Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1998, Page 6
6
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1998
Fréttir
,£giU'
! Ittri
fcra ffinihiil íV'h i fiín A h < n
TiLBOÐ
*££ íCU
ÖPByLGJUPOPP
umm
iti aiuiMimr uikki’MKí
aoi»r íju
TiLBQÐ 55.-
/0-
SKPUFUP
TiLBOÐ 109.-
9»LT loí.-
BONUSVIDEO
Leigan í þínu hverfi
Arnar Barðason trillukarl hyggst sækja bætur:
Blekktur til að
kaupa úreldingu
- óska þeim Einar og „Tvennari“ til hamingju
„Ég óska þeim Einari og Tvenn-
ari til hamingju með því að hafa
endanlega jarðað sóknardagakerfi
smábáta," segir Arnar Barðason,
trillukarl á Suðureyri, um þá
stöðu sem kemur upp hjá
trillukörlum fari svo að frumvarp
ríkisstjórnarinnar um breytingar
á kvótalögunum verði samþykkt.
Hann vísar til þess að þingmenn
Sjálfstæðisflokksins þeir Einar
Kristinn Guðfinnsson og Einar
Oddur Kristjánsson eigi stærsta
sök í því hvernig komið sé fyrir
trillukörlum. Þar ráði úrslitum
þær breytingar sem þingmennirn-
ir hafi beitt sér fyrir á árinu 1995.
í frumvarpi ríkisstjórnarinnar
er gert ráð fyrir að smábátar á
sóknardögum fái að sækja sjó i
kringum 30 daga á fiskveiðiárinu
með 30 tonna aflahámarki í þorski.
Síðan er reiknað með að bátarnir
fari allir inn í aflahámarkskerfi
smábáta og fái þá um 9 tonna afla-
heimild í þorski.
Arnar segist setja stærstan fyr-
irvara við að nú megi allir kaupa
skip og róa til fiskjar. Þeir fjár-
munir sem lagðir hafi verið í úr-
eldingar undanfarin ár séu glatað
fé. Hann segist sjálfur hafa keypt
úreldingu fyrir á þriðju milljón
króna. „Ég tel mig hafa verið hafð-
an að fifli og hef til skoðunar að
sækja skaðabætur á hendur ríkis-
sjóði,“ segir Amar.
Hann segist vona að sem flestir
fari nú á sjó og það verði til þess
að fiskveiðistjórnunarkerfið
hrynji til grunna.
„Ég vona að það náist að
sprengja kvótakerfið í loft upp.
Þetta er svo víðuáttuvitlaust að
það hlýtur að enda þannig. Ég
vona að sem flestir fari á sjó og
verði samtaka um að rústa þetta,“
segir Arnar. -rt
Matthías Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, um kvótadóm:
Færir frelsi til athafna
Matthías Bjamason, fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra, er ánægður
með kvótadóm Hæstaréttar. Um
frumvarp ríkisstjórnarinnar vissi
hann lítið þegar DV ræddi við
hann. „Um dóminn hef ég ekkert
nema gott að segja. Ég hef aldrei
verið hlynntur kvótakerfinu. Það
hefði aldrei komið ef ég hefði ver-
ið í sjávarútvegsráðuneytinu,"
sagði Matthías í viðtali við DV.
Hann dvelur í vetur á La Marina á
Spáni, kippkom frá Alicante.
En hvernig vill Matthías að fisk-
veiði landsmanna sé stjórnað?
„Það eru engin vandræði, það
þarf að setja hámarksafla á hverja
tegund, skipta því niður á árið. Ef
vel veiðist, þá er veiðum á þeirri
tegund hætt tímabundið. Þá er
samkeppni um fiskinn - en hann
ekki seldur við barborðin eins og
víða er,“ sagði Matthías.
Ráðherrann að vestan er ekki
Matthías Bjarnason, fyrrverandi al-
þingismaður Vestfirðinga og sjávar-
útvegsráðherra - kvótadómur í
anda sjálfstæðisstefnunnar.
alltaf ánægður með sína menn,
sjálfstæðismenn. „Dómurinn færir
mönnum meira frelsi til athafna.
Það var stefna Sjálfstæðisflokks-
ins. Ég hef nú ekki trú á að þeir
hafi gleymt þessari stefnu flokks-
ins,“ sagði Matthías og vill að sín-
ir flokksmenn taki vel við ný-
fengnu frelsi.
„Núna þegar fiskur er inni á öll-
um fjörðum, sem voru fisklausir
árum saman, þá er alveg sjáanlegt
á öllu að það er mikill þorskur í
sjónum og hann étur seiðin, hann
er ekki matvandari en það,“ sagði
Matthías Bjamason. Hann segir að
það hafi áhrif á stofninn að ekki
skuli vera stundaðar veiðar á stór-
fiskum, hvölum og hrefnum. Sam-
keppni stóru fiskanna við mann-
inn sé meiri en unað verði við eft-
ir því sem stofnar þeirra stækka.
-JBP
Við upphaf dráttar á lögreglustöðinni í gær. DV-mynd ÞÖK.
Mikil þátttaka í jólagetraun
Alls tóku um 30 þúsund grunn-
skólanemendur af öllu landinu þátt í
jólagetraun Umferðarráðs, lögreglu og
bæjarfélaga. Umferðargetraunin sem
var fyrir nemendur í 1.-7. bekk
grunnskóla á að hjálpa nemendum að
átta sig á hættum sem fylgja umferð-
inni. Með getrauninni er vonast til að
nemendur læri reglur í umferðinni og
geti lagt sitt af mörkum til að draga
úr hættum og auka öryggi sitt. Að-
standendur getraunarinnar í Reykja-
vík hófú í gær að draga út nöfn vinn-
ingshafa í getrauninni. í verðlaun er
bókin Bróðir minn ljónshjarta eftir
Astrid Lindgren og mun lögreglan
færa þeim heppnu vinningana áður
en jólahátiðinni lýkur. -hb
Við jarðarfarir
Mórallinn hjá starfsfólki Lands-
símans er sagður vera í lágmarki.
Ekki voru allir hressir þegar Ólaf-
irn Stephensen blaðamaður Mogga
var ráðinn sem upplýsingafulltrúi.
Sú saga er útbreidd
að ráðning Ólafs sé
runnin undan rifj-
um stjóniarfor-
manns Símans
Þórarins Viðars
Þórarinssonar.
Gallup gerði á
dögunum könnun
meðal starfsmanna
simans og niðurstaðan var sláandi.
Fundur var á Grand hóteli þar sem
farið var yfir niðurstöðumar og
samkvæmt heimildum sandkorna
af vettvangi kom ýmislegt sláandi
þar fram í máli manna. í könnun-
inni kom í ljós að margir skammast
sín fyrir að vinna hjá símanum.
Fram kom hjá einhveijum aö þeir
vildu síðm- ræða starf sitt á manna-
mótum. Einhver starfsmanna mun
hafa lýst þvi að hann hefði fyrir
reglu að ræða starf sitt aðeins við
jarðarfarir.
Jón grét
Saltfiskmógúllinn, bridgestjarn-
an, leikfimikennarinn og sægreif-
inn Jón Ásbjörnsson fagnaði inni-
lega þegar hann seldi KEA saltfisk-
höllina sína á Miðbakkanum í
Reykjavik fyrir litl-
ar 300 milljónir
króna. Þegar ljóst
var að hann verður
af söluhni vegna
höfnunar hafhar-
stjórnar var hann
gráti næst i við-
tali við frétta-
mann Útvarpsins. Þetta
er dimmur dagur í sögu reykvískr-
ar smásöluverslunar, sagði útflytj-
andinn sem í sömu andrá þarf að
sæta því aö þjóðin mænir hungruð
á kvótann hans...
Subbuskapur
í Degi var í síðustu viku viðtal
við Hall Helgason sem er að hætta
sem dagskrárstjóri Bylgjunnar og
taka við leikhússtjórastööu Loft-
kastalans. í viðtalinu er hann
spurður hverju hann
sé stoltastur af í dag-
skrárstjóratíð sinni
á Bylgjunni. Hann
segist vera ánægð-
astur með að hafa
minnkað „subbu-
skapinn" frá
■sv'n-.Jrf, rt- J.-iilfU-- -
inaiivciuöucuu JilIU
og óbeinar auglýsingar í
útvarpsþáttum, pitsuleiki o.þ.h.
Athyglisverð yfirlýsing því t.d.
Erla Friðgeirs gerir lltið annað en
að gefa hlustendum hitt og þetta. í
síöustu viku var í gangi heljarinn-
ar kalkúnaleikur. „Subbuskapur-
inn“ er greinilega enn í gangi,
nema hann aukist fyrst Hallur er
að hætta...
Regína skömmuð
Hinn aldni sveitarhöfðingi Guð-
mundur Valgeirsson í Bæ í Ár-
neshreppi var ekki par hrifmn þeg-
ar viðtal við Regínu Thorarensen
birtist í helgarblaði DV. Þar gaf
Regína honum þá
einkunn að hann
hefði alltaf verið eit-
urpadda í pólitík en
sér þætti að öðru
leyti vænt um
hann. Margar
sendingar hafa
farið milli Regínu __
og Guðmundar í gegnum tíðina en
hann er 95 ára að aldri og dvelur
að Bæ. í framhaldi af viðtalinu
sendir Guðmundur Regínu þessa
kveðju:
Enn er frúin söm við sig,
semur eintómt þvaður.
Hlt er að elta ólar við,
það óláns kjaftablaður.
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is