Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1998, Síða 24
24
Jólatré
englar, Jólasveinar
styttur, gjaSavörur
Frábærir lltir
Listasmiðjan
Keramikhús
SkeiSunni 3a
s. 588 2108
Fréttir
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1998
I>V
Ruglaður í fargjaldafrumskóginum:
Dyrara að fljuga suður
Ami Jóhannesson á Bíldudal varð
nokkuð undrandi á dögimum þegar
það kom í ljós að hann þurfti að
borga 1.100 krónum meira fyrir að
fljúga frá Bíldudai til Reykjavíkur en
hann þurfti síðan að borga fyrir að
fljúga frá höfuðborg til heimabæjar.
Heima á Bíldudal borgaði hann flug-
miðann 1. desember og greiddi 5.665
krónur. Þrem dögum síðar, eftir að
hafa sinnt sínum erindum í Reykja-
vík, hélt hann til aðalstöðva íslands-
flugs og greiddi fyrir 4.565 krónur,
ellefu hundruð krónum minna.
Ómar Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri íslandsflugs, segir að
ódýrari miðinn heiti „opinn og
greitt" og er miðinn þá borgaður
gegnum símann um leið og hann
bókar, til dæmis með krítarkorti.
Hinn miðinn, sá sem afgreiðslumað-
urinn á Bíldudal seldi, er fullt far-
gjald. Ástæðan fyrir þessum mun er
að fjölmargir sem eiga bókað og hafa
ekkert greitt mæta ekki. Þeir sem
eru búnir að borga eru traustsins
verðir og fá lægra gjald.
En auðvitað átti Árni og af-
greiðslumaðurinn á Bíldudal að sjá
að í stöðunni var hagstæðari kostur
og skal hans getið hér öðrum flugfar-
þegum til leiðbeiningar. Fram-og-til-
baka, Bíldudalur-Reykjavík-Bíldu-
dalur, kostar hjá íslandsflugi 7.930
krónur - sparnaður upp á 2.300 krón-
ur miðað við það sem Árni lagði
fram.
„Við viljum ekki hlunnfara far-
þegana okkar,“ sagði Ómar Bene-
diktsson í gær. -JBP
^7L) (SLANDSFLUG FLÚQMIÐI B 1.
KL 650367-1639 V»t(.nr. 11609 QHdUUmli i- )
AthUQBtftmúJr: Q(»II1
(•Bljðrður
TB B.vM*v1hur
Akurayrl KuIubuW í* ’
J Bflduúelur SauOártrrðkuf Flug rw Bnjjtlör 81K. Þyngd
eollBatBðlr WeMJOröur • 7Z( I Víz
Qjðgur Ve»im.«yJ»r í
HólmavfK <
Nr. 060697
F«rði»Wjj.
oo
FlUQv.Bkatlur:// , —-
Samtata
táé. s-
UtgAlust.
"'&L
Alor.m.
FLUGMIÐI 1.
3lldlBllml:
a i
huonrl Broltfðr Dagi. Btk( *>ynod
1W0 CUWr
; • •
Nr. 232865
Farojald:
U.VjvOC
Ftugv.skattur
Samlals kr
\t(5
USfaS
Ulgaruat. og daga.
Aigr.rn., ,
Eins og sjá má hefur farþeginn greitt rneira fyrir að fljúga suður en á því er skýring sem kemur glóðvolg úr fargjaldafrumskóginum.
Aðventa
í Heydalakirkju
DV, Breiðdalsvík:
Aðventuhátíð í Heydalakirkju
var haldin nýlega og var næstum
hvert sæti skipað að venju. Dag-
skráin var fjölbreytt og flytjendur
margir. Yngstu bömin sungu sálm
með kerti i hönd og eldri nemendur
grannskólans sungu einnig.
Þá var helgileikur og ljóðalestur
og séra Gunnlaugur Stefánsson flutti
hugleiðingu. Kirkjukórinn söng und-
ir stjórn Torvald Gjerde og Ethelwyn
Worden söng aríu úr jólaóratoríu
Bachs. Það vakti sérstaka athygli
hvað flutningurinn var góður, bæði
hjá yngri og eldri bömunum, og áttu
gestir þarna Ijúfa stund. -H.I.
Yngstu börnin syngja á aðventuhátíð.
DV-mynd Hanna
H
*Tilboö þetta gildir til loka janúar 1999 og miðast viö Dell Latitude CPi
GRENSÁSVEGI 10 • SlMI 563 3050 • BRÉFSlMI 568 71 1 5 • sala@ejs.is
TIL VINSTRI
kr. 245.900 stgr. m. vsk*
Er vinnusvæði þitt tölvan á skrifborðinu á þriðju hæð, gengið um aðaldyr
inn til vinstri, fram ganginn, inn um dyr á hægri hönd og svo þrjá metra
áfram? Og um leið og tölvan er utan seilingar, þá ertu í raun víðsfjarri
öllum þeim upplýsingum og verkefnum sem þú vilt vinna með, senda frá þér
og taka á móti?
Með öfluga fartölvu í höndunum skapar þú þér nýjar aðstæður. Þú vinnur
ekki aðeins tíma, heldur vinnur þú þar sem þér hentar og þegar þér hentar.
Fartölva veitir þér frið til að hugsa og frelsi til að framkvæma.
Aukin framleiðni og ánægja koma síðan af sjálfu sér.
Einn af hornsteinum gæðakerfis EJS er að velja aðeins til samstarfs
birgja sem uppfylla þarfir kröfuhörðustu notenda upplýsingatækninnar.
EJS býður þér upp á fartölvur frá DELL og AST sem allar eru framúrskarandi
á sínu sviði. EJS býður öllum viðskiptavinum sínum upp á fyrsta flokks
þjónustu; leiðbeiningar við val á tölvu og fylgihlutum, sveigjanlega
greiðsluskilmála og örugga og hraða viðhaldsþjónustu.
TILBOÐ:
• Intel 266MHz Pentium II örgjörvi
• 64 MB minni
• 4GB diskur
• Móðurborð með Intel 440BX kubbasetti
• 13,3" XGA skjár
• 16 bita hljóðkort og hátalarar
• 20X geisladrif
• Windows 98
• 3ja ára ábyrgð á varahlutum
T