Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1998, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1998, Page 10
10 MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1998 Margar gerðir og litir H.MAGNUSSONAR GULLTEIGI6 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 5688611 Píanóbekldr Fréttir Fé heimt af fjalli: Vildu komast í hlýjuna DV, Dalvík: Tvær kindur frá Dæli í Svarfað- ardal, sem saknað hefur verið síð- an í haust, komu heim að fjárhús- dyrum nýlega og vildu óðar og uppvægar komast inn. Að sögn Óskars Gunnarssonar, bónda í Dæli, var um að ræða veturgamla gimbur og tvævetra hrút og voru þau ótúlega vel haldin miðað við hvernig tíðarfar hefur verið í haust. Lamb undan ánni kom hins vegar ekki og segir Óskar ljóst að talsvert sé síðan það hefur farið undan. Bæði kindin og hrúturinnn sáust sitt í hvoru lagi seinni hluta ágúst nærri byggðum en komu ekki fram í göngum. Mikið og víða er búið leita þeirra en hvergi orðið vart. Sama dag og kindurnar komu var reynt að finna slóðir eftir þær til að vita hvaðan þær komu ef ske kynni að lambið væri á lífi. En vegna þess hve mikil hláka var á þessum tíma var það ógerningur. Skömmu áður en kindurnar komu heim í Dæli taldi rjúpna- skytta, sem var á ferð í Sveins- staðaafrétt, sig hafa heyrt jarm. Tvær ferðir voru farnar þá til að huga eftir kindum, bæði á skíðum og vélsleðum, en ekkert fannst. Óskar telur nánast útilokað að þessar kindur geti hafa verið á þeim slóðum því illfært hafi verið framan af vegna hláku. Hvar kind- urnar hafa haldið sig þennan tíma verður sjálfsagt aldrei upplýst en þar hlýtur alla vega að hafa verið gott til gróðurs miðað við holdafar þeirra. -hiá Komdu jólapökkunum öpugglega til skila! ^ólatilboð á smápökkum 0-20 kg Aðeins 300 kr. pakkinn-hvert á land sem er! Opið alla laugardaga til j la, kl. 10-14. á&M FLUTNINGAR HÉDINSGÖTU 3 S. 581 3030 Keyrum á eftirtalda staði: Vestmannaeyjar • Egilsstaði • Seyðisfjörð • Reyöarfjörö • Eskifjörð • Neskaupsstað • Varmahlíð • Sauöárkrgk • Patreksfjörö • Bíldudal • Tálknafjörð • Isafjörð • Súðavík • Flateyri • Þingeyri • Suðureyri • Bolungarvík • Hellu • Hvolsvöll • Þykkvabæ • Akureyri • Hvammstanga • Vík • Klaustur • Hólmavík • Drangsnes Færeyjar: Gjafverð á íslensku kjöti - lambakjötskílóið kostar 230 krónur Skuttogarinn Hólmatindur kom 10. desember frá Færeyjum þar sem skipið var 3 vikur í slipp, í slippstöð- inni í Skálum í Færeyjum. Stóðu Færeyingar við allt sitt upp á dag, þrátt fyrir eitt mesta rigningartima- bil sem orðið hefur í Færeyjum. Hinn útsjónarsami kokkur á Hólmatindi, Gunnar Gíslason, gerði góð matarinnkaup í Færeyjum, sem skipverjar munu njóta góðs af á kom- andi vikum. Hann keypti 8 skrokka af íslensku lambakjöti og kostaði kílóið aðeins 230 krónur. Þá var líka hægt að kaupa lambalæri og hryggi loftþétt pakkað á sama gjafverðinu, 230 krónur kílóið. Já, Gunnar hefur alltaf þótt góður en ódýr kokkur sem hugsar um hag skipsfélaga sinna. En það er hrylli- legt til þess að hugsa hve íslendingar þurfa að borga mikið fyrir lambakjöt- ið hér heima. Ég á erfitt með að skilja hvemig ungt fólk sem er að koma upp sínum börnum fer að því að lifa. Regína ST0LAR in: Flugbj örgunarsveitin: Fékk 6 björgunarbíla að gjöf frá Bandaríkjunum Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra afhendir, fyrir hönd íslenskra stjórn- valda, Inga Þór Þorgrímssyni, fulltrúa Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík, bíllyklana. DV-mynd Arnheiður >op - Margir litir TM - HÚSGÖGN SíSumúla 30 -Sími 568 6822 DV, Suðurnesjum: David Architzel, flotaforingi á Keflavíkurflugvelli, afhenti 10. des- ember fyrir hönd bandarískra stjórnvalda, að gjöf sex björgunar- bifreiðir til Flugbjörgunarsveitar- innar í Reykjavík. Við athöfn af því tilefni flutti Halldór Ásgrímsson ut- anríkisráðherra stutt ávarp um leið og hann veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd íslenskra stjórnvalda og af- henti hana síðan fulltrúa Flugbjörg- unarsveitarinnar í Reykjavík, Inga Þór Þorgrímssyni. Bifreiðirnar eru sex notaðir „pickup" bOar úr umframbirgðum Bandaríkjahers í Bandaríkjunum. Það var 1996 að fulltrúar Flug- björgunarsveitarinnar fóru þess á leit við utanríkisráðuneytið að það aðstoðaði sveitina við að fá búnað til mannúðarverkefna í gegnum birgðakerfi herja Atlantshafsbanda- lagsríkjanna. Fyrir milligöngu ráðuneytisins óskaði sveitin eftir bifreiðum fyrir björgunartæki og annan búnað. Undanfarið hefur síð- an verið unnið að þvi í utanríkis- ráðuneytinu og fyrir milligöngu varnarliðsins og bandaríska sendi- ráðsins náðist markmiðið og árang- ur samstarfs bandarískra og ís- lenskra stjórnvalda var afhending þessara björgunartækja til Flug- björgunarsveitarinnar. -AG Álfheimum 74

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.