Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1998, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1998, Síða 44
52 MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1998 J3"V nn Ummæli :i sama fram- hlið og bakhlið „Mér dettur í hug Austur- Þýskaland á tímum kommúnista. Það land er vel við hæfi þegar ríkisstjórn Daviðs Oddssonar er annars vegar. Á sín- um tíma reyndu þeir að halda sæmOegu útliti á framhliðum húsa sinna. Ef kíkt var hins vegar í bak- garðana þá kom allt annað í ljós. Það er það sama héma.“ Sigurður T. Sigurðsson, form. Hlífar, í Degi. Fjörutíu ára íþróttakappi „Hann er nær fjörutíu ára gamall. hann er enn aö spiia handbolta í 1. deild og þjálfar einnig lið sitt. Hann leikur hand- knattleik svo allir hrífast með. Hann er hrókur alls fagnaðar innnan vallar sem utan. Er ekki kominn tími til að velja Sigga Sveins íþróttamann ársins?“ Gunnar Sverrisson, (Degi. í Of hratt af stað farið „Mér finnst það vera dálítil til- hneiging hjá Islendingum að hífa fólk of hratt upp í strætisvagna sem það er ekki tilbúið að sitja í. Það var gert við mig í byrjun og í rauninni var það mikið áfall að koma út og þurfa virki- lega að fara að taka þátt í raunhæfri samkeppni." Gunnar Guðbjörnsson óperu- söngvari, í Morgunblaðinu. f Líkklæði með vasa „Ég hef aldrei séð líkklæði með vösum fyrir peninga en hins veg- ar allt of oft orðið vitni að því að margur verður af aurum api.“ Garðar Björgvinsson sjómaður, iDV. I Mikil vinna skilar árangri „Ég hef alltaf sagt að það er sama hvort maður er knatt- spyrnumaður á Ítalíu eða í Færeyjum, lög- málið er alltaf hið sama - að leggja | mikið á sig til að ná árangri" Arnór Guðjohnsen knattspyrnukappi, í Morgunblaðinu. t. i Fólk í fyrirrúmi í vor? „Amþór Helgason sá ástæðu til að minna framsóknarmenn á flokksþingi á slagorðið frá sið- ustu kosningum sem þeir höfðu gleymt: Fólk í fyrirrúmi. Gott hjá honum, en vont fyrir Framsókn því nú geta þeir ekki notað það aftur á næsta vori.‘ Guðmundur Bergsson, í blaðinu. ekki notað það I gsson, í Morgun- í Rúnar Júlíusson Keflavíkurpoppari: Maður kemst ekki langt á leiðindum DV, Suðurnesjum: Rúnar Júlíusson er einn af þekkt- ustu popptónlistarmönnum þjóðar- innar og nú eru liðin nákvæmlega 35 ár síðan hann hóf tónlistarferil sinn og hann er enn að og hvergi nærri hættur því nýlega gaf hann út geisladiskinn, Farandsskugginn, sem hann hefur undanfarið verið að kynna. Keflavík hefur allt frá dögum Hljóma og Trúbrots alið af sér fjöld- ann allan af frábæru tónlistarfólki enda bærinn oft ver- ------- ÍLSIiZS Maður dagsins stendur hann fylli- lega undir nafni. Rúnar segir erfitt að nefna eitt- hvað eitt tímabil sem sé eftirminni- legra á ferlinum. „Þetta hefur oftast verið þvílíkt skemmtilegt enda er þetta nú einu sinni skemmtana- bransinn sem ég lifi og hrærist í og ég held að maður komist frekar stutt á leiðindunum. Ég hef nefni- lega alltaf hugsað mér að ná langt og er ekki enn búinn að átta mig á því hversu langt ég ætla að ná. Það skýrist vonandi fljótlega." Rúnar er Keflvík- ingur í húð og hár „Ég hef mjög sjaldan tekið mér frí frá tónlistarstörfunum ef frá er tal- inn stuttur tími vegna veikinda fyr- ir nokkrum árum og nú í október voru 35 ár liðin frá því ég byrjaði að starfa við tónlist," sagði Rúnar. Hann hefur verið afkastamikill og það eru hátt i 200 plötur og diskar sem hann hefur komið að með ein- um eða öðrum hætti. „Ég var þá með ýmsum hljóm- sveitum eins og Hljómum, Trúbrot, Lonlí Blue boys, Áhöfninni á Hala- stjörnunni og síðar var það Geim- steinn, CCÐ og Bubbi og Rúnar. Sið- an eru sólóplöturnar sjö. En það var árið 1974 sem ég stofnaði ásamt Gunnari Þórðarsyni Hljómaútgáf- una og síðan 1976 útgáfuna Geim- stein ehf. Það eru í kringum 100 hljómplötur sem hafa verið gefnar út af þessum útgáfum svo það er af nógu að taka. Á neðri hæð húss míns er upptökuheimili Geimsteins ehf. sem er nokkuð vel tækjum búið stúdíó sem ég nota mikið fyrir út- gáfuna og ýmislegt fleira, leigi það út og lána vel völdu fólki í hin ýmsu verkefni." og athygli vakti andstaða hans við hina nýju nafngift bæjarfélagsins, Reykjanesbær. „Ég sætti mig aldrei við mistök og nafnamálin voru klaufalega óhugs- uð mistök með stór- um staf, en ég sef alveg sallarólegur fyrir þessu núna. Mér þótti þetta alltaf einhver fá- raniBlKa-líIaiS sem var ekki í neinum takt við vilja og hugmyndir fólksins sem byggir þennan blett á jarð- arkringlunni." Rúnar segir áhugamál sín vera lestur góðra bóka og tímarita og útivera. „Ég hef gaman af að rækta garðinn minn og minna og eiga samræður í góðra vina hópi en fjöl- skyldan er í fyrirrúmi. Rúnar hefur búið með Mariu Baldursdóttur í 35 ár. María er söngkona og saman hafa þau sungið í hljómsveitum. Þau eiga tvo syni, Baldur Þóri, sem er viðskiptafræð- ingur hjá Sparisjóði Keflavíkur, og Júlíus Frey, sem er útsendingar- stjóri hjá RÚV, en hann hefur fetað í fótspor föður síns og nýverið gefið út sina fyrstu hljómplötu sem ber heitið Gálan. „Síðan á ég fimm barnabörn þannig að mér finnst ég vera í spikfeitum málum og mjög lánsamur með mína fjölskyldu og mitt líf,“ sagði Rúnar að lokum. -A.G. DV-mynd A.G. Léttir hádegistónleikar Hjá Sævari Karli er nú svartur flygill sem verður í búðinni fram að jólum. Til- gangurinn er að bjóða upp á lif- andi tónlist í há- deginu kl. 12-13 alla daga og kl. 17-18. Laugardag- inn 19. des verður lifandi tónlist frá kl. 14-17. Það eru feðgarnir Jónas Þórir og Jónas Dag- bjartsson ásamt____________ bassaleikaranum Gunnari Hrafnssyni sem leika jólalögin í léttum djasstíl. Jónas Þórir. tekts, Alvars Aaltos, en í ár er þess minnst að hundrað ár eru frá fæðingu hans. Göran Schildt, sem er einn þekktasti núlifandi rithöfundur Finna og var vinur Alvars Aaltos, hefur m.a. skrifað högurra binda verk um ævi hans og störf. Fjórða bindið kom út á þessu ári. Fyrirlesturinn sem verður haldinn í Norræna húsinu verður fluttur á sænsku. Auk fyrirlestrarins eru sýningar á verkum Alvars Aalto -------------------og annarra finnskra Samkomur arkltekt?1 ___________________solum Norræna huss- ins og lýkur þeim Myndgátan Alvar Aalto í dag kl. 17.15 mun heim- spekingurinn og rithöfundur- inn Göran Schildt halda fyrir- lestur um ævi og störf hins heimsþekkta finnska arki- sunnudaginn 20. desember. Félag eldri borgara í Reykjavík Björn Th Björnsson kemur í heimsókn í Þorrasel kl. 15 og les upp úr bók sinni, Brotasaga. f. í I f Sigurður Bragason og Vovka Ash- kenazy. Norrænir og rússneskir songvar Tónleikar verða haldnir í Nor- ræna húsinu i kvöld kl. 20.30. Það eru þeir Sigurður Bragason barít- on og píanóleikarinn Vovka Ash- kenazy sem halda tónleikana og er dagskráin byggð upp á norræn- um og rússneskum söngvum. Sig- urður Bragason er kunnur barít- on sem hefur sungið hér heima og mikið erlendis. Hafa hann og Vo- vka verið í samstarfi um tíma. Skemmst er aö minnast komu Vo- vka til landsins þegar hann lék með bróður sínum á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands. Tónleikar Jólabarokk I kvöld verður hið árlega Jóla- barokk í Digraneskirkju. Flytjend- ur eru Camilla Söderberg og Ragnheiður Haraldsdóttir sem leika á blokkflautur, Guðrún Birg- isdóttir og Martial Nardeau leika á barokkflautm-, Snorri Örn Snorrason á teorba, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir á viola de gamba og Elín Guðmundsdóttir á sembal. Flutt verða verk eftir Boismortier, Loeillet, de Visée og Teleman. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Bridge Óhætt er að segja að spil dagsins sé hreinræktuð perla. Það kom fyr- ir í sveitakeppnisleik í Danmörku. Sagnhafi var H.K. Sörensen en hann náði í þessu spili bæði svokallaðri „intrasvíningu" og endaspilun. Sagnir gengu þannig, austur gjafari og AV á hættu: » DG8 *> ÁK103 ♦ Á96 ♦ G105 * K106 V 94 * KD7 * ÁD963 N ♦ A743 * G765 ♦ 105 * K82 * 952 * D82 * G8432 * 74 Austur Suður Vestur Norður Steen H.K.S. Godtfr. Pabst pass pass 1 grand dobl pass 2 ♦ p/h Ótíndur glæpamaður Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. Grandopnun Godtfredsen í vestur lofaði 12-14 punktum og dobl norð- urs var tillaga um refsingu. H.K. Sörensen var lítið hrifinn af því að freista gæfunnar í þessum samningi og fékk að eiga 2 tígla. Út- spil vesturs var laufás, síðan kom lauf á kónginn og lauf sem Sörensen trompaði heima. Sagnhafi spilaði næst hjarta á kóng og tígli á áttuna. Vestur drap á drottningu og spilaði hjarta. Sörensen hleypti hjartanu heima á drottningu og lagði af stað með tígulgosa. Vestur lagði kónginn á og ásinn í blindum felldi tíu aust- urs. Sörensen tók síðasta trompið með níunni en var nú klemmdur inni í blindum. Hann ákvað að spila sig út á spaðadrottningu. Vestur fékk slaginn á kónginn, vildi ógjama gefa sagnhafa fría svíningu í spaða og spilaði þess vega laufí. Blindur henti spaða, austur sömu- leiðis en sagnhafi trompaði heima. Hann spilaði nú einfaldlega spaða, austur fékk á ásinn en varð að spila frá G7 í hjarta upp í K10 í blindum. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.