Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1999, Side 2
2
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1999 JjV
0éttir
Lítill hundur í tættri kápu við Reykjalund í fyrrinótt:
stuttar fréttir
Hjukrunarkona sa Tinu
Tínu leitað
4- ia"“ar:
Tína fer i pössun í Garöabæ
! 5. janúar:)
Tína hleypur út af gæsluheimilinu
og týnist______
(8.-10. janúar:
Um 30 manns leita Tínu í skógum
Mosfellsbaejar og víöar.
Vísbendingar farnar aö berast
víöa aö. Spor talin áþreifanleg
merki um feröir Tinu í Mosó
18.-20. janúan]
Gildrum meö mat komið fyrir
víða í nágrenni gæsluheimilisins
22.-24. janúan
Vilmundur Þorgrímsson frá
Seyðisfiröi leitar Tínu með
sporhund í Mosfellsbæ
(27. janúar:
Hitamyndavél notuö viö leit aö Ttnu
(28. janúar:
Sterkar vísbendingar - nágrannar
í Mosfellsbæ tilkynna um
„horfinn mat“ utandyra.
Ókyrrö í rólegum hundum
(karlkyns) í nágrenninu
[29. janúar
Starfsmaður á Reykjalundi
telur sig hafa séö Tínu aö
næturlagi I slitinni kápu
íslensku tónlistar-
verðlaunin
íslensku tónlistarverðlaunin verða
afhent 1 sjötta skipti 11. mars næst-
komandi. DV stendur að verðlaunun-
um í samstarfi viö fagfélög tónlistar-
manna og hljómplötuútgefenda.
Val íslensku tónlistarverðlaun-
anna er með breyttu sniði í ár. Um
500 manns sem starfa að tónlist í víð-
asta skOningi hafa fengið í hendurn-
ar atkvæðaseðla frá stjóm verðlaun-
anna.
Senda þarf inn atkvæðaseðilinn
fyrir 8. febrúar.
Lögregla rannsakar ummerki við
tvo gáma fyrirtækisins Löndunar á
Austurbakkanum í Reykjavík síð-
degis í gær. Brotist var inn í gámana
í gærdag Rækjunni var landað á
fimmtudagskvöld úr rækjuskipinu
Hersl. Svo virðist sem rækjuþjófarn-
ir hafi athafnað sig um hábjartan
dag. DV-mynd S
„Ég var á vaktinni þegar ég talaði
við eina af hjúkrunarkonunum. Hún
sagði: „Ég sá tíkina." Hún var fyrir
utan gluggann, um hundrað metra
frá. Hjúkrunarkonan sagði að tíkin
hefði verið í kápu eða poka sem var
allur í tætlum. Ég fór út og ætlaði
bara að gera eins og stóð í DV - að
eina vonin væri að henda sér á tík-
ina,“ sagði Guðmundur G. Guð-
mundsson, vaktmaður á Reykja-
lundi, sem fylgdi sporum týndu tík-
arinnar Tínu fyrir utan endurhæf-
ingarstöðina um klukkan sex í fyrr-
inótt - varla meira en tæpan kíló-
metra frá heimilinu Ásbúð þaðan
sem tíkin strauk þann 5. janúar.
Guðmundur segist fullviss um að
spor sem voru í snjónum séu eftir
Tínu.
„Hjúkrunarkonan var alveg örugg
um að þetta væri týnda tíkin og
sagði að hún hefði farið hratt yfír,“
sagði Guðmundur. „Pokinn sem var
utan um hana var allur í tætlum. Ég
veðraðist allur upp við að heyra
þetta. Mest var ég ánægður að heyra
að tíkin væri á lifi. Ég ákvað strax
að fara að leita að henni. Áður en ég
fór út í grenjandi rigninguna fór ég í
skó og úlpu. Þegar ég sá sporin fylgdi
ég þeim niður að Engjavegi. Þar tók
við svell og ég missti af slóðinni,"
sagði Guðmundur. Hann kvaðst ætla
að hafa augun hjá sér á næstu næt-
urvöktum:
„Ég vil allt gera til að þessi tik
komist undir manna hendur," sagði
hinn knái vaktmaður.
Aldrei vonlaus
„Ég hef alitaf fundið fyrir tíkinni
héma í kring,“ sagði Kristín Erla
Karlsdóttir, gæslukona Tínu, sem
fékk tilkynningu frá Reykjalundi um
hina áþreifanlegu vísbendingu um
Tínu snemma í gærmorgun. Kristín
brosti út að eyrum þegar hún var
spurð hvort þetta væru ekki fyrstu
fréttirnar sem taldar væru óyggjandi
um að Tína væri enn þá í nágrenn-
inu.
„Tíkin er mest á ferðinni á nótt-
unni þegar hún er nær örugg um að
enginn er á ferðinni," sagði Kristín
sem var að steikja ilmandi nauta-
hakk handa Tínu - hvítlaukskrydd-
að og feitt kjöt sem sett var í gildrur
í nágrenni við heimili hennnar -
gildrur sem Kristín telrn- reyndar að
tíkin sjái við. Hún sagði að næstu
skref yrðu hugsanlega að standa
vakt og bíða tíkarinnar - „hringja
sig saman", sæta lagi, reyna að loka
tíkina af og stökkva síðan á hana þar
sem til hennar næst.
„Ég hugsa stundum til þess sem
Vilmundur Þorgrímsson frá Seyðis-
firði, eigandi sporhundsins, sagði
við mig: „Þú verður bara að vera þol-
inmóð. Þetta er eins og að leita að
nál í heystakki!" -Ótt
Hér eru tveir hljóðfæraleikarar Sinfóníunnar, þær Þórdís Stross og Margrét Kristjánsdóttir, með nýja búninginn sem
á ýmsu hefur gengið með. DV-mynd Hilmar Þór
Sinfónían kaupir einkennisbúning:
Pilsbuxurnar hlupu upp að hné
- helmingnum stolið í París
Stjórn Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands hefur komið til móts við hljóö-
færaleikara sína og fjárfest í ein-
kennisbúningum fyrir alla hljóm-
sveitina. Hér er um að ræða
smókinga fyrir karlmenn og lakkskó
úr Herrahúsinu og pilsbuxur og
jakka fyrir kvenfólkið sem verslun-
in Tess viö Dunhaga lét sauma í Par-
ís. Pilsbuxur fyrir konurnar urðu
fyrir valinu svo kvenkyns selló-leik-
aramir gætu verið í stíl. Þá fengu
konumar italska spariskó úr Skó-
búð Kópavogs.
í París gerðist það svo að vöm-
flutningabifreið, sem var að flytja
helminginn af efninu sem átti að
fara í kvenbúningana, var rænt um
hábjartan dag. Efnið var uppselt og
þurfti því að kaupa annað með
annarri áferð. Kvenbúningamir eru
því ekki alveg eins.
„Þetta kemur ekki að sök. Það sér
enginn muninn utan úr sal,“ segir
Helga Hauksdóttir, skrifstofustjóri
sinfóníunnar. „En það var vissulega
óheppilegt að vöruflutningabílnum
var rænt.“
Nokkrar konur í sinfóníunni hafa
þvegið pilsbuxumar með þeim af-
leiðingum að þær styttust upp að
hné. En efnið er sem betur fer vel
teygjanlegt þannig að hægt var að
teygja skálmamar niður til hálfs.
„Við vitum ekki úr hvorri send-
ingunni þetta efni var en flestir hall-
ast að því að efnið sem var rænt með
vörubílnum í París hafi verið
betra," segir einn hljóðfæraleikar-
anna sem ekki vill láta nafns síns
getið en mjög skiptar skoðanir
munu vera um ágæti kvenbúning-
anna. Skiptast hljóðfæraleikarar þar
í tvö horn, eftir því hvort efnið þeir
fengu í klæðnaðinn. Um þetta segir
Hlíf Sigurjónsdóttir, formaður
Starfsmannafélags sinfóniunnar:
„Það em mismunandi gæði í efni
og lit en það var fallegur heildar-
svipur á hljómsveitinni á fyrstu tón-
leikunum."
Einkennisbúningar sinfóníunnar
verða endurnýjaðir á fjögurra ára
fresti. -EIR
Rannsókn dr. Þorsteins Blöndals:
Ein sígaretta og fólk var fallið
734 m.kr. hagnaður
Rekstrar-
hagnaður FBA
hf. á árinu 1998
var 734 miiijón-
ir króna. Hagn-
aðurinn er í
samræmi við
áætlun sem birt
!■ var í skráning-
arlýsingu bankans í október 1998.
íslendingasögur á ensku
Samkvæmt frétt Morgunblaðs-
| ins ætlar Penguin Press útgáfúfyr-
r irtækið að gefa út á ensku tíu bæk-
ur með íslendingasögunum. Bæk-
urnar koma út á næstu þremur
árum og er talið víst að með útgáf-
j unni fái sögurnar meiri útbreiðslu
í enskumælandi löndum en áður.
Rannsaka hljóðritanir
Samkvæmt frétt Ríkisútvarps-
j ins er byrjað að kanna hljóðritanir
! Jóns Leifs tónskálds, sem fundust
| á koparhólkum í Sankti Péturs-
< borg og Austur-Berlín. Talið er að
hljóðritanimar hafi verið gerðar á
j árunum 1926-1930.
Nýr búnaður
Samkvæmt frétt Bylgjunnar
hafa fjögur sjúkrahús skuldbundið
sig til að prófa og þróa nýjan
j tæknibúnað til hjartalækninga
Isem hátæknifyrirtækið Flaga
framleiðir.
j SH kaupir
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
j hf. hefúr fest kaup á dótturfyrfr-
I tæki Ámess hf., Árnes Europe, í
Hollandi. SH og Árnes hf. munu í
Ikjölfar kaupanna auka verulega
samstarf sín á milli.
Bætt þjónusta
Samkomulag
hefur náðst um
það milli Geirs
H. Haarde fjár-
málaráðherra,
Ingibjargar
Pálmadóttur
heilbrigðisráð-
herra og yfir-
I valda í Hafnarfirði að kanna
: möguleika á því að sameina heil-
Ibrigðisstofnanir í Hafnarfirði.
Borgey keypt
Skinney hf. og Þinganes ehf. á
IHomafirði keyptu á fimmtudag
meirihiuta hlutafjár í Borgey hf. á
Homafirði.
7,85% aukning
Á síðasta ári komu 1.585 þúsund
I gestir í almenningssundlaugamar
1 í Reykjavík og em það um 115.000
I fleiri gestir en árið áður. Þetta er
jj 7,85% aukning.
Aukin samkeppni
Northwest Airlines tilkynnti í
I dag að félagið hygðist hefja daglegt
f flug á milli Minneapolis/St. Paul
j og Ósló 1. maí. Frá Ósló býður
I Northwest Airlines upp á áfram-
í; haldandi flug tO tólf borg í Noregi
C og Svíþjóð í samvinnu við norska
(. flugfélagið Braathens. Flugleiðir
1 bjóða einnig upp á Minneapolis/St.
C Paul og hafa verið að stíia inn á
1 Skandinavíumarkað um Keflavík-
I urflugvöll. Þetta kemur fram á
I Viðskiptavef VB á Visir.is
Vill 65 milljóna hagnað
Rekstraráætlun Skýrr hf„ sem
j samþykkt var á stjómarfúndi í
! ’ gær, gerir ráð fyrir að velta móð-
: urfélagsins á þessu ári muni nema
; 1255 rniiij. kr. og hagnaður eftir
1 skatta muni nema 65 miiijónum.
j Félagið mun tilkynna afkomu síð-
! asta árs 11. febrúar nk.
Byggö í Grafarholti
„Það er erfitt að komast inn í
þetta blað með greinar, þeir hafna
víst 95% þess efnis sem þeir fá,“
sagði dr. Þorsteinn Blöndal, yfir-
læknir og sérfræðingur í lungna-
sjúkdómum á Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur í gær, að vonum
ánægður með að komast í hóp útval-
inna með læknisrannsókn sem
hann gerði á 237 reykingamönnum í
Reykjavík. Fréttinni af rannsókn-
inni hefur veriö dreift af alþjóðleg-
um fréttastofum. Eins og DV
greindi frá hefur hið virta lækna-
timarit British Medical Journai birt
ritgerð um rannsókn sem Þorsteinn
gerði á vegum Heilsuvemdarstöðv-
ar Reykjavíkur fyrir nokkrum
árum. Niðurstaðan úr þeirri rann-
sókn gaf merkilegar niðurstöður.
Rannsóknin tók sex ár. Lyfjagjöf
var hætt eftir eitt ár, en síðan var
beðið í 5 ár. Tveim spurningum
þurfti að svara: Hvemig famaðist
fólkinu meðan á lyfjatökunni stóð?
og: Hvernig famaðist því eftir að
hætt var að taka öll lyf?
Þorsteinn segir að munurinn á
hópunum hafi veriö tvöfaldur eftir 6
mánuði, þrefaldur eftir eitt ár og
tvöfaldur eftir fimm ár. Þeir sem
nutu nefúða með nikótíni og
nikótínplásturs stóðu sig ævinlega
betur en hinir, sem aðeins fengu
eitrið úr plástrinum. Þorsteinn seg-
ir að það sé kjami málsins að ár-
angurinn skuli vera 27% eftir eitt
ár, það sé mjög hátt hlutfall. Sér-
staklega þegar tillit sé tekið til þess
að alit var mjög strangt. Jafnvel ein
sígaretta þýddi að viðkomandi var
fallinn út úr rannsókninni.
Reykingar eru ekki á uppleið að
nýju eins og margir halda. Þor-
steinn segir að kyrrstaða hafi ríkt
frá 1992 til 1996, en eftir tóbaks-
hækkunina í fyrra hafi tíðni dag-
legra reykinga minnkað í 28-29% og
haldist í því hlutfalli. Árið 1985
reyktu 45% íslendinga á aldrinum
18 til 69 ára. Fallandinn frá þeim
tíma, á 15 ámm, er hálft til eitt pró-
sent á ári.
Reykingar em hins vegar vax-
andi heilsuvandamál heimsins. í
Kína deyr ein milijón manna á ári
vegna sígarettunnar. Sagt er að tó-
bakið sé eina stóra orsök dauðsfalla
utan HIV/AIDS sem fer vaxandi nú
um stundir. -JBP
Ingibjörg Sól-
I rún Gísladóttir,
borgarstjóri
Reykjavíkur,
sagði í gær að
framkvæmdir
| við veglagningu
| og holræsagerð
1 í Grafarholts-
I hverfi myndu hefjast á þessu ári.
■ Hins vegar gætu húsbyggingar
j: ekki hafist fyrr en á næsta ári.
-BÓE