Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1998, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1998, Side 12
12 MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1998 Spurriingin Hvort viltu hvít eða rauð jól? Anna María Siguröardóttir hús- móðir: Það er skemmtilegra að hafa hvít jól? Benedikt Blöndal vélamaður: Ég vil hvít jól því það er jólalegra. Jónas Sigurðsson lögreglumaður: Það er alltaf gaman að hafa hvít jól. Kristín Þöll Þórsdóttir nemi: Hvít. Þórunn Sveinsdóttir, í fæðingar- orlofi: Hvít, það er ekki spurning. Dagný Eyjólfsdóttir: Hvít. Lesendur ESB og f iskveiði- lögsaga íslendinga „Ég er ekkert viss um að stjórn fiskveiðimála okkar væri í verri farvegi hjá Evrópu- bandalaginu," segir bréfritari. - Á fiskmarkaði í Belgíu. Björn Stefánsson skrifar: Ég las nýlega ummæli ut- anríkisráðherra þar sem hann bregst við uppkveðnum dómi Hæstaréttar um kvótaumsókn einstaklings. Hann segir: „Sóknarmark án takmörkunar fjölda fiski- skipa þýðir ástand skelfingar og upplausnar." Það er vel hægt að taka undir þessi orð ráðherrans, þótt ég aðhyllist ekki þá skoðun að kvótakerf- ið okkar, sem þó hefur verið mun betra en ekkert, hafi ekki þurft nauðsynlegt oln- bogaskot frá réttum aðilum. Kannski er eitthvað til í því sem ég sá í lesendadálki DV sl. miðvikudag um „vink“ til Hæstaréttar. Það fór ekki mikið fyrir þessu i DV en þeir sem lásu þetta hafa án efa skilið hvað hér kunni að hafa verið á ferð. Sannleikurinnn er sá, að mínu mati, að við höfum sem þjóð gjörsamlega klúðrað allri stjórnun í sjávarútvegi og eig- um ekki að fá að halda áfram á sömu braut. Ég er ekkert viss um að stjórn fiskveiðimála okkar væri í verri farvegi hjá Evrópubandalag- inu. Þá væri t.d. ekki um ofsókn eða ofveiði að ræða og miklu strangara aðhaldi yrði komið á fót á fiskimið- unum hér á norðanverðu Atlants- hafi. Ég tala nú ekki um úrkast af veiddum afla, sem er ein mesta nið- urlæging okkar til afspurnar. Menn verða að gera sér grein fyrir því að það er gjörla fylgst með háttalagi okkar. Dómur hins íslenska hæsta- réttar er t.d. mikið ræddur manna á milli sem eru í sjávarútvegi í Bret- landi og öðrum Evrópuríkjum. Dómur Hæstaréttar á eftir að ýfa upp kritur og jafnvel illdeilur í sjáv- arútvegi hér sem aldrei fyrr. Búist er við endalausum málaferlum vegna óánægju með hve Alþingi ætlar að komast billega frá leiðrétt- ingu á sjávarútvegsmálunum í heild. Úr því dómur Hæstaréttar fór á þessa lund (sjálfstætt eða umbeð- ið?) lá beint við að taka við honum með þakklátum huga og taka til við lausn ágreiningsmála í eitt skipti fyrir öll. íslenskur sjávarútvegur er engan veginn jafnarðbær og hann getur verið með réttri fiskveiðistjórn. Krafan um könnunarviðræður á að- ild að ESB með viðunandi lausn á fiskveiðimálunum mun nú rísa hærra eftir þennan óvænta dóm Hæstaréttar. Og aðstæður hér á landi eiga eftir að breytast verulega eftir hæstaréttardóminn, svo mikið er víst. Nauðungaráskrift ríkissjónvarps Hafllði Helgason skrifar: Nokkuð hefur verið skrifað um nauðungaráskrift Ríkissjónvarpsins og er það þvi von mín að um það mál verði kosið í næstu alþingis- kosningum. Maður hefur fylgst með þessu sjónvarpi ríkisins þar sem sýndar hafa verið neikvæðar mynd- ir, sóða- og drápsmyndir og oft hef- ur maður orðið að skrúfa fyrir vegna hinna niðurdrepandi áhrifa sem svona myndir hafa. Og fyrir þetta allt er svo rukkað og krafist skilvísrar greiðslu. Lögfræðingar Ríkissjónvarpsins senda síðan stefnu ef ekki er staðið í skilum. Ekki myndi skirrst við að taka bílinn eða íbúðina ef því væri að skipta. Þetta er eina ríkisrekna fyrirtækið sem sýnir svona fram- komu gagnvart viðskiptavinum sín- um. Það er að vonum að margir sætta sig ekki við þessar aðfarir og vilja heldur ekki sóðaskap Sjónvarps inn á sitt heimili. Ríkinu ber að setja af- ruglara á sjónvarpstækin fyrir þá sem óska þess. Margir hafa heldur engin efni á að greiða nema fyrir eina sjónvarpsstöð en geta ekki skipt yfir vegna nauðungaráskrift- arinnar hjá RÚV. Ég hef t.d. fylgst með sjónvarpsstöðinni Omega sem býður upp á mjög jákvætt og gott efni. Margir vilja gerast áskrifendur þar en geta ekki vegna Sjónvarps- ins. Ríkið á ekki að stunda fjölmiðl- un og allra síst sjónvarpsrekstur. Ráðamenn verða að gera sér ljós mistökin nú á tímum frelsis og brotthvarfi frá haftastefnu. Dómur fellur - afsagnar vænst Breytir nýfallinn dómur Hæstaréttar kvótaréttinum, eða er ekki nóg að gert? B.J.G. skrifar Kvótinn eins og hann hefur verið settur upp er brot á mannréttind- um, því sú auðlind sem hann er og eign allra landsmanna hefur verið færð sérstökum hópi manna á silf- urfati. Það þurfti ekki dómstóla til að skilgreina að í kerfi þar sem hinn efnaði getur keypt lífsviður- væri heilla sveitarfélaga á einu bretti væri meira en lítil veila. Sérfræðingar okkar í fiskveiði- málum segja kvótann kominn til að vera. Þótt mitt álit á sérfræðingum sé að þeir séu menn sem vita meira og meira um minna og minna, verð- um við að hlusta á þá, um sinn að minnsta kosti. En að gefa nokkrum einstaklingum eða fyrirtækjum kost á því að sölsa undir sig allan kvót- ann er ekki bara vitleysa heldur stórhættulegt. Og eftir þeim fregn- um sem ég hef fengið núna á þess- um síðustu mínútum sem ég er að setja þetta á blað, þá hefur ríkis- stjórnin tapað máli fyrir Hæstarétti sem einmitt fjallar um kvótarétt einstaklinga. Mér skilst að utanríkisráðherra hafi komið í fjölmiðla og sagt að það þurfi bara að breyta stjórnar- skránni, eftir að þessi dómur féll gegn stjórnvöldum. Hvers konar siðferði er þetta? Þingmaðurinn get- ur ekki unað því að hans eigin lög standa ekki fyrir dómi. Hann er þar með ekki lengur hæfur til að standa með sínum eigin ákvörðunum, og skyldi því segja af sér - sem og reyndar allir þeir stjórnmálamenn sem hafa orðið uppvísir að því að brjóta lög á landsmönnum allan þennan tíma. - Já, dómur er fallinn og afsagnar margra er vænst hið bráðasta. Það er því sannarlega kominn timi til breytinga. Borgarstjóri og skólaliðar Nína hringdi: Mér þótti borgarstjórinn í Reykjavík nokkuð þóttafullur í garð starfsmanna í Dagsbrúnar- Framsóknar í svokallaðri skóla- liðadeilu. Hún sagði uppsögn samninga þeirra ekki löglega að- gerð og telur borgina vera í rétti gagnvart kröfum þessara starfs- manna. Þetta fmnst mér stinga í stúf við hinar víðfemu deilur starfsfólks á sjúkrahúsunum sem borgin á stóra aðild að. Ég minn- ist þess ekki að borgarstjóri hafi lýst uppsagnir hjúkrunarfræð- inga, meinatækna eða sjúkraliða ólöglegar, sem þær voru þó, því þessir starfshópar allir rufu gerða samninga og héldu sjúkrahúsun- um í klemmu vegna aðgerðanna. En það er ekki sama hvaða starfs- stéttir eiga í hlut. Hinir láglaun- uðu hjá borginni og reyndar ríki líka eiga ekki málsvara hjá for- ráðamönnum. Þeir þora hins veg- ar til við þessa hópa - ekki spít- alafræðingana. Drepa kvóta- málið sjálfir Þorgeir hringdi: Einkennilegir erum við Islend- ingar. Búnir að hamast út af kvótamálinu og gagnrýna stjóm- völd fyrh að taka ekki á málum. Loks kemur hæstaréttardómur þeim í vil sem áfrýjaði dómi um synjun á kvótaúthlutun. Og hvað gerist? Gagnrýnendur kvótakerf- isins hvetja alla landsmenn til að sækja nú um kvóta, hver sem bet- ur getur!. En hvað þýðir þetta? Einfaldlega það að þessi hópur er að skjóta sig í fótinn með ofur- kappi og græðgi. Hvaða afleiðing- ar hefði það ef allir þessir um- sækjendur fengju nú umbeðinn kvóta? Þetta er brjálæði og enn meira brjálæði verður það þegar frá liður. Allt vegna vanhugsaðra aðgerða kvótaandstæðinga sjálfra. Nettó neitað um pláss Reykvíkingur skrifar: Því miður fyrir okkur Reykvík- inga hefur KEA-Nettó verið neit- aö um að kaupa hús við höfnina sem þó hefði verið tilvalið fyrir stórmarkað eins og full þörf er fyrir í miðborginni. Við sem hér búum í nágrenni miðborgarinnar eigum ekki aðgang að neinum slíkum nema að fara langt í aust- urátt, út fyrir okkar umráða- og íbúasvæði. Ég get ekki skilið neit- un borgarinnar og þá skýringu að svona verslun faUi ekki inn í hafnarumsvif. Veit ég vel en á þessari verslun var fuU þörf og þarna hefði einmitt orðið mikil aðsókn og aUtaf eru skip 1 höfn- inni með áhöfnum sem þurfa að kaupa kost og fleira. Eða skemmtiferðaskipin með hundruð farþega. Að ógleymdum öllum íbúum miðborgarsvæðisins. Þetta var ekki skynsamlegt. Mannréttlnda- ofsóknir Eifn skrifar: Ég get aldrei skUið þegar mannréttindasinnar (sem ég styð af heilum hug I flestum greinum) fara af staö og krefjast fangelsun- ar og dóms yfir hinum og þessum sem þeir telja hafa brotiö mann- réttindi. Og of langt fmnst mér .gengið nú þegar þess er krafist að herforinginn Pinochet verði fram- seldur til Spánar eða eitthvað annað þar sem vitað er að dauða- dómur bíður hans. Auövitaö ætti að rétta yfir þessum gamla fausk en mér fmnst ekki réttlætanlegt af mannréttindasinnum aö gleöj- ast yfir væntanlegum dauðadóm- um eins og liklega yrði raunin með þá Pinochet og Suhartu í Indónesíu. Hér er um eins konai- mannréttindaofsóknir að ræða - eða á maður að kaUa þetta „of- sóknarmannréttindi"?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.