Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1999, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999
43
DV
Mettryggð hjá
Júlíu Roberts
Samband Júlíu Roberts og
kærasta hennar, Benjamins
Bratts, er um það bil að slá met.
Frá því i nóvember 1997 hefur
Júlía verið gagntekin af Benja-
min. Benda menn á að hún hafi
líklega aldrei verið jafiilengi í
sambandi. Hjónaband Júlíu og
Lyle Lovetts stóð stutt og sam-
band hennar og kærastans, Ki-
efers Sutherlands, slitrótt. Benja-
min er enn í náðinni og leikkon-
an eys yfir hann gjöfúm.
Paul McCartney
öskureiður
Paul McCartney er æfur yfir
því að sjónvarps- og útvarpsstöðv-
ar í Englandi hafa bannað flutn-
ing á nýrri plötu með laginu The
Light Comes ffom within. Lagið
tók Paul upp meö eiginkonu
sinni, Lindu, áður en hún lést í
fyrra. í textanum eru dónaleg orð
og útvarpsmenn vilja ekki að lítil
böm hlusti á þau. Paul sakar
mennina um tvöfeldni því sjáifir
noti þáttagerðarmenn þessi orð.
Cher er orðin
leið á einlífinu
Söngkonan Cher, sem er oröin
52 ára og hefur verið jafnþekkt
fyrir ástarævintýri sín eins og
söngferilinn, er orðin leið á að lifa
ein. Þrátt fyrir öll samböndin hef-
ur aldrei orðið þreytt á að deila
lífinu með karlmönnum. „Égþarf
engan til að sjá fyrir mér. Ég vil
bara einhvem sem er húmoristi,
hjartahlýr, tilfinninganæmur og
skapandi."
Svið sljós
Annar vildi en hinn fékk:
Fiennes-bræður keppa
um hyllina í Holly wood
Ralph Fiennes hugsar áreiðanlega
litla bróður sínum þegjandi þörfina.
Breski stórleikarinn missti hlutverk
sem hann girntist mjög í hendur bróð-
urins, Josephs, og nú er Joseph á
góðri leið með að verða eftirsóttasti
leikarinn í glimmerborginni
Hollywood. Sérfræðingar eru jafnvel
famir að spá piltinum óskarsverð-
launum.
Hlutverkið sem var svona spenn-
andi er að sjálfsögðu hlutverk stór-
skáldsins Williams Shakespeares í
myndinni Shakespeare in Love sem er
að gera allt vitlaust vestanhafs þessa
dagana.
Hinn kynþokkafulli Ralph reyndi
hvað hann gat til að krækja í hlut-
verkið. Honum veitir nefnilega ekki
af einhverju bitastæðu til að bæta upp
fyrir klúðimnyndma The Avengers joeph Fiennes og Gwyneth Paltrow þykja sýna afburðaleik í hinni rómuðu
sem þótti einhver versta mynd síðasta kvikmynd um ástfanginn Shakespeare, leikskáldið mikla.
árs, að minnsta kosti í hópi þeirra
sem einhverjar vonir vora bundnar
við.
Ralph fór í leikprufu á móti hinni
munnstóra Juliu Roberts sem átti að
leika aðalkvenhlutverkið. Juliu leist
hins vegar ekkert á kauða og klásúla
í samningi hennar gaf henni leyfi til
að hafna mótleikara sínum svo fara
varð að kröfum hennar.
Svo fór að lokum að breska leikkon-
an Gwyneth Paltrow var fengin til að
fara með aðalkvenhlutverkið í stað
Juliu. Bæði hún og John Madden, nýi
leikstjórinn sem var fenginn til að
stýra herlegheitunum, vildu fá Jos-
eph. Það varð því úr, þótt piltur væri
engin stórstjarna.
Talið er að allt þetta havarí muni
hafa áhrif á samband bræðranna til
hins verra. Ralph var alltaf mjög
hjálplegur en ekki er víst að svo verði
Bandaríska leikkonan Angelina Jolie mætti glaðbeitt tll Golden Globe-verðlaunaafhendingarinnar í Hollywood um
helgina. Svo fór að hún var valin besta leikkonan í stuttri sjónvarpsþáttaröð.
Ljóskur hugga Rod
Rod Stewart virðist nú ekki vera
að farast úr ástarsorg þó að hann
hafi grátbænt eiginkonu sína,
Rachel Hunter, um að snúa aftur
heim.
Frá því að Rachel fór hefur hann
sést yfirgefa næturklúbb með tvær
blondínur í taumi. Kappinn hefur
einnig sést með fyrrverandi vin-
konu sinni, Kelly Emberg, og virtist
fara nokkuð vel á með þeim. Vinir
Rods segja að samvera hcms með
blondínunum sé liður í því að
lækna hjartasárið. Rod þurfi á slíkri
lækningu að halda eins og
áfengissjúklingur þarf frí með
Oliver Reed sem er alræmd
fyllibytta.
Rod og Rachel gáfu út yfirlýsingu
á dögunum um að þau hefðu slitið
sambúðinni. Síðan hefur verið
tilkynnt að Rachel hafi ekki farið
langt heldur búi í nágrenni við Rod
bamanna vegna. Hann kvaðst vera
harmi sleginn og vonast til að þau
gætu náð sáttum.
Kunnugir segja að Rachel hafi
verið orðin leið á kvenseminni í
Rod og drykkjunni. Hann lofar bót
og betran til að fá eiginkonuna
fogru, sem er rúmum tveimur
áratugum yngri en hann, heim á ný.
Jóakim prins
vill eignast son
Jóakim prms í Danmörku á
enga ósk heitari en þá að eignast
son sem gæti tekið við búrekstr-
inum i Schackenborgarhöll á Suð-
ur-Jótlandi. Alexandra prinsessa,
eiginkona hans, hefði heldur ekk-
ert á móti þvi að heyra í tiplandi
barni á hallargöngunum, að því
er Billed Bladet segir. Hún segist
bara ekki haft tima til að eignast
börn fram að þessu. Það muni þó
gerast þegar aðstæður leyfa og
allt er til reiðu.
Sukksporin á
andliti Madonnu
Kúnnugir telja næsta öruggt að
kynbomban Madonna muni fara í
andlitslyftingu áður en langt um
líður. Húðin í andliti hennar er
ekki lengur mjúk eins og bams-
rass. Hvemig mætti það líka vera
eftir allt sukkið og svínaríið í
gegnum tíðina. Ekki fékk efnis-
hyggjustúlkan svo meiri svefii eft-
ir að dóttirin Lourdes kom í
heiminn, ekkert fremur en aðrar
nýbakaðar mæður. Allar vökum-
ar eru famar aö taka sinn toll á
þessu fallega andliti sem eitt sinn
var og verður kannski á ný.