Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Fasteignir til sölu í Stykkishólmi:
Yfir 50 húseignir á sólu
Um 50 íbúðir eru á söluskrá í
Stykkishólmi. Pétur Kristinsson,
fasteignasali hjá Fasteignasölu Snæ-
fellsness, staðfesti þetta í samtali
við DV. Hann sagði að ekkert væri
óeðlilegt við þennan fjölda ibúa á
skrá sem sé hlutfallslega sambæri-
legt því sem gerist á höfuðborgar-
svæðinu. Alls eru um 400 hús í
Stykkishólmi þannig að um er að
ræða 12 prósent allra fasteigna í
bænum. Pétur segist selja á bilinu
20-30 til íbúðir árlega og sér sé ekki
kunnugt um nema 10 fjölskyldur
sem séu á fórum úr bænum. Svo
flytjist auðvitað fólk á staðinn.
Ólafur Hilmar Sverrisson, bæjar-
stjóri i Stykkishólmi, segir ekki
vera um að ræða fólksflótta úr bæn-
um. Jafnvægi hafi verið í atvinnu-
lífinu og engin slík vandamál að
fólk þurfi að leggja á flótta á höfuð-
borgarsvæðið.
„Það hefur verið jafnvægi hér.
Ef okkur tekst að nýta þá mögu-
leika sem gefast í framtíðinni þá er
okkur borgið. Á tíu ára tímabili
hefur verið stöðugleiki hér og að-
eins 1 prósent fækkun, þótt auðvit-
að hafi menn viljað sjá hér fjölg-
un,“ segir hann.
Ólafur Hilmar neitar ekki að
neikvæð umræða sé í bænum varð-
andi áframhaldandi búsetu.
„Ég skynja umræðuna en ég
held að það sé enginn fótur fyrir
henni. Það eru ákveðnir aðilar sem
maður getur ekki fest hendur á og
koma ekki upp á yfirborðið sem
halda henni gangandi. Það eru til
aðilar í hópi héimamanna sem eru
óánægðir yfir því að hér gengur
vel og hér standi yfir stórfram-
kvæmdir," segir Ólafur Hilmar.
Hann segir eina skuggann vera
þann að rækjan sé hætt að veiðast.
Slíkt haíi sálræn áhrif á fólk.
-rt
Breytingar á
málefnum
hálendisins
Finnur Ingólfsson
Ráðherrabústaðn-
um í gær.
DV-mynd Teitur
Ríkisstjórnin hefur gefið út
kynningarrit um málefni hálendis-
ins. Fjórir ráðherrar, sem allir
koma sérstaklega að málefnum há-
lendisins,
kynntu þetta rit
og þær breyt-
ingar sem
verða á málefn-
um hálendisins
í Ráðherrabú-
staðnum í gær.
Þetta voru Dav-
íð Oddsson, Páll
Pétursson, Guð-
mundur
Bjarnason og
Finnur Ingólfs-
son. Þrjú frum-
vörp voru lögð
fram á síðasta löggjafarþingi þar
sem málefni hálendisins voru í fyr-
irrúmi og voru þau öll samþykkt.
Á sl. fimm árum hefur einnig ver-
ið unnið nýtt svæðisskipulag fyrir
miðhálendið og að auki hefur ver-
ið unnið að mótun fleiri laga. Finn-
ur Ingólfsson, viðskipta- og iðnað-
arráðherra, sagði að sú nýbreytni
verði tekin upp að 50 milljónir
renni nú ár hvert í sk. orkusjóð
sem ætlaður er til rannsókna á
umhverfismati við hugsanlega
virkjunarstaði. Áður hefur þessi
upphæð oltið á afkomu ríkissjóðs
en nú verði hún ávallt fengin úr
orkusjóði. Þá mun Landsvirkjun
greiða til baka þá peninga sem far-
ið hafa í umhverfismat vegna
virkjanaframkvæmda við Fljóts-
dalsvirkjun, samtais 350 milljónir
sem greiðast á fimm árum. Davíð
Oddsson forsætisráðherra sagði að
lögin, sem samþykkt hafa verið,
séu umfangsmikil og muni eyða
lagaóvissu sem ríkt hefur vegna
þessara mála. -hb
Steingrímur Hermannsson, formaður umhverfissamtakanna, á tali við náttúrubörnin Bubba Morthens og Ómar
Ragnarsson á stofnfundi samtakanna í gær. DV-mynd Hilmar Þór
Steingrímur formaöur umhverfissamtaka:
Lífsgæöin í náttúrunni
Á annað hundrað manns gekk til
liðs við Umhverfissamtök íslands
þegar þau voru stofnuð í Norræna
húsinu í gær. Markmið samtakanna
er að vinna að umhverfismálum í
víðasta skilningi og vemda lífsgæð-
in í náttúrunni. Steingrímur Her-
mannsson var kjörinn formaður
samtakanna og Vigdís Finnboga-
dóttir heiðursforseti. Meðal annarra
forvigismanna má nefna Gunnar G.
Schram prófessor, Júlíus Sólnes,
fyrrverandi umhverfisráðherra, og
Óskar Magnússon, stjómarformann
Hagkaups. -EER
Athafnamaðurinn Jón Ólafsson gerir kaupsamning við eigendur „Garðabæjarkvosar“:
Arnarneslandið selt á 680 milljónir
- liðlega tveir tugir systkinabarna skipta söluverðinu með sér
Jón Ólafsson, kaupsýslu- og at-
hafnamaður, hefur gengið frá 680
milljóna króna kaupsamningi við
eigendur svokallaðs Arnarnes-
lands í Garðabæ. Samningavið-
ræður hafa staðið yflr á síðustu
sólarhringum. Gera má ráð fyrir
að þessi tíöindi þýði miklar breyt-
ingar fyrir Garðabæ þar sem
óvissa hefur ríkt um framkvæmd-
ir á svæðinu um langa hríð - á
meðan landeigendur og bærinn
hafa ekki náð samkomulagi um
kaup og sölu.
Hér er um mjög verðmætt bygg-
ingarland að ræða, í raun í kvos
Garðabæjar, alls um 44 hektarar.
Landið er að hluta til á deiliskipu-
lagi þar sem gert er ráð fyrir bygg-
ingarlóðum. Hluti landsins býður
hins vegar upp á ýmsa möguleika,
s.s. útivistarsvæði eða byggingar
þar sem hægt verður að bjóða upp
á afþreyingu fyrir almenning með
einum eða öðrum hætti.
Miðað við markaðsverð lands-
ins, sem vissulega er á mjög eftir-
sóttum stað á höfuðborgarsvæð-
inu, þarf kaupverðið í sjálfu sér
ekki að koma á óvart. Athygli vek-
ur hins vegar að verðið er um 400
milljónum króna hærra en það var
metið á þegar Garðabær hugðist
taka landið eignarnámi. Eigend-
urnir mátu stöðuna svo að landið
væri miklum mun verðmeira en
bærinn vildi greiða fyrir það.
Svokölluð eignarnámsbótanefnd
mat landið tæpar 200 milljónir
króna á sínum tíma. Héraðsdómur
gekk í málinu bænum í hag en eig-
endur áfrýjuðu til Hæstaréttar.
Þar var dómnum hnekkt. Eigend-
ur landsins eru því nú á vissan
hátt búnir að ná fram rétti sínum.
Eigendur landsins, áður en það
var selt, voru liðlega tveir tugir
systkinabarna, allt börn fimm
systkina en þrjú þeirra eru á lífi. I
fréttatilkynningu frá Jóni Ólafs-
syni segir að Arnarneslandið
henti sérlega vel til íbúðabyggðar
_ sala á lóðum hefjist á næstunni.
-Ótt
Dýr yfirstjórn
Ólafur F.
Magnússon, borg-
arfulltrúi D-list-
ans, sagði á borg-
arstjómarfúndi í
gær að kostnaður
vegna yfirstjórn-
ar borgarinnar
hefði aukist um
62 prósent á fimm árum. Helgi
Hjörvar sagði ekkert óeðlilegt við
aukinn kostnað, benti á að rekstrar-
kostnaður Sambands sveitarfélaga
hefði tvöfaldast á sl. tveimur árum.
Stóriðja við Akureyri
Rafveitan á Akureyri hefúr á sið-
astliðnu ári eða svo átt í viðræðum
við erlenda aðila um möguleika á að
staðsetja raforkufrekar verksmiðjur
við Akureyri. Svanbjöm Sigurðsson
rafveitustjóri segir frá þessu í sér-
stöku minnisblaði, sem Dagur hefur
undir höndum.
Stolnir GSM-símar
Samstarf hefur tekist með lögregl-
unni i Reykjavík og Landssimanum og
Tali hf., sem gerii' stolna GSM-síma að
verðlausum og gagnslausum vamingi.
Aðgerðin felst í að loka svokölluðu
IMEI-númeri. Mbl. sagði frá.
Öryrkjar stefna
Öryrkjabandalag íslands hefur stefnt
Tryggingastofnun ríkisins vegna reglu-
gerðar um skerðingu bóta vegna tekna
maka. Málið var þingfest fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur í dag.
Mistök bætt
Hæstiréttur hefur dæmt ríkið tU
að greiða Lífeyrissjóði verslunar-
manna 2,2 miiljónir króna, auk
dráttarvaxta, vegna mistaka sem
áttu sér stað hjá sýslumanninum í
Kópavogi í júlí 1991, er vanrækt var
að fáera skuldabréf í eigu Lands-
banka íslands að fjárhæð 2,9 miUjón-
ir í þinglýsingabók.
Ekki óbreytt
Davíð Odds-
son forsætisráð-
herra segir úti-
lokað að sam-
þykkja óbreytt
frumvarp tU
nýrra laga um
mat á umhverfis-
áhrUúm sem er
tU umfjöUunar í rikisstjóm.
Endurgreiði gjöld
Bæjarráð Hafnarfjarðai- ákvað á
fundi sínum í gær að kregast þess
að borgarstjóm Reykjavíkur hefði
fhimkvæði að því að leiðrétta oftek-
in hitaveitugjöld á íbúa Hafnarfjarð-
ar og endurgreiða notendum heits
vatns í bænum samkvæmt því.
Forstjóraskipti
Þór Sigþórsson hefur látið af starfi
sínu sem forstjóri LyUaverslunar ís-
lands. Frá og með deginum í dag tek-
ur Sturla Geirsson við forstjórastarf-
mu. Sturla er 39 ára viðskiptafræð-
ingur og hefur starfað síðasUiðin
fimm ár hjá Lyfjaversluninni.
Fengu jóiamat
841 umsókn um mataraðstoð var
afgreidd fyrir jólin á vegum Hjálpar-
starfs kirkjunnar. Aðstoðin var veitt
í samvinnu við Reykjavikurdeild
Rauða kross íslands sem lagði fram
800.000 kr. til verkefnisins og útveg-
aði sjálíboðaliða. Matarbúr var á
Akureyri og vom afgreiddar 45 um-
sóknir þaðan með stuðningi Akur-
eyrardeildar RKÍ og fyrirtækja
nyrðra.
Leika meö Björk
Líkur em á að
stórleikaramir
Catherine
Deneuve og Stell-
an Skarsgárd
leiki á móti
Björk Guð-
mundsdóttur í
myndinni Dans-
ari í myrkrinu eða „Dancer in the
Dark“ sem gerð verður af danska
leikstjóranum Lars von Trier. Mbl.
sagði frá.
Áfram í Björgvin
Bergljót Jónsdóttir hefur endur-
nýjað samning sinn við Menningar-
hátiðina í Björgvin en hún hefúr
verið stjómandi hennar síðastliðin
fjögur ár. Mbl. greindi frá. -hlh