Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1999, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1999, Page 11
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1999 11 Léttu þér með frjálsum viðbótarlífeyrissparnaði Ný lög - ný tækiíæri Efnahagsleg velferð einstaklingsins og heilbrigður ríkisbúskapur eru greinar af sama meiði. Frjáls viðbótar- lífeyrissparnaður er einn þáttur í þeirri stefnu ríkis- stjórnarinnar að treysta forsendur áframhaldandi hagsældar. Með nýjum lögum um tekjuskatt og lífeyris- sparnað, sem tóku gildi 1. janúar 1999, er einstaklingum heimilað að verja 2% viðbótar- iðgjaldi af launum í frjálsan lífeyrissparnað og draga þá fjárhæð frá skattskyldum tekjum. Bem siaoa m stanEioi Með hækkandi meðalaldri fólks og batnandi heilsufari er mikilvægt að tryggja fjárhagslega afkomu eftir að launaðri vinnu er hætt. Markviss sparnaður og sjóðsöfnun á starfsævinni þjóna því markmiði betur en nokkuð annað. Viðbótarlífeyrissparnaður opnar möguleika fyrir sveigjanlegri starfslokum en nú tíðkast, því hann er til frjálsrar ráðstöfunar eftir að 60-67 ára aldri er náð. tvt séreign Frjálsum viðbótarlífeyrissparnaði er hægt að ráð- stafa til séreignar eða samtryggingar eftir því sem hverjum og einum hentar. Við fráfall rétthafa fellur innstæða á séreignarreikningi til erfingja eftir reglum erfðalaga. Þú velur vörsiuaðiia Sá sem tekur þátt í frjálsum viðbótarlífeyrissparn- aði velur sjálfur þann aðila sem hann vill að varð- veiti og ávaxti sparnaðinn. Viðurkenndir vörsluaðilar geta verið lífeyrissjóðir, líftryggingafélög, sparisjóðir, verðbréfafyrirtæki og viðskiptabankar. Þjónusta Sérhver launamaður getur falið vinnuveitanda sínum að draga viðbótariðgjaldið frá útborguðum launum og færa til þess vörsluaðila sem hann kýs. 10% mótCramlag úr iðössjóði Á móti frjálsum lífeyrissparnaði þínum kemur 10% framlag úr ríkissjóði. Launagreiðandi greiðir þetta mótframlag samtímis sparnaðinum inn á reikn- ing launamannsins. Skattalegt hagraeði Frádráttur 2% viðbótariðgjalds frá skattskyldum tekjum er háður því að iðgjaldinu sé varið til aukning- ar lífeyrisréttinda og að iðgjöld séu greidd reglulega. Ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur af þeim vöxt- um sem menn ávinna sér og eignin sem myndast er eignarskattsfrjáls. Léttu þér líisMaupið — vcrtu mcð firá byijun! Allar nánari upplýsingar um viðbótarlífeyrissparnað veita: VœSKIPMBANICAR UBPPBBfatfVIHM1 ÉCtrt VCIBSHtunr itttlunM Fj ármá) aráðaneytið SPAKBJÓBOt LÍFTh¥GGIIÍGAFÉLÖG LÍFEyBBSJÖBOt YDDA/Sf A

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.