Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1999, Side 33
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1998
SJÖNVARPSMIÐSTÖÐIN HF
Jólamyndagáta og jólakrossgáta DV:
Glæsileg verðlaun
Fjölmargir sendu inn svör sín
við jólagátum DV að þessu sinni.
Eins og með svo margt þá eru
margir kallaðir en fáir útvaldir.
Eftirtaldir duttu í lukkupottinn
og óskum við þeim hjartanlega
til hamingju.
Jólamyndagáta:
1. verðlaun: Hallfríður Bene-
diktsdóttir, Lækjarkinn 22, 220
Hafnarfirði.
Hún hlýtm- aö launum Akai
hljómtæki frá Sjónvarpsmiðstöð-
inni í Síðumúla að verðmæti kr.
24.900.
2. verðlaun: Hafsteinn Hans-
son, Hrísateigi 9,105 Reykjavík.
Hann hlýtur að launum Akai
feröatæki með geislaspilara frá
Sjónvarpsmiðstöðinni í Síðu-
múla að verðmæti kr. 12.900.
Lausnin var: Á innlendum
fréttavangi líðandi árs hafa
verið margvísleg mál ofarlega
á baugi, samanber gagna-
grunnsmál og veiðistjóm.
Jólakrossgáta:
1. verðlaim: Sigurður Bogason,
Kóngsbakka 6,109 Reykjavik.
Hann hlýtur að launum þriggja
diska Aiwa hljómtæki frá Radíóbæ
í Ármúla að verðmæti kr. 29.900.
2. verðlaun: Fríða Eriðriksdótt-
ir, Bústaðavegi 77,108 Reykjavík.
Hún hlýtur að iaunum Aiwa
sportvasadiskó frá Radíóbæ í Ár-
múla að verðmæti kr. 12.980.
Lausnin var:
Láttu skína sóft sinni,
syngdu vonar lag.
Hafðu tak á tungu þinni,
trúðu á góðan dag.
DV þakkar þeim fjölmörgu
sem sendu inn lausnir kœrlega
fyrir þátttökuna. Verðlaunum
verður komið til skila vió
fyrsta tœkifœri.
B
Ármúli 38 - Sími 553 1133
0riðsljó$ 4i
■$r ^r
Ellen og Anne Heche:
Út úr skápnum
og inn í San
Francisco
Lífið hefur ekki verið dans á rós-
um hjá Ellen Degeneres og Anne
Heche eftir að þær opinberuðu sam-
band sitt og komu út úr skápnum.
Þær hafa orðið fyrir miklu áreiti,
ekki hvað síst frá kvikmyndaiðn-
jöfrum. Anne heldur því fréun að
hún sé á svörtum lista hjá Rupert
Murdoch sem á Fox-kvik-
myndafyrirtækið. Fyrirtækið
hefur haldið því fram að slakt
gengi myndarinnar Volcano
sé henni að kenna. Anne seg-
ist hafa sínar skoðanir á þvl:
„Hver einasti maður með
hálfa hugsun sér hver ástæð-
an er og að þeir vilja bara
skella skuldinni á mig,“ segir
Anne.
Þær stöllur halda því einnig
fram að samkynhneigðir
stjórnendur í Hollywood hafi
lagt stein í götu þeirra. Til að
mótmæla þessu hafa þær sagt
umboðsmönnum sínum upp og ætla
að yfirgefa Hollywood og flytja til
San Francisco.
Pierce Brosnan
og Liam Neeson:
Ber er hver að
baki nema
Bond sér eigi
Hvor yrði betri Bond, Liam
Neeson eöa Pierce Brosnan? Það
gæti farið
svo að
hægt yrði
að bera þá
saman
hlið við
hlið. Af
hverju?
Jú, tveir
framleið-
endur
vilja gera
Bond-
mynd og
eru famir
að hugsa
um leik-
ara í hlut-
verk 007.
Pierce
Brosnan
verður í næstu „alvöru“mynd en
Sony er að berjast fyrir því í réttar-
sölum að fá að gera eigin Bond-
mynd sem mennimir á bak við
Independence Day eiga að gera.
Sony-menn vilja Liam Neeson i
hlutverk James Bond. Aðstandend-
ur Liams segja að enn hafí ekki ver-
ið rætt við hann. í Sony-myndinni
kemur Sean Connery til með að
leika Blofeld þannig að hann gæti
kannski leiðbeint Liam örlítið við
persónusköpunina.
MIÐAR I LEIKHUSIÐ
Notfærðu þér 800 númerin, gjaldfrjáls þjónustunúmer fyrirtækja,
stofnana os féíaeasamtaka.
Spennaridi námskeið
fyrir börn framtíðariaaar
Nú eru að hefjast spennandi og fróðleg námskeið í skóla Framtíðarbarna sem er tölvuskóli fýrir börn og unglinga á aldrinum
5 -14 ára. Hringdu strax í dag og gefðu barninu forskot á framtíðina.
Námskeið Framtíðarbarna, jan. - maí 1999
1. íþróttir
Til að undirbúa sérstakan íþróttaviðburð útbúa nemendur dagskrá yfir keppnisgreinar, búa til boðskort og auglýsingar til að draga að áhorfendur, útbúa
möppur fyrir fjölmiðla, upplýsingablöð, minjagripi og ýmislegt annað.
Hugbúnaðurfyriryngri nemendur: Print Artist (umbrotsforrrit).
Hugbúnaðurfyrir eldri nemendur: Microsoft Publisher (umbrotsforrrit) og Intemet Explorer (vefskoðari).
2. Vistfrdeði
Nemendur leggja sitt af mörkum til að bæta Mfsskilyrði á jörðu. Þeir nota töflureikni til að fylgjast með fjölgun dýrategunda í útrýmingarhættu,
búa til Utrik línurit sem sýna hve mikinn mat og orku fólk notar og spá um heilbrigði vistkerfis jarðarinnar í framtíðinni.
Hugbúnaðuryngri nemenda: Cruncher (töflureiknir) og Kid Pix Studio.
Hugbúnaður eldri nemenda: Microsoft Excel (töflureiknir), Microsoft Word og Intemet Explorer (vefskoðari).
3. Akvörðunarstaðir
Til að skrá ævintýraferðir sínar til spennandi ákvörðunarstaða á borð við virk eldfjöll, brennheitar eyðimerkur, gegnblauta
. regnskóga, hyldýpismyrkur úthafsins og fjarlægar plánetur, setja bömin saman fræðslukynningar og heimildarkvikmyndir.
Hugbúnaðuryngri nemenda: Kid Pix Studio (myndvinnsia og margmiðlun) og Storybook Weaver (sögugerð og margmiðlun).
Hugbúnaður eldri nemenda: Microsoft Powerpoint (margmiðlunarforrit) og Intemet Explorer (vefskoðari).
Hringdu strax í dag. Síminn er 553 3322
* Tilboðsverð gildir fyrir alla klúbbfélaga Landsbanka íslands og áskrifendur Símans Intemet. Miðað er við 5 mánaða námskeið.
SÍMINNinternet^ IS
FRAMTÍÐARBÖRN
simi 553 3322