáttaraðar um íslensk-
an sjávarútveg um 10 milljónir
króna á 3 áram. Páll Benedikts-
son fréttamaður vinnur að gerð
þáttaraðarinnar sem mun kosta
65 milljónir í allt. Dagur skýrði
frá þessu.
Túnfiskar í trollinu
Fjórir túnfiskar komu í
kolmunnatroll skipsins Bjama
Ólafssonar frá Akranesi aöfar-
amótt sunnudags. Þrír þeirra
náðust um borð. Mögulegt verð-
mæti fiskanna gæti verið um ein
milljón króna. RÚV greindi frá
þessu.
Kjaftasögur á Dalvík
Að sögn Dags gengur nú sú
kjaftasaga á Dal-
vík að bæjar-
stjórinn, Rögn-
valdur Skíði
Friöbjörnsson,
hafi verið hand-
tekinn ásamt
fleirum við að
skjóta gæs á
friðlandi. Bæði bæjarstjórinn og
lögreglan segja þó að þetta eigi
ekki við rök að styðjast.
Menningarsetur í Gróttu
Verið er að byggja upp og
breyta gamla vitavarðarbænum i
Gróttu í menningar- og skólaset-
ur. Það er Seltjamameskaupstað-
ur sem stendur fyrir framkvæmd-
unum sem „munu kosta heilmik-
ið,“ aö sögn Hrafhs Jóhannsson-
ar, starfsmanns byggingarfull-
trúa. Dagur skýrði frá.
Jöklasafn í Hornafirði
Hugmyndir era uppi um aö
stofna jöklasafn í Homafirði á
næstu árum. Þetta kom fram á
stefhufundi um Vatnajökulssvæð-
iö sem haldið var á laugardag.
RÚV greindi frá.
Rætt um uppstillingu
Níu manna nefiid vinnur um
þessar mundir að því að ákveða
hvernig raða skuli mönnum á
lista framboðs sameinaðra jafiiað-
armanna i Reykjavik. Engin upp-
röðunaraðferð hefur enn verið
útilokuð. Dagur sagði frá.
Sýnt frá skíöum
Ríkisútvarpið hefur gengið frá
samningum mn
sýningarréttinn
á útsendingiun
frá 16 heimsbik-
armótum á
skíöum. Sér-
staklega gekk
Sjónvarpið eftir
því að fá sýn-
ingarrétt á svigmótum karla þar
sem Kristinn Bjömsson keppir.
Dagur sagði frá. -KJA