Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1998
11
Fréttir
Austfirðingar i „startholunum“ vegna alþingiskosninganna:
Sviptingar á vinstri væng
Pólitíska umræðan á Austfjörð-
um þessa dagana snýst að miklu
leyti um það hverjir muni leiða
sameiginlegt framboð A-flokkanna
í kjördæminu í alþingiskosningun-
um í vor. Þá velta margir fyrir sér
möguleikum Hjörleifs Guttorms-
sonar alþingismanns á að ná kjöri
að nýju en hann mun fara fyrir
vinstri listanum sem ýmist er
kenndur við Steingrím J. Sigfús-
son eða „talebana". Ýmsar skoðan-
ir koma upp á borðið i viðræðum
við heimamenn og greinilegt að
ýmsum spurningum er ósvarað
áður en framboðslistar í kjördæm-
inu liggja fyrir. Óvissan er mest
varðandi A-flokkaframboðið, Hjör-
leif Guttormsson og framboð
Frjálslynda flokksins.
Framsóknarflokkurinn vann
mikinn sigur í kosningunum 1995,
fékk hvorki meira eða minna en
46,9% atkvæða, bætti við sig 6,1%
og fékk tvo menn kjöma. Sjálf-
stæðisflokkurinn fékk 22,5%, bætti
við sig 1,2% og tvo menn á þing en
hafði einn áður. Alþýðuflokkurinn
fékk 7,4%, tapaði 2,8% og tapaði
sínu eina þingsæti. Alþýðubanda-
lag fékk 16,1%, tapaði 3,1% en hélt
sínum mcmni. Þjóðvaki fékk þá
4,7%, Kvennalisti 2,4% og þessi
framboð voru langt frá því að
blanda sér í baráttuna um þing-
sætin.
Halldór sterkur
Ævintýralegur sigur Framsókn-
arflokksins 1995 er talinn eiga sér
fleiri en eina ástæðu. Fyrir það
fyrsta em þeir Hall-
dór Ásgrímsson og
Jón Kristjánsson
mjög sterkir í kjör-
dæminu, þykja
traustir menn og
vinsælir og það
skýrir auðvitað ým-____________
islegt. Önnur Ha||dór Ás.
ástæða sem margir grfmss0n.
minnast á er að í Foringinn fer
Alþýðubandalaginu fyrir sterkum
1995 var langt frá ,ista Fram.
því að vera eining sdknar.
um Hjörleif Gutt-
ormsson og altalað er að margir fé-
lagshyggjumenn bandalagsins hafi
gefið Framsókn atkvæði sín frekar
en kjósa Hjörleif. Nú verða þeir
Halldór og Jón örugglega á ný í
eldlínunni í efstu sætunum og
þykja það öflugir að engu máli er
talið skipta hvernig listinn verður
skipaður að öðru leyti.
Hjörleifur tæpur
Hjörleifur Guttormsson hefur
blásið í herlúðra, og ætlar að
skella sér í baráttuna gegn fyrr-
verandi félögum
sínum í Alþýðu-
bandalaginu. Mjög
skiptar skoðanir
era um það hvort
Hjörleifur eigi raun-
hæfa möguleika á
að ná kosningu nú.
Stuðningsmenn
hans era sigureifir,
son Nær seaa Hjörleif hafa
. ' .... . . mikið persónufylgi
iista'? honum langt en
andstæðingamir
telja útilokað að hann hafi fylgi
sem nægi.
Liklegt er talið að Hjörleifur
taki með sér Þuríði Backman og
Guðmtmd Leví sem voru í 2. og 3.
sæti hjá Alþýðubandalaginu 1995
en efstu sætin á þeim lista voru
skipuð svokölluðu „Hjörleifsfólki“
sem hefur löngum eldað grátt silf-
ur við fjölmenna sveit allaballa á
Norðfirði þar sem höfuðvígi
bandalagsins í kjördæminu er.
Smári í 1. sætið?
Enginn ágreiningur er um að
Alþýðubandalagið muni fá efsta
sætið á sameiginlegum framboðs-
lista A-flokkanna en nýju tíðindin
úr kjördæminu varðandi það
framboð era þau að Kvennalistinn
styður ekki framboðið. Margir
segja það reyndar ekki stórtíðindi
sökum þess að fylgi Kvennalista á
Austurlandi mælist ekki.
Smári Geirsson,
forseti bæjarstjórn-
ar í „Austurríki",
sameinuðu sveitar-
félagi Neskaupstað-
ar, Reyðarfjarðar og
Eskifjarðar, er
sterklega orðaður
við efsta sæti A-
lista framboðsins.
Smári hefur til
þessa ekki tekið því
líklega að leiða
framboðið en marg-
ir, þar á meðal samherjar hans,
segja hann einungis vera að bíða
eftir að fá aukinn þrýsting, þá
muni hann gefa sig fram sem leið-
toga framboðsins.
Gunnlaugur Hey-
dódaklerkur og
krati Stefánsson,
sem féll af þingi í
kosningunum 1995,
mun tilbúinn í slag-
inn að nýju og er
sterklega orðaður
við 2. sætið sem A-
flokkamenn ætla
sér að verði þing-
sæti. Sjálfstæðis-
flokkurinn vann
þingsætið af Gunn-
laugi 1995 en mun-
urinn var þó ekki
meiri en svo að ef
Alþýðuflokkurinn hefði tekið 7 at-
kvæði af íhaldinu hefði Gunnlaug-
ur haldið sætinu. Ekki hefur verið
tekin ákvörðun um með hvaða
hætti stillt verður upp á listann.
Eins konar prófkjör er talið koma
til greina en þó með þeim for-
merkjum að A-flokkamir fái út-
hlutað ákveðnum sæfum fyr-
irfram.
Seljavallabóndi seigur
Egill Seljavallabóndi Jónsson er
ákveðinn í að sækjast eftir þing-
mennsku eina ferðina enn og leiða
lista Sjálfstæðisflokksins. Þótt
langt sé frá að ein-
ing ríki um Egil og
þingstörf hans er
„karlinn“ talinn
hafa það mikið per-
sónufylgi að erfitt
verði að hunsa
þennan vilja hans.
Egill Jóns- ESm hefur verið
son Selja- öðrum Þingmönnum
vallábóndan- duglegri við að
um verður hemisækja umbjoð-
varla þokað fdur sIna [
úrfyrstasæt- dæmmu °S serstak-
jnu lega þykir hann hafa
lagt sig fram við að
rækta samband við „kollega" sína,
bændur. „Það er varla til sá sveita-
bær í kjördæminu sem Egill heim-
sækir ekki reglulega,“ sagði einn
viðmælenda DV.
Stefánsson.
Heydalaklerk-
urinn er ekki
fráhverfur því
að skella sér í
slaginn að
nýju.
Smári Geirs-
son. Fer hann
fyrir lista A-
flokkanna?
Arnbjörg Sverrisdóttir, sem var
í 2. sæti 1995 og náði kjöri, þykir
ekki hafa verið aðsópsmikill þing-
maður, a.m.k. ekki út á við. Það
má búast við að hart verði að
henni sótt varðandi 2. sætið en þó
heyrast ekki mörg nöfn nefnd enn
um væntanlega frambjóðendur.
Sturlaugur Þorsteinsson, bæjar-
stjóri á Höfn, sem löngum hefur
verið kallaður „erfðaprinsinn" í
kjördæminu og Albert Eymunds-
son kennari, einnig á Höfn, era
reyndar oft nefndir í umræðunni
en ekki er talið líklegt að þeir fari
í framboð á meðan Seljavallabónd-
inn stjórnar ferðinni.
Hrafnkell með Sverri?
Þótt Hrafnkell „Austfjarðagoði"
Jónsson hafi ekki lýst yfir stuðn-
ingi við Sverri Her-
mannsson og frjáls-
lynda framboðið
kemur nafn hans
aftur og aftur upp
þegar rætt er um
hugsanlega fram-
bjóðendur Frjáls-
lynda flokksins. Þar Hrafnkell
heyrist reyndar JónssQn
emnig nafn Kristms Enn er hann
Peturssonar, fyrr-orðaður við
U0m.1/+1Þ'ng'S1f1anns Frjálslynda
, Sj alfstæðisflokks-
ins frá Bakkafirði.
„Kristinn er að
minnsta kosti sam-
mála Sverri um að breytinga sé
þörf á sjávarútvegsstefnunni,
flokk Sverris
Hermanns-
sonar.
hvort sem það nægir til þess eða
ekki að hann gangi í lið með
Sverri,“ sagði einn viðmælandi
DV.
Barátta íhalds og A-flokka
Viðmælendur DV voru flestir
þeirrar skoðunar að hvernig sem
til tækist með hin ýmsu framboðs-
mál yrðu framsóknarmenn sterkir
í þessu höfuðvígi sínu og héldu
sínum tveimur mönmun í kosn-
ingunum í vor.
Skiptari skoðanir eru um það
hvort Hjörleifur eigi möguleika á
að ná kjöri af vinstri listanum.
Þeir sem era þeirrar skoðunar
segja hann hafa svo mikið per-
sónufylgi að það muni fleyta hon-
um langt en þeir sem eru á önd-
verðum meiði segja Hjörleif hafa
sinnt kjördæminu slaklega og
Austfirðingar séu búnir að fá nóg
af afturhaldi hans í flestum mál-
um.
A-flokkamenn eru bjartsýnir og
telja sig eiga möguleika á tveimur
þingsætum en allir viðmælendur
DV voru þeirrar skoðunar að eitt
þingsæti væri gulltryggt. Eigi sam-
eiginlega framboðið að ná tveimur
mönnum inn verður það á kostnað
Hjörleifs og Sjálfstæðisflokksins.
En hvernig sem mál þróast er ljóst
að ýmsum spennandi spumingum
varðandi framhoðsmálin á Austur-
landi verður svarað á næstu vik-
um, áður en menn „grafa sig í
skotgrafirnar" fyrir sjálfa kosn-
ingabaráttuna.
INNKA UPA S TOFNUN
REYKJA VIKURBORGA R
Frfkirkjuvogi 3 - Pósthólf 878 - 121 Raykjavfk
Sfml 552 58 0(T-Fax 562 26 16 - Netfang: ísi'Orvk.ls
TIL SÖLU
Tilboð óskast í eftirfarandi bifreiðar og tæki fyrir Vélamiðstöð
Reykjavíkurborgar, Strætisvagna Reykjavíkur og Reykjavíkurhöfn:
Fyrir Vélamiðstöð:
1. Toyota Corolla fólksbíil árg. 1988
2. Toyota Corolla fólksbíll árg. 1988
3. Toyota Corolla fólksbíll árg. 1987
4. Toyota Corolla fólksbíll árg. 1990
5. Toyota Corolla fólksbíil árg. 1990
6. Toyota Corolla fólksbfll árg. 1990
7. Toyota Corolla fólksbíll árg. 1988
8. Toyota Hi Ace sendibíll árg. 1985
9. Mitsubishi L300 sendibíll árg. 1987
10. Mitsubishi L300 sendibíll árg. 1987
11. Mitsubishi L300 sendibíll árg. 1987
12. Subaru E10 4X4 sendibíll árg. 1988
13. Isuzu DC 4X4 pallbfll árg. 1990 m/húsi
14. Hús á pall Toyota Hi Lux DC
15. Hús á pall Isuzu DC
Strætisvagna Reykjavíkur:
1 6. M.Benz 309 D fólksflutn. bíllárg. 1989
17. M.Benz 310 D fólksflutn. bíllárg. 1989
18. Ford Escort sendibíll árg. 1988. Bilaður gírkassi.
Fyrir Reykjavíkurhöfn:
19. Mótorloftpressa. Broomwvade cv 125S, 100LBF/IN2 (biluö).
Vól: Ford 2711 4,15 I. Dísil.
20. Mótorrafsuða, 240 amp. Vól: Perkings 4,108 (bilaður rafall)
Tækin og bifreiðarnar verða til sýnis dagana 11 -13. október nk. í porti
Vélamiðstöðvar, Skúlatúni 1.
Opnun tilboða: miðvíkud. 14. október nk., kl. 14.00 á skrifstofu
Innkaupastofnunar. vms 104/e
Eitt mesta úrval
af kerfisloftum
á einum staðl
Yfir 20 gerðir:
Giísplötur, stcinullarplötur
og gntnðnr mólmplötur.
• Hljóðeinangrandi
• Eldþolnar
• Fallegar
• Eldþolið kerfi
• B.R. vottoð
Sýningarsalur í verslun
okkar að Ármúla 29.
Loitið
tiíboða
Skjakort m. vídeo inn-
og útgangi
M
ISÐN kort og símar Frábært úrval skjáa PC og Mac Myndvarpar og flatskjáir fyrír PC og
rá 5.900
j 'f.acintosh
- » ■
%