Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1999, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1999, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1999 mttir Barist um sæti Sæti sefn frambjðöendur sækjas^ eftir eru merkt með rauðum hring. 1. SÆTI Hólmsteinn . Samfylkingarinnar Alþýðubandalagið Heimir Mér Kvennalistinn Guörún KVENNALISTIIMIM 4. SÆTI Borgþór riCT Sögulegt prófkjör sameinaðra vinstri afla í dag: Þrír flokkar deyja - samfylking í staðinn Ekki er ólíklegt að 5-10 þúsund Reykvíkingar leggi leið sína á fjóra prófkjörsstaði samfylkingarinnar í Reykjavík í dag og leggi lóð á vogar- skálar einhverra hinna 24 frambjóð- enda, sem þar blasa við í þrem flokkskössum eða hólfum. Hér er um nýstárlegt og sögulegt prófkjör að ræða. Þrjú stjórnmálaöfl leggja saman krafta og um leið eru þrír stjómmálaflokkar að hverfa af sjón- arsviðinu. Almennt era menn á sama máli og Bryndís Hlöðversdótt- ir sem sagði í gær: „Það verður ekki til baka snúið. Við eram búin að stofna stór stjómmálasamtök sem eru komin til að vera. Staðreyndin er að flokkarnir sem slíkir munu brátt hætta störfum, tími þeirra er liðinn." Margir þátttakenda í prófkjörinu era nýgræðingar í galopnum próf- kjörum. Kvennalisti hefur ekki áður viðhaft prófkjör og Alþýðu- bandalagið hefur látið nægja tiltölu- lega lokað forval. Nokkrir í krata- kassanum kunna hins vegar vel til verka í prófkjörshasarnum. Vegna þeirrar reynslu hefur Svavar Gests- son talað um „vel smurða prófkjörs- vél“ kratanna, sem hann óttast að sópi til sín fylginu, og eflaust hefur hann sitthvað til síns máls. Kvennalistakassinn: Oðruvísi vinnubrögð Frambjóðendur Kvennalista mæta ef til vill til leiks allvigmóðar eftir langdregin og þrjóskuleg slags- mál við samstarfsflokkana tvo i lok síðasta árs. Eins og stundum áður vinnur hin hagsýna húsmóðir öðru- vísi en karlkyns stjórnmálamenn. Þær reka til dæmis sameiginlega kosningaskrifstofu í höfuðstöðvun- um við Austurvöll, en vinna þar fyr- ir utan úr heimilissímum sínum og farsímum. Allar eru þær vinkonur - en kannski mest á yfirborðinu eins og sakir standa. Við fyrstu sýn virðist slagurinn aðeins standa milli Guðnýjar Guð- björnsdóttur alþingismanns og Guð- rúnar Ögmundsdóttur, fyrrverandi borgarfulltrúa í Reykjavík, sem nýt- ur ekki síður vinsælda. En þarna kann að fara öðruvísi en margir ætla. Greinilegt er að Hulda Ólafs- dóttir, sjúkraþjálfari og fyrram varaborgarfulltrúi, er sögð vera eins konar ljósmóðir samfylkingar- framboðs Kvennalistans, er mjög heit og vinnur vel. Sótt er að Guðnýju úr ýmsum átt- um, segir síðasta samsæriskenning- in, en sitjandi þingmaður situr venjulega þungt í sæti sínu. Guðný gefur lítið út á meint samsæri, seg- ir þetta samkeppni í Kvennalista- stíl. „Ég hef orðið vör við annars kon- ar áróður, og hann er gegn Kvenna- listanum og sagt að það sé óþarfi að kjósa okkur vegna þess að við séum Innlent fréttaljós með „girðingar". Það er ekki rétt, þvi það skiptir verulegu máli hvað við fáum mörg atkvæði upp á það hvaða sæti við fáum. Það skiptir miklu að Kvennalistinn komi vel út úr þessu,“ sagði Guðný. Hún segir að áberandi sé að fólk er óánægt með að geta ekki kosið á milli hólfa. Það muni draga úr þátttöku í próf- kjörinu. Konurnar innan Kvenna- listans eiga erfitt með að tjá sig um einstaka frambjóðendur opinber- lega, ólíkt því sem er að gerast í öðr- um flokkum. Þó birtust fyrstu stuðningsgreinar við einstaka fram- bjóðendur í Morgunblaðinu í fyrra- dag, stuðningur við Guðnýju. Guðrún Ögmundsdöttir viður- kennir- að hún hafi í raun hætt við að hætta í pólitík og tekið ákvörðun um það á hálfum öðrum degi. „Ég spila þetta maður á mann, það er gamla aðferðin, auk einnar auglýs- ingar sem var kostuö fyrir mig,“ sagði Guðrún. „Það er mikilvægt að við fáum mikið af atkvæðum í okk- ar box. Okkar vinnubrögð munu skila sér vel í þessu samstarfi," sagði Guðrún. í kassa Kvennalista: Ásgerður Jó- hannsdóttir, Fríða Rós Valdimars- dóttir, Guðný Guðbjörnsdóttir, Guð- rún Ögmundsdóttir, Hólmfríður Garðarsdóttir og Hulda Ólafsdóttir. Alþýðubandalagskass- inn: Svavar tekur af- stöðu með Arna Þór Vilhjálmur V. Vilhjálmsson, sem stefnir á 3. sætið, ungi maðurinn í þessum kassa, kemur sterkur til leiks. Hann hefur stuðning frá hóp- um stúdenta í Háskólanum. Og sem sterkur fótboltamaður með Þrótti, munu Köttarar félagsins og aðrir fé- lagar koma og styrkja hann. Auk hans getur Heimir Már Pétursson komið á óvart, dugmikill baráttu- maður, sem stefnir á 1. til 3. sæti, þekktur fréttamaður af sjónvarps- skjánum, sem ekki spiliir beinlínis fyrir. Meginkeppnin í hólfi allaballa er þó milli Árna Þórs Sigurðssonar, aðstoðarmanns Ingibjargar Sólrún- ar, og Bryndísar Hlöðversdóttur al- þingismanns, sem keppir að odd- vitasæti sameiningarlistans í vor. Árni Þór hefur fengið blessun fyrr- verandi oddvita flokksins í Reykja- vík, Svavars Gestssonar, sem og eig- inkonu hans, Guðrúnar Ágústsdótt- ur, forseta borgarstjórnar Reykja- vikur. Það kann að skipta verulegu máli. „Ég er með minn hóp bak við mig og er hvergi bangin, jarðvegurinn virðist vera frjór," sagði Bryndís Hlöðversdóttir. Hún barðist gegn hólfa- eða kassafyrirkomulaginu, vildi hafa opið milli. „Þannig hefði samfylkingin orðið miklu trúverð- ugri,“ segir Bryndís. Árni Þór Sigurðsson segir að kjörið leggist vel í sig. Mikilli vinnu var að ljúka á skrifstofu hans við Lækjartorg í gær. Hann segist hafa haft harðsnúið lið sem hefur aðstoð- að hann undanfarnar tvær vikur. í kassa Alþýðubandalagsins: Am- ór Pétursson, Árni Þór Sigurðsson, Bryndís Hlöðversdóttir, Elísabet Brekkan, Guðrún Sigmjónsdóttir, Heimir Már Pétursson, Herbert Hjelm, Magnús Ingólfsson, Vil- hjálmur H. Vilhjálmsson. Alþýðuflokkskassinn: Mörg og ólík egg Össur Skarphéðinsson stefnir á sigur í prófkjörinu og margir spá honum toppsætinu á lista samfylk- ingar í vor. Hann hefur greinilega mikinn byr, ekki síst meðal yngri kjósenda, samanber heilsíðuauglýs- ingu með nöfnum 500 ungra stuðn- ingsmanna. Vitað er að Össur skor- ar í fleiri hópum, jafnt innan Al- þýðuflokksins, sem hann hefur unn- ið fyrir í 9 ár, sem og utan flokksins og inn í raðir fyrrverandi félaga í Alþýðubandalaginu. „Ég er að keppa við Jóhönnu um efsta sætið í Alþýðuflokkshólfinu. Hún er mikil- hæfur stjórnmálamaður sem aug- ljóslega hefur góðan stuðning," seg- ir Össur. Hann segir að undirtektir við prófkjörið í heild bendi til að sameiginlega framboðið nái mun betri árangri hjá ungu fólki í vor en kannanir hafa gefið til kynna. Hann bendir á Vilhjálm H. Vilhjálmsson í Alþýðubandalagshólfinu sem hafl spriklað af miklu fjöri og náð miklu fylgi meðal yngri kjósenda. Ungur maður í kratahólfinu er Magnús Árni Magnússon alþingis- maður, sem tók við þingsæti Ástu heitinnar Þorsteinsdóttur í vetur. Hann er spurningarmerki í barátt- unni, hefur unnið vel, og ætti að njóta kratagena og mikillar vinnu fyrir flokkinn um árabil. Spennandi verður að fylgjast með árangri hans í prófkjörinu. Ljóst þykir að Jóhanna Sigurðar- dóttir muni sópa að sér atkvæðum. Hún segist stefna á að leiða fram- boðslistann í vor. Spumingin er hvort eðalkratar hafa fyrirgefið henni brotthlaupið úr flokknum á sínum tíma, sem olli mikilli upp- lausn í Alþýðuflokknum. „Ég er úti á meðal fólks, á akrinum ef svo má segja, og finn góðar undirtektir á vinnustöðum og úti á götunni," sagði Jóhanna Sigurðardóttir. Hún hefur kosningamiðstöð í Sóknar- salnum í Skipholti 50a og þar hefur verið stríður straumur af fólki. Aðspurð hvort segja mætti að hún væri komin „heim“ sagði Jó- hanna: „Ég er komin heim ef það hefur tekist að sameina jafnaðar- menn og félagshyggjufólk. Ég lagði upp með þetta 1995, sameiningu vinstri manna. Ég er því afar ánægð að sjá svo stórt skref stigið í þá átt.“ Hún segist vilja líta á alla frambjóð- endur sem eina heild, ekki hugsa um fólk í hólfum. Hún fyndi að fólk hugsaði á sömu nótum, það vildi helst kjósa af einum lista og þannig yrði það næst. Jóhanna viðhafði þau fleygu orð um árið að sinn tími mundi koma. Hún segir að sá tími sé að renna upp. „Við skulum sjá til á laugar- daginn," sagði Jóhanna Sigurðar- dóttir. Jakob Frimann Magnússon Stuð- maður lætur að sér kveða í próf- kjörsslagnum, gefur kost á sér í annað sætið í Alþýðuflokkshólfinu. Hann fékk óvæntan en umdeildan stuðning frá sendiherra íslands í Washington, Jóni Baldvin Hanni- balssyni. Jakob segir að þetta bréf formannsins fyrrverandi hafi farið eitthvað i taugarnar á keppinautun- um.Bréfið sé sér mikils virði og ekki skipti hann sér af því hverjir skrifa upp á fyrir Ástu og Mörð. Jakob er eðalkrati til fimmtán ára og á kosningaskrifstofu hans má greina gamla „tindáta" úr starfi Al- þýðuflokksins til margra ára. Jakob og frú Ragnheiður búa tvöföldu búi, öðru í Hafnarfirði en hinu í Ful- ham, sem hann kallar Litlu-Reykja- vík. Hann segist vongóður og gangi glaður til leiks, tilbúinn að flytja al- farið heim gerist þess þörf. Reykja- vík sé ein skemmtilegasta borg heims. í kassa Alþýðuflokksins: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Borg- þór Kjærnested, Hólmsteinn Brekk- an, Jakob Frímann Magnússon, Jó- hanna Sigurðardóttir, Magnús Árni Magnússon, Mörður Árnason, Stef- án Benediktsson, Össur Skarphéð- insson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.