Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Blaðsíða 21
20
MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1998
MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1998
29
Fréttir
i»v
Fréttir
Kötlugosinu 1755 fylgdu þrumur og eldingar:
Eldingar bönuðu tveimur
Að minnsta kosti 17 Kötlugos frá landnámi. Gosin hafa stækkað ísland um 40 ferkílómetra frá landnámi
í dag - mánudaginn 12. október - eru 80 ár frá því Katla í Mýrdalsjökli gaus síöast. Núver-
andi goshlé er þaö lengsta á seinni öldum. Þaö sem kemur nœst er gosiö 1580 þegar hlé var
í rúmlega 67 ár. í annálum hafa fundist, svo öruggt sé, 17 gos frá landnámi en líklegt má
telja að þau séu fleiri - jafnvel 20. Þekking á Kötlu hefur aukist mjög síðustu tvo áratug-
ina. Með kortlagningu og íssjá hafa jöklafrœöingar fundiö út aö gríöarmikil askja tilheyrir
eldstöðinni. í greinunum í opnunni er rœtt viö tvo eldri íbúa í Mýrdal sem muna gosið 1918
vel. Þá er viðtal við Pál Einarsson jaröeölisfrœðing og sagt frá Kötlugosum. Viötölin og
'O/óf //:
úrval no-faSra bíla af öJJu*n s-fær&uw 03 3er*uw!
Margar bifreiðar á söluskrá
okkar er hœgt að greiða með
Visa eða Euro raðgreiðslum
greinarnar eru eftir Njörð Helgason, fréttaritara DV í Vik í Mýrdal.
-hsím
Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770
viö ströndina hjá Vík og í nágrenni.
Talið er að hámarksrennsli í Kötluhlaupum komist yfir
100.000 rúmmetra á sekúndu og jafnvel upp í 200.000 rúmmetra.
Þess má geta að í stórum Skeiðarárhlaupum fer hámarksrennsl-
ið vart yfir 40.000 rúmmetra á sekúndu. Heiidarvatnsmagn í
Kötluhlaupum er þó talið minna en í Skeiðarárhlaupum. Kötlu-
hlaup ná hámarki strax á fyrstu klukkustundum hlaupsins og
vara að jafnaði skamman tíma, en Skeiðarárhlaup standa yfir-
leitt yfir í tvær vikur. Kötluhlaup eru samsett af vatni, vikri, aur
og miklum jakaburði.
Breytingar á landslagi
Þau hafa breytt landslaginu á Mýrdalssandi mikið frá land-
námi, hækkað sandinn og fært hann fram. Landauki á vestur-
sandinum eftir að land byggðist er talinn nema meir en 40 fer-
kílómetrum. Eftir miðjan vetur 1918-19 var landaukinn á Mýr-
dalssandi mældur og þá hafði þegar gengið af honum en þá
reyndist landaukinn vera 1000 faðmar. Nú, þegar liðin eru 80
ár frá siðasta gosi í Kötlu, ætla menn að fari að líða að því að
hún fari að láta til sín taka. Hvenær það verður er ógemingur
að spá um.
Umbrotin í Vatnajökli árið 1996 kenndu mönnum eitthvað
um hegðun eldgosa undir jökli en Kötlugos og afleiðingar
þeirra geta átt eftir að koma mönnum jafnmikið í opna skjöldu
og áður. í Vík og nágrenni er til mikil neyðaráætlun ef til tíð-
inda dregur til að fólki stafi ekki eins mikil ógn af hamfórun-
um. Það er líka þétt net jarðskjálftamæla allt umhverfis Mýr-
dalsjökul sem mæla allar hreyfingar þar. Það ætti því að geta
verið meiri fyrirvari en áður fyrr á öldum ef Katla fer að bæra
á sér. -NH
Skjálftahrina undir jöklinum:
Þekking á Kötlu hefur aukist
SunGuard
sól- og öryggisfilma
DV.Vík:
Katla og Kötlugos era Skaftfell-
ingum oft ofarlega í huga enda hef-
ur Katla verið þeim erfiður ná-
granni i gegnum tiðina og eytt heil-
um byggðarhverfum. Hefur hún
grafið tún og haga í djúpt öskulag
og flóð hennar valdið miklum
búsifium og eyðileggingu. Kötlugos
virðast hafa hrellt íslendinga allt
frá landnámi.
Þekkt er saga Landnámabókar
um deilur landnámsmannanna
Þrasa í Skógum og Loðmundar í
Loðmundarhvammi - Sólheimum -
sem beindu vatnahlaupi hvort til
annars með fiölkynngi.
í gjóskulagarannsóknum hefur
sést að mikið Kötlugos hefur orðið
á timabilinu 950-1050, þó líklega
um árið 1000. Sigurður Nordal
skýrði jarteiknasögu um Þang-
brand kristniboða, sem segir frá
því að hann týndi hesti sínum í
jörð niður á Mýrdalssandi, en
bjargaðist sjálfur, svo að hesturinn
hafi sokkið í jakaker eftir jökulhlaup. Þess konar jakaker ættu
að vera þeim sem komið hafa á Skeiðarársand eftir Gríms-
vatnahlaupið haustið 1996 minnisstæð en í farvegi Gígju mátti
sjá mörg slík jakaker. í annálum hafa fundist svo öruggt megi
Mýrdalsjökull og Katla. Myndin er tekin frá Brekkum í Mýrdal.
telja 17 gos frá landnámi, en liklegt má telja að þau séu fleirri
- jafnvel um 20.
Núverandi goshlé er það lengsta á seinni öldum eða 80 ár.
Annað lengsta goshlé frá 1580 er 67,5 ár. Nær öruggt er að smá-
gos hafi verið í Kötlu árið
1955 þegar hlaup kom í Múla-
kvísl og brú á Múlakvísl tók
af. Það gos náði þó ekki upp
úr jöklinum en þar uppi
sáust tveir stórir sigkatlar
eftir hlaupið. Þau Kötlugos
sem þekkt eru virðast hafa
verið með svipuðum hætti.
Lengd þekktra gosa er frá
háifum mánuði upp í fimm
mánuði.
Svo virðist sem undanfari
hinna sýnilegu gosa séu
ailsnarpar jarðhræringar
sem vart verður nokkrum
klukkustundum áður en gos-
ið kemur upp úr jöklinum.
Það virðist oft standa að
jöfnu, að þegar gosið nær upp
úr jöklinum brýst flóðið fram
á sandinn. Yfirleitt koma
Kötlúhlaup fram á Mýrdals-
sandi en þekkt eru hlaup í
Jökulsá á Sólheimasandi sam-
fara Kötlugosum og jafnvel að
hlaup hafi komið fram í
Markarfljóti. Gosmekkinum og öskufallinu fylgja miklar þrum-
ur og eldingar. í Kötlugosinu 1755 urðu eldingar tveimur mann-
eskjum að bana í Svínadal í Skaftártungu. Kötluhlaupin sjálf eru
gríðarlegar hamfarir og þau hafa átt mikinn þátt í landmótun
DV-mynd GVA
sem voru á leið yfir sandinn hafði verið
sagt að þeir gætu áð í sæluhúsi í Hafurs-
ey og fengið sér kaffitár. Þeir ákváðu
hins vegar að halda áfram fór sinni vest-
ur yfir sandinn og stoppa ekki í Hafurs-
ey og þegar þeir eru nýlega komnir yfir
ána og upp í heiðina ofan við hana féll
flóðið fram sandinn fyrir aftan þá,“ sagði
Þorgerður.
Kötlugosið hafði ekki mikil áhrif á bú-
skap í Mýrdal en austan sands urðu
meiri búsifiar af völdum þess. „í Álfta-
veri lögðust af jarðir og upp úr því var
hætt að búa í Svartanúpi sem var innsti
bær í Skaftártungu og Búlandssel fór í
eyði,“ sagði Þorgerður. Hún segist ekki
muna eftir neinum eftirstöðvúm og með-
an á gosinu stóð hafi ekki verið neinn
óskapagangur í fólki. Allir hafi verið ró-
legir þegar þetta var afstaðið en þetta var
allt mikil upplifun. -NH
Var 17 ára, þegar Katla gaus 1918:
Sást ekki handa-
skil í öskufallinu
segir Þorgerður Einarsdóttir
DV.Vík:
Þorgerður Einarsdóttir er fædd á
Reyni í Mýrdal 28. mars 1901. Hún var
því orðin 17 ára þegar Katla gaus 1918 og
man vel eftir gosinu. „Það fyrsta sem ég
varð vör við þar sem ég var við borð að
ganga frá þvotti og allt í einu fór allt af
stað á borðinu - fram og tO baka. Hús-
móðirin sem ég var að vinna hjá vildi í
fyrstu ekki trúa mér en rétt eftir að jarð-
skjálftinn reið yfir kom heimilisfaðirinn,
Þorsteinn Þorsteinsson, sem var kaup-
maður í Vík, heim og sagði að það hefði
hrunið úr hillunum í búðinni hjá honum
í jarðskjálftanum," sagði Þorgerður Ein-
arsdóttir. Hún býr nú á dvalarheimilinu
Hjallatúni í Vík í Mýrdal. Haustið 1918
var hún i vinnumennsku hjá Þorsteini
kaupmanni í Vík og Helgu Ólafsdóttur,
konu hans, í húsi því sem í dag er þekkt-
ast undir nafninu Brydebúð. „Þetta voru
einu jarðskjálftamir sem við fundum
niður í Vík en það höfðu víst fundist ein-
hverjir skjálftar fyrr um morguninn uppi
í Heiðardal sem er nær jöklinum. Vík í
Mýrdal var vaxandi þéttbýlisstaður árið
1918. íbúar i þorpinu voru þá skráðir 251
og hafði fiölgað um 120 frá 1910 og 205 frá
aldamótum. Þorpið myndaðist við sjóinn
þrátt fyrir hafnarleysi og erfiða aðstöðu
til sjósóknar. Á seinni hluta síðustu ald-
ar var farið að stunda verslun í Vík. Þar
reisti hin danska Brydeverslun fyrstu
verslunarhús sín 1889, en Vík hafði verið
löggilt sem verslunarstaður 1887. Upphaf
verslunar í Vik má þó rekja til ársins
1884 þegar Halldór Jónsson í Suður-Vík
fékk fyrstu vörusendinguna á Víkur-
sand. Halldór stofnaði siðan verslun í
Vík og var Halldórsverslun rekin þar til
ársloka 1950.
Rétt eftir að íbúar í Mýrdal fundu
jarðskjálftana bárust fréttir af því að
mikið flóð væri að brjótast niður Mýr-
dalssand og á svipuðum tíma urðu menn
varir við að umbrot voru hafin uppi á
jöklinum. Þorgerður segir að fólk í Vík
hafi tekið þessum umbrotum með jafnað-
argeði og segist ekki muna eftir því að
nein skelfing hafi brotist út á meðal íbúa.
Hún segir að flóðið hafi gengið svo fljótt
yfir og ekki hafi orðið nein ógn af því í
Vík. Sjór hafi verið lágdauður og hann
hafi ekki gengið langt upp á land undan
flóðinu. Kötlugos verða undir jökli og
þegar það nær upp úr jöklinum
verður þeytigos með mikiili
gjóskumyndun. Fyrsta gosdag-
inn var vestanátt og lagðist
mökkurinn yfir Skaftártungu
og þar varð talsvert öskufall þá.
í Mýrdal gerði nokkrum sinn-
um öskufall í gosinu „Sérstak-
lega man ég eftir tveimur dög-
um sem var öskufall. Þá var
dimmt. Það sást ekki handa-
skil,“ sagði Þorgerður. Afleið-
ingar öskufallsins voru þó
nokkrar, öskulagið lá yfir öúu
og tók fyrir alla beit.
Askan eyddi tönnum
dýra
„Eftir á varð féð svo illa
tennt, askan eyddi upp tönnunum í sauð-
fénu og menn urðu sums staðar að farga
töluverðu af fé vegna heyleysis. Sumarið
eftir var líka erfitt tO heyskapar vegna
þess að sandurinn eyddi fljótt biti úr ljá-
um hjá bændum," sagði Þorgerður. Hún
segir þó að ekki hafi allt verið slæmt við
öskuna. „Hún var góð til að hreinsa tré-
gólfin, þau urðu alveg hvítþvegin ef þau
voru hreinsuð með henni.“ Kötlugosið
kom í miðri sláturtið og á þessum árum
var fé rekið til slátrunar úr nágrannahér-
uðunum til Víkiu-. Um það leyti sem gos-
ið braust út var þó hlé á slátruninni, „ef
ekki hefði verið tunnulaust í Vík og því
ekki hægt að salta kjötið, hefði verið
fiöldi fólks með rekstra til slátrunar á
sandinum, svo að það bjargaði mörgum i
þetta skiptið," sagði Þorgerður. í Skaftár-
tungu og Álftaveri voru bændur að
smala fé sínu daginn sem byrjaði að
gjósa. „Þeir voru bara í rólegheitum og
sáu ekkert til jökulsins. Svo þegar þeir
koma fram á láglendið sáu þeir til flóðs-
ins þar sem það kom æðandi að þeim. Þá
var víst tekið til fótanna og allir komust
undan því. Bóndinn í Hrífunesi komst
yfir brúna á Hólsá rétt áður en flóðið
braut hana niður en hundurinn hans var
á brúnni þegar flóðið hreif hann með sér.
Hundurinn kom heim á bæ daginn eftir,“
sagði Þorgerður.
Víða urðu þó skaðar á búfé vegna
flóðsins. í Álftaveri drapst mikið af fén-
aði og eitthvað af hrossum. Víðar skall
hurð nærri hælum í flóðinu. „Tveimur
vinnumönnum austan úr Skaftártungu
Þorgerður Einarsdóttir er enn við góða heilsu og
er hér með prjónana. DV-mynd Njörður
BILASALAN
Borgartuni 26, símar 561 7510 & 561 7511
Sáum feiknarmikinn
kolsvartan skýstrók
- segir Geir Einarsson sem man vel
Kötlugosið 1918
„Eg man eftir því að við strákarnir
vorum að ólátast uppi í heygarði. Þá
kom Guðríður systir okkar út og bendir
í landnorður. Þá var þar þessi feiknar-
mikli skýstrókur, kolsvartur í norð-
austri og rétt á eftir fara að heyrast
þessar voða drunur. Síðan komu elding-
ar og þrumur," sagði Geir Einarsson, 89
ára, í samtali við DV.
Geir er fæddur i Þórisholti í Mýrdal
1909 og alinn þar upp. Hann segir að
þeim hafi nú heldur betur brugðið við
að sjá þetta. Sérstaklega hafi eldingam-
ar skotið þeim skelk í bringu.
Vegna þess hvað áttin var vestan-
stæð varð ekki öskufall í Mýrdal
fyrsta daginn en næsta dag sner-
ist til norðanáttar og þá varð al-
myrkur meðan á því stóð.
„En það var ekki í langan tíma.
Hann gekk fljótlega af áttinni og
nokkuð þykkt lag var af ösku svo
að það varð alveg haglaust og
varð því að taka allt fé á hús. Það
hittist svo illa á að það varð gras-
brestur þetta ár. Það voru svo
miklir gaddar veturinn áður og
lítil hey um sumarið. Aðeins þeir
sem áttu fyrningar höfðu nægan
heyforða og þeir stungu nú að
mönnum sem lítið höfðu,“ sagði
Geir.
Faðir hans var einn af þehn
sem áttu sæmilegar heybirgðir.
„Ég man eftir því að bóndi úr
Skaftártungu bað pabba að taka
af sér tvo hesta i fóður vegna þess
að hann var heylítill. Svo ætiaði
hann að fara að borga fyrir fóðrið
um vorið en pabbi vildi ekki taka
neitt fyrir vegna þess að hann átti svo
miklar fyrningar. Ég man eftir því að þá
færði maðurinn honum tvo gullpeninga,
tíu og tuttugu krónur í guili. Þá lét
pabbi til leiðast og tók við þeim.
Skepnurnar átu vel heyið þennan
vetur. Það var ekki einu sinni mosi eft-
ir í görðunum," sagði Geir.
Hann segir að menn hafi stundum
hugsað til þess eftir Kötlugosið að betra
væri að eiga meira hey en minna og oft
á tíðum slegið umfram þörf. Margir
þurftu að stórfækka í bústofninum hjá
Geir Einarsson var niu ára þegar gosið hófst.
DV-mynd Njörður
sér vegna gossins, sérstaklega austan
Mýrdalssands. Þrátt fyrir gosið var hey-
fengur ekki mikið minni árið eftir, ask-
an hefði fokið og runnið af túnunum og
menn getað náð sæmilegum heyfeng
þrátt fyrir allt. í Vík var verið að skipa
upp vörum þegar flóðið braust fram
Mýrdalssand og út í sjó.
„Þegar hlaupið kom fram í sjó varð
svo mikil ókyrrð af þvi alla leið til Vík-
ur að þeir sem voru á árabátum við út-
skipunina þökkuðu fyrir að komast í
land . Mótorbátarnir fóru strax til Vest-
mannaeyja. Þar varð einnig vart við
flóðbylgjuna en allir komust nú undan
flóðinu ómeiddir," sagði Geir Emars-
son. -NH
Nissan Primera 1995,
5 d., 5 g., dökkgrænn.
Verð 1.250 þús.
Gosmökkurinn nær 3 km
- segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur
DV.Vík:
„Þekkingarlega hefur gríðarlega
mikið breyst síðustu tvo áratugina.
Katla reynist vera allt önnur eldstöð
en menn töldu hana vera í
mörgu tilliti. í fyrsta lagi hefur
komið i ljós að þama er griðar-
mikil askja undir jöklinum.
Með kortiagningu og issjá hafa
jöklafræðingar fundið það út að
gríðarlega mikil askja tilheyrir
þessari eldstöð.
Katla er ekki bara eitt gat í
jörðinni, eins og menn töldu
gjaman áður fyrr, heldur er
þetta gríðarlega umfangsmikil
eldstöð sem nær nánast til alls
Mýrdalsjökuls," sagði Páll Ein-
arsson jarðeðlisfræðingur í
samtali við DV.
Páll er einn af þeim jarðvís-
indamönnum sem hafa rann-
sakað Kötlusvæðið hvað mest
og er þvi vel kunnugur. Upp-
götvun þessarar öskju undir
jöklinum skýrir hvers vegna
flóð tengd Kötlugosum geta
komið undan Mýrdalsjökli á að
minnsta kosti þremur stöðum -
á Mýrdalssand, Sólheimasand
og undan Entujökli í farveg
Markarfljóts. Landslagið undir
jöklinum liggur þannig að í
flestum tilfellum koma flóðin á
Mýrdalssand.
Fleiri eldstöðvar
Fleiri eldstöðvar hafa fundist und-
ir jöklinum við að hann var rannsak-
aður með íssjá .
„Annað sem komið hefur í ljós er
að utan við þessa öskju er eldstöð
sem við viljum kenna við Goðabungu
sem er í suðvesturhorni jökulsins,
upp af Skógaheiði, og mikið af þeim
hlaupum koma gríðarleg vatnsflóð og
eru uppi kenningar um að hámarks-
rennsli í þeim geti orðið allt að
200.000 rúmmetrar á sekúndu, Páll
var spurður út í þetta.
„Þessar tölur á örugglega eftir að
endurskoða þegar menn verða vitni
að næsta stóra hlaupi. Það helsta sem
menn hafa komist að í þessu núna er
að líklega eru þetta frekar eðjuhlaup
en vatnshlaup, að minnsta kosti er
partur af hlaupinu eðjuhlaup. Eðju-
hlaup haga sér svolítið öðruvísi held-
ur en vatnshlaup og það getur hafa
verið að villa mönnum sýn þegar ver-
ið er að skoða ummerkin á eftir.
Hlaupiö kemur strax
Hins vegar er annað sem hefur
verið að koma í ljós í sambandi við
hlaupin og það er að eftir að lands-
lagið undir jöklinum er orðið þekkt
kemur í ljós að Katla hefur enga
möguleika á því að safna vatni nema
í litlum mæli. Þannig að
hlaup sem verður kemur eiginlega
alveg strax. Það kemur við snögg-
bráðnun á jöklinum.
Þetta þorðu menn aldrei að draga
ályktun um áður og héldu alltaf að
þetta mikla hlaup stafaði af þvi að
það væri búið að safnast fyrir vatn.
Og þegar það kemur í ljós verður að
skýra þetta öðruvísi.
í Gjálpargosinu í hittiðfyrra sást
að ís getur bráðnað mjög hratt þó að
þar safnaðist vatn saman. Þá átti sér
þar stað mjög hröð bræðsla á fyrsta
sólarhring gossins sem sýnir að þetta
er mögulegt," sagði Páll. Þegar frétta-
ritari spurði Pál þegar hann talaði
við hann 7. október hvort einhverjar
hreyfingar væru í jöklinum sagði
hann: „Það eru hreyfingar, það er
reyndar óvenju líflegt í dag, það er
nú mest í Goðabungu, sýnist mér.
Það var skjálftahrina í sumar, síðan
jarðskjálftum sem mælast undir Mýr-
dalsjökli eiga upptök sín þar, eru eig-
inlega utan við Kötluöskjuna," sagði
Páll.
Katla er búin að vera lengi að,
Páll Einarsson á fundi í Kirkjubæjarstofu.
DV-mynd Njörður
Páll segir að með öskulagarannsókn-
um hafi uppgötvast að Katla hafi gos-
ið gríðarlega stóru gosi í lok ísaldar
áður en ísaldarjökullinn var farinn
af landinu.
Leifar af þessu gosi má finna í seti
víða í Atiantshafinu. Á landi er lítið
um menjar frá gosinu vegna þess að
það var að mestu leyti hulið is en þó
eru líklega merki um þetta mikla gos
á Sólheimaheiði. Samfara Kötiu-
er allt búið að vera tiltölulega rólegt
en nú síðustu dagana er eitthvað að
lifna yfir þessu,“ sagði Páll.
Þessa skjálfta vildi Páll skýra sem
árstíðabundna skjálftahrinu í jöklin-
um en iðulega er fiörugt undir Mýr-
dalsjökli á haustin, það hefur oft ver-
ið skýrt með því að þá sé jökulfargið
minnst á jöklinum og þá verði um-
brot vegna þess, reyndar hafa flest
Kötlugosin sem þekkt eru orðið um
haust, hvort sem það er léttari jökli
að kenna eða tilviljun.
-NH
BMW 316 1987, Hyundai Sonata 1997, VW Passat TDi 1996,
4 d., 5 g., ek. 135 þús. km, 4 d., 5 g., ek. 17 þús. km, grænn. 5 d., ssk., ek. 129 þús. km,
vínrauður. Verð 1.390 þús. dökkgrænn, álfelgur.
Verð 370 þús. Verð 1.360 þús.
DV.Vík:
Laust upp úr hádegi 12. október 1918
hófst gos í Kötiu undir Mýrdalsjökli eft-
ir 58 ára goshlé. Þetta er fyrsta gosið í
Kötlu sem myndir eru til af, teknar af
Kjartani Guðmundssyni, ljósmyndara í
Vík. Einnig eru til ítarlegar heimildir
um gosið og afleiðingar þess, skráðar af
Gisla Sveinssyni, sýslumanni Skaftfell-
inga, og annað rit er til eftir Guðgeir Jó-
hannsson, kennara í Vík. Hæð gosmakk-
arins var mæld frá Reykjavík og varð
hún mest um 2800 metrar. Gosefnin bár-
ust víða, en mest þó til norðnorðausturs,
Skaftártunga varð verst úti. Þar varð
mikið öskufall og bæir lögðust i eyði.
Talsvert tjón var af gosinu. Víðast um
Vestur-Skaftafellssýslu urðú bændur að
farga stórum hluta búfénaðar síns og
margir misstu hluta búsmalans um vet-
urinn. í hlaupinu sjálfu fórust, sam-
kvæmt skýrslum hreppstjóra eftir ham-
farirnar, 37 hross i flóðinu og hundruð
sauðfiár. Þessir skaðar urðu mestir í
Meðaílandi og Álftaveri. Engum manni
varð gosið að bana en oft mátti litlu
muna að illa færi. -NH
Hyundai Accent GS 1,5 1998, VW Caravelle Syncro 1994,
3 d., 5 g., ek. 15 þús. km, svartur, dfsil, 4x4, 4 d„ 5 g„
álfelgur, topplúga, spoiler, rafdr. ek. 85 þús. km, hvítur.
rúður. Verð 1.180 þús. Verð 1.630 þús.
Chrysler Saratoga 1991,
4 d„ ssk„ ek. 4 þús. km, brúnn.
Verð 870 þús.
Toyota Corolla XL 1992,
5 d„ 5 g„ ek. 127 þús. km, rauður.
Verð 570 þús.