Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Qupperneq 28
Vonda fólkið
Þeir sem sjá um heimasíð-
una http://www.gai-
jin.com/EvilPeople/ hvetja
fólk til að selja sál sína. Spurn-
ingin er bara: hver vill kaupa?
Glápkeppni
Á heimasíðunni http:// i
www.stairwell.com/stare/ i
er hægt að fara í keppni við
sýndarkvendið Sally um hvort
líti fyrr undan þegar horfst er j
í augu.
Siðmennt
Húmanistafélagið Siðmennt
heldur úti heimasíðu á slóð- j
inni http://www.islandia.
is/sidmennt/ þar sem m.a. má
fræðast um borgaralegar ferm-
ingar.
Netfangaskrá
Hægt er að leita að netfóng-
um íslendinga á slóðinni
http://netfang.is/
Prinsinn sjálfur
Boxarinn frækni Prince Na-
seem Hamed rekur heimasíðu
þar sem hægt er að lesa fréttir
og kaupa varning sem tengist
hetjunni. Slóðin er http://
www.princenaseem.com/
Björk á Netinu
Nýjustu fréttir af Björk Guð-
mundsdóttur er hægt að finna
á slóðinni http://www.bjork.
co.uk/
MANUDAGUR 12. OKTOBER 1998
Here.is býður upp á nýstárlega þjónustu:
Einfaldar og grípandi vefslóðir
- búast við tugum þúsunda viðskiptavina
Nú á dögum ört Qölgandi vefsíðna
er orðið sífellt erfiðara að finna heppi-
legar vefslóðir því flestar meðfærileg-
ar slóðir eru uppteknar. Sérstaklega á
þetta við um slóðir sem enda á .com,
sem er algengasta ending vefslóða á
Netinu. Þessi skortur á heppilegum
heimasíðum hefur leitt til þess að svo-
kallaðar „redirect“-heimasíður hafa
skotið upp kollinum. Ein slík, Here.is,
er nú að slíta bamsskónum hér á Is-
landi.
Það sem slíkar heimasiður hafa upp
á að bjóða eru stuttar vefslóðir með
lénum sem hljóma vel á enskri tungu.
Dæmi um slíkar síður eru
http://come.to og http://i.am Þegar
fólk skráir sig á síðunum getur það
valið sér slóð sem er lýsandi fyrir
heimasíðu viðkomandi. Til dæmis
gæti piltur að nafni Sigurður nælt sér
í vefslóðina „here.is/siggi“. Það segir
sig sjálft að fólk á mun auðveldara
með að muna slíkar vefslóðir heldur
en langlokumar sem oft þarf að notast
við í dag.
Ein slóð alla ævi
En þar með er Siggi ekki að færa
heimasíðuna sína neitt annað, eins og
halda mætti. Það sem gerist þegar sleg-
in er inn slóðin „here.is/siggi“ er að
tölvan hefur samband við „redirect"-
síðuna sem síðan beinir viðkomandi
áfram á hina „raunverulegu" vefslóð
Sigga. Hér er því raunverulega verið
að opna nýja og auðveldari leið inn á
heimasíðuna, þó svo alltaf verði hægt
að nálgast heimasíðuna með gömlu að-
ferðinni.
í viðbót kemur sú hagræðing að
Siggi getur haft þessa sömu vefslóð
alla ævi. Þó svo hann þurfi einhvern
tímann að breyta „raunverulegu" slóð-
inni þá breytist ekki „here.is/siggi“.
Jafnframt þessu fær Sigurður net-
fangið siggi@here.is og getur haldið
því óbreyttu alla ævi. Allur póstur
sem sendur er á þetta netfang er
sendur áfram á það netfang sem Siggi
notar í það og það skiptið.
Miklir tekjumöguleikar
Þeir Guðmundur Ragnar Guð-
mundsson og Garðar Runólfsson eru
forsprakkar Here.is. Þeir hafa jafn-
framt rekið
svipaða þjón-
ustu, This.is,
um nokkurt
skeið. Hver er
munurinn á
þ e s s u m
tveimur síð-
um? „Hann er
í rauninni sá
að þeir sem
eru skráðir á
This.is greiða
fyrir þjónust-
una á meðan
það er ókeyp-
is að skrá sig
á Here.is.
Tekjurnar af
Here.is munu
e i n u n g i s
koma af aug-
lýsingum sem
verða í
ramma neðst
á hverri
heimasíðu
sem heimsótt
er í gegnum
íuiuiuivvu* í. v 11* i u w i. v im. y.\ v ivivimii v iviutii
ffljgaaa ii
ÖÍ01ÖU
m
mmfírmmí
Guðmundur Ragnar Guðmundsson og Garðar Runólfsson, forsprakkar Here.is heimasíðunnar, telja
að talsvert sé hægt að hafa upp úr rekstri svokallaðra „redirect“-heimasíðna.
Here.is-kerfið," segir Guðmundur.
Fyrst um sinn munu þeir félagar
fara hægt í sakirnar og ekki auglýsa
Here.is mikið. „Við erum enn að
prufukeyra kerfið og það væri í raun
slæmt ef við fengjum yfir okkur hol-
skeflu skráninga i upphafi," segir
Garðar. „Við búumst þó við að þegar
þjónustan fari að spyrjast út að eftir-
spurnin geti orðið mjög mikil.“
Here.is er mestmegnis hugsuð með
erlendan markað í huga og búast þeir
Guðmundur og Garðar við tugum þús-
unda skráninga þegar þjónustan verð-
ur komin í gang af fullum krafti. „Aug-
ljóslega má búast við miklum tekjum
þegar við getum boðið auglýsendum
aðgang að svo stórum hópi,“ segir
Garðar.
Þó er enn nokkuð óljóst hversu mik-
ið má þéna á þjónustu sem þessari. „í
raun er alltof afkastalítil nettenging ís-
lands við útlönd það eina sem gæti
staðið í vegi fyrir okkur,“ segja þeir fé-
lagar.
Hægt er að fræðast nánar um þjón-
ustuna og skrá sig á slóðinni
http://here.is
-KJA
Netdagar:
Þann 16. október hefst fræðsluvika
á Netinu undir heitinu „Netd@ys
Europe". Þarna er á ferðinni verkefni
á vegum Evrópusambandsins og er
ætlunin að kynna fyrir almenningi þá
möguleika sem Netið býður upp á.
Að undanfórnu hefur fjöldi fólks út
um allan heim unnið að ýmsum
verkefnum sem tengjast Netdögunum.
Þar á meðal er eitt íslenskt verkefni á
vegum Kristjáns Kristjánssonar
rannsóknarlögreglumanns. Það felst í
að búa til heimasíðu um
vímuvarnarmál ásamt skólabömum á
íslandi og í Bandaríkjunum. Kristján
er einnig í forsvari fyrir
Vímuvarnarvef Áfengisvarnarráðs
sem er á slóðinni http://www.is-
mennt.is/vefir/vimuvarnavefur-
inn/
Þeir sem vilja kynna sér nánar það
sem boðið er upp á á Netdögum geta
fengið upplýsingar á vefslóðinni
http://midas.is/ Midas vefurinn er
liður í Info 2000 verkefni Evrópusam-
bandsins og er hann ætlaður almenn-
ingi og fyrirtækjum til fróðleiks um
nýja miðla. Þar er fólki m.a. gefinn
kostur á að taka þátt í spurninga-
keppni sem veitir ferð til Salzburg á
opnun Netd@ys hátíðarinnar í
verðlaun.
Microsoft-sími
Microsoft hefur til-
kynnt nýja vöru
sem mun koma á
markaðinn innan '
skamms. Þetta er f
sími sem tengdur
verður við tölvu og
veröur hann með
fjölda nýjunga. Til
dæmis verður
hægt að gefa hon-
um skipanir munn-
lega auk þess sem
símsvörun verður
mjög fullkomin.
Hugbúnaður sem
fylgir símanum get-
ur greint hver sé
að hringja í eigandann og hvernig á
aö bregðast við símhringingunum.
Eigandinn getur þannig t.d. tekið upp
sérstök skilaboð sem spiluö eru þeg-
ar hringt er úr ákveðnu númeri.
Löggegnklámi
Bandaríkjaþing þreytist ekki á tiiraun-
um til að ritskoöa Netiö. I síöustu
viku setti þaö lög sem skylda eig-
endur allra heimasíöna sem inni-
halda efni sem „valda börnum und-
ir lögaldri skaða“ til að staðfesta
aldur þeirra sem vilja skoða síðuna
áður en þeim er hleypt inn. Til þess
eiga þeir að krefjast greiðslukorta-
númers eða biðja um sérstakt núm-
er sem staöfestir að viökomandi sé
kominn á fulloröinsaldur. Þeir sem
ekki fara að þessum lögum gætu átt
yfir höfði sér allt að tveggja milljóna
króna sekt og fangelsi í allt aö sex
mánuði.
Auglýsingaher-
ferð
Átta stórfyrirtæki í
netheiminum til-
kynntu fyrir
skömmu að þau
ætli að standa aö
mikilli auglýsinga-
herferð á næst-
unni. Þetta eru tyr-
irtækin Microsoft,
Excite, Lycos, In-
foseek, Snap,
Netscape, Yahoo!
og America Online
en ætlun þeirra er
að draga úr tor-
tryggni manna á
Netinu. Þetta ætla
þau að gera meö því að fræða fólk
um leynd upplýsinga og hvetja önn-
ur fyrirtæki til að gera skýra grein fyr-
ir þvl hvernig þau fara með upplýs-
ingar um viðskiptavini sína.
Auglýsingarnar verða birtar á heima-
síðum á vegum fýrirtækjanna.
IBM með tilraunir í Frakk-
landi
Fyrir helgi tilkynntu fýrirtækin IBM og
France Telecom að þau ætluðu aö
kynna nýja nettækni I Frakklandi á
næstunni. Tæknin mun gera mönn-
um kleift að tengjast Netinu með
nýrri gerð af símum án þess að nota
heimilistölvur. Með þessu telja fýrir-
tækin aö almenningur og fyrirtæki
geti nýtt sér Netiö á mun ódýrari hátt
en áður, því símtækin nýju muni
kosta mun minna en heimilistölvur.
Tæknin hefur hlotið heitiö „Britany“.
_________________________nm